Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
F ramtiðarborgin - langtímastefna fyrir Reykjavík
Efnt til samræðu við borgar-
búa um framtíð borgarinnar
KYNNT hefur verið stefnumótun til
næstu fimmtán ára um hlutverk
Reykjavíkurborgar og áherslur í
þjónustu hennar undir yfirskriftinni
Framtíðarborgin. Yið undirbúning
stefnumótunarinnar verður megin-
áhersla lögð á að kalla fram sjónai’-
mið og viðhorf borgarbúa til þróunar
borgarmálanna í framtíðinni.
Stefnumótunin er að frumkvæði
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra en umsjón með vinn-
unni hefur þróunarsvið borgarinnar.
Verkefnisstjóri er Hallfríður Þórar-
insdóttir.
Ingibjörg Sólrún sagði, við kynn-
ingu á stefnumótuninni, að vinna við
hana hæfist þegar á þessu ári. Hún
minntist þess að gerð hefði verið til-
raun til sams konar vinnu á árunum
1997-1998 en hún hefði ekki gengið
sem skyldi. Vonir stæðu til að betur
tækist til núna. Borgarstjóri sagði að
markmið með þessari vinnu væri að
efla samræðu við borgarbúa um
framtíðarþróun borgarinnar. Verk-
efninu væri ætlað að efla lýðræðis-
lega umræðu og skapa grundvöll fyr-
ir borgarana til að hafa áhrif á það
hvernig Reykjavík verður í framtíð-
inni. Ekki væri hægt að ræða fram-
tíðarþróun borgarinnar nema með
því að taka mið af þeirri stöðu sem
nú er uppi. Þess vegna hljóti borgar-
yfirvöld að ræða við borgarbúa um
hvað plagi þá í borgarlífinu, hvernig
unnt sé að bregðast við og hvernig
hægt sé að fyrirbyggja neikvæða
þróun.
„Við erum að taka ákveðið frum-
kvæði í þessum málum. Þetta er til-
raun til þess að hafa áhrif á þróunina
Morgunblaðið/Golli
Ingibjörg Sólrún Gisladóttir
borgarsfjóri kynnti verkefnið
Framtíðarborgin í Tjarnarsal.
í stað þess að bíða þess sem koma
skal,“ segir borgarstjóri. Framtíðar-
borgin er langtímastefnumótun fyrir
Reykjavíkurborg og leitast við að
lýsa hlutverki borgarinnar og ímynd
eftir fimmtán ár og þjónustunni sem
borgin þá þarf að veita borgarbúum
og landsmönnum. Verkefnið er talið
falla vel að öðrum verkefnum borg-
arinnar á sviði stefnumótunar á ár-
inu 2000, þ.á.m. endurskoðun aðal-
skipulags, sem nú er hafin, og gerð
svæðisskipulags fyrir höfuðborgar-
svæðið.
Hallfríður Þórarinsdóttir verkefn-
isstjóri kynnti aðferðimar sem verð-
ur beitt við verkefnið og tímaáætlan-
ir. Hún sagði að undirbúningur hefði
hafist sl. haust og nú væri hafin hug-
myndasöfnun sem stendur yfir til
ágústloka. Jafnframt hefst úrvinnsla
gagna í júní og stendur fram í ágúst-
lok. Á haustdögum er ráðgert að
draga saman ályktanir og kynna þær
hugmyndir sem hafa komið fram og
gefa borgarbúum jafnframt tæki-
færi til að koma á framfæri ábend-
ingum.
Fjórar ráðstefnur
Haldnar verða fjórar ráðstefnur í
tengslum við verkefnið. Velhðan og
vaxtaverkir er heiti fyrstu ráðstefn-
unnar sem haldin verður 22. mars
nk. þar sem fjallað verður um
byggðalíf, borgarlíf og stofnanahf.
Vit og strit er ráðstefna um efna-
hags- og atvinnulíf sem haldin verð-
ur 29. mars. Búsæld og barningur
fjallar um fjölskyldulíf og daglegt líf
borgarbúa og verður 26. apríl og loks
Farsæld og fánýti 3. maí þar sem
fjallað verður um siðferðislíf, verð-
mæti og lífsgildi. Allar ráðstefnurnar
verða í Tjarnarsal. Jafnframt verða
settir saman svokallaðir rýnihópar
sem skipaðir eru fagfólki í byggða-
þróun, efnahagsmálum, atvinnumál-
um og fleiru. Hóparnir skila áliti sem
fer inni í hugmyndabankann. Þá er
verið að virkja til þátttöku í verkefn-
inu félagasamtök eins og foreldrafé-
lög í grunnskólum og leikskólum,
hverfasamtök, trúarsöfnuði, félags-
miðstöðvar auk 10. bekkinga í
grunnskólum. Þessum aðilum hefur
verið sendur bæklingurinn Heila-
brot þar sem lagðar eru fram spum-
ingar um framtíð Reykjavíkur.
Framtíðarborgin verður einnig til
umræðu á hverfafundum borgar-
stjóra sem hefjast fljótlega og einnig
verður stuðst við ýmsar kannanir um
viðhorf borgararanna til borgarinn-
ar.
LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 1 5
Sunnudagar eru
fjölskyldudagar
Kringlan er opin á sunnudögum
og þar finna allir í fjölskyldunni
eitthvaö viö sitt hæfi.
FLESTAR VERSLANIR
frá kl. 13.00 - 17.00
STJÖRNUTORG
skyndibita- og veitingasvæ&ib
frákl. 11.00-21.00
alla daga.
Abrir veitingastaðir og Kringlubíó
eru meó opió fram eftir kvöldi.
K\rÍKC)(c^K
PRR SEm/hJRRIRB 5 L (E R
UpplýsingrsImi 5 b b 7 7 b b Skrifstofusími sgb b 2 b b