Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 1

Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 1
STOFNAÐ 1913 60. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Stoltenberg reynir að mynda nýja stjdrn 1 Noregi V onast eftir niðurstöðu í næstu viku Ósló. Reuters, AFP. AP Jens Stoltenberg í lest á leið til skrifstofu sinnar í Ósló áður en hann hélt á fund Noregskonungs í gær og fékk umboð til að mynda nýja ríkis- s^jórn. Stoltenberg fer yfirleitt með lest til vinnu sinnar þar sem hann vill ekki valda mengun með því að aka bfl. JENS Stoltenberg, forsætisráð- herraefni Verkamannaflokksins í Noregi, kvaðst í gær hafa fallist á að reyna að mynda nýja ríkisstjórn eftir að Kjell Magne Bondevik for- sætisráðherra baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. „Eg hef samþykkt að kanna hvort ég geti myndað stjórn,“ sagði Stoltenberg eftir fund með Haraldi konungi sem veitti honum umboð til stjórnarmyndunar. „Ef allt gengur að óskum ætti þetta að skýrast í næstu viku.“ Ekki búist við miklum stefnubreytingum Flokkar fráfarandi stjórnar sögð- ust ætla að halda samstarfmu áfram í stjórnarandstöðu. Nokkrir aðrir flokkar, m.a. Hægri flokkur- inn, vonast til þess að Stoltenberg verði að skila stjórnarmyndunar- umboðinu og þeir fái þá tækifæri til að mynda nýja minnihlutastjórn. Stoltenberg, sem er formaðui' þingflokks Verkamannaflokksins, hefur verið hlynntur því að Noreg- ur gangi í Evrópusambandið en flokkar fráfarandi stjórnar lögðust gegn tillögu um aðild að samband- inu sem var hafnað í annað sinn í þjóðaratkvæðagreiðslu 1994. Stjórnmálaskýrendur töldu þó mjög ólíklegt að Stoltenberg myndi beita sér fyrir aðild að ESB á kjör- tímabilinu, sem lýkur seint á næsta ári, og spáðu því að næsta stjórn myndi framfylgja svipaðri stefnu og stjórn Bondeviks. „Munurinn á stefnu norsku flokk- anna getur ekki verið minni og við búumst ekki við neinum róttækum breytingum í helstu málaflokkun- um,“ sagði Tor Bjorkelund, sér- fræðingur í Evrópumálum við Ósló- arháskóla. Stoltenberg verður 41 árs á fimmtudaginn kemur og takist hon- um að mynda stjórn verður hann yngsti forsætisráðherrann 1 sögu Noregs. Hann er sonur Thorvalds Stoltenbergs, fyrrverandi utanrík- isráðherra, og tók þátt í mótmælum andstæðinga Víetnamstríðsins þeg- ar þeir brutu rúður í bandaríska sendiráðinu í Ósló til að mótmæla sprengjuárás á Haiphong árið 1973. Um hundrað umhverfisverndar- sinnar gerðu hróp að Stoltenberg við konungshöllina í Ósló og mót- mæltu stuðningi hans við áform um að reisa gasraforkuver í Noregi. Stjórn Bondeviks ákvað að segja af sér eftir að Verkamannaflokkurinn og Hægrifiokkurinn felldu stjórnar- frumvarp sem ætlað var að koma í veg fyrir að orkuverið yrði reist. ■ Fall stjórnarinnar/30 Svíþjóð Jafnaðar- menn vilja evruna Stokkhólmi. AFP. SÆNSKIR jafnaðarmenn samþykktu á flokksþingi í gærkvöldi að stefna að því að Svíþjóð tæki upp evruna, að sögn fréttastofunnar TT. Tillaga um að fram færi þjóð- aratkvæðagreiðsla um aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu, EMU, var samþykkt á flokksþinginu með 234 atkvæð- um gegn 113. Tveir sátu hjá. Göran Persson, leiðtogi flokksins og forsætisráðherra, hafði látið svo um mælt að það væri landinu fyrir bestu að fá inngöngu í EMU. Stjórnmála- skýrendur telja líklegt að þjóð- aratkvæðagreiðslan fari fram eftir þingkosningamar árið 2002. Bretar einir utan EMU? Danska stjórnin tilkynnti í fyrradag að efnt yrði til þjóð- aratkvæðagreiðslu um EMU- aðild Danmerkur í haust og gríska stjórnin hefur sótt um inngöngu í bandalagið. Hugs- anlegt er því að Bretland verði eina ESB-ríkið utan evru- svæðisins. AP Beðið eftir þurrki HJÁLPARSTARFIÐ á flóðasvæð- unum í Mósambík hófst á ný í gær eftir að hafa legið niðri í tvo daga vegna slæms veðurs. Reynt var að koma matvælum, vatni og lyfjum til um 200.000 manna sem hafast við í flóttamannabúðum. Einn flótta- mannanna bíður hér eftir því að regninu sloti í verksmiðju í Maputo þar sem hann hefur leitað skjóls ásamt hópi manna sem misstu heimili sín í flóðunum. Mesta mannfall í Tsjetsjníu á einni viku Moskvu. Reuters. Reuters, AP, AFP. RÚSSNESKI herinn skýrði frá því í gær að 156 hermenn hefðu fallið og 157 særst í hörðum bardögum um bæinn Komsomolskoje í Suður- Tsjetsjníu síðustu sex daga. Er þetta mesta manntjón hersins á einni viku frá því átökin hófust fyr- ir rúmum fimm mánuðum. Um það bil 100 hermenn féllu á viku í hörð- ustu bardögunum um Grosní, höf- uðstað héraðsins. Harðir bardagar hafa geisað um Komsomolskoje síðustu sex daga og hafa rússneskar orrustuþotur, tvær í senn, látið sprengjum rigna yfir bæinn með 10 mínútna milli- bili. Haft er eftir vitnum að til að sjá virðist aðeins ein þriggja hæða bygging uppistandandi en skæru- liðarnir verjast samt enn í rústun- um. Vladímír Pútín, settur forseti Rússlands, lagði í gær til að komið yrði á beinni forsetastjórn í Tsjetsjníu í nokkur ár eftir forseta- kosningarnar 26. þessa mánaðar. Kínverjar mótmæla vopnasölu til Taívans Bandaríkjunum kennt um spennuna TANG Jiaxuan, utan- ríkisráðherra Kína, sakaði í gær Banda- ríkjamenn um að hafa valdið aukinni spennu milli Kínverja og Taí- vana og krafðist þess að sölu bandarískra vopna til Taívans yrði hætt tafarlaust. „Bandaríkin hafa þanið út hroka að- skilnaðaraflanna á Taívan og bera því óvefengjanlega ábyrgð á spennunni," sagði kínverski utan- ríkisráðherrann. Tang fordæmdi ýmsar ráðstafanir sem Bandaríkin hafa gert til að auka samstarfið við Taívan á sviði varnarmála og sagði þær „alvarlegt brot“ á samningum Bandaríkjanna og Kína. Hann var- aði við því að spennan í samskipt- um Kína og Taívans væri komin á „hættulegt stig“ og krafðist þess að Bandaríkjamenn hættu tafar- laust að selja Taívönum vopn. William Cohen, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði hins vegar að Bandaríkjastjórn myndi ekki hætta samstarfinu við Taívan þrátt fyrir harðorðar yfirlýsingar Kínverja að undanförnu vegna for- setakosninganna í landinu á laug- ardaginn kemur. „Bandaríkja- Tang Jiaxuan stjórn lætur ekki þvinga sig með hótun- um,“ sagði hann. Krefst refsingar vegna árásar á sendiráðið Tang krafðist þess einnig að Bandaríkja- menn refsuðu þeim sem bæru ábyrgð á sprengjuárás flugvéla Atlantshafsbandalags- ins á kínverska sendi- ráðið í Belgrad á síð- asta ári. Hann sagði að þótt samkomulag hefði náðst um að Bandarík- in greiddu skaðabætur vegna árásarinnar gæti kínverska stjórnin ekki enn fallist á þá skýr- ingu NATO að árásin hefði verið gerð fyrir mistök vegna þess að stuðst hefði verið við úrelt kort af Belgrad þegar skotmarkið var val- ið. Þá kom fram á blaðamannafundi utanríkisráðherrans að Rússar skýrðu Kínverjum ekki frá því að þeir hygðust reyna að bæta sam- skiptin við NATO. Vladímír Pútín, settur forseti Rússlands, lýsti því yfir fyrr í vikunni að hann vildi nánari tengsl við NATO en Tang sagði að Pútín hefði ekki minnst á það mál á fundi þeirra í Moskvu í síðasta mánuði. Heldur Prinslnn krúnunniP 515 6100 j=njn MORGUNBLAÐIÐ 11. MARS 2000 5 690900 090000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.