Morgunblaðið - 26.10.1999, Page 68
^68 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Tiif IT iTi ■ i ii ii i iTmn-m-m mmiii
VINSÆLUSTU
MYNDBONDIN
VIKAN
Nr. var vikur Mynd Otgefandi Tegund
1. 2. 2 Austin Powers: The Spy Who Shogged Me Myndform Gaman
2. 1. 3 8mm Skífan Spenna
3. NÝ 1 Arlington Rood Háskólabíó Spenna
4. 3. 6 Paybock Warner myndir Spenna
5. NÝ 1 At First Sight Warner myndir Drama
6. 5. 4 Shakespeare in Love CIC myndbönd Gaman
7. 4. 5 She's All That Skífan Gaman
8. NÝ 1 The Deep End of the Ocean Skífan Drama
9. 6. 7 Patch Adams CIC myndbönd Gaman
10. 7. 3 Varsity Blues CIC myndbönd Drama
11. 8. 3 Waking Ned Bergvík Gaman
12. 10. 2 200 Cigarettes Háskólabíó Gaman
13. 11. 6 Festen Háskólabíó Drama
14. 12. 2 Ptíddulíf Sam myndbönd Gaman
15. 14. 2 One True Thing CIC myndbönd Drama
16. 9. 4 Cube Stjörnubíó Spenna
17. 16. 10 Baseketball CIC myndbönd Goman
18. 18. 4 Celebrity Myndform Gaman
19. 15. 7 Faculty Skifan Spenna
20. NÝ 1 Destiny of Her Own Skífan Drama
niii:xiliixiii.i..iiiTjrTCFi:róiTTi:iTiiTTi
Spæjarinn á toppnum
ÞAÐ er grínaktugi spæjarinn
Austin Powers, eða flauelsklædda
kyntröllið, sem trónir efst á toppi
listans þessa vikuna, en hann var í
2. sæti listans í síðustu viku. Efsta
mynd liðinnar viku, 8MM, með
Nicolas Cage í aðalhlutverki er í
öðru sæti lista vikunnar og kemur
ný spennumynd inn í 3. sætið, eða
. Arlington-stræti með þeim Tim
Robbins og Jeff Bridges í aðalhlut-
verkum. Ekki lýkur spennunni þar
því Mel Gibson í hefndarhug fylgir í
kjölfarið í myndinni Hefnd í 4. sæti
listans. I fimmta sætinu er ný mynd
með Val Kilmer og Miru Sorvino,
Við fyrstu sýn, þar sem Kilmer leik-
ur blindan mann sem fyrir kúnstir
tækninnar fær sýn á ný. Tvær aðrar
nýjar myndir eru á lista vikunnar,
Dýpsti hluti sjávar með Michelle
Pfeiffer í aðalhlutverki og Örlög
hennar þar sem sögusviðið er Fen-
Það er erfitt að standast
töfra spæjarans.
eyjar á 17. öld og fara þau
Catherine McCormack og Rufus
Sewell með aðalhlutverkin.
Lærðu að
rettum
Almenn förðunarnámskeið fyrir hópa
og einstaklinga. Dag- og kvöldförðun.
Kvöld- eða dagnámskeið*
Haldið hjá NO NAME eða heima hjá einhverjum
í klúbbnum þínum. Hafðu samband við okkur í
síma og við lögum námskeiðið í sameiningu
að þörfum hópsins. Persónuleg ráðgjöf fyrir |
hvern og einn.
Einkanámskeið
Haldið hjá NO NAME eða heima hjá þér.
Persónuleg ráðgjöf um allt sem lýtur að
förðun og litum og „vandamálaförðun".
Á námskeiðunum eru kennd öll undirstöðu-
atriði förðunar, þ.m.t. notkun áhalda og
val á litum.
Skráning er hafin.
*Tllvallð fyrlr saumaklúbba,
félagasamtök, starfsmanna-
félög o.fl.
Elnstakllngar geta einnlg hrlngt
og skráð sig á þau kvöld sem
hópkennslan á sér stað.
NO NAME
---COSMETICS-
Förðunarskóli NO NAME
noname@islandia.is
Simi 561 6525 eðafax 561 6526
Sækir í skuggahlið-
ar mannlífsin
LEIKARINN Nicolas Cage leikur í myndinni 8MM sem er í
öðru sæti myndbandalistans þessa vikuna. Hann segir að
áhugi sinn á hinum dekkri hliðum tilverunnar hafi
kviknað strax þegar hann var fjögurra ára gam-
all og núna þegar hann er 35 ára hafi áhug-
inn ekkert minnkað. Þennan áhuga má sjá í
hlutverkavali Cage, því hann hefur leikið
illa farinn alkóhólista, einkaspæjara
sem rannsakar undirheima kláms-
ins og í nýjastu mynd sinni fer
hann með hlutverk manns sem er
á barmi taugaáfalls.
„Það er engin spurning að ég
hneigist meira til lífs undir-
heimanna. Sem leikari vil ég
takast á við sem flest hlutverk og
víst getur verið gaman að leika í
rómantískum gamanmyndum en
ég væri samt alveg sáttur við að
halda mig við dekkri kvikmynd-
ir,“ segir Cage sem safnar m.a.
dauðum leðurblökum og hefur
eðlur, snáka og kolkrabba fyrir
gæludýr.
Cage segir að þegar hann var
fjögurra ára hafi hann oft fengið
martraðir og átt í erfiðleikum
með svefn. „Eg var oft nvjög
skelkaður en ég held að þegar ég
óx úr grasi hafí ég ekki ýtt þess-
ari hlið frá mér heldur samsam-
að hana persónuleika mínum. Og
það má sjá í mörgum mynda
minna.
Nýjasta mynd Cage ætti að falla vel
í kramið, því í henni er hann ekki langt
frá persónunni sem hann lék í „Leaving
Las Vegas“ og hlaut Óskarsverðlaunin.
I myndinni „Bringing Out the Dead“
leikur Cage Frank Pierce, sjúkrabíls-
lækni á næturvöktum sem er að fara yfír
um á nálægð-
inni við dag-
lega mannlega
harmleiki í starfi.
Þetta er í fyrsta
skipti sem Cage leik-
ur undir stjórn Ieik-
stjórans Martin Scorsese.
Þegar litið er til þess að Paul
Schrader skrifar handritið má
búast við að erfíðar hliðar
mannh'fsins verði dregnar
fram í dagsljósið, en Schrader
skrifaði handritið að „Taxi
Driver" þar sem Robert De
Niro fór ineð hlutverk sálsjúks
manns og Jodie Foster lék
barnunga vændiskonu.
En þessi samsetning er ná-
kvæmlega það sem Cage vill.
„Að vinna með Scorsese og
Schrader er fyrir mér eins
og ef tónlistarmaður fengi
að spila með Lennon og
McCartney. Það gæti
ekki verið
betra.“
Gítarsurg úr grasrótinni
TÓNLIST
Geisladiskur
HIIGSAIVAVÉLIIV
Hugsanavélin, geisladiskur hljóm-
sveitarinnar Suðs. Sveitina skipa þeir
Helgi Benediktsson sem syngur og
leikur á gítar, Kjartan Benediktsson
sem leikur á bassa og hljómborð og
Magnús Magnússon sem leikur á
trommur. 011 lög og textar eru eftir
Suð. Upptökum stýrði Halldór K. Júl-
íusson. 39,27 mín. Gráðuga útgáfan
gefur út.
HUGSANAVÉLIN er fyrsta
plata Suðs, að frátöldum tveimur
heimagerðum plötum sem einungis
er hægt að nálgast í gegnum heima-
síðu sveitarinnar (www.hi.is/~helgi-
be/sud) eða beint í gegnum meðlimi.
Svona grasrótareinkenni eru yfir og
allt um kring á plötunni og gamla
V/SA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4543-3700-0022-1781
4543-3700-0027-9888
4507-4500-0026-7523
4548-9000-0053-6690
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA (slandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
V/SA
VISA ÍSLAND
Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
góða pönksjónarmiðinu „gerðu það
sjálfur" er hér fylgt í hvívetna.
Umslag gripsins er afar lágfitlslegt
(e. lo-fi) og öll hönnun er í höndum
meðlima svo og útgáfan sjálf. Eitt af
því sem gerir Hugsanavélina aðlað-
andi er að tilvera hennar byggist á
einlægni og áhuga meðlima á að búa
til tónlist, gróðasjónarmið virðast
viðsfjarri.
Tónlistin sjálf er tilfinninga-
þrungið nýbylgjurokk að amerísk-
um hætti. Eins konar „emo-core“,
þar sem pólitískir textar eru skildir
eftir heima og þess í stað leitað inn
á við. Hljómar eru einfaldir og grip-
in fá en flutningurinn er lifandi og
kröftugur. Flókin og fáguð lög
skapa ekki endilega fegurðina, stað-
reynd sem liðsmenn Suðs virðast
vita fullvel af. Stundum eru lögin
hröð og beinskeytt, með bjöguðum
og skítugum hljóm, í anda gæða-
sveita eins og Dinosaur Jr, Seam og
Húsker Dú. A öðrum stöðum dufla
Suð-liðar við hæg og drungaleg stef
sem minna einna helst á hljómsveit-
irnar Slint og Mogwai. Á heildina
litið eru lög Hugsanavélarinnar
fremur fjölbreytt þótt þau séu inn-
an áðurnefnds nýbylgjurokks-
ramma.
Mín helsta umkvörtun varðar
sönginn, sem er fremur rislítill. Ein-
hverja innlifun og tilfinningu skortir.
Það er líkt og Helgi söngvaii hiki
dulítið við að sleppa fram af sér beisl-
inu. Þetta söngvandamál virðist því
miður hrjá flestar íslenskar sveitir.
Einnig hefði sá litli hljómborðsleikur
sem á plötunni er
mátt missa sín.
Hann skýtur svolítið
skökku við í þau fáu
skipti sem hann birt-
ist.
Myrkir textamir,
sem allir eru á ís-
lensku, eru á gam-
alkunnum þung-
lyndisslóðum. Glöt-
uð ást og brostnar
vonir sveipa textana
þó að örlítil ljóstýra brjótist í gegn
stöku sinnum. Textarnir verða á
stundum barnslega einlægir sem
sést í setningum eins og „En ég veit
ég er feiminn", „Ég er svo heppinn
að eiga þig að“ og „En hvað sem ég
geri - ég klúðra því“. í flestum lög-
unum er þó bara skemmtilegt að
fylgjast með dansi söngvarans við
djöfulinn í fólu mánaskini. Eða
þannig.
Þessi niðurdregna stemmning er
að vísu brotin upp í laginu „Gráðuga
fólkið“, einu besta lagi plötunnar.
Þar leita þeir félagar ögn út á við og
læða inn bráðskemmtilegum samfé-
lagspælingum. „Vaknaði að morgni
til að standa í röð“, segir m.a. i lag-
inu. Önnur lög sem standa upp úr
eru „Svipbrigðin", sem er hraður og
grípandi rokkari, hið dula og
draumkennda „Hugarfar" og „Þú
átt það skilið", en því tekst einna
best að losna undan erlendum
áhrifavöldum.
Þessi fyrsta plata Suðs ber þess
vissulega merki að vera frumburður
hljómsveitai-innar og það er margt
sem mætti slípa betur til. Fjöl-
breytni laganna gefur til kynna að
þau séu samin á löngu tímabili og
platan er ekki alveg nógu heilsteypt
fyrir vikið. Hugsanavélin býr þó
óneitanlega yfir sterkum sjarma,
sigrar á einlægninni eins og áður er
getið og gefur fögur fyrirheit. Fín-
asta plata sem meðlimir geta verið
stoltir af.
Arnar Eggert Thoroddsen