Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 30

Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Stjórn Bondeviks stóð ótraustum fótum frá upphafí Fall stjórnarinnar kom ekki á óvart AP Kjell Magne Bondevik fyrir utan konungshöllina í Oslo eftir að hann hafði bcðist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt í gær. NIÐURSTAÐA atkvæðagreiðslunn- ar á norska Stórþinginu á fimmtudag kom fáum þeim er fylgst hafa með norskum stjómmálum á óvart. í tæp- lega tvö og hálft ár hefur minnihluta- stjóm Kjells Magnes Bondeviks, for- manns Kristilega þjóðarflokksins, stýrt landinu við mjög erfið pólitísk skilyrði. Ríkisstjómin, sem var sam- stjóm þriggja flokka, studdist aðeins við 42 þingmenn af alls 165 á Stór- þinginu. Margoft hefur legið við falli stjómarinnar en á fimmtudag var út- haldið greinilega á þrotum. Deilur hafa um langt skeið staðið í Noregi um hvort leyfa eigi byggingu gasraforkuvera sem nýta muni gas sem kemur upp með olíu sem Norð- menn vinna á Norðursjó. Einn þeirra flokka sem aðild átti að ríkisstjóm Bondeviks, Miðflokkurinn, hefur ætíð verið andvígur shkum orkuvemm og var það einnig stefna stjómarinnar. Stjómarandstaðan hefur aftur á móti verið hlynnt því að byggja raforkuver í landinu knúin gasi. I þeirri afstöðu hafa svamir fjendur í norskum stjómmálum fundið sér samnefnara. Bæði Verkamannaflokkurinn og Hægriflokkurinn lögðust á eitt um að fella stjómina. Bondevik lagði á fimmtudag fram tillögu í Stórþinginu með þeim skil- mála að synjun hennar jafngilti van- trausti á ríkisstjómina. Tillagan fól í sér skuldbindingu um að leyfilegt hámark sk. gróðurhúsalofttegunda sem losuð era út í andrúmloftið í Nor- egi, yrði ekki aukið. Breyting á losun- arreglum hefm- af mörgum verið talin forsenda þess að hægt verði að starf- rækja gasraforkuver í Noregi. Meiri- hluti þingmanna felldi tillöguna og þar með var stjómin fallin. Fyrr í vikunni hafði legið við að dagar stjórnarinnar yrðu taldir vegna deilna um annað mál. Á miðvikudag tókst naumlega að afstýra því að stjómin færi frá vegna deúna um nýtt upplýsingatæknisetur á Fomebu- flugvelli, í nágrenni Óslóar. Að þessu sinni gaf stjómarandstaðan eftir en Bondevik hafði þá hótað því að leggja fram hliðstæða tillögu og varð stjóm- inni að falli á fimmtudag. Fyrii- tveim- ur áram lagði Bondevik einnig fram slíka tillögu, þ.e. með innbyggðri van- traustsyfirlýsingu, og var það í tengslum við afgreiðslu fjárlaga. Einnig þá var stjóminni forðað frá því að þurfa að segja af sér. Bondevik hælt fyrir ákvörðun sína Forystugreinar norskra dagblaða hafa lofað framgöngu Bondeviks og tekið undh' það mat að honum hafi ekki verið stætt á öðra en leggja höf- uð sitt sem forsætisráðherra að veði í gasraforkumálinu. Ljóst er að Bonde- vik og stefna stjórnarinnar í gasork- umálinu nýtur mikilla vinsælda meðal Norðmanna en hugsanlegur arftaki hans í embætti, Jens Stoltenberg, leiðtogi Verkamannaflokksins, hefur ekki jafn mikið fylgi hjá þjóðinni. Til dæmis birti Dagbladet í gærmorgun skoðanakönnun þar sem fram kemur að 29% þeirra sem þátt tóku álitu að Stoltenberg yrði verri forsætisráð- herra en Bondevik. í leiðara Aftonbladet er bent á að þótt ríkisstjóm Bondeviks hefði notið vinsælda meðal almennings hefði það ekki verið nóg til að halda henni á lífi. „RQdsstjóm getur ekki bara lifað á virðingu og vinsældum," segir í leið- ara blaðsins. „Hún verður líka að hafa möguleika á að hrinda í framkvæmd stefnumálum sínum.“ Leiðarahöfund- ur Aftenposten telur að með ákvörð- un sinni hafi Bondevik komið því til leiðar að stjórnar hans verði minnst í norskri sögu fyrir að hafa endurreist þingræði í landinu. Hann telur að ef stjómin hefði valið að vera áfram við völd og leyft stjórnarandstöðunni að setja sér fyrir stefnuna málinu, hefði það falið í sér alvarlega aðför að grandvelli norskrar stjórnskipunar. Hins vegar segir í leiðara blaðsins að það hafi ekki verið í fyrsta skipti sem stjóm Bondeviks hafði látið þing- ið segja sér fyrir verkum. Bent er á að í Evrópumálum hafi ríkisstjórnin lát- ið stýrast af vilja Stórþingisins og framkvæmt hluti, þ.ám. undirritun Schengen-samkomulagsins, sem far- ið hafi í bága við yfirlýsta stefnu stj ómarflokkanna. Óvíst hverjir styðja sljórn Stoltenbergs I leiðara Dagbladet í gær er vakin athygli á þeim kala sem Bondevik virðist bera til Hægriflokksins eftir atkvæðagreiðsluna í þinginu á fimmtudag. Hægriflokkurinn hefur ekki stutt Verkamannaflokkinn til valda síðan í upphafi sjöunda áratug- arins, enda era flokkamir á öndverð- um meiði í stjómmálum og eiga fátt sameiginlegt. En þótt Hægriflokkur- inn og Verkamannaflokkurinn hafi náð saman í andstöðu við stjóm Bondeviks er ekki búist við því að framhald verði á samvinnu þeirra. Hvorki Hægriflokkurinn né miðju- flokkar, sem greiddu atkvæði gegn ríkisstjóm Bondeviks, segjast ætla að tryggja hugsanlegri stjóm undir for- ystu Stoltenbergs meirihluta. Ekki mun verða ljóst hvort Stolten- berg verður nýr forsætisráðherra Noregs fyrr en hann hefur lokið við að ræða við leiðtoga annarra stjóm- málaflokka. Dagbladet telur að hann muni við val á ráðherrum í væntan- lega stjóm sína hafa náið samráð við Thorbjorn Jagland, formann Verka- mannaflokksins, sem gerði Stolten- berg að forsætisráðherraefni flokks- ins ekki alls fyrir löngu vegna eigin óvinsælda meðal almennings. Mjög líklegt er talið að Jagland verði utan- ríkisráðherra í stjórninni en meiri óvissa vh'ðist ríkja um úthlutun ann- arra ráðherrastóla. Einn þeirra sem nefndur hefur verið sem hugsanlegur nýr sjávarútvegsráðherra Noregs er Jan Heniy T. Olsen sem áður hefur gegnt því embætti. Með eða móti gasi Ósló. Morgunblaðið. ^ ^ HART hefur veríð deilt um vænt- anleg gasorkuver ríkisfyrirtækis- ins Naturkraft í Noregi frá árinu 1994 og nú hefur málið fellt stjórn- ina. Um er að ræða tvö ver, annars vegar á Rogalandi og hinsvegar á Hörðalandi. Orkuframleiðslan á að vera um 3 teravattstundir af raf- magni á ári en framleiðslan mun valda því að koldíoxíðlosun út í andrúmsloftið í Noregi eykst um nær sex%. Stjómarflokkarnir vildu að beð- ið yrði með ákvarðanir í þrjú til fjögur ár en þá er gert ráð fyrir að búið verða að finna upp aðferðir til að nýta gasið þannig að nær engin koldíoxíðlosun fylgi framleiðslunni. Annars staðar í Evrópu furða sum- ir sig á umræðunum í Noregi vegna þess að yfirleitt er þar litið á gas sem „græna“ auðlind en kola- kyntu verin talin versti óvinur and- rúmsloftsins. Og Norðmenn hafa árum saman selt gríðarlegt magn af gasi um leiðslur frá lindunum í Norðursjónum til annarra Evrópu- landa, Hollands, Belgíu og Skot- lands þar sem gamaldags og loft- mengandi tækni er notuð til að framleiða rafmagn með gasi. Ætl- unin er að leggja enn fleiri leiðslur fyrir gas til meginlandsins. Búist er við því að Noregur flytji út gas fyrir sem svarar 8 þúsund milijörðum íslenskra króna á næstu 20 árum. En í landinu sjálfu er yfir 90% af raforkuþörfinni full- nægt með vatnsaflsvirkjunum og þar líta umhverfissinnar á gas sem umhverfissóðaskap. Þeir geta með naumindum sætt sig við að það sé selt til útlanda en alls ekki að því sé breytt í raforku í Noregi. Nær eng- in vatnsorkuver hafa verið reist í Noregi síðasta áratuginn og þjóðin hefur þvi þurft að flytja inn raf- magn frá dönskum kolaorkuveram til að fullnægja eigin þörfum. Jens Stoltenberg, nýr forystu- maður Verkamannaflokksins, hef- ur áram saman átt sæti í umhverf- is- og orkunefnd Stórþingsins og hefur verið í minnkandi hópi jafn- aðarmanna sem vilja hiklaust nýta orkulindir landsins. Þetta hefur hann gert þótt flokkurinn hafi oft verið klofinn í afstöðunni til nýrra orkuvera. Eftir atkvæðagreiðsluna á fimmtudag á þingi kalla umhverfis- sinnar Stoltenberg nú „gasrass" og talsmaður samtakanna Bellona sagði að leiðtoginn myndi „þefja langar leiðir af gasi næstu 30 árin“. Nú mun koma í Ijós hvort Stolten- berg neyðist til að kyngja eigin stefnu í mikilvægum málum jafn oft og Bondevik. Verjandi Sharifs myrtur á skrifstofu sinni Karachi. AFP, AP. Reuters Eiginkona og synir pakistanska lögfræðingsins Iqbal Radh syrgja í Kar- achi í gær. Radh var verjandi Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra. Kohl enn gagnrýnd ur í eigin flokki Berlín. AP, Reuters. ÞRÍR menn raddust í gær inn í skrif- stofu lögfræðings og veijanda Nawaz Sharifs, fyrrverandi forsætisráð- herra Pakistans, og skutu hann og tvo menn aðra. Réttarhöldunum yfir Sharif á að ljúka eftir nokkra daga. Vitni segja, að morðingjamir hafi verið þrír, vel klæddir og vel vopnað- ir, og hafi fjórði maðurinn beðið við bíl, sem flutti þá á brott á miklum hraða. Þegar að var komið í skrifstof- unni lá lögfræðingurinn, Iqbal Radh, þar í blóði sínu og tveir menn aðrir, lögfræðingur og aðstoðarmaður. Tengt réttarhöldunum? Aktar Hussain Gorchani, háttsett- ur Jögregluforingi í Karachi, sagði í gær, að hugsanlega hefði það vakað fyrir morðingjunum að hafa einhver áhrif á réttarhöldin yfir Sharif. Hann, bróðir hans og fimm fyrrverandi embættismenn era fyrir rétti, sakað- ir um ýmsa glæpi og á réttarhöldun- um að ljúka eftir fáa daga. Ijaz Batalvi, starfsbróðir Radhs, sem dró sig út úr veijendahópnum í síðustu viku, sagði, að njósnað hefði verið um verjendurna og þeim fylgt eftir hvert fótmál. Þá hefðu símar þeirra verið hleraðir en við því hefðu þeir búist. Þá hefði hins vegar ekki órað fyrir, að líf þeirra væri í hættu. í forsætisráðherratíð Sahrifs var Radh dómsmálaráðherra í Sindh-héraði þar sem Karachi er höfuðborg. Herinn steypti Sharif af stóli í október sl. er hann hafði vikið Pervez Musharraf, núveranda leiðtoga her- stjómarinnar, frá sem yfirmanni hersins. Þá var Musharraf á leið heim frá Sri Lanka en flugvélinni með um 200 manns innanborðs var neitað um lendingarleyfi í Pakistan þótt sagt væri, að hún hefði aðeins eldsneyti í nokkrar mínútur. Herinn tók þá völd- in og vélinni var lent. FORYSTUMENN í flokki Kristi- legra demókrata í Þýzkalandi, CDU, sýndu í gær lítil viðbrögð við þeirri tilkynningu Helmuts Kohls, fyrrver- andi kanzlara, að hann hefði safnað sem nemur um 228 milljónum króna til að mæta sektum sem flokknum verður væntanlega gert að greiða vegna ólöglegra fjárframlaga sem Kohl tók við á síðustu valdaáram sín- um. Mörgum flokksmönnum gremst að Kohl skuli enn þverskallast við að láta undan þrýstingi um að gefa upp nöfn gefenda hinna ólöglegu fram- laga. Að hann skuli safna fé fyrir sektunum sem þessi lögbrot muni kalla yfir flokkinn dugi hvorki til að endurreisa orðstír hans sjálfs né flokksins í augum kjósenda. „Sá skaði sem skiptir máli snýr ekki að fjármálahliðinni, heldur að því að Kohl skuli álíta eigið heiðursloforð (til gefenda ólöglegu framlaganna) mildlvægara en stjórnarskrána, það er lögin,“ sagði Kurt Biedenkopf, forsætisráðherra Saxlands, í sjónv- arpsviðtali. Angela Merkel, fram- kvæmdastjóri CDU, sagði fjársöfnun Kohls ekki mundu „leysa þann trún- aðarbrest, hið tapaða traust, sem við verðum að endurheimta". Jafnvel hið íhaldssama dagblað Frankfurter All- gemeine Zeitung skrifaði í forsíðu- grein að viðleitni Kohls væri sjálf- hverf og ófullnægjandi. Þingsætið sem vörn gegn málsókn í sjónvarpsviðtali eftir blaða- mannafund í fyrradag, þar sem Kohl tilkynnti um árangur fjársöfnunar sinnar, sagðist hann ekki mundu láta undan þrýstingi um að afsala sér þingsæti sínu þar sem við það myndi hann missa friðhelgi frá málshöfðun. „Hefði ég ekkert þingsæti væri ég vamarlaus,“ sagði hann, og bætti við að hann myndi ekki sækjast eftir kjöri á ný þegar þessu kjörtímabili lyki árið 2002. Þá sagðist hann enn- fremur ekki ætla að skipta sér neitt af því hver veldist í leiðtogasæti flokksins þegar Wolfgang Scháuble léti af því á flokksþingi í apríl. Hann mundi ekki sitja þetta þing. Sérskipuð þingnefnd er nú að rannsaka ásakanir um að leynilegar greiðslur til flokks Kohls tengdust pólitískum ákvörðunum teknum í valdatíð hans, og hjá saksóknara í Bonn er önnur rannsókn í gangi á þætti Kohls í leynireikningahneyksl- inu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.