Morgunblaðið - 11.03.2000, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftirlrt brugðist
0/ vió- lt
... .'(IIX
IGrtUhJD*
Sýna heilbrigðisvottorð, takk.
/ / /
NYTT A ISLANDI
Dr. Edwards Bach
Erlendur sérfræðingur talar gegn klámi
Klám er
kennslutæki
Diana E.H. Russell
DR. Diana E.H.
Russell heldur er-
indi í Iðnó klukk-
an 14 í dag, laugardag, í
tilefni tíu ára afmælis
Stígamóta. Dr. Diana Rus-
sell hefur helgað líf sitt
baráttu gegn ofbeldi á
konum, einkum kynferðis-
legu ofbeldi. Hún hefur
skrifað fjölda bóka um
þetta efni. En um hvað
mun hún fjalla í fyrirlestri
sínum?
„Ég mun fjalla um
hvemig klám orsakar of-
beldi gegn konum. Ég hef
séð það í rannsóknum mín-
um að klám beinlínis or-
sakar ofbeldi."
- Hvernig hangir þetta
tvennt saman?
„Karlmenn eru aðal-
neytendur kláms í heimin-
um. Allir vita að karlmenn örvast
kynferðislega við að horfa á nakt-
ar konur. Þegar sýnd er nekt og
ofbeldi samtímis þá þjálfar það
beinlínis upp það að menn tengi
þetta saman og það ítrekar einnig
fyrirlitningu á konunni sem hlut -
en þannig eru konur gjarnan
sýndar í klámmyndum og klám-
blöðum.“
-Hefur þú skoðað hvemig
klám birtist á íslandi?
„Já, ég hef skoðað það og
keypti m.a. nýjustu úgáfuna af
Bleiku og bláu. í því hefti eru
myndir sem ekki myndu vera
leyfðar í löndum í kringum okkur,
t.d. eru þar myndir sem sýna
endaþarmsmök. Einnig eru þar
myndir sem sýna konur með eng-
in skapahár. Kynfæri fullorðinna
kvenna eru ekki þannig og að
gera þau þannig getur að mínu
mati leitt áhuga manna sem ella
hefðu ekki áhuga á börnum að
kynfærum þeirra. I blaðinu er
einnig teiknimynd þar sem maður
er að hafa samfarir við svarta
konu sem greinilega þjáist og
uppsetningin í myndinni sýnir
augljósa fyrirlitningu á hinni
svörtu konu. Margar myndir í
blaðinu sýna kynfæri kvenna
nauðarökuð sem einnig er dæmi
um fyrirlitningu á hinni fullvöxnu
konu. Þá er teikning af barnalegri
stúlku með rökuð kynfæri í sam-
förum við Dýrið. Þarna er vísað í
mjög vinsæla teiknimynd, Fríða
og Dýrið. Fríða er gerð mjög
bamsleg en í greininni er verið að
fjalla um síðasta tabúið - samfaiir
kvenna og dýra undir yfirskyni
fræðslu. I teiknimyndaseríu er
fjallað um kynferðisóra ungs
drengs á ruddafenginn hátt þar
sem myndimar sýna konu niður-
lægða og vísa þær jafnframt til
kynþáttafordóma."
- Hvernig er þessu háttað þar
sem þú hefur gert þínar rann-
sóknir?
„Ég varð sjálf fyrir kynferðis-
legu ofbeldi þegar ég var bam og
sú reynsla hefur orðið til þess að
ég hef rannsakað þessi mál.
Stundum heyrist fólk
segja að börn geti bor-
ið einhverja ábyrgð á
slíku - ég veit að svo er
ekki, hvað sem alls
kyns fræðingar hafa
sagt í gegnum tíðina.
Þetta er ekki viður-
kennd afstaða t.d. á
íslandi í dag - en öll
þekkjum við sögur um að litlar
stúlkur séu tælandi í framferði og
menn hafi ekki getað hamið sig og
það hafi leitt til misnotkunar.
Þetta er rugl, menn em ábyrgir
fyrir hegðun og löngunum. En
vegna þess að þeir vilja ekki horf-
► Diana E.H. Russell fæddist í
Cape Town f Suður-Afríku. Hún
stundaði nám fyrst í Cape Town
en tók svo próf frá London
School of Economics í félagsvís-
indum og doktorspróf frá Harv-
ard í sama fagi. Hún hefur starf-
að sem prófessor í 22 ár í
félagsfræði við Mills-háskóla,
sem er kvennaskóli í Kaliforníu.
ast í augum við ábyrgðina þá
halda þeir því fram að börnin séu
tælandi. Hin gamla freudíska goð-
sögn um að stúlkur laðist að feðr-
um sínum er hin mesta firra, það
em hins vegar til feður sem hafa
kynferðislegan áhuga á dætmm
sínum og til em þeir sem misnota
þær. Það er hins vegar ekki svo
að allir feður líti lostaaugum á
dætur sínar, því fer víðsfjarri."
- Hvernig er ástandið í þessum
efnum í þínu umhverS?
„Samkvæmt úrtaksrannsókn
sem ég gerði í San Francisco kom
i Ijós að 4% kvenna höfðu verið
misnotaðar af feðmm sínum, fóst-
ur- eða stjúpfeðmm. En ég verð
að taka fram að ekki er kunnugt
hve margar konur eða stúlka hafa
raunveralega verið misnotaðar á
þessu svæði. Á geðdeildum, í
fangelsum og meðal vændis-
kvenna em þessar prósentutölur
miklu hærri, það er vitað. Ef tekin
er hins vegar með í reikninginn
öll kynferðisleg misnotkun á
börnum í hvaða formi sem er þá
hækkar talan upp í 38%, ef líka
era teknir með menn sem bera
sig þá er talan enn hærri - fer upp
í 52%.“
- Ert þú að berjast gegn klámi
ekki síður en ofbeldi?
„Já, sannarlega, ámm saman
hef ég barist gegn klámi og ég hef
meira að segja verið handtekin og
eitt nótt í fangelsi fyrir að eyði-
leggja klámblöð. Það er mjög
mikilvægt að láta klám ekki við-
gangast þvf að klám er raunvem-
lega í eðli sínu ofbeldi gegn kon-
um og kennir mönnum
kvenfyrirlitningu. Sumir segja að
klám geti verið gagn-
legt sem útrás fyrir
menn. Ég er algerlega
ósammála þessum rök-
um - ef þau væm hald-
bær hvers vegna era
þá ekki til blöð þar sem
foreldrar eru að berja
börn sín eða hvítir
menn að myrða svertinga sem
fólk gæti skoðað til að fá útrás
fyrir reiði og kynþáttahatur.
Klám fær menn til að horfa á kon-
ur sem hluti en ekki manneskjur
- þetta er spurning um mannrétt-
indi, þess vegna þarf að berjast
gegn klámi.“
Klám fær
menn til að
horfa á konur
sem hluti -
ekki mann-
eskjur