Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 34
34 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Þegar gerður var verðsamanburður á bensíni í sjö löndum í vikunni kom í ljós
að 98 oktana bensín var dýrast í London og 95 oktana bensín dýrast í Osló
og í London. Reykjavík var í þriðja sæti.
Bensínið dýrast í
I vikunni könnuðu fréttaritarar Morgun-
blaðsins í Kaupmannahöfn, London, Minne-
apolis, Melbourne, Ósló og Ziirich verð á
bensíni og lögðu leið sína á þjónustustöðvar
svo og sjálfsafgreiðslustöðvar þar sem þær
var að finna í nágrenni við heimili þeirra.
Einnig var verð kannað á bensínstöðvum í
Reykjavík.
I ljós kom að á flestum stöðum hefur
bensín verið að hækka og sums staðar hækk-
ar verðið nokkrum sinnum á dag. Þá er víð-
ast hvar mikil samkeppni milli stöðva, jafnvel
í sömu keðju eins og var tilfellið í Ósló. Tölur
um bensínverð í Bandaríkjunum er ekki að
finna í töflunni þar sem ekki er hægt að fá 95
og 98 oktana bensín í Minnesotafylki. Á hinn
bóginn kemur í ljós að þar kostar bensínlítr-
inn um 30 krónur og er þá ódýrari en í
London
Ástralíu þar sem lítrinn kostar um 37 krónur.
Tekið skal fram að þjónustan hjá bensín-
stöðvum í þessari könnun er mjög mismun-
andi og það virðist sjaldgæft að boðið sé upp
á þá þjónustu að dæla á bílinn fyrir við-
skiptavini eins og tíðkast á þjónustustöðvum
hér á landi. Ekkert tillit var tekið til þjónustu
í þessari könnun heldur einungis spurt um
verð.
Morgunblaðið/Golli
Fáar þjónustustöðvar bjóða upp á að bensini sé dælt á bflinn fyrir við-
skiptavini en margar þeirra selja vörur eins og mjólk og brauð.
Kaupmannahöfn,
Danmörk
Engir hjálp-
fúsir af-
greiðslu-
menn
Það eru engar stöðvar í Dan-
mörku þar sem hjálpfúsir af-
greiðslumenn koma hlaupandi
út og fylla á bílinn fyrir öku-
menn. Þeir neyðast til að gera
það sjálfir. Hjá Jet eru bensín-
stöðvarnar ekkert annað en
tankar sem standa undir skilti
og þar er keypt með kortum.
Jet er ekki með mjög margar
stöðvar og fastir viðskiptavin-
ir verða því að vita hvar þá er
að finna. Kosturinn er að
þarna er hægt að fá bensín all-
an sólarhringinn.
Statoil rekur hinsvegar
venjulegar bensínstöðvar þar
sem margt fleira er að fá en
bensín eins og matvöru, vín,
bjór að ógleymdu sælgætisúr-
vali. Víða er einnig selt nýbak-
að brauð og sætabrauð og
eldiviðm- á veturna. Þó af-
greiðslumennirnir setji ekki
bensín á bflana eru þeir liprir
við að hjálpa til við að setja
vatn í rúðusprautuna og ef
einhver er svo óheppinn að
ruglast og setja dísil á bflinn í
staðinn fyrir bensín vita þeir
hvernig á að bregðast við.
Þrátt fyrir verðmuninn hika
ég ekki við að skipta við Stat-
oil fremur en Jet, því ég kann
því vel að fá að borga fólki í
stað þess að nota kort á mann-
lausum stöðvum. A flestum
Statoil-stöðvum eru þó komn-
ir korttankar þannig að hægt
er að fá þar bensín utan hefð-
bundins afgreiðslutíma.
Sigrún Davíðsdóttir
Zurich, Sviss
Verð
á bensíni
hefur
hækkað
Það var hægt að fá einn lítra af
95 oktana bensíni í Zurich fyr-
ir 54 krónur iyrr í vetur en nú
er erfitt að finna lítra á undir
61 krónu. Shell, Avia og BP
stöðvar í nágrenni við mig
bjóða allar bensín á sama
verði, 61 krónu lírann af 95
oktana bensíni og 62 fyrir lítra
af 98 oktana bensíni.
Það er alltaf sjálfsafgreiðsla
á þessum stöðvum og verslun
líka. BP-stöðin er stærst. Hún
er ný og þar er hægt að kaupa
brauð, mjólk og aðrar nauð-
synjar allan sólarhringinn.
Verslanir Avia og Shell eru
minni og leggja meira uppúr
sígarettum og sælgæti en
matvörum. Eina þjónustu-
stöðin í nágrenni við mig er lít-
il Avia-stöð á leiðinni út á
hraðbrautina upp í fjöllin.
Hún hefur fjórar dælur, tvær
sem maður getm- notað sjálfur
og tvær sem ungur maður
dælir úr fyrir mann. Hann at-
hugar síðan olíuna og þvær
rúðurnar. Það er nokkrum
krónum dýrara að kaupa
bensín hjá honum.
Bensínverð úti á hraðbraut-
unum er yfirleitt aðeins hærra
en inni í bæ. Hjá stórri Shell-
stöð á hraðbrautinni til Bern
kostar lítrinn af 95 oktana
bensíni 62 krónur og af 98 okt-
ana bensíni 64 krónur. Starfs-
menn BP stöðvar á hraðbraut-
inni frá Ziirich til Þýskalands
ákváðu hins vegar fyrir
nokkrum vikum að selja þen-
sínið á sama verði og inni í bæ.
Anna Bjamadóttir
Bensínverð í sjö borgum Mars 2000
London, England
Háir
skattar
á bensín
Verð á bensíni í Bretlandi er
meðal þess sem hæst þekkist
í Evrópu. Ástæðan er háir
skattar sem settir voru í því
skyni að reyna að draga úr
notkun einkabílsins hér í
Bretlandi. Ekki eru allir á
einu máli um áhrif þessa
enda eru almenningssam-
göngur ekki upp á marga
fiska, mannfjöldinn á háanna-
tímum er slíkur að yfirfullir
strætisvagnar og neðanjarð-
arlestir neyðast oft til að
keyra fram hjá stoppistöðv-
um án þess að geta tekið upp
fleira fólk.
Því neyðast sumir einfald-
lega til þess að nota einka-
bflinn og greiða hið háa ben-
sínverð.
Lítrinn af 98 oktana ben-
síni kostar hér rétt tæpar 100
krónur að meðaltali og 95
oktana bensín um 92 krónur.
Shell er með flestar ben-
sínstöðvarnar, en auk þess
má hér finna Texaeo, BP og
fleiri. Eg hef enga bensínstöð
fundið sem svipar til Orkunn-
ar heima eða ÓB. Flestar
bjóða upp á nokkurt úrval af
nauðsynjavörum og eru Sel-
ect-búðir í nánast hverri
Shell-stöð, líkt og þekkist á
íslandi.
Þjónustan er þó ekki sam-
bærileg við það sem þekkist
hjá íslenskum bensínstöðv-
um, hér þarf fólk nánast und-
antekningarlaust að dæla
bensíninu sjálft á bílinn.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Melbourne,
Astralía
Engar
þjónustu-
stöðvar
AUar bensínstöðvar í Mel-
bourne eru sjálfsafgreiðslu-
stöðvar að því leyti að enginn
viðkunnalegur afgreiðslumað-
ur eða kona dælir á bflinn fyrir
mann. Sumar bensínstöðvar
reka kjörbúð með ýmsu til
heimilishalds og margar hafa
afskorin blóm, eldivið og dag-
blöð á boðstólum. Margai'
stöðvarnar eru líka með svo-
kallaða kortatanka.
Ég fór og kannaði verð á
Box Hill sem er BP bensín-
stöð. Sú stöð selur gosdrykki,
kex og sælgæti ásamt vörum
fyrir bílinn.
Verð á bensíni er breytilegt
og það miðast við staðsetn-
ingu stöðvanna frekar en
þjónustu sem þær láta í té.
Lítraverðið er auglýst stórum
stöfum við bensínstöðina og
miðað við 95 oktana bensín.
Það getui' breyst frá morgni
til kvölds og einnig milli
stöðva.
Á sunnudaginn var verðið
0,849 AUD eða 38 krónur á
lítra en á mánudagsmorgun
0,839 AUK eða 37,5 krónur á
sömu stöð.
Það or ljóst að verð á ben-
síni hefur hækkað töluvert
undanfarið. í könnun RACV,
sem er félag bifreiðaeigenda
hérna, og Shell kemur fram að
meðalverð í Melbourne í des-
ember var 0,762 AUK eða 34
krónur.
Sigríður Ólafsdóttir
Minneapolis,
Minnesota,
Bandaríkin
Bensín-
hækkanir
fram á vor?
Bensínverð hefur verið á mik-
illi uppleið síðustu vikurnar
hér í Minnesota og nú er
bensín tvisvar sinnum dýrara
en á sama tíma fyrir ári. Við
erum búin að búa hér í tíu ár
og á þessum tíma hefur ben-
sínverð verið nokkuð stöðugt,
nánast alltaf í kringum einn
dollari eða 74,5 krónur fyrir
eitt gallon sem er 3,78 lítrar.
Ódýrasta bensíngallonið
sem ég fann að þessu sinni var
hinsvegar á 1,56 dollara eða
um 116 krónur.
Hér í Minnesota er ein-
göngu selt 87, 90 og 92 oktana
bensín. Ailar bensínstöðvar
eru með sjálfsafgreiðslu og ég
þurfti að fara í fínasta hverfi
borgarinnar til að finna ben-
sínstöð með þjónustu þ.e. þar
sem fyllt er á fyrir viðskipta-
vininn.
Á bensínstöð þar sem sjálfs-
afgreiðsla er kostaði lítrinn af
87 oktana bensíni um 30 krón-
ur en þar sem boðið var upp á
þjónustu kostaði lítrinn um 36
krónur.
Auk þess sem fyllt er á bfl-
inn fyrir mann, eru rúðurnar
þvegnar, olían athuguð og
skipt um þurrkublöð ef þess
er óskað.
Það er mikið rætt um ben-
sínverð um þessar mundir og
nokkrar útvarpsstöðvar eru
meira að segja komnar með
bensínvakt svokallaða „price
patron“ vakt þar sem fylgst er
með verði frá degi til dags og á
milli bæjarhverfa. Hér búast
menn við að bensínið hækki
fram á sumar og það kemur
illa við budduna hjá mörgum
því það er ekki óalgengt að
fólk sé að aka um 50.000 kfló-
metra á ári.
Katrín Frímannsdóttir
Osló, Noregur
Bensínverð-
ið aldrei
hærra
Bensínverð hefur aldrei verið
hærra í Noregi en nú og þetta
er í íyrsta skipti sem lítrinn
fer upp fyrir 10 krónur norsk-
ar eða í um 90 krónur. Norð-
menn eru ergilegir vegna
þessa og láta óspart í sér
heyra.
Samkeppnin er mikil og
bensínverðið ekki stöðugt.
Það getur jafnvel breyst oft á
dag á sömu bensínstöðinni og
það er engin verðsamræming
milli stöðvanna. Það er verð-
munur innan keðjanna sjálfra
sem eru að selja bensín.
Það er engin stöð hér sem
býður upp á að dælt sé fyrir
mann á bílinn, maður gerir
það sjálfur. Á hinn bóginn er
lagt uppúr því að hafa þjón-
ustu á bensínstöðinni sem lýt-
ur að því að bjóða nýbakað
brauð, pítsur, hamborgara,
mjólkurvörur og blöð og verð-
ið er hátt.
Á Jet-bensínstöðinni er
ekkert afgreiðslufólk og þar
var lítrinn af 95 oktana bensíni
á 85 kr. meðan hann kostaði 95
krónur á Hydro Tesco-stöð
skammt frá.
Unnur Gígja Gunnarsdóttir