Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 33

Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 33 LISTIR Morgunblaðið/Jim Smart Frá Listahátíð fatlaðra. Morgunblaðið/Jim Smart Leikrit æft fyrir Listahátíð fatlaðra. Blikandi stjörn- ur á Listahátíð fatlaðra M-2000 Laugardagur 11. mars. Kl. 14 ogkl. 16. Ilafnarfjarðarleikhúsið Snædrottningin. Sýning frá finnska brúðu- leikhúsinu Græna eplinu. Brúð- ur, leikarar og tónlistarmenn setja þetta gamalkunna ævin- týri H.C. Andersen í nýjan bún- ing. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti. Málverkasýning. Iris Elfa Friðriksdóttir. Kl. 14. Hún hefur gert sér far um að steypa saman ólíkum efniviði í verkum sínum, til dæmis hefur hún virkjað steinsteypu. Til 15. apríl. Ásmundarsafn Maður um mann: Steinunn Þórarinsdóttir - Ásmundur Sveinsson. Kl. 16. Verk tveggja íslenskra myndhöggvara Islands. Stein- unn Þórarinsdóttir hefur stillt saman eigin verkum og úrvali úr smiðju Ásmundar. Til 14. apríl. Ævintýraklúbburinn Stjörnur himinsins. Kringlan kl. 14. Við upplýsingaborð Menn- ingarborgarinnar. Forskot á sæluna era við- burðir sem Menningarborgin gengst fyrir á hverjum laugar- degi í Kringiunni þar sem væntanlegir viðburðir eru kynntir. I þessu Forskoti verð- ur kynnt listahátíð þroska- heftra er nefnist Stjörnur him- insins. Hátíðin sjálf fer fram dagana 5.-20. mars og er víða um bæinn. Rringlugestir geta átt von á ýmsum uppákomum, svo sem dans, söng, hljóðfæra- leik og leiklist. Tónleikar í Stykkishólms- kirkju LAUFEY Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikaii halda tónleika í Stykkishólmskirkju sunnudaginn 12. mars kl. 16. Efnisskráin spannar verk frá barokk-tímanum til okkar daga og íslensk tónskáld hafa samið verk fyr- ir þau sérstaklega. Laufey og Páll hafa starfað saman frá árinu 1986. Þau hafa haldið tón- leika víðs vegar um landið og staðið víða fyi'ir tónlistarkynningum í skól- um. Einnig hafa þau komið fram er- lendis og gert upptökur fyrir útvarp og sjónvarp. Árið 1996 léku þau inn á geislaplötu sem heitir ítölsk tónlist. Að loknum tónleikunum mun Páll hlýða á gítamemendur Tónlistar- skóla Stykkishólms og gefa þeim ráð. Tónleikarnir era haldnir í tengsl- um við samstarfsverkefni Félags ís- lenskra tónlistarmanna, mennta- málaráðuneytis, Stykkishólmsbæjar og Tónlistarskóla Stykkishólms. Áð- gangseyrir kr. 500 en frítt fyrir tón- listarskólanema. ------*-+-*------ Aukasýning á Hafrúnu AUKASÝNING á Hafrúnu verður í Möguleikhúsinu við Hlemm sunnu- daginn 12. apríl kl. 17. Hafrún var sýnd á síðasta leikári í Möguleikhús- inu. Sýningin er unnin er af leikhópn- um upp úr þremur íslenskum þjóð- sögum sem allar tengjast hafinu. Þar segir frá ýmsum furðuskepn- um sem rísa ýmist upp úr sjónum eða birtast í fjöruborðinu, mönnum til undrunar, hugarangurs, nokkurs ótta og gott ef ekki lífshættu. Sýningin er flutt af Völu Þórsdótt- ur leikara og Kristjáni Eldjárn tón- listarmanni sem leikur á rafgítar. Höfundur leikmyndar og búninga er Katrín Þorvaldsdóttir og leik- stjóri Pétur Eggerz. LISTAHÁTIÐ fatlaðra er haldin hátíðleg í annað skipti nú í ár. í kvöld er ball í gömlu Rúgbrauðs- gerðinni en aðaldagurinn er á morgun, sunnudag. Þá hefst fjöl- breytt dagskrá kl. 14 í Háskóia- bíói. Þar verður söngur, dans, leiklist, upplestur og bíómynd sem var unnin sérstaklega fyrir lista- hátíðina. Að sögn Kristins Ingvarssonar, forstöðumanns Tipp topp í Hinu húsinu kemur fólk nú víða af land- inu, en hátíðin var bundin við Reykjavík í fyrra. Fólk keniur frá ísafirði, Akur- eyri, Siglufirði og Sólheimum. Sól- heimafólkið dansar á sunndaginn, hinir sjá um önnur atriði og sýna myndlist. Stjörnur himinsins Undirbúningur hátíðarinnar hófst í desember í fyrra þegar sett TONLIST S a I u r i n n SAMLEIKUR Á FIÐLU OG PÍANÓ Sigurlaug Eðvaldsdóttir og Valgerður Andrésdóttir fluttu sónötur eftir Jón Nordal, Prokofiev og Brahms. Miðvikudagurinn 8. mars. SIGURLAUG Eðvaldsdóttir fiðlu- leikari og Valgerður Andrésdóttir píanóleikari stóðu fyrir sónötukveldi í Salnum, sl. miðvikudagskvöld. Að leika sónötur er að mörgu leyti ann- að verk en að leika smáverk eða leik- tækniverk, því bera má saman þau vinnubrögð sem einkenna sónötur annars vegar og sinfóníur hins veg- ar, því þar er fengist við samfléttun stefja og formskipan, sem alla jafna er ekki að finna í lagbundnari tón- verkum. Þá hefur lengd tónmálsins áhrif á vinnubrögðin, því segja má að stutt tónverk séu búin til úr löngum lögum, en löng tónverk til úr smá- gerðum stefbrotum, þ.e.a.s., að langa lagið er endurtekið sí og æ, ef til vill Svefninn vakinn hjá Ófeigi FRUMHÓPURINN Zvefn opnar sýninguna Svefninn vakinn, hjá Ófeigi, Skólavörðustíg 5 í dag kl. 15. Framhópurinn Zvefn saman- stendur af Ágústu Magnúsdóttir, Úlfhildi Guðmundsdóttir og Ingi- mari Hólm Guðmundssyni. Óll era þau stúdentar frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og hafa stundað list- nám frá unga aldri. Á sýningunni eru málverk eftir Ágústu, ljósmyndir eftir Ingimar og frumsamin tónlist eftir Úlfhildi og Ágústu sem verður gefin út í tilefni sýningarinnar og frumflutt á opnun- inni. Þema sýningarinnar er svefn og tengjast verkin saman í gegnum svefnstigin. Sýningin stendur til 28. mars og er opin á verslunartíma. var saman atriðið Blikandi stjörn- ur, en hátiðin hefur fengið nafnið Stjörnur hiniinsins. I fyrra nefnd- ist hún Litir regnbogans Hátiðin snýst mjög um himin- inn? „Já, meira að segja, alveg óvart, nefnist leikhópurinn sem býr til myndina, Stjörnuleikhópurinn." Kristinn Ingvarsson sagði að alla dreymdi Ieikarana um að með millikafla en úr smástefjunum má vinna margslungið og marg- breytilegt tónferli, sem oft þarfnast meiri yfivegunar í flutningi en mótun syngjandi fallegrar laglínu. Að því leyti til lögðu Sigurlaug og Valgerð- ur sig eftir að flytja tónlist, sem gerir kröfur til íhugunar og ögunar í fiutn- ingi. Tónleikarnir hófust á sónötu eftir Jón Nordal, sem samin er 1952, skemmtilegu verki, mjög nærri vinnutækni Hindemiths, sem var einum of hófstillt í flutningi Sigur- laugar og Valgerðar, þó margt væri vel og sannfærandi í hljóman, eink- verða stórstjörnur. Hann sagði að það væri ákaflega skemmtilegt að vinna með fólkinu, það væri hæfi- leikaríkt og lifandi. „Þegar það byrjaði að spinna varð til eitt leikrit á dag og fólkið hafði ekkert fyrir því. Þau voru svo frjó að horfið var frá að gera leikna mynd, í staðinn var notaður þeirra eigin spuni. Þetta er mynd um þau og það sem þeim finnst," um hægi þátturinn og mai'gt í þeim síðasta. Flautusónatan, op.94, sem Prokof- iev samdi 1943 og umritaði ári síðar fyrir fiðlu, undir handleiðslu fiðlu- snillingsins Daviðs Oistraks, er með- al vinsælustu kammerverka Prokof- ievs og það verðskuldað, því báðar gerðirnar era jafn skemmtilegar og sérlega lifandi tónlist. I heild var verkið vel flutt en nokkuð um of í hægum hraða, sem gerði sumum tónhugmyndum erfitt fyrir að lifna eða öðlast leikræna skerpu, t.d. eins og í t.d. skersóinu og einnig í loka- kaflanum, sem vel má leika af nokkr- sagði Kristinn. „Þau vildu leika og taka þátt í bíómynd, ekki heimild- armynd. Spurt var hvað þau ætl- uðu að gera í framtíðinni og þau gerðu það sem þau vildu. Æðsti dramur þeirra kemur fram í myndinni." Meðal þess sem þau óskuðu sér að verða var leikari, óperusöng- kona, sundhallarstjóri, barþjónn og læknir. Listahátíð fatlaðra er samvinnu- verkefni. Ævintýraklúbburinn stendur að hátiðinni í samvinnu við Reykjavík menningarborg, Fé- lagsmiðstöð fatlaðra og Tipp topp í Hinu húsinu. Myndlist eftir fatlað fólk hefur verið sýnd víða, fyrst í Japis en líka Nýkaupi í Kringlunni og Ráð- húsi Reykjavíkur. Leikarar, söngvarar og rithöfundar hafa að- stoðað við undirbúning dagskrár- innar. um glannaskap og glensi. Syngjandi og fallegur tónn Sigur- laugar naut sín sérlega vel í upphafs- kafla d-moll fiðlusónötunnar, op. 108, eftir Brahms, enda má leika þennan tónjöfur mjög hægt án þess að tón- málið skaðist. Þrátt fyrir að lokakafl- inn væri vart leikinn hraðar en All- egro en ætti að vera Presto agitato, var mai'gt mjög vel gert og ásamt fiðluleikaraum átti Valgerður vel mótaðar tónhendingar og töluverð tilþrif til að leggja með sér. Sigurlaug Eðvaldsdóttir er góður fiðluleikari, hefur á valdi sínu falleg- an tón og leikur hreint en var á stundum einum of hógvær í samleik og þyrfti að skerpa leik sinn meira sem einleikari með tíðari átökum á tónleikapalli. Valgerður gerði margt vel en mest mæddi á henni í Brahms, þó Prokofiev hafi átt til skemmtileg- ar leikbrellur sem Valgerður lék með sannfærandi hætti. Samleikurinn af beggja hálfu var góður, en þrátt fyrir að margt væri fallega gert, vantaði oft þá skerpu í andstæðum tóntaks og hraða, sem er eitt af því, sem gef- ur tónlist spennu þá er liggur á milli ýtrasta átaks og slökunar. Jón Ásgeirsson Á milli ýtr- asta átaks og slökunar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.