Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 29

Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 29 AP Slökkviliðsraenn beijast við eld í runnum við borgina Pekanbaru á Súm- ötru á miðvikudag. Óttast umhverfísslys í Indónesíu Reykmengun frá skógareldum Jakarta. AFP. STJÓRNVÖLD umhverfismála í Indónesíu vöruðu í vikunni við því að skógareldar af mannavöldum á eynni Súmötru gætu valdið alvarlegri reyk- mengun í andrúmsloftinu eins og gerðist fyrir tveim árum. Þá barst mengunin einnig til grannlanda Ind- ónesíu. M. Alamshyah, yfirmaður meng- unarvarna í Riau-héraði á Súmötru, sagði að gervihnattamyndir sýndu að svonefndum „heitum blettum“ hefði fjölgað í héraðinu úr 80 í lok febrúar í 165. Hafa eftirlitsmenn verið sendir til að kanna aðstæður en Alamshyah taldi að um væri að ræða elda sem menn hefðu kveikt til að eyða skógi og stækka þannig akra. Sama var upp á teningnum fyrir tveim árum. Ríkisstjómin hefur lagt bann við því að skógi og runnagróðri sé eytt með eldi en embættismenn segja að flestir eldamir séu sök íbúa í sveita- þorpum og ráðamanna á stómm plantekrum sem virði bannið að vett- ugi. „Við virðumst ekki hafa lært af reynslunni," sagði Anwar, starfsmað- ur veðurfræðistofnunar í Riau. Regn- tímabilinu lauk fyrir tveim vikum í héraðinu og um leið fór heitu blettun- um að fjölga. Anwar sagði ljóst að um reyk en ekki þoku væri að ræða vegna þess að fólk verkjaði í augun snemma á morgnana þegar reykur- inn er mestur en hann dvínar þegar líður á morguninn. Skyggni í helstu borg Riau, Pekan- bam, er slæmt á morgnana og hefur reykurinn valdið truflunum á flugi. Gervihnattamyndir sýna ennfremur heita bletti sums staðar á eyjunni Borneo. Árin 1997 og 1998 lá reykjarsvælan mánuðum saman yfir stóram svæð- um, hún olli víða sjúkdómum í öndun- arfærum og miklum vanda í sam- göngum. Tahð var að eldamir hefðu eytt nær 25 milljón ekmm af skógi. Nota ekki elds- neyti frá Sellafield Berlín. AFP. ÞÝSKA stjómin tilkynnti í fyrradag, að af öryggisástæðum yrði hætt að taka við svokölluðu MOX-kjarnorku- eldsneyti frá endurvinnslustöðinni í Sellafield í Bretlandi. Yrði ekki tekið við því aftur fyrr en orðið hefði verið við öllum öryggiskröfum. Talsmaður breska kjarnorkuelds- neytislyrirtækinu, BNFL, sagði í fyrradag, að ákvörðun þýsku stjórn- arinnar væri „dálítið fræðileg" vegna þess, að um þessar mundir væri ekki verið að framleiða neitt MOX-elds- neyti í Sellafield. Vegna innanhúss- vandamála hefði stöðin ekki verið starfrækt í tvo til þrjá mánuði. Fellur frá máli gegn barnfóstrunni London. Morgunblaðið. CHERIE Blair, eiginkona Tonys Blairs forsætisráðherra, tilkynnti í gær að hún hefði fallið frá málshöfð- un á hendur barnfóstra þeirra fyrr- verandi, Rosalind Mark, vegna skrifa um dvöl hennar með Blair- fjölskyldunni og birtingu þeirra í The Mail on Sunday. í kjölfar lögbanns, sem fékkst á birtingu The Mail on Sunday á end- urminningum bamfóstrannar, höfð- aði Cherie Blair svo mál gegn blað- inu, barnfóstranni og fyrrverandi umboðsmanni hennar, Jonathan Harris, og krafðist þess að fá í hend- ur öll eintök bókarhandritsins, sem í umferð kynnu að vera, tölvudisk með endurminningunum og allt annað, sem innihéldi þessar endurminning- ar eða brot úr þeim. Einnig krafðist hún 15.000 punda í skaðabætur fyrir samningsrof, en Rosalind Mark hafði skrifað undir samning við þau hjón um að skýra ekki frá neinu varðandi starf hennar hjá fjölskyld- unni. Móðir Rosahnd Mark, Margaret, kom fram í fjölmiðlum og lýsti áhyggjum sínum vegna málaferl- anna og kostnaðarins við þau. Og ekki batnaði ástandið við að þurfa kannski ofan á málskostnaðinn að greiða skaðabætur, sem henni fynd- ist furðulegt að forsætisráðherra- íran færi fram á. Þessi ummæli hafa hreyft við einhverjum og í yfirlýs- ingu Cherie Blair, þar sem hún seg- ist falla frá málshöfðun á hendur Rosalind Mark, kemur fram að hún sé þess fullviss að Rosalind sé sak- laus af því að hafa komið handritinu í hendur The Mail on Sunday. Dammörk-Billumd LFGOLAND Flugmiðaplús, beint flug 24. maí - 30. ágúst 15.200 kr. fyrir börn 2ja-11 ára. Innifalið: Flug og flugvallarskattar. Bjóðum upp á mjög fjölbreytt úrval af sumarhúsum. Dönsk kráargisting - verð á mann í eina nótt frá 3.400 kr. Mjög mikið úrval. Mallorca Sparnaðarplús, 17. maí og 6. september M.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2ja-11 ára, 17. maí og 6. september. Innifalið: Flug, gisting á Pil Lari Playa í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelii erlendis og allir flugvallarskattar. Portúgal Sparnaðarplús, 29. ágúst og 12. september M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára, 12. september. Innifalið: Flug, gisting á Garden Choro í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. Bcmidorm Sparnaðarplús, 16. júní og 25. ágúst M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára. Innifalið: Flug, gisting á Los Gemelos í 2 vikur, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. Beintflug 2. júní - 8 .september Flugsaeti til Alicante 23.900 kr. fiugnVankattafuiokr. Dammörk FlugmiðaPLÚS Giidistími: 24. maí - 30. ágúst Gautaborg FlugmiðaPLÚS Gíldistími: 4. jútní - 27. ágúst 19.950127750 15.200 kr, fyrir börn 2ja-11 ára. Innifalið: Fluy og flugvallarskattar. 22.150 kr. fyrir börn 2ja-11 ára. Innifalið: Flug og flugvallarskattar. O p i ö i d a g I aug ri r d a g k I 10-14 Umboðsmerr Plúsferða um allt lard Egilsstaðir • S: 471 2000 111 Selfoss »5:482 1666 53 6262/896 8477 Vestmannaayjar • S: 481 1450 30 Ketlavik' S: 421 1353 Grindavík' S: 426 8060 Akranes • S: 431 4884 ísafjörður • S: 456 5 Blönduós • S: 452 4168 Sauðárkrókur • S: 4 Borgarnes • S: 437 1040 Akureyri• S: 462 501 Dalvík’S: 466 1405 Höfti«S: 4781000 FERÐIR Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 535 2100 • Fax 535 2110 *Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.