Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum
Ljósmynd/ SÞ-Evan Schneider
Þorsteinn Ingólfsson stjórnar fundi hjá allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna í gœr. Með honum á myndinni er Jin Yongjian, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.
Starfandi
forseti
allsherjar-
þings
ÞORSTEINN Ingólfsson, fasta-
fulltrúi Islands hjá Sameinuðu
þjóðunum, stjórnar þessa dagana
fundum allsherjarþingsins, en
hann var kjörinn einn af varafor-
setum þess í september. Hann var
tilnefndur af Theo-Ben Guriab,
forseta 54. allsherjarþingsins, sem
starfandi forseti þingsins tímabil-
ið 8. til 22. mars. Þorsteinn er
fyrstur Islendinga til að gegna
starfi starfandi forseta til lengri
tíma, en Thor Thors og Tómas Á.
Tómasson voru báðir kjörnir
varaforsetar allsherjarþingsins og
hlupu endrum og sinnum f skarð
forseta.
Fjallað um aðstoð
við Mósambík
Þorsteinn segir starfið felast í
fundarstjórn og undirbúningi
funda allsherjarþingsins, en á
fóstudag samþykkti allsherjar-
þingið áskorun til aðildarríkjanna
um aðstoð við Mósambík vegna
þeirra miklu flóða sem hafa hrjáð
landið að undanförnu. Einnig var
Iýst yfir áhyggjum af ástandinu á
Madagaskar, sem á við svipað
vandamál að stríða.
Þorsteinn segir mestu vinnu
forseta felast í undirbúningi
funda. „Þar við bætist auðvitað
fundarstjórnin sjálf. Einnig tíðk-
ast að gestkomandi ráðherrar
óska eftir fundum með oddvitum
öryggisráðsins og allsherjarþings-
ins og því verður að sjálfsögðu að
sinna,“ segir Þorsteinn.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna er starfandi allt árið, þótt
mestu umsvifin séu á haustin og
fram að jólum þegar þingið er sett
og ráðherraumræðan fer fram. Þá
er þingi slitið degi áður en næsta
þing er sett. Allsherjarþingið er
kallað saman eftir þörfum.
Að sögn Þorsteins verða vænt,-
anlega í næstu viku teknar
ákvarðanir um fyrirkomulag leið-
togafundar Sameinuðu þjóðanna
sem verður haldinn í september.
Jóhanna ekki í kjöri
JÓHANNA Sigurðardóttir alþing-
ismaður hefur ákveðið að vera ekki
í kjöri sem fyrsti formaður Sam-
fylkingarinnar.
„Að vel athuguðu máli og í sam-
ráði við mína stuðningsmenn er
það niðurstaða mín að bjóða mig
ekki fram nú til formanns Sam-
fylkingarinnar, hvað sem síðar
verður,“ segir Jóhanna á heima-
síðu sinni í gær.
Þar kemur fram að hún hafi
vandlega velt fyrir sér í aðdrag-
anda stofnfundar Samfylkingarinn-
ar og formannskjörs hvernig hún
gæti best tryggt að sjónarmið um
jöfnuð, samhjálp og réttlæti í þjóð-
félaginu yrðu ríkjandi í stefnu og
starfsháttum Samfylkingarinnar.
„Þessari stefnu fylgdi ég eftir í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík í janúar á sl. ári og náði
þar kjöri sem oddviti Samfylking-
arinnar í Reykjavík. Tæplega 6200
manns veittu þar þeirri stefnu
minni brautargengi en það er svip-
aður fjöldi og nú er í aðildarfélög-
um Samfylkingarinnar sem munu
velja formann hennar í næsta mán-
uði,“ segir Jóhanna.
Síðar segist hún telja að hún
tryggi framgang þessara hugsjóna
best í náinni framtíð sem oddviti
Samfylkingarinnar í Reykjavík.
„Þannig gefst mér meira svigrúm
til að fylgja eftir hugsjónum og
baráttumálum þess fjölda fólks
sem veitt hefur mér brautargengi í
stjórnmálum," segir hún.
I farbanni
vegna nauðgun-
arrannsóknar
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest að
hluta farbannsúrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir bandarískum
ferðamanni, sem ákærður var fyrir
að hafa nauðgað stúlku hér á landi í
lok febrúar. Samkvæmt úrskurði
héraðsdóms var maðurinn settur í
farbann til 31. mars en samkvæmt
dómi Hæstaréttar skal aflétta far-
banninu 20. mars þar sem rannsókn
lögreglu er langt komin.
Lögreglan taldi í rökstuðningi
sínum fyrir farbannskröfunni að
veruleg hætta væri á að maðurinn
færi af landi brott og kæmi sér
þannig undan frekari rannsókn og
mögulegri saksókn. Verjandi
mannsins sagði fyrir héraðsdómi,
þegar farbannskrafan var tekin til
úrskurðar, að kærði hefði haft næg
tækifæri til að koma sér úr landi ef
hann hefði ætlað að koma sér und-
an sakfellingu, enda hefðu níu dag-
ar liðið á milli framlagningar kæru
stúlkunnar og farbannskröfu lög-
reglu. Hann myndi einnig koma aft-
ur hingað til lands ef til ákæru
kæmi.
Morgunblaðið/Golli
Viðrar til
útiverka
LÍTT hefur viðrað undan-
famar vikur til útiverka og
hver stórhríðin á fætur
annarri gert landanum lífið
leitt. Síðustu daga hefur þó
rofað til og þá er um að
gera að nota tækifærið til
verka úti við, eins og þessir
smiðir gerðu á dögunum á
Seltjarnarnesi.
En veturinn linar tökin
hægt og framundan eru
umhleypingar sem varla
gleðja þá sem sinna störfum
sínum undir berum himni.
Á höfuðborgarsvæðinu
er spáð suðaustan 8-13 m/s
með slyddu og síðar rign-
ingu þegar líða tekur á dag-
inn í dag. Þegar sunnudag-
urinn gengur í garð má
búast við vægu frosti og
vindstrekkingi upp á 15-20
m/s og snjókomu með köfl-
um vestanlands, en úr-
komuh'tið fyrir austan og
þar verður frostlaust.
Framsal á stuðningi heimilað árið 2004 í nýjum samningi við sauðfjárbændur
Lítilsháttar aukning á
stuðningi við bændur
Þjóðminja-
vörður
lætur af
störfum
Björn Bjarnason, mennta-
málaráðherra, féllst í gær á
ósk Þórs Magnússonar um að
honum verði veitt lausn frá
embætti þjóðminjavarðar frá
og með 1. apríl nk. Að sögn
ráðherra verður staðan fljót-
lega auglýst laus til umsókn-
ar.
Þór mun hafa tilkynnt
starfsfólki Þjóðminjasafnsins
ákvörðun sína á fundi í gær-
morgun, en í tilkynningu frá
menntamálaráðuneytinu segir
að samkomulag sé um að Þór
Magnússon sinni fræðilegum
verkefnum á sviði þjóðminja-
vörslu á næstu tveimur árum.
GERT er ráð fyrir áframhaldandi
beinum stuðningi við sauðfjárbænd-
ur samkvæmt drögum að samningi
um framleiðslu sauðfjárafurða milli
ríkisins og bænda, sem gert er ráð
fyrir að verði undirritaður í dag.
Samningurinn, sem gert er ráð fyrir
að taki gildi í ársbyrjun 2001 og gildir
til næstu sjö ára, felur í sér lítilshátt-
ar hækkun á stuðningi til bænda frá
síðasta sauðfjársamningi.
Samkvæmt tilboði ríkisins verður
stuðningur við bændur 2.290 milljón-
ir kr. á ári og 990 milljónir kr. til við-
bótar í byrjun samnings til að aðstoða
bændur við að hætta búskap. Miðað
við 45.000 ærgilda uppkaup verður
árlegur kostnaður ríkisins 2.202
milljónir kr. Beingreiðslur og jöfnun-
argreiðslur verða 1.800 milljónir kr.,
þróunar- og þjónustukostnaður 235
milljónir kr., niðurgreiðslur á ull 220
milljónir kr. og í liðinn „fagmennska
og landbætur" fara 35 milljónir kr.
í núgildandi sauðfjársamningi er
árlegur stuðningur ríkisins við bænd-
ur 2.208 milljónir króna og þá var í
upphafi samnings 400 milljónum
króna varið til að aðstoða bændur við
að hætta búskap.
Kröfur bænda voru beingreiðslur
upp á 1.850 milljónir kr., vaxta- og
geymslukostnaður 230 milljónir kr.,
niðurgreiðslur á ull 220 milljónir ki-.,
hagræðing og vöruþróun 40 milljónir
kr. og fagmennska og landbætur 100
milljónir kr.
Rekstraröryggi til sjö ára
„Samningurinn felur í sér rekstr-
aröryggi í greininni til sjö ára sem er
mjög mikilvægt. Samningurinn er
verðtryggður sem er nauðsynlegt
með svo langan samning og í honum
er verulegur hvati til breyttra bú-
skaparhátta og sáttar við land og um-
hverfi," sagði Ari Teitsson, formaður
Bændasamtakanna. Framleiðendur
sauðfjárafurða eru 2.000-2.400 en
margir hafa sauðfjárframleiðslu ekki
að aðalatvinnu. í máli Ara kom fram
að framsal á stuðningi ríkisins við
bændur verður framseljanlegt árið
2004 án takmarka. Telm- Ati að
styrkur ríkisins geti hjálpað 300-500
framleiðendum að hætta. Samning-
urinn fer í almenna atkvæðagreiðslu
á næstu þremur vikum eftir að hann
hefur verið undimtaður og telur Ari
líklegt að hann verði samþykktur.
Sérblöð í dag
rilramiiiiiiitlyÍOTWw
Njarðvík deildarmeistari
í körfuknattleik /B2
Stuttgart og Karlsruhe fylgjast
með Auðuni /B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
T T/ ^ITT áfákMjtíkás
ÁLAUGARDÖGUM