Morgunblaðið - 26.10.1999, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999 57 f
Samstaða neytenda
gegn fákeppni og
verðhækkunum
SJALDAN hefur
verið meiri þörf á því
en um þessar mundir
að neytendur standi
saman og gæti hags-
muna sinna í sterkum
samtökum. Við höfum
fylgst með því undan-
farin misseri hvernig
dregið hefur úr sam-
keppni á matvöru-
markaði vegna
blokkamyndana og
þróunin sýnir að verð-
lag er á uppleið. Neyt-
endasamtökin hafa
hvað eftir annað lýst
yfír áhyggjum sínum
vegna vaxandi fá-
keppni og verðsamráðs og gert sitt
til þess að hamla gegn þessari þró-
un, meðal annars með verðkönnun-
um og öðru aðhaldi. Ljóst er þó að
betur má ef duga skal. Því leita
Neytendasamtökin nú eftir stuðn-
ingi almennings í landinu tii þess að
efla starf samtakanna. Markmið
okkar er að fjölga félagsmönnum í
samtökunum verulega en það gerir
okkur kleift að efla aðhald með
markaði sem einkennist af vaxandi
fákeppni og verðsamráði.
Neytendasamtökin líta á það
sem meginhlutverk sitt um þessar
mundir að hamla gegn hækkunum
á verði, vöru og þjónustu. Við leit-
um eftir þátttöku almennings í því
starfi, ekki eingöngu með því að
styrkja starf samtakanna, heldm-
einnig með því að halda vöku sinni
og láta samtökin vita um óeðlilegar
hækkanir á markaðnum. Það má
gera í síma 562 5000 og á vefnum;
www.ns.is.
Hagsmunir neytenda
Neytendasamtökin hafa um ára-
raðir gætt hagsmuna neytenda
gagnvart stjórnvöld-
um og fyrirtækjum og
haldið uppi fræðslust-
arfi, meðal annars
með útgáfu Neytenda-
blaðsins. Samtökin
hafa staðið fyrir stofn-
un úrskurðamefnda
til að tryggja að neyt-
endur geti á fljótvir-
kan og ódýran hátt
fengið úrlausn á deilu-
efnum sínum við selj-
endur vöru og þjón-
ustu. Þau hafa einnig
fylgst með og haft
áhrif á setningu laga
sem varða hag neyt-
enda og haldið sjónar-
miðum neytenda á lofti gagnvart
framleiðendum og seljendum. Starf
samtakanna fer ekki alltaf hátt en
engum blöðum er um það að fletta
að þau hafa oft náð árangri í bar-
áttu sinni. Neytendasamtökin njóta
mjög takmarkaðs stuðnings stjóm-
valda í starfi sínu, ólíkt neytenda-
samtökum í mörgum öðrum
Evrópulöndum. Þau byggja því
starf sitt og afkomu fyrst og fremst
á félagsgjöldum frá almenningi.
Starf samtakanna stendur og fellur
með því að almenningur sé reiðu-
búinn að leggja því lið.
Samstaða
Neytendur í landinu geta ekki
látið yfir sig ganga þá þróun sem
orðið hefur á undanförnum misser-
um. Samþjöppun eignarhalds í
matvömverslun í landinu leiðir til
þess að vömverð hækkar. Sammni
og samráð fyrirtækja á grænmetis-
markaði hefur getið af sér fullkom-
lega óeðlilegar aðstæður á mark-
aðnum. Enn má benda á meira og
minna opinbert samráð olíufélaga
og tryggingafélaga. Gegn þessu
Neytendur
N eytendasamtökin
njóta mjög takmarkaðs
stuðnings stjórnvalda í
starfí sínu, segir
Jóhannes Gunnarsson,
ólíkt neytendasamtök-
um í mörgum öðrum
Evrópulöndum.
verður að sporna og til þess verðum
við að hafa öflug neytendasamtök.
Þessa dagana og á næstu vikum
mega neytendur eiga von á símtali
þar sem þeim er boðið að gerast fé-
lagsmenn í Neytendasamtökunum
og taka þannig þátt í að efla hags-
munagæslu neytenda. Von mín er
sú að málaleitan okkar verði vel
tekið. Slagkraftur samtakanna í
þeirri baráttu sem framundan er
gegn fákeppni og verðhækkunum
byggist á því að undirtektir verði
góðar!
Höfundur er formaður
Neytendasamtakanna.
Stórluifða 17, við Cullinbrú,
síini 567 4844.
www.flisí''flis.is • nctfang: flisC'' itn.is
Jóhannes
Gunnarsson
Leyfðu villtustu draumum bragðlaukanna að rœtast
ViUibráðarhlaðborð Vínsmökkun
15. október - 17. nóvember Víngerðarmaðurinn Richard Bouyrou frá
öll kvöld, frá fimmtudegi Joseph Drouhin valdi vín á villibráðar-
til sunnudags. Verð 4.590 kr. vínseðilinn okkar.
Gestum Perlunnar gefet kostur á smökkun
nmm* á þessum vinum fyrir matinn.
mánudags-, þriðjudags- og
miðvikudagskvöld. Verð 3.990 kr.
Borðapantanir ísíma 562 0200
*> S Át OTf
<Stmdur
m ]i □ i
i i il r eriimni
MAYBELLINE
ÚTSÖLUSTAÐIR
Hagkaup Kringlunni
Hagkaup Smáratorgi
Hagkaup Skeifunnl
Apótekið Krlnglunni
Apótekið Smáratorgi
Apóteklð Spönginni
Apótekið Suöurströnd
Apótekiö Mosfellsbæ
Fjarðarkaup Hafnarf.
Samkaup Njarövfk
FLJÓTPORNANDI NAGLALAKK
á aðeins 1 mínútu