Morgunblaðið - 11.03.2000, Side 12
12 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
D nnnc Al/nii’ STAÐA RANNSÓKNA
ndnnöoivmr x ÍE . fxxxxxxf Greining erfðaefnis Tengsl sjúkdóms við ákveðið svæöi á litningi staðfest Nokkur gen sem talin eru tengjast sjúkdómi afmörkuð og staðfest á svæði Sjúkdóms- gen einangrað
Sjálfsofnæmissjúkdómar •«
Ofnæmishneigð X
Þarmabólga X
Insúlínháð sykursýki X
Psoriasis X X X
Iktsýki X
r\raDDamein Lungnakrabbamein X
Sortuæxli X
Krabbamein í blöðruhálskirtli X
Hjarta- og lungnasjúkdómar
Asmi X
Lungnaþemba* X
Ofþrýstingur* X
Hjartadrep* X
Útæðasjúkdómar* X
Heilablóðfall* X X X
Sjúkdómar í miðtaugakerfi «
Alzheimer* X X X
Kvíði* X
Geðhvarfasýki* X
Fjölskyldulægur handskjálfti X X
MS X X X
Svefnsýki X X X
Parkinson sjúkdómur X (X) X <D -C
Geðklofi* X X X w.: á
Augnsjúkdómar *«
Augnbotnaskemmdir X c — J
Kvensjúkdómar « O
Legslímsflakk X «o s
Efnaskiptasjúkdómar o.fl. ■*
Insúlín-óháð sykursýki* X .c s
Beinþynning* X E <tj to
Slitgikt* X X X
Staða rannsókna á 27 sjúkdómum
hjá Islenskri erfðagreiningu
Viðskipti með hlutabréf 1 deCODE
Hluthafaskrá lokuð í 6
mánuði eftir skráningu
í skráningarlýsingunni, sem lögð
hefur verið fram í tengslum við
skráningu deCODE genetics Inc.,
móðurfélags íslenskrar erfðagrein-
ingar, á bandaríska hlutabréfamark-
aðinn Nasdaq, er gerð grein fyrir
stöðu rannsókna þeirra 27 sjúkdóma
þar sem fyrirtækið vinnur nú að
meingenaleit. Taflan er birt hér á síð-
unni í íslenskri þýðingu. f skráning-
arlýsingunni er tekið fram að ekki
hafi tekist að ná lokamarkmiði varð-
andi rannsókn á neinum sjúkdómi en
ýmiss konar árangur hafi náðst við
að afmarka svæði þar sem sjúkdóms-
valdandi gen eru talin vera að finna.
HLUTHAFASKRÁ deCODE, eins
og hún verður við skráningu, verð-
ur lokuð í 180 daga, eða 6 mánuði,
eftir að hlutabréf félagsins verða
skráð á Nasdaq og verður því ekki
hægt að gera á henni breytingar á
því tímabili.
Samkvæmt bandarískum lögum
er fyrrverandi hluthöfum óheimilt
að selja bréf sín á markaði á til-
teknu tímabili eftir skráningu.
Lengd þessa tímabils er ákveðin af
umsjónaraðila skráningarinnar, í
þessu tilviki fjármálafyrirtækinu
Morgan Stanley Dean Witter, og er
í samræmi við það sem almennt
gerist á bandarískum markaði, þ.e.
6 mánuðir. Á tímabilinu verða ein-
ungis skráðar þær breytingar sem
eiga sér stað í gegnum viðskipti á
hinum almenna markaði.
Með þessu fyrirkomulagi er,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins, reynt að tryggja eðlilega
verðmyndun á markaði og koma í
veg fyrir að óeðlilegur söluþungi
myndist strax eftir skráningu.
B-flokkur verður að
almennum hlutabréfum
Þau hlutabréf sem gengið hafa
kaupum og sölum hér á landi á milli
íslenskra aðila tilheyra sérstökum
hlutabréfaflokki, svokölluðum
„Preferred Series B“-flokki sem
var gefmn út fyrir lokað hlutafjár-
útboð félagsins á íslandi í febrúar
árið 1998. Bréf úr þessum flokki
hefur mátt selja hérlendis en ekki
erlendis. Almennu hlutabréfin eru
hins vegar þau sem tilheyra stofn-
endum, starfsmönnum og erlendum
aðilum.
Fram að skráningu á Nasdaq
mega viðskipti með B-bréfín fara
fram eins og verið hefur, á íslensk-
um markaði á milli íslenskra aðila
en við skráninguna breytast hlutir
úr B-flokki í almenn hlutbréf og um
þau gildir sölubannið fyrrnefnda.
Samningar
um viðskipti
Heimildarmenn Morgunblaðsins
á íslenskum verðbréfamarkaði telja
almennt að mögulegt verði að eiga
viðskipti með íslensku bréfín eftir
skráningu, þrátt fyrir sölubannið.
Það sem hamlar slíkum viðskiptum
er að hluthafaskráin verður lokuð
og því verða menn að gera með sér
einhvers konar samninga um að við-
skiptin hafi farið fram og með hvaða
skilmálum þau eru. Breytingar fást
ekki skráðar í hluthafaskrána fyrr
en eftir að sölubanni hefur verið af-
létt en hugsanlegt er að fjármála-
stofnanir hérlendis muni útbúa ein-
hvers lags kerfi um þessi viðskipti,
t.d. með framsalseyðublöðum o.þ.h.
Hins vegar þykir líklegt að fjár-
festar sem hafi hug á að kaupa bréf
félagsins eftir skráningu leiti frem-
ur á bandaríska markaðinn þar sem
verðmyndunin fer fram. Viðskiptin
er auðveldari og bréfin má selja
strax aftur án þess að gera flókna
samninga þar um. Því verður að
teljast ólíklegt að viðskipti verði
með íslensku bréfin nema að litlu
leyti og hluthafar ættu að búa sig
undir að 6 mánaða sölubann hefjist
innan nokkurra vikna.
de CODE Staerstu hluthafar ímars 2000
rtuthas Uutfaí
1. Roche Finance Ltd. 4.483.334 13,4
2. Kárí Stefánsson 3.12&292 9.6
3. Alta Califomia og tangd> 2-335.082 7,1 jW^j^^uuphemidun
4. ACasVénurBooteno*tói» 2335082 7,1 .þr
5. Guy Nohra 2.335.082 7,1 |
6. Jean-Francot$ Formeia 2.335.082 7,1 jw*f1%ÍL»jpheiriiiim
7. Polans Venture og tergdir aftiar 1.875.848 5,7 */#&££* • kauphemilduni
8. TerranceMcGuire 1.875.848 57 ..•..Jw.i#h*ika4ríem.öUrr.
9. Andre Lamotte 686.514 2,1 Þar a< 1 * i kauphemiidjm
10. Hannes Smórason 560.000 1J
11. JetfreyGulcher 481.200 1.5
12. Knstján Erlendsson 125000 0.4 :
13. Sigurður Björnsson 120.000 0,4 | YfvstiómNrMakkh*,
14. Sir JohnVane 45000 0,1 (tO(Éuta)dnaai)eiða
Samtals__________________22.718.364 69,0 alls um 35% Nutanna
Tafla yfír
hluthafa
TAFLA yfir alls 14 hluthafa í
deCODE Genetics, sem birt var í
Morgunblaðinu í gær, gerir ekki
grein fyrir stærstu hluthöfum í fyrir-
tækinu í mars eins og fram kom í
heiti töflunnar.
I skráningarlýsingunni segii að í
lista sem þar er birtur komi fram
ákveðnar upplýsingar um eignar-
hald á hlutabréfum fyrirtækisins í
árslok 1999. Þar koma fram upplýs-
ingar um eignarhiut hvers þess aðila
sem á meira en 5% í fyrirtækinu, auk
upplýsinga um eignarhluti allra til-
greindra yfirmanna og stjórnar-
manna fyrirtækisins, annars vegar
sem einstaklinga og hins vegar sem
eins hóps.
Skráningarlýsing
deCODE á mbl.is
SETT hefur verið upp sérstök
tenging á mbl.is sem veitir beinan
aðgang að skráningarlýsingu og
umsókn deCODE genetics Inc.,
móðurfélags íslenskrar erfða-
greiningar, um skráningu á
bandarískan hlutabréfamarkað.
Skráningarlýsingin hefur m.a.
að geyma afar greinargóðar upp-
lýsingar um fyrirtækið og rekstur
þess, vaxtarhorfur þess og þá
áhættu sem felst í því að fjárfesta í
fyrirtækinu.
Hlutabréf Eimskips hafa hækkað 6,5-falt á fímm árum
Markaðsverðmætið vaxið
úr 6 milljörðum í 41
GENGI hlutabréfa Eimskips hækk-
aði um 72% á síðasta ári, en um 40%
á árinu 1998 og um 20% á árinu
1997. Samtals hafa hlutabréf félags-
ins hækkað 6,5-falt á síðustu fimm
árum að teknu tilliti til jöfnunar og
markaðsverðmæti félagsins hefur
vaxið úr sex milljörðum króna í 41
milljarð um síðustu áramót. Þetta
kom fram í ræðu Benedikts Sveins-
sonar, stjórnarformanns Eimskips,
á aðalfundi félagsins í fyrradag.
I máli Benedikts kom fram að við-
skipti með hlutabréf félagsins hafa
verið mikil og námu þau 3,3 milljörð-
um króna á síðasta ári. Hluthöfum
félagsins hefur fjölgað um 2% á síð-
asta ári og voru þeir 15.172 talsins
um síðustu áramót.
Hann sagði að ávinningur hlut-
hafa fælist að stærstum hluta í þeirri
verðmætaaukningu sem orðið hefur
vegna hækkunar á gengi hlutabréfa
undanfarin ár. Það væri aftur á móti
stefna félagsins að greiða hluthöfum
ávallt arð, og því legði stjóm félags-
ins til að greiddur yrði að þessu sinni
11% arður til hluthafa af nafnvirði
hlutafjár, en það jafngildir um 330
milljóna króna greiðslu til hluthafa.
Eimskipafélagið keypti eigin
hlutabréf snemma á þessu ári að
nafnverði 92 milljónir króna, sem er
3% af heildarhlutafé félagsins.
Kaupverð bréfanna var að sögn
Allir starfsmenn
Eimskips fá
tölvubúnað til
heimanotkunar
Benedikts 1.242 milljónir króna.
Hann sagði að ekki væru áform um
að félagið ætti bréfin til langframa,
heldur yrðu þau seld með það að
markmiði að efla viðskiptastöðu fé-
lagsins.
Tölvur á heimili allra
starfsmanna Eimskips
Benedikt vék að því í ræðu sinni
að miklar breytingar hefðu orðið í
stjórnun og rekstri fyrirtækja á
undanförnum árum vegna aukinnar
notkunar á upplýsingatækni. Hann
sagði Eimskipafélagið hafa áhuga á
að vera í fremstu röð við nýtingu
upplýsingatækni og að nú hefðu
flestir starfsmenn aðgang að tölvu-
póstkerfi félagsins og nýttu Netið á
margvíslegan hátt. Eimskip hefði nú
ákveðið að stíga enn stærra skref í
þessum efnum og stjórn félagsins
ákveðið að öllum fastráðnum starfs-
mönnum félagsins yrði gefinn kost-
ur á að eignast tölvu ásamt tilheyr-
andi búnaði til afnota á heimili sínu.
„Félagið mun kaupa vandaðan
tölvubúnað og bjóða starfsmönnum
afnot af honum gegn vægu gjaldi.
Áætlar félagið að verja 40 milljónum
króna til þessa verkefnis á þessu
ári,“ sagði Benedikt.
Starfsmönnum Eimskips á ís-
landi, sem eru liðlega 600 talsins,
verður boðinn tölvubúnaðurinn gegn
1.300 króna gjaldi á mánuði, en inni-
falinn í gjaldinu er allur búnaður
ásamt uppsetningu og námskeiði.
Starfsmaðurinn hefur tölvubúnað-
inn til afnota svo lengi sem hann er í
föstu starfi hjá félaginu og mun
eignast hann að fullu eftir þrjú ár og
fellur þá mánaðargreiðslan niður.
„í þekkingarþjóðfélagi nýrrar
aldar verður mannauðurinn sífellt
mikilvægari og fyrir íslenskt at-
hafnalíf þarf að tryggja sem besta
menntun og nýtingu upplýsinga-
tækninnar á sem flestum sviðum.
Með tengingu við póstkerfi félagsins
og Netið verða öll samskipti milli
starfsmanna og við umhverfið auð-
veldari, bæði í vinnutíma og utan
hans.
Framtíðarsýn okkar íslendinga á
að vera sú að við verðum ávallt í far-
arbroddi þjóða heims við nýtingu
upplýsingatækninnar í þágu bætts
mannlífs og aukinnar hagsældar.
Eimskip vill leggja sitt af mörkum í
þessu efni,“ sagði Benedikt Sveins-
son á aðalfundi félagsins.
Morgunblaðið/Jim Smart
Benedikt Sveinsson, stjúrnarformaður Eimskips, í ræðustúl á aðalfundi
félagsins.