Morgunblaðið - 26.10.1999, Síða 58
MORGUNBLAÐIÐ
* 58 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
HESTAR
Listi yfír útflutt afkvæmi stóðhesta
Ný mælistika á vin-
sældir stóðhesta
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Funi frá Skálá er án efa eitt frægasta afkvæmi Hervars sem flutt hef-
ur verið úr landi en Einar Öder Magnússon keppti á honum á HM ‘93 í
Hollandi, þar sem myndin er tekin, með góðum árangri.
Ýmsar mælistikur eru
notaðar til að meta
gæði stóðhesta í
íslenskri hrossarækt.
Grunnurinn þar er
dómstiginn sem ein-
staklingsdómurinn
byggist á og þá höfum
við kynbótamatið
(BLUP). Þriðja dóm-
stigið gæti verið
brekkudómar sem
endurspeglast í þeirri
notkun sem hestarnir
fá. Fjórða möguleik-
anum, sem vakti athygli
Valdimars Kristinsson-
ar, hefur ekki verið
mikið haldið á lofti en
það er hvaða stóðhestar
eru auðseljanlegastir.
IÞEIRRI heitu umræðu ár-
anna hvernig eigi að móta
ræktunarstefnuna hafa augu
ræktunarmanna í ríkari mæli
beinst að því hvaða hestgerðir selj-
ist best. I framhaldi af því hafa
komið upp vangaveltur hvaða hest-
ar gefí bestu söluhrossin, hvað séu
bestu söluhestamir. Hafa þar kom-
ið upp nokkur nöfn sem hafa fengið
þennan sölustimpil, það er hestar
sem gefa auðseljanleg hross. Má
þar nefna hesta eins og Adam frá
Meðalfelli, sem þykir gefa auðtam-
in hross, hóflega viljug og gang-
hrein. Svipaða sögu má segja um
Platon frá Sauðárkróki og Litfari
* frá Helgadal, sem hefur reyndar
verið seldur úr landi, þótti gefa góð
reiðhross þótt sköpulag sumra
þeirra stigaði ekki mikið í dómskal-
anum. Þá hefur heiðursverðlauna-
hesturinn Stígandi frá Sauðárkróki
þótt koma vel út í reiðhestafram-
leiðslunni þótt sumir fullyrði að til
beggja vona geti brugðið með
geðslagið í sumum afkvæma hans.
Sörli frá Búlandi hefur einnig skip-
að sér á þennan bekk. Hálfbróðir
Adams og jafnaldri, Viðar frá Við-
vík, hefur þótt falla vel inn í þenn-
an hóp en sérstaka athygli vakti
1994 þegar hann uppfyllti öll skil-
yrði til að verða sýndur til heið-
ursverðlauna á landsmótinu á
'Gaddstaðaflötum en ekki reyndist
unnt að smala saman 12 afkvæm-
um undan honum. Búið að selja allt
úr landi, var fullyrt. Sjálfsagt
mætti telja til fleiri hesta en þessi
upptalning látin nægja.
Hrossaræktin hefur á undan-
förnum árum verið að breytast úr
einhverri háleitri hugsjón þar sem
menn rækta fjörháan draumagæð-
ing sem er á fárra meðfæri að
höndla yfír í framleiðslu á góðri
söluvöru sem nýtur almannahylli
og fólk getur höndlað svo vel fari.
* 'Orðið arðsemi er að verða kunnug-
legt orð hjá hrossaræktendum og
ræktunaráformin eru farin að snú-
ast um að vera með góða vel seljan-
lega vöru sem framleidd er á sem
hagkvæmastan máta. Það er því
forvitnilegt að skoða hvaða hestar
seljast best. Að sjálfsögðu eru eng-
ar tölur til eða skrá um sölu hrossa
' á innlendum markaði, þar er allt í
þokumistri svo vart sér handaskil.
Óðru máli gegnir með útflutning-
inn, þar er allt skráð og nú er hægt
að fá skrá yfir fjölda útfluttra af-
kvæma hvers stóðhests fyrir sig
frá mars 1995. Jón Baldur Lorange
forstöðumaður tölvudeildar hjá
Bændasamtökunum tók saman
slíkan lista íyrir Morgunblaðið og
er hann að sjálfsögðu afar fróðleg-
ur. Þar kemur í Ijós að hinir
svokölluðu söluhestar sem að ofan
var getið eru ekki í efstu sætum
listans. Á toppnum trónir sá um-
deildi hestur Hervar frá Sauðár-
króki með 112 útflutt afkvæmi á
þessum tíma frá 1995 til þessa
dags.
Það kemur sjálfsagt mörgum á
óvart að Hervar skuli vera þarna í
efsta sæti, hestur sem hefur átt
býsna erfítt uppdráttar í hinni
harðsvíruðu stóðhestaumræðu. Þá
vekur það einnig athygli að listinn
er keimlíkur röðinni í kynbótamat-
inu sem hlýtur að styðja stefnuna í
hrossaræktinni. Sjálfsagt kemur
þetta þeim ekki á óvart sem hafa
haft fulla trú á ræktunarstefnunni.
En hinsvegar er þessi staða
Hervars ekki alveg í samræmi við
orðspor og vinsældir hans því á
síðustu árum hefur hann þrátt fyr-
ir heiðursverðlaunaviðurkenningu
og að hafa gefið af sér fjöldann all-
an af góðum hrossum fengið
slæma útreið brekkudómara víða
um land. I heimahéraði hans
Skagafirði hefur sannast hið forn-
kveðna að enginn er spámaður í
sínu föðurlandi. Skagfirðingar hafa
á síðustu árum verið tregir að nota
Hervar en betur hefur gengið að
fá hryssur undir hann í öðrum hér-
uðum. Ekki dregur það úr styrk
Hervars að tveir synir hans, Kjar-
val og Otur, eru á meðal fímm
efstu hestanna á listanum. Kjarval
í þriðja sæti með 110 afkvæmi en
Otur í fimmta sæti með 102 af-
kvæmi.
Sá mikli höfðingi Hrafn frá
Holtsmúla fylgir fast á hæla dótt-
ursonar síns með 111 afkvæmi og
kemur það ekki á óvart. Kemur þar
þrennt til, Hrafn entist mjög vel
sjálfur og var alla tíð mikið notaður
og að síðustu gaf hann mikið af
góðum afkvæmum. Það gat því
aldrei farið hjá að slíkur hestur
kæmist hátt á þessum lista en jafn-
framt má spyrja hvort staða hans
væri enn betri á þessum lista ef
hann væri byggður á útflutnings-
tölum frá til dæmis 1980. Hrafn á
nokkra syni á listanum og eni þar
efstir Fáfnir frá Fagranesi og
Þokki frá Garði í 8.-9. sæti með 85
afkvæmi. En í fjórða sætinu er
Ófeigur frá Flugumýri með 103 af-
kvæmi. Feykir frá Hafsteinsstöð-
um er með 88 afkvæmi og Gáski
frá Hofstöðum með 87 afkvæmi.
Ekki er hægt að skilja svo við
þessa upptalningu að ekki sé
minnst á sjálfan gullkálfinn Orra
frá Þúfu sem er í 11. sæti með 73
afkvæmi rétt neðan við Anga frá
Laugarvatni, sem er með 85 af-
kvæmi.
Hér á síðunni getur að líta 206
feður útfluttra hrossa sem eiga 12
útflutt afkvæmi eða fleiri. Eins og
áður sagði eru þetta útflutt hross
frá mars 1995 sem gerir það að
verkum að staða margra eldri
hestanna á listanum sem hafa
runnið sitt skeið er ekki sanngjörn
í samanburði. Listinn er því ekki
fyllilega marktækur í dag en eftir
því sem tímar líða mun gildi hans
vafalaust aukast og ekki ólíklegt
að hann muni gegna mikilvægu
hlutverki í markaðssetningu stóð-
hesta í framtíðinni. Af efstu hest-
unum nú á Hervar sjálfsagt eftir
að bæta við fjöldann og á það ekki
síður við um syni hans Otur og
Kjarval, sem eru aðeins 17 og 18
vetra gamlir, og að því er virðist í
fullu fjöri og fá góða notkun. Þá
má líklegt telja að Orri frá Þúfu
eigi eftir að taka stór stökk á
næstu árum og sjálfsagt ekki við
öðru að búast en hann muni tróna
á toppnum innan fárra ára. Það
virðist í fullu samræmi við annað á
lífsferli þessa hests.
Listi sem þessi getur verið leið-
beinandi fyrir hrossaræktendur en
gæta ber þess að hann veitir mjög
afmarkaðar upplýsingar og mun
tæplega verða grundvöllur fyrir val
á stóðhesti fyrir hryssur. Eigi að
síður gæti verið gott að hafa hann
til hliðsjónar og eins gæti hann
verið gagnlegur í umræðunni um
opinbera ræktunarstefnu.
SÖLUHÆSTU STÓÐHESTARNIR til útlanda 1
—-riy-' Seld afkvæmi Stóðhestur % vv til útlanda Seld afkvæmi Stóðhestur v til útlanda
1 Hervar 963 frá Sauðárkróki 112 104 Höfgi - frá Keldudal 22
2 Hrafn 802 frá Holtsmúla 111 105 Börkur - frá Laugarvatni 22
3 Kjarval 1025 frá Sauðárkróki 110 106 Svartur frá Unalæk 22
4 Ófeigur 882 frá Flugumýri 103 107 Asi - frá Brimnesi 21
5 Otur 1050 frá Sauðárkróki 102 108 Hrafnfinnur - frá Kviarhóli 21
6 Feykir 962 frá Hafsteinsstöðum 88 109 Segull - frá Sauðárkróki 21
7 Gáski 920 frá Hofsstöðum 87 110 Náttar - frá Miðfelli 21
8 Fáfnir 897 frá Fagranesi 85 111 Háfeti 804 frá Krossanesi 20
9 Þokki 1046fráGarði 85 112 Þröstur 908 frá Kirkjubæ 20
10 Angi 1035 frá Laugarvatni 85 113 Gustur 1003 frá Stykkishólmi 20
11 Orri - frá Þúfu 73 114 Erpur - frá Erpsstöðum 20
12 Náttfari 776 frá Ytra-Dalsgerði 71 115 Blær - frá Höfða 20
13 Stígur 1017 frá Kjartansstöðum 71 116 Bláþráður - frá Hrafnkelsstöðum 20
14 Gassi 1036 frá Vorsabæ II 70 117 Sokki - frá Sólheimum 20
15 Dreyri 834 frá Álfsnesi 69 118 Frami frá Bakka 20
16 Piltur - frá Sperðli 69 119 Sleipnir 785 frá Ásgeirsbrekku 19
17 Léttir - frá Sauðárkróki 67 120 Krummi frá Sólheimum 19
18 Máni 949 frá Ketilsstöðum 66 121 Sproti - frá Stórulág 19
19 Sokki - frá Kolkuósi 65 122 Pá - frá Laugarvatni 19
20 Amor - frá Keldudal 64 123 Djákni - frá Sleitustöðum I 19
21 Glaður - frá Sauðárkróki 61 124 Barði - frá Sauðárkróki 19
22 Leistur 960 frá Álftagerði 60 125 Hnokki - frá Árgerði 19
23 Stígandi - frá Sauðárkróki 60 126 Geisli frá Keldnakoti 19
24 Þáttur 722 frá Kirkjubæ 58 127 Kakali frá Stokkhólma 18
25 Garður - frá Litla-Garði 58 128 Kaldi 1012 frá Vindási 18
26 Kolfinnur 1020 frá Kjarnholtum 57 129 Geisli - frá Meðalfelli 18
27 Viðar 979 frá Viðvík 54 130 Svalur - frá Kárastöðum 18
28 Adam 978 frá Meðalfelli 53 131 Litfari - frá Helgadal 18
29 Ófeigur 818 frá Hvanneyri 52 132 Kolfinnur - frá Kvíarhóli 18
30 Riddari 1004 frá Syðra-Skörðugili 52 133 Páfi frá Kirkjubæ 18
31 Baldur - frá Bakka 50 134 Vafi frá Kýrholti 18
32 Sörli 876 frá Stykkishólmi 49 135 Seifur - frá Sauðárkróki 17
33 Huginn - frá Kirkjubæ 48 136 Ljósfaxi frá Röðli 17
34 Borgfjörð 909 frá Hvanneyri 47 137 Mökkur - frá Varmalæk 17
35 Bylur 892 frá Kolkuósi 46 138 Segull - frá Stóra-Hofi 17
36 Goði - frá Sauðárkróki 46 139 Máni frá Raufarfelli II 17
37 Kveikur - frá Miðsitju 46 140 Reykur frá Þóreyiarnúpi 17
38 Stígandi frá Hvolsvelli 46 141 Roði frá Kolkuósi 16
39 Sörli 653 frá Sauðárkróki 45 142 Hörður - frá Kolkuósi 16
40 Blakkur - frá Reykjum 43 143 Litur - frá Kletti 16
41 Sörli - frá Búlandi 43 144 Kliður frá Miðsitju 16
42 Hjörtur - frá Tjörn 42 145 Blakkur frá Flugumýri 16
43 Flosi 966 frá Brunnum 41 146 Hlekkur frá Hofi 16
44 Röðull - frá Akureyri 41 147 Gustur frá Grund 16
45 Reykur - frá Hoftúnum 41 148 Alskær II frá Vindási 16
46 Þristur1002fráStóra-Hofi 40 149 Svanur frá Röðli 15
47 Dagur - frá Kjarnholtum I 40 150 Skilir - frá Torfastöðum 15
48 Mergur 961 frá Syðra-Skörðugili 39 151 Blakkur - frá Hvítárbakka 15
49 Þytur1028fráEnni 39 152 Mökkur frá Þóreyjarnúpi 15
50 Þengill - frá Hólum 39 153 Kriki - frá Hellulandi 15
51 Snældu-Blesi 985 frá Árgerði 38 154 Eldur - frá Hólum 15
52 Júpíter 851 frá Reykjum 37 155 Mósart - frá Garðabæ 15
53 Galdur - frá Sauðárkróki 37 156 Dagur - frá Mosfellsbæ 15
54 Fákur 807 frá Akureyri 35 157 Sörli frá Ártúnum 15
55 Elgur 965 frá Hólum 35 158 Hrannar frá Kýrholti 15
56 Eldur 950 frá Stóra-Hofi 35 159 Kári frá Hemlu 14
57 Fáfnir 747 frá Laugarvatni 34 160 Draupnir - frá Hvolsvelli 14
58 Platon - frá Sauðárkróki 34 161 Gosi - frá Lækjarbakka 14
59 Prúður - frá Neðra-Ási II 34 162 Bjartur - frá Lágafelli 14
60 Toppur - frá Eyjólfsstöðum 34 163 Reykur - frá Holtsmúla 14
61 Stjarni - frá Melum 33 164 Héðinn frá Höfða 14
62 Ljóri 1022 frá Kirkjubæ 33 165 Kári - frá Grund 14
63 Sikill - frá Stóra-Hofi 33 166 Ljómi frá Svaðastöðum 14
64 Safír - frá Viðvík 33 167 Ásaþór - frá Stóra-Hofi 14
65 Eðall - frá Hólum 33 168 Sokki frá Steindórsstöðum 14
66 Gustur 923 frá Sauðárkróki 32 169 Vindur frá Bakkakoti 14
67 Fönix 903 frá Vík 32 170 Vákur frá Brattholti 14
68 Þytur - frá Glæsibæ 31 171 Logi frá Skarði 14
69 Merkúr - frá Miðsitju 30 172 Askur frá Hofsstaðaseli 14
70 Þjálfi - frá Keldudal 30 173 ÞorrifráÞúfu 14
71 Aspar - frá Sauðárkróki 30 174 Greifi frá Stokkhólma 13
72 Kraflar frá Miðsitju 30 175 Glæsir frá Leysingjastöðum 13
73 Hrafn - frá Hrafnhólum 29 176 Fengur - frá Reykjavík 13
74 Kolbeinn - frá Hraunbæ 29 177 Stjarni frá Vatnsleysu 13
75 Oddur frá Selfossi 29 178 Stormur frá Bjarnanesi 13
76 Fengur - frá Bringu 27 179 Fálki - frá Ási II 13
77 Tvistur - frá Krithóli 27 180 Þyrill frá Kópavogi 13
78 Smári - frá Borgarhóli 27 181 Öríon - frá Litla-Bergi 13
79 Flugar - frá Strandarhöfða 27 182 Vindskjóni frá Njálsstöðum 13
80 Ernir frá Efri-Brú 27 183 Vinur - frá Sumarliðabæ 13
81 Hlynur 910 frá Báreksstöðum 26 184 Mímir - frá Ytra-Skörðugili 13
82 Áll - frá Kýrholti 26 185 Hósías - frá Kvíabekk 13
83 Töggur - frá Eyjólfsstöðum 26 186 Trostan frá Kjartansstöðum 13
84 Byskup frá Hólum 26 187 Stormur frá Stórhóli 13
85 Höður 954 frá Hvoli 25 188 Brennir frá Kirkjubæ 13
86 Flugar - frá Flugumýri 25 189 Vinur frá Hraðastöðum I 13
87 Kolgrímur - frá Kjarnholtum I 25 190 Leiknir 875 frá Svignaskarði 12
88 Gjafar - frá Reykjavík 25 191 Brúnblesi 943 frá Hoftúnum 12
89 Sólon - frá Hóli 25 192 Fífill - frá Vallanesi 12
90 Léttir - frá Flugumýri 25 193 Blakkur - frá Hafnarnesi 12
91 Eiðfaxi 958 frá Stykkishólmi 24 194 Röðull - frá Ártúnum 12
92 Vinur 953 frá Kotlaugum 24 195 Asi - frá Ásmundarstöðum 12
93 Atli 1016 frá Syðra-Skörðugili 24 196 Funi - frá Skálá 12
94 Rektor - frá Jaðri 24 197 Fengur - frá Enni 12
95 Geysir - frá Gerðum 24 198 Stígandi frá Kolkuósi 12
96 Vonar-Neisti - frá Skollagróf 23 199 Sókron - frá Hóli 12
97 Hektor - frá Akureyri 23 200 Silfurtoppur-fráSigmundarstöðum 12
98 Svarti-Folinn frá Langárfossi 23 201 Geisli - frá Vallanesi 12
99 Hugur - frá Hofsstaðaseli 23 202 Sámur frá Eyrarbakka 12
100 Farsæll frá Ási I 23 203 Glæðir frá Hafsteinsstöðum 12
101 Galsi frá Sauðárkróki 23 204 lllugi frá Hlíðarbergi 12
102 Baugur frá Fjalli 22 205 VíkingurfráSelfossi 12
103 Ylur frá Bjarnastöðum 22 206 Ívan frá Hæringsstöðum 12