Morgunblaðið - 01.02.2000, Page 1
26. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
ESB hótar
Austurríki
Lissabon, Vín. AP.
RÁÐHERRARÁÐ Evrópusam-
bandsins (ESB) sendi Austurríkis-
mönnum harðorða viðvörun í gær,
þar sem því er hótað að stjórnmála-
tengsl sambandsins við Áusturríki
verði skorin niður í algert lágmark
verði Frelsisflokkur Jörgs Haiders
aðili að austurrísku ríkisstjórninni.
„Ríkisstjórnir 14 aðildarríkja
munu ekki stuðla að eða þiggja boð
um nein opinber tvíhliða tengsl á
stjórnmálasviðinu við austurríska
ríkisstjórn sem FPÖ er aðili að,“
segir í yfirlýsingunni, sem gefin var
út í Lissabon, en Portúgalar fara
þetta misserið fyrir ráðherraráði
ESB.
Viðræður Frelsisflokksins, sem
hefur m.a. lagt áherzlu á baráttu
gegn innflytjendum og gegn stækk-
un ESB, og hins íhaldssama Þjóðar-
flokks um myndun hægristjórnar
sem hefði öruggan meirihluta þing-
sæta á bak við sig ganga vel. Tjáðu
leiðtogar flokkanna tveggja, Haider
og Wolfgang Schussel, forseta
landsins í gær að stjórnarsáttmáli
gæti orðið frágenginn í dag eða á
morgun.
Schiissel, sem er utanríkisráð-
herra í fráfarandi stjórn, virtist
koma yfirlýsing ESB á óvart. „Mér
þykir sérkennilegt að ESB-ríkin 14
taki slíka ákvörðun án þess að ráð-
færa sig við aðildarríkið Austur-
ríki,“ sagði ráðherrann, og bætti við
að hann væri að reyna að ná sam-
bandi við hinn portúgalska starfs-
bróður sinn, Jaime Gama, sem var á
leið til Moskvu.
Reuters
Afleiðing minni
kvóta við Noreg
Aukinn
áhugi
á þorsk-
eldinu
Ósló. Morgunblaðið.
ÁSTANDIÐ á þorskstofninum
við Noreg og hátt verð á mörk-
uðum hefur leitt til stóraukins
áhuga á þorskeldi mjög víða í
landinu.
í Sogni og Fjörðunum liggja
nú fyrir sex nýjar umsóknir um
þorskeldi en þar eru fyrir þrjár
eða fjórar þorskeldisstöðvar.
Raunar hefur enginn hagnaður
verið af þeim hingað til en það
þykja þó mikil tíðindi, að nú
virðist reksturinn vera kominn
í jafnvægi. Það er einkum fóðr-
ið, sem verið hefur eldismönn-
um þungt í skauti, en það er 20-
30 ísl. kr. dýrara en laxafóðrið.
Á Mæri og í Raumsdal eru
nokkur stórfyrirtæki að búa sig
undir þorskeldi og í Þrænda-
lögum hafa margir sýnt því
áhuga.
Meira seiðaframboð
mun ráða úrslitum
Fyrir utan fóðurkostnaðinn
er vandamálið í þorskeldinu
ákaflega lítið framboð af seið-
um og þess vegna veiða flesth-
smáþorsk og ala síðan. Sér-
fræðingar eru hins vegar sam-
mála um, að þorskeldið geti
ekki orðið að eiginlegum at-
vinnuvegi fyrr en búið er að
kippa seiðamálunum í liðinn.
Um síðustu áramót höfðu 118
aðilar leyfi tO þorskeldis í Nor-
egi en framleiðslan 1998 var
148 tonn. Vilja stjórnvöld ýta
undir framfarir og þróun í þess-
ari grein og bjóða því upp á
ýmsa styrki.
Rússar segjast hafa
náð Mínútka-torgi
Moskvu, Urus-Martan. Reuters, AFP, AP.
FJÖLMIÐLAR í Rússlandi fullyrtu
í gær, að rússneski herinn hefði náð
á sitt vald hinu hemaðarlega mikil-
væga Mínútka-torgi í Grosní. Þá
sögðu rússneskir embættismenn, að
æ fleiri skæruliðar gæfust upp.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sem nú er í
Moskvu, gagnrýndi hins vegar
hemaðinn harðlega og sagði, að
hann væri að einangra Rússa á al-
þjóðavettvangi.
Óháða sjónvarpsstöðin NTV og
rússneska ríkissjónvarpið sögðu, að
Mínútka-torg, sem skiptir sköpum
fyrir yfirráð yfir miðborginni, væri
nú á valdi Rússa. Þá hefðu 168
skæruliðar gefist upp, þar af 34 í
gær. ígor Sergejev, varnarmála-
ráðherra Rússlands, sagði í gær, að
þetta væm fyrstu merki þess, að
varnir Tsjetsjena væm að bresta.
Talsmenn Tsjetsjena sjálfra vísa
þessum fréttum þó á bug og einnig
Albright varar
við einangrun
Rússlands vegna
hernaðarins í
Tsjetsjníu
Malík Saídúllajev, einn þeirra
tsjetsjnesku stríðsherra, sem berj-
ast með Rússum.
Albright, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem nú er í Moskvu
vegna ráðstefnu um friðarferlið í
Miðausturlöndum, gagnrýndi hern-
aðinn og sagði, að hann sverti ímynd
Rússa um allan heim. Igor Ivanov,
utanríkisráðherra Rússlands, sagði,
að gagnrýni Albrights væri á mis-
skilningi byggð, og gerði lítið úr
hættu á einangmn Rússlands.
Vladímír Pútín, settur forseti
Rússlands, er enn langlíklegastur til
að verða kjörinn í embættið í for-
setakosningunum í mars en vin-
sældir hans hafa þó dvínað. Nú
styðja hann 49% en 55% í síðustu
viku og stuðningur við hann meðal
fólks í viðskiptalífinu er nú ekki
nema 36% á móti 49% fyrir hálfum
mánuði.
Soros varar
við þróuninni
Virðist sem þetta fólk hafi vax-
andi áhyggjur af stefnu Pútíns verði
hann kjörinn og óvissan um það er
einnig farin að valda áhyggjum á
Vesturlöndum. Bandaríski auðkýf-
ingurinn George Soros, sem hefur
fjárfest mikið í Austur-Evrópu,
hvatti Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til
þess á sunnudag að draga sig út úr
Rússlandi vegna þess, að þróunin
þar stefndi í „öfuga átt“. Sagði
hann, að Vesturlönd gætu ekki leng-
ur neinu um hana ráðið.
Verkfalls-
óróií
Frakklandi
Flutningabflsijórar í Frakklandi
efndu til mótmæla víða um landið í
gær og trufluðu umferð, t.d. við
sumar mikilvægar Iandamæra-
stöðvar. Óttast þeir að stytting
vinnuvikunnar úr 39 stundum í 35
muni hafa í för með sér launalækk-
un fyrir þá og segjast munu grípa
til aðgerða öðru hvoru þar til orðið
hafi verið við kröfum þeirra. Þá
verða lestarstarfsmenn í París í
verkfalli í dag og sumt starfsfólk í
heilbrigðiskerfinu hefur boðað að-
gerðir. Myndin sýnir hvemig flutn-
ingabílstjórarnir lokuðu einni
landamærastöðinni við Ítalíu.
Reuters.
Lagt upp í
lestarferð
MEIRA en tvær milljónir manna
sóttu mikla trúarhátíð múslima í
bænun Tongi skammt frá Dhaka,
höfuðborg Bangladesh, en hér er
fólkið á heimleið. Sér varla í lestina
fyrir fólki og leiðir það hugann að
þvf, að lestarslys og önnur slys á
láði og legi eru óvíða mannskæðari
en í Bangladesh.
----------------
Slakað á
barneign-
arstefnu
Peking. AFP.
STJÓRNVÖLD í Kína ætla að slaka
nokkuð á hinni opinberu bameignar-
stefnu en samkvæmt henni mega
hjón aðeins eiga eitt barn.
Á fréttamannafundi, sem Zhang
Yuqin fjölskyldumálaráðherra boð-
aði til í Peking í gær, sagði hún, að
fólki, sem hefði verið eina barn for-
eldra sinna, yrði leyft að eiga tvö
börn. Talið er, að um sé að ræða 60
milljónir manna.
Zhang sagði, að skoðanakönnun,
sem gerð hefði verið meðal þessara
einkabarna, sýndi, að þau kærðu sig
ekki um mörg börn, en ekki vildi hún
spá neinu um áhrif stefnubreyting-
arinnar á fjölda fæðinga í landinu.
Mannfjölgunin í Kína var 2,6% ár-
lega seint á áttunda áratugnum en
0,9% á síðasta ári. Búist er við, að
Kínverjar verði 1,3 milljarðar við lok
þessa árs; 1,4 milljarðar 2010 og
þeim hætti að fjölga er mannfjöldinn
verður á bilinu 1,5 til 1,6 milljarðar.
í raun hefur barneignarstefnunni
aðeins verið framfylgt í fjórum
stærstu borgunum og tveimur fjöl-
mennustu héruðunum en annars
staðar hafa hjón fengið að eiga annað
barn ef það fyrsta er stúlka.
MORGUNBLAÐK) 1. FEBRÚAR 2000