Morgunblaðið - 01.02.2000, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 2000 19
AKUREYRI
Mjólkurframleiðendur óska eftir gögnum frá KEA um rekstur Mjólkursamlagsins
Vilja óháð mat á samlaginu
og mjólkinni sem eign sinni
FIMMTÍU mjólkurframleiðendur á samlagssvæði
Mjólkursamlags KEA hafa skrifað undir áskorun
til stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga, þar sem þeir
óska eftir því að félagið láti af hendi nauðsynlegar
upplýsingar svo fram geti farið verðmat óháðs aðila
á Mjólkursamlagi KEA og mjólkinni sem eign
framleiðenda í viðskiptum við Mjólkursamlagið.
Mjólkurframleiðendumir hafa í því sambandi leitað
aðstoðar Islenskra verðbréfa hf. í samvinnu við
PriceWaterhouse Coopers.
Markmið verðmatsins er að mjólkurframleið-
endumir geti áttað sig betur á verðmæti félagsins
og þar með tekið meðvitaða ákvörðun um öll tiiboð
sem kunna að koma frá KEA varðandi mjólkurs-
amlag félagsins. Óska þeir eftir að lagðir verði fram
ársreikningar, skýrslur og önnur gögn sem geta
haft áhrif á áreiðanleika slíks verðmætamats. Jafn-
framt óska mjólkurframleiðendurnir eftir því að fá
til hliðsjónar þær forsendur sem yfirstjóm KEA
hefur við það verðmat sem nú liggur íyrir, sem og
fyrri greiningar um verðmat og afkomu Mjólkurs-
amlagsins.
Finnur Sigurgeirsson bóndi á Staðarhóli í Eyja-
fjarðarsveit er einn þeirra sem skrifuðu undir
áskorunina og hann sagði að ekki hefði verið leitað
eftir því við fleiri bændur að þeir skrifuðu undir, en
að þeir hefðu örugglega getað verið fleiri. Finnur
sagði bændur almennt sammála um að það sé rétt
skref að stofna sameiginlegt hlutafélag mjólkur-
framleiðenda og KEA um rekstur mjólkurstöðva.
Hins vegar eigi hlutur mjólkurframleiðenda að
vera stærri í því félagi en rúm 30% - helmingshlut-
ur þeirra sé nær sanni, auk þess sem mjólkurfram-
leiðendur eigi þrjá menn í stjórn hlutafélgsins á
móti tveimur fulltrúum KE A.
Mjólkin örugglega 50% virði
„Þetta snýst fyrst og fremst um eignarhlutinn í
hinu nýja félagi og ég skora á bændur að skrifa ekki
undir viðskiptasamninga við Mjólkursamlagið fyrr
en 50% eignarhlutur hefur náðst í hinu nýja félagi.
Mjólkin sem eign bænda er öruggfega 50% virði á
móti eignum KEA í Mjólkursamlaginu. Einnig höf-
um við miklar áhyggjur af skuldastöðu mjólkurs-
amlagsins eftir að KEA skerti eigið fé þess um 500
milljónir króna. Þá mun það einnig kosta okkur
framleiðendm' mikið fé að eignast stærri hlut en
þessi rúmu 30% í sameiginlegu hlutafélagi, ekki síst
þegar kominn verður á viðskiptasamningur til
fimm ára um mjólkurinnlegg okkar til félagsins.
Þama eru gífurlegir hagsmunir í húfi fyrir okkur
og því mikilvægt að rekstrai'grundvöllur þessa
nýja félags verði góður og að við höfum afgerandi
áhrif á stjómun þess í framtíðinni.“
Finnur sagði að ýmsir mjólkurframleiðendm’
væm alvarlega að hugsa um að færa viðskipti sín til
annarrar afurðastöðvar ef ekki fengist leiðrétting á
fyrirliggjandi mati og væri þar helst horft til Mjólk-
ursamsölunnar í Reykjavík.
Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hefur
stjórn KEA samþykkt að heimila stjórnarformanni
og kaupfélagsstjóra að ganga frá samkomulagi við
viðræðunefnd mjólkurframleiðenda í Eyjafii'ði og
S-Þingeyjarsýslu um eignaraðild framleiðenda að
mjólkursamlögunum á grandvelli fyrirliggjandi
samningsdraga. Sigurgeir Hreinsson formaður
Búnaðarsambands Eyjafjarðar, sem sæti á í við-
ræðunefndinni, telur samkomulagið viðunandi og
hann hvetur bændur til að taka þátt í því - ekki hafi
verið hægt að komast lengra í þessu skrefi.
Bændum tryggð jöfn áhrif
Stofnuð hafa verið einkahlutafélög um mjólkur-
samlögin, MSKEA ehf. á Akureyri og MSKÞ ehf. á
Húsavík. KEA á félögin að öllu leyti en þau verða
sameinuð í eitt félag.
Framleiðendasamvinnufélag kúabænda í Eyja-
firði og Þingeyjarsýslu mun eignast allt að 34% í
hinu nýja félagi á móti að minnsta kosti 66% hlut
KEA, gegn því að leggja fram bindandi viðskipta-
samninga við framleiðendur um að leggja inn í sam-
lagið að minnsta kosti 99% af þeirri mjólk sem
framleidd er á svæðinu. Fyrir hvert prósentustig
mjólkurframleiðslunnar sem ekki næst samkomu-
lag um, minnkar eignarhald bænda um 1%.
í hluthafasamkomulagi, sem gert verðui' sam-
hliða samningunum, era bændum tryggð jöfn áhrif
á við kaupfélagið um stjórnun mjólkurfélagsins,
bændur tilnefna tvo menn í stjóm, KEA tvo en aðil-
ar tilnefna fímmta mann sameiginlega.
Félag áhugafolks og
aðstandenda Alz-
heimersjúklinga
Félags-
fundur í
kvöld
FELAG áhugafólks og aðstandenda
Alzheimerssjúklinga og heilabilaðra
á Norðurlandi heldur félagsfund í
kvöld, þriðjudaginn 1. febrúar, kl.
20.30 í salnum á Dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyi’i.
A fundinum verður kynntur nýr
bæklingur sem félagið er að fara að
gefa út. Bæklingurinn er um
Alzheimersjúkdóminn og aðra minn-
issjúkdóma. Helga Haraldsdóttir
jógakennari mætir á fundinn í kvöld
og mun kynna jóga fyrir félags-
mönnum og hvaða áhrif slökun getur
haft á líkama og sál.
Helga Hjálmarsdóttir, félagsráð-
gjafi á FSA á Kristnesi, mætti á fund
hjá félaginu í lok síðasta árs og
ræddi um stuðningshópa fyrir
aðstandendur heilabilaðra. Helga og
Valgerður Valgarðsdóttir djákni
ætla að stjórna hópunum og verður
reynt að hjálpa fólki að takast á við
erfiðleikana sem fylgja því að eiga
aðstandanda með heilabilun. Félagið
fékk síma að gjöf frá Landssímanum
í nóvember sl. og er símanúmerið
867-9600.
30 missa vinnuna endanlega í Hrísey
Astandið mun al-
varlegra en Snæ-
fell vill vera láta
Morgunblaðið/Kristján
Börnin hrifin af snjónum
ALVARLEGT ástand ríkir nú í at-
vinnumálum í Hrísey en í gær lok-
aði Snæfell endanlega pökkunar-
stöð sinni í eynni. Forsvarsmenn
Hríseyjarhrepps munu hitta þing-
menn kjördæmisins síðar í vikunni
og ræða við þá um hið alvarlega
ástand og þá ætla þeir einnig að
sögn Péturs Bolla Jóhannessonar
sveitarstjóra að reyna að ná fundi
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra vegna málsins.
„Við höfum þegar gert forsætis-
ráðherra grein fyrir stöðunni bréf-
lega og það var áður en uppsagnir
starfsfólks tóku gildi. Nú hefur
pökkunarstöðinni verið lokað og
þeir 35 starfsmenn sem þar störf-
uðu hættir. Forsvarsmenn Snæf-
ells hafa iðulega gert minna úr
ástandinu en efni standa til að okk-
ar mati, en þeir fullyrða ævinlega
að um 12 störf sé að ræða. Það
unnu um 35 manns þarna og þeir
hafa nú misst vinnuna. Hugsanlegt
er að nokkrir þeirra, sennilega 6
manns, fái áfram vinnu við vinnslu
á laxi. Það verða því um 30 manns
sem missa vinnuna endanlega hér í
eynni, ástandið er því mun alvar-
legra en þeir Snæfellsmenn vilja
vera láta,“ sagði Pétur Bolli.
„Þetta er í rauninni skelfilegt
ástand."
Sveitarstjóri sagði að í upp-
sagnabréfi starfsfólks í Hrísey
tæku forsvarsmenn Snæfells fram
að þeir væru tilbúnir að vera fólki
innan handar með útvegun nýs
starfs á Dalvík eða í Hrísey. í bréfi
frá starfsfólkinu kemur fram að
það trúi því og treysti að Snæfell
eða KEA komi að atvinnumálum í
Hrísey og einnig kemur þar fram
að þeir þekkist boð fyrirtækisins
um aðstoð við útvegun nýrrar at-
vinnu í eynni. Pétur Bolli sagði um-
rætt bréf hafa verið skrifað 10.
nóvember, en ekkert hafi gerst í
málinu, annað en það að Snæfell
hafi hafnað því að taka þátt í upp-
byggingu nýs fyrirtækis í eynni á
sviði fiskvinnslu.
Sveitarfélagið skoðaði á síðasta
ári möguleika á að kaupa sælgætis-
verksmiðju frá Danmörku og setja
upp í eynni. Hinir dönsku eigendur
verksmiðjunnar slitu nýlega við-
ræðum við Hríseyinga á þeim
grundvelli að þeir sættu sig ekki
við þann frest sem gefinn var. Leit-
að hafði verið eftir fjármagni frá
Nýsköpunarsjóði, Tækifæri og
Byggðastofnun og þar var málið til
athugunar en engin svör höfðu bor-
ist um hvort fé yrði lagt í fyrirtæk-
ið af hálfu sjóðanna. Eigendur
verksmiðjunnar höfðu ekki úthald í
að bíða eftir þeim svörum lengur.
Um 10 manns, þar af einhverjir
úr hópi fyrrverandi starfsmanna
Snæfells, hafa fengið fyrirheit um
störf við fjarvinnslu í Hrísey á veg-
um íslenskrar miðlunar og Hrís-
eyjarhrepps, en starfsemi er enn
ekki hafin hjá fyrirtækinu.
Fíkniefna-
neysla og sala
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar á Akureyri handtók fimm
ungmenni, um og undfr tvítugu sl.
fbstudagskvöld vegna gruns um
fíkniefnaneyslu, auk þess sem einn
úr hópnum var grunaður um fíkni-
efnasölu.
í fóram ungmennanna fundust 13
grömm af hassi og 3 grömm af am-
fetamíni. í gær var svo maður hand-
tekinn og í fóram hans fundust 25
grömm af amfetamíni og 20 grömm
af hassi. Eftir yfirheyrslm- lágu fyrir
játningar og teljast málin upplýst.
Daníel Snorrason lögreglufulltúi
sagði útlit fyrir að árið hæfist jafn
illa og árið í fyrra endaði en þá fjölg-
aði fíkniefnamálum til mikilla muna
frá árinu áður.
VETUR konungur heilsaði upp á
Iandann á ný um helgina eftir ein-
muna veðurblíðu undanfarnar vik-
ur. Á þeim tíma hvarf allur snjór og
stunduðu Eyfírðingar golfíþróttina
af krafti, bændur keyrðu skít á tún
og plægðu önnur. Vorilmur var í
lofti og margir komust í sumar-
skap, þótt aðeins væri janúarmán-
uður. Skíðafólk kættist hins vegar
er fór að snjóa á ný og börnin
kunna alltaf jafn vel við sig í snjón-
um. Isak og Helga Nína eru þar
engin undantekning en þau voru að
kanna snjódýptina í húsagarði í
Þorpinu á Akureyri.
Leiguskipti
5-6 herbergja einbýlishús til leigu á Akureyri
vorið 2000 í skiptum fyrir sambærilega eign
á stór—Reykjavíkursvæðinu.
Upplýsingar gefa Hreinn/Þórunn
í síma 462 5743 eða 897 5743.
I
m
íiiIímIi
Sex sinnu
...ftjújiufrekar
Bókaðu í síma 570 3030 0; 460 7000
Fax 5703001 * websalesðairicelamUs ‘www.flujfelaf.is
FLUGFELAG ISLANDS