Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Samvera eldri
^ borgara í Laug-
arneskirkju
SAMVERUR eldri borgara eru
haldnar í Laugarneskirkju annan
hvern fimmtudag kl. 14-16. Þar er
ætíð glatt á hjalla og gott að koma.
Nú á fimmtudaginn 28. október
munu börn úr Laugarnesskóla sýna
dans undir stjórn kennara síns,
Ingibjargar Róbertsdóttur. Gunnar
Gunnarsson leikur undir almennan
söng og góðar veitingar verða í boði
- -eins og alltaf. Það er þjónustuhópur
Laugarneskirkju sem stýrir þessum
samverum ásamt sóknarpresti og
kirkjuverði. Hvetjum við alla eldri
borgara í sókninni til að nýta sér
þetta tækifæri sér til ánægju og
uppbyggingar í kirkjunni sinni.
Þjónustuhópur Laugameskirkju.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverð-
ur. Mömmu- og pabbastund í safn-
aðarheimilinu kl. 14-16.
Bústaðakirkja. Æskulýðsfélagið
fyrir unglinga í 8. bekk í kvöld kl.
19.30 í félagsmiðstöðinni Bústöðum.
Dómkirkja. Bamastarf í safnaðar-
heimilinu kl. 14 fyrir 6-7 ára börn,
- kl. 15.30 fyrir 8-9 ára böm og kl. 17
fyrir 10-12 ára böm. Æskulýðsfélag
Dómkirkju og Neskirkju. Sameigin-
legur fundur í safnaðarheimili Nes-
kirkju kl. 19.30.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
- 6.45. Fullorðinsfræðsla kl. 20.
Markviss kennsla um trú. „Þriðju-
dagur með Þorvaldi" kl. 21. Lof-
gjörðarstund.
Neskirkja. Æskulýðsfélag Nes-
kirkju og Dómkirkju. Sameiginleg-
ur fundur í safnaðarheimili Nes-
kirkju kl. 19.30. Litli kórinn, kór
eldri borgara kl. 16.30, í umsjón
Ingu J. Backman og Reynis Jónas-
sonar. Nýir félagar velkomnir. Síð-
degistónleikar kl. 18. Hörður
Askelsson, organisti Hallgríms-
kirkju leikur.
Seltjamameskirkja. Foreldramorg-
unn þriðjudag kl. 10-12.
Árbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12. Hitt-
. umst, kynnumst, fræðumst. Hjúkr-
unarfræðingar frá heilsugæslustöð-
inni í Árbæ koma í heimsókn.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans. Æsku-
lýðsstarf á vegum KFUM og K og
kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Starf aldraðra kl.
11.15. Leikfimi, léttur málsverður,
helgistund og samvera. Kl. 17 TTT
10-12 ára starf á vegum KFUM og
K og Digraneskirkju.
Fella- og Hólakirkja. Foreldrastund
kl. 10-12. Starf fyrir 9-10 ára stúlk-
ur kl. 15-17. Starf fyrir 11-12 ára
stúlkur kl. 16.30-17.30.
. Grafarvogskirkja. Opið hús kl.
13.30-16 fyrir eldri borgara, kyrrð-
arstund, handavinna, spjall, spil og
kaffiveitingar. Kirkjukrakkar í
Laugarneskirkja.
Rimaskóla kl. 17-18 fyrir 7-9 ára
börn. KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára
kl. 17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir
unglinga kl. 20-22.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10-12.
Seljakirkja. Mömmumorgnar kl.
10-12. Opið hús.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30. Opið Hafnar-
fjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12
ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi,
kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn.
Lágafellskirkja. Foreldramorgunn
kl. 9.30-11.30. Umsjón Þórdís og
Þuríður.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
16.30 kirkjuprakkarar (7-9 ára
börn). Söngur, leikir, bænir, spuna-
smiðja.
Keflavíkurkirkja. Fjölskyldustund í
Kirkjulundi kl. 10.30-11.30. Helgi-
stund, fræðsla og samfélag fyrir að-
standendur bama undir grunnskóla-
aldri (mæður, feður, ömmur, afar
o.fl.). Bænir beðnar með börnunum,
lesið fyrir þau og sungið með þeim.
Umsjón Lilja G. Hallgrímsdóttir
djákni og Laufey Gísladóttir kenn-
ari. Kirkjan opin kl. 14-16. Starfs-
fólk verður á sama tíma í Kirkju-
lundi. Samveru- og helgistund í
Hvammi, félagsmiðstöð aldrara,
Suðurgötu 15-17, kl. 12-16. Ferm-
ingarundirbúningur kl. 13.40-15 í
Kirkjulundi.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgameskirkja. Mömmumorgunn
í safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12.
Helgistund í kirkjunni sömu daga
kl. 18.30.
Krossinn. Almenn samkoma kl.
20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn-
ir.
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr-
inu.
Hólaneskirkja Skagaströnd. Kl. 10
mömmumorgunn í félagsheimilinu
Fellaborg. Kl. 16 KFUM og KFUK
fyrir börn 9-12 ára.
Safnaðarfélag St. Jósefskirkju,
Hafnarfírði. Þemafundur um
skriftasakramentið verður haldinn í
safnaðarheimilinu að Jófríðarstöð-
um þriðjudaginn 26. október kl. 20.
Sr. Hjalti Þorkelsson flytur fyrir-
lestur er nefnist „Tilvísun, sættir og
yfirbót". Á eftir verða fyrirspumir
og umræður. Loks verða kaffiveit-
ingar og spjall að loknum fyrirlestri
og umræðum. Allir hjartanlega vel-
komnir.
ALLAR VÖRUR Á
a50%H
Vorum að taka upp ný flísefni og
úrval samkvæmisefna.
XINAi
VEFNABARVDRUR
Hlíöasmára 14,
200 Kópavogi,
sími 564 5533.
VELVAKAJMPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Þakkir
fyrir grein
HÁKON Aðalsteinsson á
þakkir skildar fyrir grein
sína í Morgunblaðinu 23.
október sl. sem bar yfir-
skriftina „Hvert stefnum
við í umgengni við land og
þjóð“. Hvet ég Hákon til
að halda áfram að mót-
mæla virkjun í Fljótsdal.
Nú þegar er húshitunar-
kostnaður á höfuðborgar-
svæðinu bara lítið brot af
því sem kostar að hita hús
á Austurlandi, þá eru eng-
ar líkur á að fólk flytji frá
höfuðborginni til Austur-
lands, þó svo að álver rísi
á Reyðarfirði. Ég er
hræddur um að það verði
eins og í fiskvinnslunni að
það þurfi að flytja inn er-
lent vinnuafl. Hákon,
haltu áfram á þessari
braut.
Gunnar G. Bjartmarsson,
Neskaupstað.
Rjúpnaskyttur
GUÐBJÖRG hafði sam-
band við Velvakanda
vegna myndar sem hún sá
í einu dagblaðanna fyrir
suttu. Myndin var af
rjúpnaskyttum með um
400 rjúpur. Fannst henni
þetta vera hræðilegt
auðgunardráp. Einnig
vildi hún benda á að það
er víða óvarlega farið með
skotvopn á rjúpnaveiðum.
Tapað/fundið
Jakki og taska
týndust
UNG kona týndi tösk-
unni sinni og jakkanum
föstudagskvöldið 15.
október sl. milli kl. 1-4 á
Glaumbar. Taskan er blá
og rauð og sími var í sér-
hólfi utan á töskunni. í
töskunni voru öll skilríki,
snyrtivörur, vettlingar,
lyklar o.fl. Jakkinn er
svartur glansjakki. Þess-
ir hlutir eru eigandanum
ákaflega dýrmætir. Skil-
vís finnandi vinsamlega
hafi samband í síma
564 4401.
Dýrahald
Skógarköttur í óskil-
um í Keflavík
SKÓGARKÖTTUR, svart-
ur í framan og svartur á
löppum, annars brúnn og
svartyijóttur er í óskilum í
Keflavík. Þetta er læða,
óskaplega blíð og góð. Upp-
lýsingar í síma 421 2960.
HOGNI HREKKVISI
T> *
(//'&hef&um. he/aiar. áti cé> iAóa, me/a -
dc)rcxey&irirv /ioícu \söruU/f£eJsvct.-
Hlutavelta
Morgunblaðið/Golli.
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr.
5.229 til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Helga Sif
Helgadóttir og Arna Borg Snorradóttir.
Morgunblaðið/Ásdís
Tveir ferðamenn staldra við og mynda hjá útilegumanninum.
Víkverji skrifar...
NÁTTÚRUPERLURNAR eru
ekki endilega á hálendinu eða
í mikilli fjarlægð frá Reykjavík.
Það er stutt frá höfuðborginni út á
Reykjanes og það er þess fyllilega
virði að leggja land undir dekk og
keyra út að Reykjanesvita. Þar er
stórbrotið landslag í úfnu hraun-
inu, hverir, salttjarnir, drangar,
fell og hnjúkar. Fjaran er ýmist
hrikaleg og stórgrýtt eða fallegir
sandflákar og melgrashólar.
Fyrsti viti á íslandi var reistur á
Valahnjúk árið 1878 og var það
mikið stórvirki. Hann lét svo undan
veðri og vindum og nýr viti var
reistur snemmma á þessari öld á
Bæjarfelli. Þarna er fallegt lands-
lag, sem sker sig að nokkru frá
öðrum stöðum á Reykjanesi, og
nokkurt hverasvæði með Gunnu-
hver í fararbroddi.
Þarna er upplagt að aka á góð-
um degi og jafnvel koma við í fiska-
safninu í Höfnum. Þegar út að vita
er komið, er svo bezt að leggja
bílnum og bregða undir sig betri
fætinum og ganga um svæðið til að
njóta fegurðar þess sem mest.
xxx
AÐ kann að vera að bera í
bakkafullan lækinn að tala um
málnotkun. Víkverji ætlar samt að
gera svo í þessum pistli, því honum
finnst góð vísa aldrei of oft kveðin.
Við verðum alltaf að vera á verði
gagnvart ambögum og misnotkun
á málinu, málsháttum og orðtök-
um. Áhrif enskunnar eru mikil,
einkum á orðaröð og notkun sagn-
orða. Á forsíðu Morgunblaðsins
síðastliðinn laugardag var texti
með mynd af hóteli í Sviss: „Þar
sem handtaka Papons fór fram.“
Svo á enginn að orða hlutina, allra
sízt í 60.000 eintökum. Við eigum
sögnina að handtaka og því alveg
óþarfi að breyta sögninni í nafnorð
eins og þama er gert. Eðlilegt orð-
færi er að sjálfsögðu að segja þar
sem Papon var handtekinn.
Þá vill Víkverji enn minna á hið
ágæta íslenzka orð keppinautur,
sem einhverra hluta vegna virðist
fara halloka fyrir orðskrípinu sam-
keppnisaðili, sem er gjörsamlega
út í hött. Orðið aðili er ofnotað í ís-
lenzku máli.
xxx
VÍKVERJI hefur gaman af fót-
bolta og horfir töluvert á bein-
ar útsendingar að utan, einkum
leiki í meistaradeild Evrópu og
ensku knattspymuna. Það finnst
Víkverja góð skemmtun, enda leika
þar listir sínar beztu knattspyrnu-
menn heims og spennan er oft mik-
il. Þar nægir til dæmis að nefna úr-
slitaleik Manchester United og Ba-
yem Miinchen í fyrra og leik Chel-
sea og Arsenal á laugardaginn, þar
sem nígeríski snillingurinn Kanu
fór á kostum.
Að mati Víkverja er það þó eitt
sem er nokkur ljóður á þessari
ágætu skemmtun. Það er alltof
mikið um ljót brot á leikmönnum.
Oft á tíðum má segja að um hreina
líkamsárás sé að ræða og má þar
benda á nýlegt dæmi þar sem Sví-
inn Henrik Larson var fótbrotinn í
leik í meistaradeildinni.
Víkverja finnst ekki nógu hart
tekið á brotum af þessu tagi og
man hann eftir dæmum um það að
ekki hafi einu sinni verið dæmd
aukaspyrna á algjör fólskubrot.
Svo er leikmönnum umsvifalaust
vísað af leikvelli fyrir að segja eitt-
hvað ljótt við dómarann í hita leiks-
ins. Nýlegt slíkt dæmi þýddi meira
að segja að kjaftaskurinn var
dæmdur í fjögurra leikja bann. Er
ekki eitthvað bogið við þetta?
Vissulega ber leikmönnum að hafa
hemil á skapi sínu og virða dómar-
ann, sem vafalítið gerir alltaf sitt
bezta eins og leikmaðurinn, en er
ekki svolítill munur á munnlegri
árás og hreinni líkamsárás?