Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 41
MARGMIÐLUN
Gruflað endalaust
LEIKIR
Nýjasta viðbótin í Donkey Kong
seríuna var nýlega gefin út af
Rareware, leikurinn er fyrir Nint-
endo 64 leikjatölvurnar og með
fylgir fjögurra MB minnispakki
sem nauðsynlegur er til að hægt sé
að spila leikinn.
DONKEY KONG 64 er þrívíddar
hopp-skopp leikur í anda Banjo
Kazooie og einnig gætir áhrifa af
Zelda 64. DK64 er aðeins fyrir einn
spilara en þó geta allt að fjórir spil-
endur barist hver við annan í svo-
kölluðu „deathmatch“.
Borð leiksins eru gífurlega stór og
flókin og í hverju borði eru mörg lítil
svæði sem Donkey Kong getur ekki
opnað nema með því að vinna sér inn
sérstakan hæfileika, nýjan „kar-
akter“ eða nýtt vopn. Markmið leiks-
ins er að stöðva innrás vonda krókó-
dílsins K.rool og bjarga fjórum bestu
vinum Donkey Kongs. Þegar vinum
hans hefur verið bjargað er einnig
hægt að spila með þeim og allir eru
nauðsynlegir til að hægt sé að klára
leikinn. Ný borð eru opnuð með því
að safna nóg af venjulegum og gulln-
um banönum, mikilvægustu hlutum
leiksins.
í raun snýst allur leikurinn um að
safna hlutum; safna þarf teikningum
af baráttuskipi K.rool, vopnum,
gullpeningum, skotfærum, tónlistar-
nótum og „karakterum“ sem hver
um sig þarf að safna mismunandi lit-
uðum banönum sem hinir sjá ekki.
Graíík leiksins er afar góð en þó
furðulegt megi virðast slær Banjo
Kazooie hann út bæði í grafíkgæðum
og hraða. DK64 hægir oft töluvert á
sér þegar mikið er á skjánum í einu
og þó nýtir hann fjögurra megabæta
minnisstækkun sem Banjo Kazooie
þurfti ekki.
Hljóð leiksins eru ágætlega gerð
þó alla fjölbreytni vanti. Tónlistin
jaðrar við að verða pirrandi en rétt
slefar yfir þolinmæðismörkin.
Hljómgæðin eru ágæt og ekki jafn-
bæld og í Banjo Kazooie.
Stjórn leiksins er með því besta og
fjölbreyttasta sem sést hefur í Nint-
endo 64 leik. Hver „karakter" hefur
sína eigin stjórnmöguleika auk þess
sem hver „karakter" hefur sínar sér-
stöku árásir sem eru framkvæmdar
með mismunandi takkasamsetning-
um.
Myndbönd og þjálfun leiksins er
afar flott þó ótrúlega þreytandi sé að
ekki sé hægt að sleppa við þau eða
flýta fyrir þeim. Þjálfunin er afar
einföld og gerir í raun ekki neitt
nema að kenna leikendum að þeir
þurfa að læra sjálfir til að komast í
gegnum leikinn.
Donkey Kong 64 er stærsti og
einn sá besti borðaleikur sem komið
hefur út og fyrir þá sem virkilega
„fíla“ að grufla endalaust í sama
leiknum þar til allt er klárað, þó það
þýði fleiri tugi klukkutíma límdur
fyrir framan tölvuna, gæti hann ekki
verið betri. Fyrii’ þá sem nenna eig-
inlega ekki að pæla alveg svona mik-
ið í leikjunum sem þeir spila er Ban-
jo Kazooie málið.
Ingvi Matthías Árnason
Skylduskráning
á MS-hugbúnaði
MICROSOFT hefur farið fyrir hópi
hugbúnaðarfyrirtækja sem barist
hafa gegn stuldi og ólöglegri afritun.
Nú hyggst fyrirtækið ganga enn
lengra í þá átt að stemma stigu við
svikum og krefjast þess að kaupend-
ur hugbúnaðar skrái hann hjá fyrir-
tækinu.
Þegar notendur setja upp hugbún-
að frá Microsoft, hvort sem það er
stýrikerfi eða notendabúnaður, býðst
viðkomandi búnaður til að skrá hann
hjá Microsoft ef viðkomandi er með
nettenginu. Fram til þessa hafa þeir
sem setja búnaðinn upp getað hafnað
því að skrá hann að svo stöddu og þess
vegna aldrei skráð hann ef þeim sýnist
sem svo. í næstu útgáfu Office-hug-
búnaðarvöndulsins verður málum aft-
ur á móti svo háttað að viðkomandi
verður að skrá búnaðinn til að geta
notað hann; ef ekki er búið að skrá
búnaðinn hjá Mierososft áður en hann
hefur verið ræstur fimmtíu sinnum
hættir hann að vinna.
Ýmsir hafa legið Microsoft á hálsi
lýrir að vilja fylgjast um of með not-
endum hugbúnaðar síns. A móti seg-
ist fyrirtækið aðeins vera að koma í
veg fyrir ólöglega starfsemi og þann-
ig geti kaupendur skráð hugbúnað-
inn nafnlaust með tölvupósti, í síma,
á vefnum eða í símbréfi svo dæmi séu
tekin. Aðeins þurfi að gefa upp land
það sem hugbúnaðurinn er keyptur í
og skráningarnúmer hans.
Samkvæmt upplýsingum frá
Microsoft hefur hugbúnaðarþjófum
aukist ásmegin með tilkomu Netsins
og sem dæmi nefnir það að hægt var
að sækja ólögleg eintök af Windows
2000 þegar í janúar á yfir 100 vef-
setrum, en hugbúnaðurinn kom út
um miðjan febrúar.
Að sögn Microsoft-manna hefur
vefsetrum sem dreifa ólöglegum
hugbúnaði fjölgað út 100.000 fyrir
þremur árum í yfir tvær milljónir á
síðasta ári.
--------------
Hættulegur
leikur
FREGNIR bárust af því í vikunni
vestan um haf að fjöldi barna hefði
slasast af því að leika Nintendo-leik-
inn Mario Party. Svo mikið fjör er í
leiknum að börnin eru með stýrpinn-
ann á sífelldri hreyfingu og fá fyrir
vikið brunablöðrur og skrámur á
hendurnar.
Nintendo hefur brugðist við
kvörtunum með því að bjóða þeim
sem vilja að fá sérstaka hanska
senda í pósti, en einnig hefur fyrir-
tækið lagt að börnum að nota þumal-
og vísifingur til að hreyfa stýripinn-
ann en ekki lófann.
Vertu stiPltur
fyrir svefninn
ÍÐJUÞJALFI
MiUiMuMW13*161**
*rðu.»iuWúltií^“"™
iil að aðstoða u'ð ua' a dynum
VERSLUNIN
Skútuvogi 11 • Simi 568 5588
Búnaðarbanki islands hf
Aðalfundui'
2000
Súlnasal Hótel Sögu 11. mars kl. 14:00
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu
endurskoðanda lagðurfram.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar
á síðastliðnu reikningsári.
4. Tillögurtil breytinga á samþykktum, ef borist hafa.
5. Kosning bankaráðs.
6. Kosning endurskoðanda.
7. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna.
8. Tillaga um framlag í menningar- og styrktarsjóð.
9. Önnur mál.
(D BÚNAÐARBANKIÍSLANDS HF
Enski boltinn á Netinu
& mbl.is
-JU-LTa/= E!TTH\MO j\JÝTT-