Morgunblaðið - 11.03.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.03.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 13 FRÉTTIR Bætur lækk- aðar verulega HÆSTIRÉTTUR hefur lækkað verulega þá skaðabótaupphæð, sem Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt mann til að greiða dyraverði, sem hann skallaði í andlitið. Hérað- sdómur hafði dæmt manninum alls rúmlega 783 þúsund króna bætur, en Hæstiréttur færir þá upphæð niður í tæplega 268 þúsund krónur. Með dómi Héraðsdóms Reykja- víkur í maí í fyrra var tvítugur mað- ur sakfelldur fyrir líkamsárás, en hann hafði „skallað" dyravörð á veitingastað í Reykjavík í andlitið með þeim afleiðingum að dyravörð- urinn hlaut þverbrot í miðjum rót- um beggja framtanna í efri gómi. Arásarmaðurinn undi ákvæði hér- aðsdóms um sakfellinguna, 6 mán- aða skilorðsbundinn fangelsisdóm og sakarkostnað, en áfrýjaði niður- stöðu dómsins um bótakröfu dyra- varðarins og krafðist þess að bætur vegna þjáninga, miska og lögmann- skostnaðar yrðu lækkaðar verulega. Hæstiréttur sagði að dyravörður- inn hefði mátt þola þjáningar, svo fullnægt væri skilyrðum skaðabóta- laga til að dæma honum þjáninga- bætur. Þá hefði maðurinn gerst sekur um ólögmæta meingerð gegn persónu dyravarðarins með fólsku- legri og tilefnislausri árás og þannig væri fullnægt skilyrðum laganna til að dæma hann til greiðslu miska- bóta. Með hliðsjón af dómvenju taldi Hæstiréttur miskabæturnar hæfílega ákveðnar 200 þúsund krónur, þar sem Héraðsdómur dæmdi manninum 500 þúsund krón- ur, þjáningabætur taldi Hæstirétt- ur hæfilegar tæplega 18 þúsund krónur, en Héraðsdómur rúmar 283 þúsund krónur, en bæði dómstigin voru samþykk því að dyravörðurinn ætti rétt á 50 þúsund króna greiðslu frá árásarmanninum vegna lög- mannskostnaðar í héraði. Hæsti- réttur dæmdi hann að auki til að greiða dyraverðinum 150 þúsund krónur í málskostnað fyrir réttin- um. Morgunblaðið/Árni Sæberg V ísa á bug ummælum forsætisráðherra JÓHANNA Sigurðardóttir og Margrét Frímannsdóttir, þingmenn Samfylkingar, vísa þeim ummælum Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á bug að Samíylkingin gerist sek um hræsni er hún fer fram á löggjöf um fjárreiður stjórnmálaflokka, en Davíð lét þessi orð falla í viðtali við Morgun- blaðið í gær. Leggja þær áherslu á að reikningar hreyfingarinnar verði að fullu gerðir opinberir á stofnfundi nýs stjórnmálaflokks í maí. A mánudag var til umræðu á Al- þingi frumvarp til laga um starfsemi og fjárreiður stjórnmálaflokka, sem Jóhanna Sigurðardóttir er fyrsti flutningsmaður að, og segist Jóhanna hafa óskað eftir því með löngum íyr- irvara að forsætisráðherra yrði við- staddur umræðuna. Því hefði henni þótt afar dónalegt að hann skyldi hverfa úr þinghúsinu án þess að hún fengi tækifæri til að svara ummælum sem hann lét falla í ræðu sinni. Jóhanna sagði að það vekti athygli að forsætisráðherra skyldi ítrekað veitast að henni fyrir að hafa ekki tekið sæti í þeirri nefnd sem skipuð var 1994-1995 til að gera tillögur um fjárframlög til stjómmálaflokka. Þjóðvaki hefði margoft beðið um að fá verklýsingu frá forsætisráðuneytinu um starf nefndarinnar en hún hefði aldrei borist. Þar sem fulltrúa Þjóð- vaka hefði grunað að lítill hugur lægi að baki skipun nefndarinnar hefðu þeir því ekki tekið sæti í nefndinni. Margrét Frímannsdóttir sagði að það væri svo sem rétt hjá forsætis- ráðherra að í nefndinni hefðu full- trúar allra stjómmálaflokka náðsam- komulagi um niðurstöðu. „Hins vegar gerðu menn sér fullkomlega grein fyrir að þama voru aðeins ákveðin at- riði rædd og ýmislegt annað var aldrei klárað, t.d. hvort setja ætti heildarreglur um starfsemi flokka og fjáiTeiður þeirra,“ sagði Margrét. Undir þetta tekur Jóhanna: „Það má í þessari skýrslu algerlega lesa það út að þama hafi aðeins verið um lágmarks samnefnara að ræða sem allir flokkamir gátu sameinast um, sem er auðvitað nákvæmlega ekki neitt í mínum huga nema að þeir fái fjárframlög á fjárlögum eins og þeir hafa gert til þessa.“ Bendir hún á að það hafi hins vegar verið sett í stefnuskrá Samfylkingar- innar, þegar hún var mynduð, að opna fjárreiður stjórnmálaflokkanna. Jóhanna kveðst hafa fullan hug á að halda áfram baráttu fyrir því að sett Jóhanna . Margrét Sigurðardóttir Frúnannsdóttir verði lög um stjórnmálaflokka. Þró- unin sé einfaldlega sú að fjármál stjórnmálaflokka séu opin og sýnileg. Bókhald Alþýðubandalags legið frammi síðan 1995 Margrét Frímannsdóttir vísar ennfremur þeim orðum Davíðs Odds- sonar á bug að forsvarsmenn Alþýðu- bandalagsins hafi ekki gert grein fyr- ir skuldum flokksins. Það sé vissulega rétt að flokkurinn hafl átt við fjárhagsvanda að etja en hann sé hins vegar í skilum með öll sín lán og hafi ekkert að fela í þeim efnum, enda hafi bókhald flokksins legið frammi á skrifstofúm hans síðan 1995. Margrét kveðst ekki draga dul á að Þjóðviijinn hafi orðið gjaldþrota og lánveitendur hafi orðið að afskrifa mikinn hluta skulda. Hins vegar hafi Þjóðviljinn ætíð verið sérrekinn sem fyrirtæki og fjárhagur hans algerlega aðskilinn rekstri flokksins. Hvað varðar þau ummæli forsætis- ráðherra að Samfylkmgin hafi sjálf ekki gefið upp nöfn þeirra fyrirtækja sem gáfu í sjóði hennar fyrir síðustu kosningar segir Margrét að Samfylk- ingin hafi alltaf sagt að á meðan ekki giltu reglur sem allir stjórnmála- flokkar fylgdu í þessum efnum þá myndi hreyfingin virða það ef einstök fyrirtæki færu íram á að ekki væri gefið upp hversu háar upphæðir þau hefðu látið af hendi rakna. Um skuldastöðu Samfylkingarinn- ar í kjölfar kosningabaráttunnar síð- ustu segir Margrét að staðreyndin sé sú að menn hafi haldið sig mjög ná- lægt þeim ramma og þeirri fjárhags- áætlun sem sett var í upphafi. Auð- vitað hafi legið fyrir að kosningabaráttan yrði dýrari en ella þar sem ’verið væri að kynna nýtt stjórnmálaafl til sögunnar en á hinn bóginn megi segja sem svo að kosn- ingabaráttan hefði örugglega kostað flokkana þrjá, sem standa að Sam- fylkingunni, mun meira ef þeir hefðu boðið fram einir og sér. Lögðu þær Margrét og Jóhanna áherslu á að forsætisráðherra þyrfti ekki að hafa áhyggjur af fjármálum Samfylkingar, sú ákvörðun hefði ver- ið kynnt að gera ætti reikninga hreyf- ingarinnar opinbera á stofnfundi nýs stjómmálaflokks í maí og við það yrði staðið. Sagði Jóhanna að tregða Sjálf- stæðisflokksins til að birta sína árs- reikninga, einn allra stjómmála- flokka, hlyti hins vegar að vekja ákveðna tortryggni. „Forsætisráðherra hélt því t.d. fram að Sjálfstæðisflokkurinn hefði eytt 70-80% minna en Samfylkingin í síðustu kosningabaráttu en ég verð einfaldlega að segja að ef hann birtir ekki ársreikningana til að staðfesta þær tölur, eða niðurstöðuna úr kosn- ingabaráttunni sjálfri, em þessi um- mæli ekki marktæk," sagði Jóhanna. Hafa ekki reynt að „drepa“ ÍE Þær Margrét og Jóhanna vom á einu máli um að með ummælum sín- um um Öryrkjabandalagið í umræð- unni á Alþingi hefði forsætisráðherra gengið of langt. Sagðist Jóhanna gáttuð á því hvemig Davíð hefði beint spjótum sínum að Öryrkjabandalag- inu algerlega að tilefnislausu með dylgjum og röngum fullyrðingum. Hún kvaðst jafnframt líta það mjög alvarlegum augum ef forsætisráð- herra teldi að stjómmálaflokkur gæti ekki gagnrýnt fyrirtæki eða stofnun í umræðum á Alþingi þó að svo vildi til að umrætt fyrirtæki hefði veitt flokki fjárhagsstuðning. Margrét tekur í sama streng: „Hann ítrekar aftur og aftur að stjómarandstaðan, og þá kannski fyrst og fremst þeir flokkar sem standa að Samfylkingunni, hafi gert í því að reyna að drepa íslenska erfða- greiningu. Það að við skyldum fara fram á breytingar á lögum um mið- lægan gagnagrunn fól ekki í sér til- raun til að drepa niður fyrirtækið.“ Segir Margrét að það hafi margoft komið fram í umræðunni að Samfylk- ingin fagnaði vexti ÍE. Hins vegar hafi menn talið veigamikla vankanta á löggjöfinni um miðlægan gagna- gmnn. „Ef hægt er að tala um að snúa umræðu á haus, eins og forsæt- isráðherra gerir í viðtalinu, þá er það tilhneiging hans til að snúa þessum málflutningi á haus, en það gerir hann svo sannarlega," sagði hún. Forsetinn heimsækir Landhelgis- gæsluna FORSETI íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti starfsfólk Landhelgisgæslunnar í gær ásamt vinkonu sinni Dorrit Moussaief og kynnti sér starfsemi stofnunarinn- ar í fylgd Hafsteins Hafsteinssonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar. Forsetinn kom fyrst við í höfuð- stöðvum Landhelgisgæslunnar á Seljavegi 32 og kynnti sér starfsemi stjórnstöðvar og sjómælinga auk þess sem hann heimsótti sprengju- deildina. Að því loknu var honum boðið í stutta flugferð á TF-SIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, og snæddi að endingu hádegisverð með fulltrúum stofnunarinnar um borð í varðskipi Landhelgisgæsl- unnar. TILB0Ð í MARS' á tjöruhreinsi fyrir bíla {JA)‘ Jákó sf. sími 564 1819 Anna María snyrtifræðingur segir: Vörur sem virkilega virka! „Ég byrjaði að nota Silhouette kremið eftir barnsburð. Árangurinn af því leiddi til þess að ég fór að nota andlitskremin og árangurinn af því varð til þess að ég vildi endilega vinna með vöruna.“ Súrefnisvörur Karin Herzog Switzerland Anna María Jónsdóttir, snyrtifræðingur hjá Fínum línum. ...ferskir vindar í umhirðu húðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.