Morgunblaðið - 07.11.1999, Side 26
5 26 B SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
_____________DÆGURTÓNLIST
Sjálfskoðun
Páls Óskars
Páll Óskar sendi frá sér plötuna
Deep Inside Paul Oscar á morgun.
A plötunni fær hann ýmsa
tónlistarmenn til liðs við sig, en að
sögn var hann langan tíma að
byrja að vinna að plötunni og líka
ótalmargt sem hélt honum frá
hljóðverinu í næstum þrjú ár.
Páll segist fyrst hafa ætlað að
gera sjálfstætt framhald af
„Seif‘-plötunni sem kom út 1996.
„Bara eitthvert danspopp, en sem
betur fer lenti ég í persónulegu
raunveruleikasjokki á þessum
tíma, þannig að ég hreinlega varð
að taka sjálfan mig hraustlega í
gegn. Og ekki bara mig, heldur
líka fólkið í kringum mig og allan
minn feril, bæði í einkalífinu og
sem atvinnumaður í þessu
popprugli hérna! Þessi plata er
nokkurskonar afrakstur þessarar
sjálfskoðunar rninnar."
Deep Inside „Ég sagði við Jóa
(Lhooq): „Jæja, nú gerum við lagið
sem Giorgio Moroder gleymdi að
semja!“ Jói settist við hljómborðið
og kom eiginlega strax með
hljómana í viðlaginu. Þetta minnir
mig bara á kynlíf."
Please, Reject Me (Like My
Father Did) „Nei, þetta lag er ekki
um pabba minn! Það er eins og að
segja að maður hreinlega verði að
upplifa alla texta sem maður
túlkar áður en maður fær að
syngja þá. Ég fékk hugmyndina að
þessu lagi frá símtali sem ég fékk í
útvarpsþættinum Dr. Love á
Mono. Þetta er svona mjög létt
írónía í geðsjúkum diskógalla sem
Barði (Bang Gang) og Herb (Gus
Gus) drógu að landi.“
Better Be Good „I rauninni er hér
um að ræða „Please, Reject Me -
Seinni hluti nema hvað að þessi
hluti gerist eftir meðferðina hjá
sálfræðingnum. Hér eru
úrlausnimar allar komnar á
silfurfati. Lagið „krossfeidar"
saman við þunga og dimma
diskólagið á undan og við tekur
miklu bjartara og heilbrigðara
diskóbít, sem Herb Legowitz er
ábyrgur fyrir.“
My Best Friend „Þetta er fyrsta
lagið á plötunni sem varð í raun
tilbúið, þó að það tæki mig ár og
daga að klára þennan blessaða
texta. Hann er svo persónulegur
að ég ætlaði ekki að þora að leyfa
neinum að sjá þetta. Sem betur fer
hef ég alltaf verið umkringdur af
ofsalega góðu fólki, sem á það allt
sameiginlegt að eiga frumkvæði og
vera sjálfstætt í hugsun, og á sama
tíma sjúklega þolinmótt í minn
garð þegar ég þárf að stinga þau
af í hálft ár eða svo til að poppa!
Og ég samdi þetta lag eiginlega
með þau öll í huga. Taki það til sín
sem eiga. Maður gerir ekki upp á
milli vina sinna.“
Make Up Your Mind „Þetta er lag
um alla þá aumingja sem gefast
upp! Það er alveg magnað hvað
það eru margir sem eiga sér
drauma og takmörk í maganum -
flytja svo til útlanda jafnvel og
eyða mörgum árum og miklum
peningum í það að reyna að láta
drauminn rætast. Svo þegar liðið
er komið 3A úr leið ... og
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
takmarkið er við sjóndeildar-
hringinn - þá allt í einu óttast
þetta lið að sjá drauminn verða að
bláköldum veruleika, sætta sig við
það að vera komið þangað sem
það er komið eða jafnvel flytja
aftur heim! Og draumurinn rætist
aldrei. Svona lagað fer alveg
sjúklega í taugarnar á mér. Ég
Jagúar
Á HLEMMISKEIÐI
FÖNKIÐ er með lífseigustu
tónlistarformum og blossar
upp hvað eftir annað eftir því
sem yngri kynslóðir tónlistar-
manna uppgötva hversu
hressandi er að hleypa á
hlemmiskeið í mótaðri snar-
stefjun. Fönksveitin Jagúar
hefur getið sér gott orð fyrir
spilamennsku og fjölmarga
þyrst í breiðskífu sem kemur
loks út á morgun, en í kvöld
halda þeir Jagúarmenn út-
gáfutónleika sína í Islensku
óperunni og sýður eflaust á
keipum.
Liðsmenn Jagúars eru þeir
Birkir Freyr Matthíasson,
trompetleikari, Börkur Hrafn
Birgisson, gítar- og skælifet-
ilsleikari, Daði Birgisson,
Rhodes-píanó- og hljóðgervils-
leikari, Hrafn
Asgeirsson,
tenór-saxó-
fónleikari,
Ingi S. Skúla-
son, bassa-
leikari, Sam-
úel Jón Sam-
úelsson,
básúnu- og
slagverksleikari, og Sigfús
Óttarsson, trommu- og slag-
verksleikari. Þeir Daði og
Samúel verða fyrir svörum um
lögin á plötunni.
Malibu „Malibu er eftir
trompetleikarann okkar, Birki
Frey Matthíasson. Það var
mjög erfið fæðing, hann var
búinn að mæta með hana til
okkar en fékk ekki hljóm-
grunn, við sendum hann alltaf
með hana heim aftur. Hann
gaf sig þó ekki, barðist fyrir
laginu sínu og breytti því þar
til það var orðið mjög
skemmtilegt, með eins konar
salsoul stemmningu. Það er
skemmtileg tilviljun að þetta
sé fyrsta lagið á plötunni, þar
sem þetta er fyrsta lagið sem
við tókum upp, en það síðasta
sem við hljóðblönduðum."
Watermelon Woman „Þetta
lag er eftir Inga bassaleikara
og nafnið er þannig til komið
eftir Árna
Matthíasson
að lagið vísar í tónsmíðar Her-
bies Hancocks. Það hefur
reyndar ruglað suma að laginu
svipar frekar til lags Hancocks
sem kallast Chameleon, en
ekki Watermelon Man og við
höfum meira að segja verið
skammaðir fyrir þann „mis-
skilning“ á prenti, en við erum
með þetta aldeilis á hreinu.
Þetta er eitt af elstu lögum
okkar, hefur Iengið verið í slíp-
un, og á endanum bættum við
við sveiflu til að styrkja „grú-
víð“.“
Theme for Miguel „Þetta lag
var líka lengi í gerjun og höf-
undurinn, Hrafn, þorði ekki að
koma með það. Það er stund-
um þannig að menn þora ekki
að koma með lög á æfingar ...
við ættum kannski að bæta
andrúmsloftið, fá sálfræði-
þjónustu. En að öllu gríni
slepptu þá samdi Hrafn þetta
lag til vinar síns og vildi vera
dálítið grófur. Lagið er líka
árásargjarnt, drungalegt og
dimmt með snert af geðveiki.
Samúel kom svo með
módernískar „brasslínur“.“
Gustaf Blomquist „Gustaf
Blomquist, sem var sænskur
leyniþjónustumaður og mjög
áberandi í kalda stríðinu, er
lag eftir Samúel, hasarlag. Það
var samið fyrir nokkrum árum
og tekið upp á handahlaupum.
Það greip um sig einhver geð-
veiki við upptökurnar og það
var tekið upp á fjórföldum
hraða. Fyrir vikið varð það
ekki bara hraðasta lagið á
plötunni heldur líka það
stysta, styttist um mínútu.“
Bubba’s Song Börkur gítar-
leikari samdi þetta lag eftir að
hafa hlustað á Dögun Bubba
Morthens og á sænskan djass-
ara þar sem hann rakst á línu
sem honum fannst skemmti-
leg. Hann sameinaði því þá
línu áhrifunum af Dögun,
þannig að heitinu mætti snara
sem „Bubblagið“.“
Hubba Bubba „Þetta er svona
spókunarlag sem átti að
spanna það þegar maður spók-
ar sig niður Laugaveginn frá
Morgunblaðið/Golli
Fönkarar Liðsmenn Jagúars, Birkir Freyr Matthíasson, Börkur Hrafn Birgisson, Daði Birgisson, Hrafn Ásgeirsson, Ingi S.
Skúlason, Samúel Jón Samúelsson og Sigfús Óttarsson.
Hlemmi. Ekki er þó gott að
segja hvort það nái alla leið,
það er í kringum sjö mínútur,
þannig að kannski þarf að
spóka sig heldur hratt.“
Hr. 7 „Þetta er kall Birkis
Freys til að sá að spila djass,
djassskotnasta lagið á plöt-
unni og mjög skemmtilegt þó
það standi aðeins útúr. Það
hét reyndar Nr. 7, en nafnið
var svo illa handskrifað að það
var lesið vitlaust þegar um-
slagið var gert og heitir Hr. 7
upp frá því.“
35c „35c er samið upp úr stefi
sem Daði samdi fyrir þremur
árum í Cubase-tónsmíðaforrit-
inu, tók upp á snældu og
gleymdi síðan. Börkur heyrði
það svo þegar Daði var að fara
yfir spólusafnið og tók það
með á æfingu og hvatti Daða
til að gera eitthvað úr því. Það
má líta á þetta sem kynþokka-
fullt lag, óð til húsnúmersins
35c eða hitastigs; það er hlust-
andans að túlka lagið. Það
breyttist reyndar talsvert áð-
ur en upptökur hófust og með-
al annars bætt í það didger-
idoo.“
Birkir Breaks the Law „Titill-
inn er tilvísun í hegðan Birkis,
sem á það til að skemmtilega
hluti þegar hann er að
skemmta sér. Daði samdi lag-
ið með aðstoð Samúels og
Inga og svo sem ekki mikið
um það að segja. Daða fannst
lagið aldrei virka, en aðrir í
sveitinni voru ekki á sama
máli svo það fékk að vera.“
Sknmslið „Síðasta lagið á
plötunni, en jafnframt fyrsta
lagið sem var hljóðblandað -
skemmtileg tilviljun, ekki
satt? Það er úr smiðju Inga og
er svo erfitt að menn kölluðu
það sína á milli skrímslið. Það
er tormelt, eða í það minnsta
erfitt að læra það. Við bættum
kafla í lokin og fannst sem það
væri einmitt lagið til að enda
plötuna, það var eiginlega
ekkert hægt að segja á eftir
því, nema vitanlega menn hafi
ýtt á „Repeat“ og þá getum
við byrjað að tala um plötuna
aftur..."