Morgunblaðið - 11.03.2000, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 43
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf„ Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
KENN SLUBÓK í
NÝJUM VINNU-
BRÖGÐUM
IFYRRADAG lagði deCODE genetics Inc., sem er móður-
félag íslenzkrar erfðagreiningar hf., inn skráningarlýs-
ingu hjá verðbréfayfirvöldum í Bandaríkjunum vegna vænt-
anlegs hlutafjárútboðs fyrirtækisins, sem fram mun fara bæði
í Bandaríkjunum og í Evrójm. Þessi skráningarlýsing er á átt-
unda hundrað blaðsíður. I Morgunblaðinu í gær og í dag er
sagt nokkuð ítarlega frá efni hennar en jafnframt er hægt að
lesa hana í heild á netútgáfu Morgunblaðsins.
Það sem fyrst og fremst vekur athygli er hversu yfirgrips-
mikil þessi lýsing er. Segja má að öll málefni fyrirtækisins,
hverju nafni sem nefnast, séu lögð fram í þessum skjala-
bunka. Óhætt er að fullyrða að ekkert íslenzkt fyrirtæki hefur
nokkru sinni opinberað málefni sín með þeim hætti sem gert
er í skráningarlýsingu deCODE genetics. Fyrir stjórnendur
og starfsmenn fyrirtækisins er þetta áreiðanlega að einhverju
leyti sársaukafullt en um leið er ljóst að öll spil hafa verið lögð
á borðið.
I þessum skjölum er gerð grein fyrir helztu eigendum fyrir-
tækisins, fjárhagsstöðu þess frá því að starfsemi þess hófst,
launakjörum einstakra nafngreindra stjórnenda og hvaða
rétt þeir hafa til kaupa á hlutabréfum í fyrirtækinu. Verkefni
fyrirtækisins eru rakin mjög ítarlega og þá jafnframt hvar
þau eru á vegi stödd, hvaða árangur hefur náðst og hvaða
árangur hefur ekki náðst. Skýrt er frá samningum sem gerðir
hafa verið við önnur fyrirtæki, sagt er frá málaferlum sem
aðrir aðilar hafa efnt til á hendur fyrirtækinu eða lýst yfir að
þeir muni efna til. Yfirleitt má segja að öll saga fyrirtækisins
sé rakin mjög ítarlega.
Sérstaka athygli vekur langur kafli þar sem gerð er grein
fyrir þeirri áhættu sem fylgir því að fjárfesta í fyrirtækinu.
Þar eru talin upp öll hugsanleg atriði sem gætu farið úrskeiðis
og orðið til þess að fyrirtækið skili ekki þeim árangri sem að
er stefnt. Framsetningin í þeim kafla er svo afdráttarlaus að
stundum mætti ætla að markvisst væri unnið að því að hræða
fólk frá því að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu.
Það liggur í augum uppi hvers vegna þessi greinargerð er
svona ótrúlega viðamikil og nákvæm. Henni er ætlað að
tryggja að allir hluthafar og væntanlegir fjárfestar sitji við
sama borð. Að enginn viti meira en annar hvað er að gerast á
vettvangi Islenzkrar erfðagreiningar. Að fullkomið jafnræði
ríki á milli hluthafa og væntanlegra nýrra fjárfesta.
Þessi vinnubrögð eru til mikillar fyrirmyndar. Þau sýna að
óravegur er á milli hlutabréfamarkaðarins í Bandaríkjunum
og markaðarins hér.
Fyrsta hugsunin sem vaknar þegar þessi umfangsmiklu
skjöl eru skoðuð er sú að þessi vinnubrögð séu til eftirbreytni.
Að svona eigi að standa að málum á Islandi þegar fyrirtæki
bjóða út hlutabréf og eru skráð á Verðbréfaþingi íslands.
Það er afar gagnlegt fyrir okkur hér á Islandi að sjá þær
hörðu og skilyrðislausu kröfur sem gerðar eru til útboðs-
gagna fyrirtækja sem eru að fara á hlutabréfamarkað í
Bandaríkjunum. Þau vinnubrögð sem hér hafa tíðkazt komast
ekkert nálægt því að standast þessar kröfur. í þessum efnum
er ekki hægt að tala um Bandaríkin og ísland í sömu andrá.
Hlutafjárútboð deCODE genetics, móðurfyrirtækis ís-
lenzkrar erfðagreiningar hf., verður tvímælalaust til þess að
opna okkur nýja sýn í þessum efnum. Það mun m.a. leiða til
þess að fram koma kröfur um algera endurskoðun á starfs-
háttum Verðbréfaþings og hlutabréfamarkaðarins hér. Það
mun kalla á kröfur um margfalt ítarlegri útboðsgögn þegar ís-
lenzk fyrirtæki fara á hlutabréfamarkað og jafnframt um
miklu ítarlegri upplýsingagjöf um rekstur fyrirtækjanna í
ársreikningum þeirra frá ári til árs. Það mun jafnframt kalla á
allsherjar endurskoðun á starfsháttum á þessum markaði hér
og að hann verði lagaður að þeim kröfum sem gerðar eru í ná-
lægum löndum beggja vegna Atlantshafsins.
Þeir sem starfa á þessum markaði hér, þeir sem stunda við-
skipti á honum, þeir sem bera ábyrgð á honum vegna starfa í
stjórnkerfinu eða á Alþingi, ættu að kynna sér vandlega
skráningarskýrslu deCODE genetics Inc. Hún er í raun
kennslubók í nýjum vinnubrögðum sem nauðsynlegt er að
innleiða á hlutabréfamarkaðnum hér.
Krafan um að íslenzk fyrirtæki njóti jafnræðis við erlenda
samkeppnisaðila í starfsskilyrðum, skattamálum o.s.frv. hef-
ur verið hávær í opinberum umræðum á undanförnum árum.
Þessi krafa verkar á báða bóga. Með sama hætti og íslenzk
fyrirtæki geta með réttu gert kröfu til að starfsskilyrði þeirra
séu ekki verri en keppinauta í öðrum löndum er hægt að krefj-
ast þess af þeim að þau uppfylli sömu skilyrði um upplýsinga-
gjöf og þessi fyrirtæki gera. Þessi aðlögun að þeim kröfum
sem gerðar eru annars staðar er líka nauðsynlegur undanfari
þess að fleiri íslenzk fyrirtæki geti fengið skráningu á hluta-
bréfamörkuðum í öðrum löndum, sem hlýtur að gerast í vax-
andi mæli á næstu árum.
Forsætisráðherra segir að aðgerðir vegna kjarasamninga stuðli að stöðugleika á vinnumarkaði sem veffl upp á móti þensluáhrifum
Halldór Björnsson, formaður Eflingar
Aukin
útgj öld
nokkrir
milljarðar
Davíð Oddsson forsætisráðherra segir að út-
spil ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjara-
samninga muni ekki ógna stöðugleika. Hann
játar því að hækkun persónuafsláttar muni
ekki aðeins fara í vasa hinna lægst launuðu
heldur muni „meira að seg,ja þeir, sem eru
með tvær milljónir á mánuði fá núna þessa
hækkun og þeir munu ekki einu sinni bjóða
okkur góðan daginn í tilefni dagsins“. Karl
Blöndal fylgdist með framvindunni í gær.
RÍKISSTJÓRNIN gaf í gær
út yfirlýsingu um aðgerðir
til að greiða fyrir samning-
um og sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra að útgjöld ríkissjóðs
myndu aukast um nokkra milljarða
vegna þeirra, en sá stöðugleiki, sem
fengist með friði á vinnumarkaði, vægi
upp á móti þeim þensluáhrifum, sem
útspil ríkisstjómarinnar kynni að hafa.
Davíð, Halldór Ásgrímsson fjár-
málaráðherra, Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra og Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra greindu fulltrúum
Flóabandalagsins og Alþýðusambands
íslands innihald yfirlýsingarinnar, þar
sem kveðið er á um að „persónuafslátt-
ur og skattleysismörk breytist í takt
við umsamdar almennar launahækk-
anir á samningstímabilinu" og tekju-
tenging barnabóta minnki um leið og
tekjuskerðingarmörk verði hækkuð, í
gærmorgun og að því loknu héldu ráð-
herramir blaðamannafund um málið.
Davíð sagði að yfirlýsing stjómar-
innar væri alfarið á hennar ábyrgð, en
þótt ekki væri tillit tekið til allra at-
hugasemda og beiðna, sem nefndar
hefðu verið, væri gengið mjög í takt við
þær væntingar, sem gerðar hefðu ver-
ið og hún væri til þess fallin að greiða
fyrir því að kjarasamningar fengju far-
sælan endi. Ríkisstjómin hafði lýst yf-
ir því að hún mundi ekki kynna fyrir-
hugaðar aðgerðir sínar fyrr en komið
væri samkomulag. Hann kvaðst ekki
hafa átt von á að það myndi gerast fyrr
en eftir helgina, en skákin hefði greini-
lega spilast hratt í Karphúsinu.
Ánægja með að náðst hafí
saman við svo stóran hóp
„Við emm ánægðir með að það hef-
ur tekist að ná saman við svo stóran
hóp á vinnumarkaði um þessar aðgerð-
ir,“ sagði Davíð. „Jafnframt væntum
við þess að þetta verði leiðbeinandi um
þá samninga, sem eftir em. Að
minnsta kosti er Ijóst að það er ekki
ætlan ríkisstjómarinnar að gera nein-
ar aðrar breytingar í tengslum við
kjarasamninga, en þær, sem felast í
þessari yfirlýsingu."
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði að niðurstaða þar sem
ósamið er myndi engu breyta um út-
spil stjórnarinnar: „En við verðum að
vonast eftir því að þeir aðilar nái sam-
an eins og aðrir í þessu máli.“
Davíð sagði að á þessu stigi málsins
hefði ekki verið vilji til þess að búa til
nýtt skattþrep eins og Flóabandalagið
hefði farið fram á. Tíminn hefði verið
skammur og vitað væri að það myndi
hafa neikvæð áhrif á skattkerfið.
„Hins vegar færðu þeir fram ýmis
rök máli sínu til stuðnings," sagði
hann. „Niðurstaðan varð sú að það
væri eðlilegt að við myndum í samráði
skoða kosti og galla breytinga á tekju-
skattskerfinu, meðal annars þessarar,
en því fylgdi ekki loforð um þessa
Morgunblaðið/Golli
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra ræðir við Magnús L. Sveinsson, formann VR, Grétar Þorsteinsson, forseta
ASI og Rannveigu Sigurðardóttur, hagfræðing ASI, áður en aðgerðir stjórnvalda í skattamálum voru kynntar.
breytingu. Við áttum okkur á því að
það er hægt að koma meira til móts við
sjónarmið um að jafna tekjur innan
skattkerfisins með þessum hætti, en
það hefur ýmsa skattalega annmarka.
En þeir vekja athygli á að hlutirnir
hafa breyst, sveiflur í launum séu
minni en áður var, og svo framvegis,
og niðurstaðan var sú að við skyldum
fara yfir þetta þannig að við þyrftum
ekki að vera að deila um staðreyndir."
Gagnrýnt að nái
til hátekjumanna
Forusta ASÍ gagnrýndi í gær að
hækkun skattleysismarka næði ekki
aðeins til hinna lægst launuðu, heldur
allra launþega, þar á meðal hátekju-
manna. Davíð játti að þetta væri ann-
marki og þess vegna hefði launþega-
hreyfingin verið að tala um fjölþrepa
skattkerfi, en hún viðurkenndi að ekki
væri hægt að hlaupa í svo stórar breyt-
ingar á örfáum dögum.
„En þetta var annmarkinn, sem
menn sáu,“ sagði hann. „Persónuaf-
slátturinn virkar þannig að hann
hleypur upp um allt svo að meira að
segja þeir, sem eru með tvær miHjónir
á mánuði fá núna þessa hækkun og
þeir munu ekki einu sinni bjóða okkur
góðan daginn í tilefni dagsins."
Davíð sagði að þetta myndi hafa
töluverð áhrif á útgjöld ríkissjóðs.
„Það er ljóst að barnabætumar ein-
ar munu auka útgjöld ríkissjóðs um
einn og hálfan milljarð - bara það
atriði eitt og sér,“ sagði hann. „Það er
Ijóst að hækkun persónuafsláttarins -
sérstaklega upphafshækkunin - mun
kosta okkur töluvert mikla peninga, á
heilu ári um tólf hundruð milljónir eða
svo. Þannig að við erum að tala um
nokkra milljarða króna í aukin útgjöld.
Við höfum sagt við Alþýðusambandið
að við munum í okkar ranni skoða með
hvaða hætti þessum aukna kostnaði
verði mætt. En við verðum auðvitað að
gæta þess í því samhengi að rugla ekki
þann grundvöll, sem kjarasamning-
arnir byggjast á.“
Davíð kvaðst verða að viðurkenna
að haft hefði verið haft á orði að óskyn-
samlegt væri að vera að lækka skatta í
þenslu og sumir af talsmönnum
stjómarandstöðunnar hefðu sagt að
alvarlegustu mistök ríkisstjómarinnar
á síðasta kjörtímabili hefðu verið að
lækka skatta.
Mikilvægt að tryggja
kjarasamninga
„Það tryggði nú kjarasamninga og
ég tel að það hefði verið afar alvarlegt
ef þeir hefðu ekki verið tryggðir,"
sagði hann. „En við áttum okkur á því
að þarna er verið að ganga eins langt
og við getum, en það er líka mikils virði
fyrir land og þjóð ef það er vinnufriður
í landinu í þrjú og hálft ár til viðbótar
þriggja ára friði.“
Forsætisráðherra sagði að með
þessum aðgerðum væri ekki verið að
stefna stöðugleikanum í hættu, heldur
þvert á móti.
„Nú er verið að reyna að sernja til
þriggja og hálfs árs,“ sagði hann. „Það
er lengsta samningstímabil, sem ég
þekki í íslenskri sögu. Það segir mér
það að launþegahreyfingin og aðilar
vinnumarkaðarins leggja höfuðáherslu
á stöðugleikann. En auðvitað er það
þannig að til þess að ná svona löngum
samningum þurfa sjást breytingar
bæði á sköttum og töxtum. Vandamál-
ið er auðvitað það að hér er verið að
hækka meira hér en aðrir aðrir era að
gera erlendis. Við höfum hækkað laun-
in hér þrefalt, fjórfalt meira að kaup-
mætti á undanförnum áram en önnur
lönd era að gera. í þessum samningum
er því aðalmálið að styrkja þann kaup-
mátt, sem hefur orðið, missa hann ekki
niður og vonandi þegar verðbólga fer
lækkandi að auka hann.“
Vísitala neysluverðs hækkaði í liðn-
um mánuði um 0,8%, sem þýddi 9,6%
verðbólgu á ársgrundvelli. Davíð sagði
að það væri hættulegt að margfalda
vísitölu eins mánaðar með tólf og hefði
það verið gert í mánuðinum á undan
hefði niðurstaðan verið fjögurra
prósenta verðhjöðnun.
„En við voram auðvitað ekki ánægð-
ir að sjá þetta,“ sagði Davíð. „Hins
vegar vekjum við athygli á hvað þarna
er um að ræða. í fyreta lagi hækkar
verð á fötum, en ástæðan er að útsöl-
um er lokið en fataverð er ekki al-
mennt að hækka. í annan stað er
bensínverðið rétt einu sinni að hækka.
Við héldum að það væri komið upp í
topp og höfum haldið lengi eins og all-
ur heimurinn. En við ráðum ekki við
það. í þriðja lagi hækkar fasteignaverð
og sú aukning skilar sér ekki til út-
gjaldaauka fyrir hinn venjulega neyt-
anda. Þótt tölumar séu háar segja þær
okkur ekki að neytandinn standi verr
sem þessu nemur. Engu að síður eru
það mikil vonbrigði að bensín- og hús-
næðisverð skuli hækka svona mikið.“
Byggt á verulegri bjartsýni um
áframhaldandi hagvöxt
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sagði á blaðamannafundinum að
ljóst væri að bæði yfirlýsingin og
samningai’nir byggðust á verulegri
bjartsýni: „Þeir byggjast á þeirri
bjartsýni að hér verði áframhaldandi
hagvöxtur,“ sagði hann. „Þess vegna
er náttúralega afar mikilvægt að við
höldum áfram atvinnuuppbyggingu og
sá hraði, sem er í þjóðfélaginu, haldi
áfram. En vandinn er að sjálfsögðu
þessi: verðhækkanir era meiri en við
vildum sjá og það mun miklu skipta nú
á næstunni að verðhækkunum sé hald-
ið í skefjum.“
Halldór sagði að það ánægjulegasta
við þennan atburð væri hvað áherslur
færa vel saman hjá fulltrúum launa-
fólks og ríkisstjóminni.
„Hér er fyrst og fremst verið að
lækka skattleysismörk og jafnframt
verið að leggja mikla fjármuni í að
breyta bamabótakerfinu," sagði hann.
„Það er mjög ánægjulegt að þetta
skuli hafa tekist og menn séu sammála
um þessa hluti. Það sem menn hafa
verið ósammála um er hvort eigi að
taka upp fleiri skattþrep í skattkerf-
inu. Nú verður framkvæmd fagleg
vinna og úttekt á því og þá koma kostir
og gallar í Ijós því að auðvitað verða
kostir og gallar við þá breytingu alveg
eins og það era kostir og gallar við nú-
verandi skattkerfi."
Halldór var spurður hvort sú hug-
mynd að koma á svokölluðum bama-
kortum, sem fram kom í kosningabar-
Yfírlýsing ríkisstjórnarínnar í tengslum við kjarasamninga á árinu 2000
Skattleysismörk hækkuð og dreg-
ið úr tekjutengingu barnabóta
RÍKISSTJÓRNIN gaf í gær
út yfirlýsingu þar sem
kveður á um að greitt verði
fyrir gerð kjarasamninga á
þessu ári með því að láta skattleysis-
mörk fylgja launaþróun og draga úr
tekjutengingu bamabóta um leið og
tekjuskerðingarmörk verði hækkuð.
Yfirlýsinguna undirrita formenn
stjórnarflokkanna og fylgir hún hér á
eftir:
„í stefnuyfirlýsingu ríkisstjómar-
innar er lögð megináhersla á að
tryggja stöðugleika í efnahagsmálum
og skapa skilyrði fyrir áframhaldandi
hagvöxt enda er stöðugt verðlag og
góð samkeppnisaðstaða íslensks at-
vinnulífs forsenda nýrra starfa. Að-
gerðir í peningamálum og gengismál-
um, svo og í fjármálum ríkisins að
undanförnu hafa allar stefnt að þessu
markmiði.
Ríkisstjórnin mun áfram fylgja
þessari stefnu. Miklu máli skiptir að
verðbólga hjaðni á næstu misseram
þannig að undirstöður kaupmáttar
verði traustar. Ríkisstjórnin mun
hafa þetta markmið að leiðarljósi við
ákvarðanir í efnahagsmálum enda
liggi það til grandvallar við gerð
kjarasamninga í landinu, einnig á
vettvangi hins opinbera.
1. Skattleysismörk
fylgja launaþróun
Til þess að greiða fyrir gerð kjara-
samninga á árinu 2000 og stuðla
þannig að auknum stöðugleika í efna-
hagslífinu á næstu áram mun ríkis-
stjórnin beita sér fyrir því að per-
sónuafsláttur og skattleysismörk
breytist í takt við umsamdar almenn-
ar launahækkanir á samningstímabil-
inu. Hækkunin á árinu 2000 verður þó
nokkra meiri. í þessu skyni verður
lagt fyrir Alþingi innan skamms
framvarp til breytinga á lögum um
tekjuskatt þar sem kveðið er á um að
persónuafsláttur hækki um 2,5% frá
1. apríl 2000. Þessi hækkun kemur til
viðbótar við 2,5% hækkun persónuaf-
sláttar 1. janúar sl. þannig að heildar-
hækkun á árinu 2000 nemur 5%. Enn-
fremur hækkar persónuafsláttur um
3% 1. janúar árið 2001, um 3% 1. jan-
úar árið 2002 og um 2,25% 1. janúar
árið 2003.
2. Tekjutenging barnabóta
minnkar og tekjuskerðingar-
mörk hækka
í samræmi við stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar verður tilhögun
barnabóta endurskoðuð með það fyrir
augum að draga úr tekjutengingu og
hækka tekjuskerðingarmörk barna-
bóta. Miðað er við að þessar breyting-
ar komi til framkvæmda í þremur
áföngum á áranum 2001,2002 og 2003
og feli alls í sér um þriðjungs hækkun
á heildarfjárhæð barnabóta frá því
sem nú er.
3. Greiðslur almannatrygginga
hækka í takt við Iaun
Ríkisstjórnin mun tryggja að
greiðslur almannatrygginga hækki í
takt við umsamdar almennar launa-
hækkanir á samningstímabilinu.
Hækkunin á árinu 2000 verður þó
nokkru meiri. Þessar greiðslur hækk-
uðu um 3,6% 1. janúar sl. og mun rík-
Grundvöllur til
að ganga frá
samningum
áttu Framsóknarilokksins á liðnu ári,
væri nú úr sögunni.
„Það sem við eram að gera hér er að
setja mikla fjármuni í að breyta bama-
bótakerfinu,“ sagði Halldór. „Við eram
ekki búnir að ákveða hvernig við ætl-
um að gera það, en við höfum haft
ákveðnar hugmyndir um það og verka-
lýðshreyfingin hefur sínar hugmyndir.
Við verðum að ná niðurstöðu í því, en
aðalatriðið er að það er ekki bara eitt-
hvað, sem kemur frá Framsóknar-
flokknum. Þetta er í stefnuyfirlýsingu
ríkisstjómarinnar og þetta er sú nið-
urstaða, sem við komumst að þegar við
mynduðum þessa ríkisstjórn. Sem bet-
ur fer er verkalýðshreyfingin okkur
sammála í þessum efnum.“
Hann sagði að í síðustu samningum
hefði megináherslan verið lögð á að
lækka skatthlutfallið: „En nú hefur
orðið sú stefnubreyting að hér er meg-
ináherslan lögð á bamabótakerfíð og
það mun að sjálfsögðu skila sér.“
Davíð bætti við að í stjómarsáttmál-
anum segði um þetta atriði að taka
ætti upp bamakort eða grípa til ann-
arra sambærilegra aðgerða: „Menn
bundu sig ekki við neitt ákveðið fyrir-
komulag. Aðalatriðið er ekki ákveðið
fyrirkomulag heldur hvaða þýðingu
hefur fyrir fólkið, sem í hlut á og þama
er eins og utanríkisráðherra segir stig-
ið mjög mikilvægt skref.“
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði að ekki hefði verið útfært að hve
miklu leyti þessi breyting á barnabóta-
kerfinu vægi upp á móti þeirri skerð-
ingu bótanna, sem átt hefði sér stað á
undanfömum áram.
Kom fram í máh Davíðs að innan
nokkurra vikna yrðu þessar reglur út-
færðar í samráði við aðila á vinnu-
markaði þannig að hægt yrði að leggja
þær fram nógu snemma á yfirstand-
andi þingi til að afgreiða þær í vor.
Forsætisráðherra sagði að það væri
voveiflegt ef ekki næðust samningar á
landsbyggðinni.
„Við getum ekki skipt okkur af þeim
málum, en hins vegar sér hver maður í
hendi sér að ef það er vinnufriður hér á
suðvesturhominu, en vinnuófriður úti
á landi, mun samkeppnisstaða fyrir-
tækjanna hér á þessu svæði gagnvart
fyrirtækjunum úti á landi stórbatna,"
sagði hann. „Landsbyggðin má nú ekki
við því og auðvitað hljótum við öll að
vona að það náist vinnufriður úti á
landi líka.“
Samið í nýju umhverfi
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagði að útspil ríkisstjórnar-
innar ætti að greiða fyrir samningum
því að nú væra menn að semja í nýju
umhverfi.
Forsætisráðherra sagði að komið
yrði til móts við örorku- og ellilífeyris-
þega hvað snerti almannatryggingar
með hækkunum í takt við hækkanir á
almennum markaði, þó örlítið meira í
upphafi.
Páll Pétursson sagði að í yfirlýsingu
ríkisstjómarinnar væri einnig sagt að
undirbúa ætti lengingu fæðingaror-
lofs, jöfnun réttar foreldra til töku þess
og samræmingu réttinda.
„Við erum með metnaðarfullar til-
lögur þar um og það er feiknarlegt
jafnréttis- og fjölskyldumál," sagði
Páll. „Ég vænti þess að menn sjái að
það er mikið framfaraspor.“
isstjórnin beita sér fyrir frekari
hækkun frá 1. april nk. þannig að
heildarhækkun bóta á árinu 2000
verði 4,5%. Jafnframt munu þessar
greiðslur hækka um 3% 1. janúar árið
2001, um 3% 1. janúar árið 2002 og
um 2,25% 1. janúar árið 2003.
4. Lenging fæðingarorlofs,
jöfnun og samræming réttinda
Ríkisstjórnin mun undirbúa breyt-
ingar á reglum um fæðingarorlof þar
sem stefnt verður að lengingu fæð-
ingarorlofs, jöfnun réttar foreldra til
töku þess og samræmingu réttinda.
5. Athugun á
tekj uskattsker finu
Ríkisstjórnin mun á næstu mánuð-
um láta fara fram sérstaka athugun á
tekjuskatti einstaklinga og stað-
greiðslukerfinu. Þar verður m.a. farið
yfir kosti þess og galla að fjölga skatt-
þrepum. Haft verður samráð við sam-
tök launafólks og atvinnurekenda um
þetta verkefni."
HALLDÓR Björnsson, for-
maður Eflingar, sagði í
gær að yfirlýsing rflds-
stjómarinnar um það
með hvaða hætti hún hygðist stuðla
að friði á vinnumarkaði væri grand-
völlur fyrir því að ganga frá samn-
ingum. Grétar Þorsteinsson, forseti
Alþýðusambands íslands, sagði að
þetta gerði eftirleikinn auðveldari í
samningum, en lýsti yfir vonbrigðum
með að hækkun skattleysismarka
hafnaði ekki aðeins í vasa þeirra
lægst launuðu, heldur einnig þeirra,
sem hefðu það góð laun að þeir
greiddu hátekjuskatt.
„Já, við sögðum að þetta blað yrði
að liggja fyrir til þess að menn gætu
sáttir skrifað undir,“ sagði Halldór
eftir að rfldsstjórnin hafði kynnt fyr-
irhugaðar aðgerðir fyrir Flóabanda-
laginu og forustu ASÍ.
Hann taldi ljóst að nú væri unnt að
ganga frá kjarasamningum við Sam-
tök atvinnulífsms. „Við erum að
vinna að því. Það verður varla af
undirskrift fyrr en á sunnudag, því
það er svo mikil vinna í kringum
þetta,“ sagði hann.
Rannveig Sigurðardóttir, hag-
fræðingur Alþýðusambandsins, sagði
að útspil rfldsstjórnarinnar fæli í sér
að skattleysismörk myndu fylgja
umsaminni launaþróun á næstu ár-
um. Mörkin myndu raunar hækka
aðeins meira nú, svo þeir sem hefðu
lægstu launin nytu þess á þessu ári.
Hækkanir munu skila sér
betur til launafólks
„Það er Ijóst að þær hækkanir sem
við höfum verið að semja um munu
skila sér betur til launafólks eftir
þessar breytingar á skattkerfinu.
Breytingar á barnabótunum munu
líka skila sér betur til barnafólks.
Það lögðum við upp með að umsamd-
ar launahækkanir skili sér í budd-
una, en ekki bara í ríkissjóð," sagði
Rannveig.
Hún sagði að í yfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar fælist hækkun barna-
bóta um 500 milljónir á ári. Það
þýddi þriðjungshækkun frá því sem
nú væri. Verið væri að skoða breyt-
ingar á tekjuskerðingarmörkunum
og að draga úr tekjutengingunni.
Ríkisstjómin telur ekki unnt að
verða við óskum um nýtt skattþrep,
en hefur þó fallist á að láta skoða
málin í samráði við aðila vinnumark-
aðarins.
Halldór segist ánægður með þetta:
„Ég tel að full alvara sé á bak við
það. Um þetta hefur verið deilt síðan
staðgreiðslukerfið var tekið upp og
við höfum enga ástæðu til að ætla
annað en ríkisstjórnin setji nú vinnu
við endurskoðun af stað. Við verðum
með í þeirri vinnu.“
Grétar Þorsteinsson sagði að rík-
isstjórnin væri nú að mæta nokkram
kröfum samtakanna og umfram allt
að svara því með formlegum hætti
hvað hún væri tilbúin að leggja af-
mörkum til þess að auðvelda kjara-
samningsgerðina. Hann kvaðst meta
þetta útspil stjórnarinnar svo að það
gerði eftirleikinn í samningamálum
auðveldari.
Mætir megináherslu
„Við vorum raunar með megin-
áhersluna á hækkun skattleysis-
markanna og að minnsta kosti
myndu þau fylgja launaþróun," sagði
hann. „Það gengur eftir og raunar
miðað við þann samning eða samn-
ingsdrög, sem nú liggja fyrir hjá
Flóabandalaginu, er ríflega lagt í
fyrsta árið miðað við almennu hækk-
unina í þeim samningi og síðan fylgir
þetta þeim almennu breytingum á
launum, sem þar er gert ráð fyrir.“
Grétar sagði einnig að á næstu
þremur árum yrðu fjármunir í
barnabótakerfinu auknir verulega og
á þetta hefði ASÍ lagt mikla áherslu.
„Við sjáum ekki annað en að þarna
sé verið að mæta þeirri kröfu mynd-
arlega,“ sagði hann.
Vonbrigði varðandi
skattleysismörk
Grétar var hins vegar óánægður
með útspilið varðandi skattleysis-
mörkin.
„Það er allt að því með ólíkindum
að þessi hækkun skattleysismark-
anna skuli líka eiga að ná til þeirra,
sem greiða hátekjuskatt," sagði
hann. „Það eru mikil vonbrigði."
Hann sagði að auðvitað væri talið
að við svona aðgerð, þar sem verið
væri að reyna að tryggja að sem
mest yrði eftir í vasa láglaunafólks,
væri „eiginlega alveg óverjandi að
láta það líka ná til þeirra, sem eru
með það háar tekjur að þeir greiða
hátekjuskatt". «
Hann kvaðst einnig hafa orðið fyr-
ir vonbrigðum varðandi hlutskipti
aldraðra og öryrkja: „Það er aðeins
ríflega lagt í breytingar á bótum um-
fram það sem verið er að semja um
sem almenna hækkun,“ sagði hann.
„En það er auðvitað þannig að ríkis-
stjórnin getur ekki vikið sér undan
því á næstunni, fyrst hún notar ekki
þetta tækifæri, að taka vel á málefn-
um að minnsta kosti hluta aldraðra
og öryrkja, sem eru augljóslega
mjög illa settir. Áherslan í þessum
samningi, sem fyrir liggur, er enn á’
verulega hækkun þeirra, sem eru á
lægstu laununum, eins og var í síð-
ustu samningum, þannig að bilið
breikkar enn hvað varðar aldraða og
öryrkja. Þetta á líka við um atvinnu-
leysisbæturnar."
Mikilvægnr þáttur að skattkerfi
verður endurskoðað
Grétar sagði að einnig hefði verið
rætt mikið um nýtt og lægra skatt-
þrep fyrir lágtekjufólk, en þeirri ósk
hefði ekki verið mætt.
„Hins vegar liggur fyrir í yfirlýs-
ingunni að tekjuskattskerfið [verði
endurskoðað] og þá sérstaklega sá
þáttur að taka upp nýtt, lægra skatt-
þrep - það er að skoða kosti þess og
galla - og er auðvitað mjög mikil-
vægt,“ sagði hann. „Menn hafa þrætt
um ágæti þess og það liggja engin
fyrirheit fyrir um hvað síðan verði
gert í framhaldi af því. En við lítum
á það sem mikilvægan þátt að það
eigi að setjast yfir þetta með ákveðn-
um og markvissum hætti.“
Grétar vék einnig að yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar um fæðingarorlof
þar sem áhersla væri lögð á að jafna
réttindi milli feðra og mæðra, en
ekki síður jöfnun réttar á vinnu-
markaði.
„Við leggjum auðvitað mjög mikla
áherslu á það og lengingu fæðingar-
orlofs,“ sagði hann. „Og það er árétt-
að hér af þeim ráðherram, sem málið *
stendur næst - félagsmálaráðherra
og forsætisráðherra - að það eigi að
taka á því máli af myndugleik og við
höfum enga ástæðu til annars en að
treysta því að það gangi eftir.“
Grétar nefndi einnig að ríkis-
stjórnin hefði ekki samþykkt að fall-
ast á 158. samþykkt Álþjóðavinnu-
málastofnunarinnar (ILO) um
aukinn rétt fólks varðandi uppsagnir
og engu væri spilað út um húsaleigu-
bætur, sem nokkuð hefðu verið til
umræðu í viðræðum við stjórnvöld.
„Það er hins vegar nefnd á vegum
félagsmálaráðherra að skila af sér ""
alveg á næstunni," sagði hann.
Halldór Björnsson taldi að með yf-
irlýsingu ríkisstjórnarinnar hefðu
Flóabandalagið og Alþýðusambandið
náð fram markmiðum sínum. „Ríkis-
stjómin lofaði að skila svona yfir-
lýsingu og það hefur hún nú gert.
Éyrir það erum við henni mjög þakk-
lát,“ sagði Halldór.