Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 25
LANDIÐ
Leitarhundar
þjálfaðir á Dalvík
Dalvfk - Undanfarið hefur staðið
yfir á Dalvík námskeið fyrir leitar-
hunda SVFÍ. Þetta er 5 daga nám-
skeið sem byggist á þjálfun hund-
anna í snjó og við leit að fólki sem
grafist hefur í fönn.
A þessu námskeiði eru um 25
hundar sem skiptast í þrjá flokka :
A-, B- og C-hundar. A-hundar eru
í endurmati og þurfa þeir að koma
í slíkt mat á tveggja ára fresti,
annars detta þeir útaf svokölluðum
vinnulista. B-hundar eru í þjálfun
og á svona námskeiðum eru þeir
metnir og yfirleitt eru einhverjir
hundar sem færast upp í A-gráðu
sem fullgildir leitarhundar. Svo
eru það C-hundar, sem má segja
að sé byrjunarreitur í þjálfun
hundsins til leitar.
Námskeiðið er í sjálfu sér ein-
falt. Menn eru grafnir í fönn á
stóru svæði og síðan er það hund-
anna að finna þá. Steinar Gunnars-
son er formaður.
Nauðsynleg námskeið
I máli hans kom fram að svona
námskeið væru lífnauðsynleg og er
haldið að minnsta kosti eitt nám-
skeið á hverju ári. Landinu er
skipt í fjóra hluta og á þessu nám-
skeiði væru 30 manns og 25 hund-
ar úr öllum fjórðungum landsins.
A þessu námskeiði voru margir
hundar af skosku fjárhundakyni,
Border Collier og sagði Steinar þá
hundategund koma mjög vel út,
þeir hefðu reynst afburðavel hér á
landi. Hvað endingartíma hund-
anna í þessu starfi varðar er hægt
að segja að þeir geti sinnt þessu í
8-10 ár og sumir allan sinn líftíma.
Þeir hafa margsannað sig við leit
að fólki sem grafist hefur í fönn og
síðan eru þeir mikið notaðir við
vettvangsleitir, en þær eru ekki
einskorðaðar við snjó. Má segja að
þessir hundar séu þjálfaðir við all-
ar aðstæður og ættu að geta fund-
ið fólk við hverskonar aðstæður,
vetur sem sumar.
Fréttaritari fylgdist með leit að
manni þennan dag og það tók
reyndar ekki nema um fjórar mín-
útur fyrir hundinn að finna mann
sem var grafinn tvo metra í fönn
og sannaðist það enn og aftur, að
þessir hundar bjarga mannslífum
og verður seint metið það starf
sem liggur að baki við þjálfun
þeirra. Samt er það nú svo að lít-
inn stuðning fá þeir sem að þessu
standa og er það miður.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fáskrúðsfirði - Það er orðinn ár-
viss atburður hjá krökkunum í
Kærabæ á Fáskrúðsfirði að slá
köttinn úr tunnunni á öskudag.
Mæta þau þá í litklæðum og mála
á sér andlitin.
Tunnan er slegin þar til botn-
inn dettur úr en þá hrapar
nainmi úr henni sem deilt er á
milli krakkanna.
Eins fara nemendur grunnskól-
ans í flokkum í fyrirtæki á staðn-
um og syngja og fá að launum
sælgæti.
Gnndvíking’ar vilja
Suðurstrandarveg
EFTIRFARANDI samþykkt
var gerð í bæjarstjóra Grinda-
víkur:
„Bæjarstjórn Grindavíkur
skorar á Alþingi og ríkisstjórn
að beita sér fyrir því að lagn-
ingu Suðurstrandarvegar á milli
Þorlákshafnar og Grindavíkur
verði hraðað og að litið verði á
lagningu vegarins sem sérstakt
verkefni í tengslum við fyrir-
hugaða kjördæmabreytingu,
þegar Suðurland og Reykjanes
renna saman í eitt kjördæmi.
Bæjarstjórn bendir á að ein
meginforsenda kjördæmabreyt-
ingarinnar er að hið nýja Suður-
kjördæmi verði ein samgöngu-
leg heild. Þar sem aðeins þrjú ár
eru þar til kjördæmabreytinging
tekur gildi er mjög mikilvægt að
sem allra fyrst verði teknar
ákvarðanir um framkvæmdina
og fjármögnun hennar.
Um leið og bæjarstjórn vill
undirstrika hina gríðarlegu þýð-
ingu sem vegurinn hefur í at-
vinnumálum er sérstök athygli
vakin á öryggishlutverki Suð-
urstrandarvegar vegna eldvirkni
svæðisins. Líklegt má telja að
hættuástand sem skapaðist á
Þrengslavegi fyrir skemmstu
hefði ekki orðið jafn alvarlegt og
raun bar vitni ef Suðurstrandar-
vegur hefði verið til staðar."
Morgunblaðið/fgígja
Frá lcitarhundanámskeiðinu á Dalvík. Slík námskcið eru lífsnauðsynleg að mati Steinars Gunnarssonar.
Túnls býður ekki aðeins upp á góða golfvelli.
Saga og menning, loftslag og staðsetning
landsins við Miðjarðarhafsströndina gera
Túnis ákaflega spennandi til heimsóknar.
► Hvernig væri að taka forskot á golfsumarið við kjöraðstæður,
► búa á fyrsta flokks strandhóteium í þægilegum hita,
► borða góðan mat og
► leika golf á 6 mismunandi golfvöllum?
Ferðaskrifstofa Vesturlands býöur upp á 10 daga golfferð til Túnis,
þar sem ekkert er til sparað til að gera ánægjulega og eftirminnilega ferð.
Brottför 28. apríl og möguleiki á framlengingu í Túnis og London.
Fararstjóri verður Sigurður Pétursson, golfkennari.
Verð kr. 109.000 á mann í tvíbýli að viðbættum flugvallarsköttum, innifelur:
Flug, fararstjórn, akstur, gistingu á fyrsta flokks hótelum,
hálft fæði, vallargjöld og skoðunarferð.
Takmarkaður sætafjöldi.
Bókanir og nánari upplýsingar hjá
Ferðaskrifstofu Vesturlands í síma 437 2323.
FERÐASKRIFSTOFA
VESTURLANDS
Sími 437 2323, fax 437 2321. Netfang travest@simnet.is