Morgunblaðið - 11.03.2000, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ
48 LAUGARDAGUR11. MARS 2000
1----
UMRÆÐAN
Ný ungliðasamtök
vilja nýja Evrópu
NY ungliðasamtök
Samfylkingarinnar
verða til í dag. Þar
sameinast ungliðar
þriggja stjórnmála-
flokka í eina heild með
það að markmiði að
virkja ungt fólk til þátt-
töku í umræðunni um
þjóðmál, alþjóðamál og
stjómmál. Stefna okk-
ar er skýr. Við viljum:
1. Auka jöfnuð og
velferð allra.
2. Auðlindagjald.
3. Aðildarviðræður
við Evrópusambandið
(ESB).
4. Aukna fjárveit-
ingu til menntamála.
5. Allar stórframkvæmdir fari án
undantekninga í mat á umhverfis-
áhrifum.
Viðræður
við ESB
'*■ Eitt af því sem ungt samfylkingar-
fólk vill er að teknar verði upp samn-
ingaviðræður við Evrópusambandið
(ESB). f dag eru 15 Evrópuþjóðir í
ESB og fleiri í aðildarviðræðum við
sambandið. Upphaflega var ESB
Kola- og stálbandalag Evrópu sem
komið var á laggirnar árið 1951 til að
tryggja frið milli gömlu fjandþjóð-
anna Þýskalands og Frakklands
með þvi að gera þjóð-
irnar efnahagslega
háðar. Það voru sex
þjóðir sem undirrituðu
sáttmálann um stofnun
Kola- og stálbandalag-
sins og með honum var
sameiginlegur markað-
ur stofnaður fyrir kol,
stál, jámgrýti og
brotajárn. Með þessu
urðu þjóðirnar efna-
hagslega háðari hver
annarri og hófst þar
með evrópski samrun-
inn.
Til að byrja með var
sambandið hugsað sem
efnahags- og viðskipta-
bandalag, en á 50 árum hefur það
þróast í að verða efnahags- og
stjórnmálasamband. Ekki vildu öll
Vestur-Evrópuríkin taka þátt í þess-
um samruna og mynduðu nokkur
þeirra Fríverslunarsamtök Evrópu,
EFTA, (1960) sem höfðu svipað
markmið og Evrópubandalagið
(EB), þ.e. að fella niður tolla milli að-
ildarríkja. Núna hafa mörg EFTA-
ríki eins og Danmörk, Svíþjóð og
Austurríki, svo dæmi séu tekin,
snúið baki við EFTA og gengið í
ESB. í dag eru eingöngu ísland,
Noregur og Liechtenstein eftir í
EFTA. Það var svo árið 1992 sem
EFTA og EB undirrituðu samning-
Samtök
Markmið ungliðasam-
takanna er, segir Guð-
rún Halla Sveinsdóttir,
að virkja ungt fólk til
þátttöku í umræðunni
um þjóðmál, alþjóðamál
og stjórnmál.
inn um EES (Evrópska efnahags-
svæðið) sem tryggði báðum banda-
lögunum aðgang að innri markaði
Evrópu. Með þessum samningi hafa
íslendingar haft greiðan aðgang að
innri markaðnum án þess að hafa
þurft að gera stjórnmálasamning við
ESB. í dag eru hlutimir að breytast,
ESB er orðið miklu stærra og stofn-
anir þess fleiri. Þar ber helst að
nefna stofnun EMU (Evrópska
myntbandalagið) og sameiginlegan
gjaldmiðil þess, evruna.
Staða íslendinga
Hver er staða okkar íslendinga
núna? Er hagkvæmara fyrir okkur
að einangrast heldur en að hefja
samningaviðræður við ESB? Nú
hefur Verkamannaflokkurinn í Nor-
Guðrún Halla
Sveinsdóttir
ÍSLENSKT MÁL
Kristinn Pálsson á Blönduósi
skrifar mér bréf með hlýlegum
ávarps- og kveðjuorðum. Hann er
vakandi á verði um óspjallaða ís-
lensku, og nú skulum við gefa hon-
um orðið:
„Eg sendi þér hér nokkrar „fjól-
ur“ úr fjölmiðlunum: - Launin eru
að síga upp á við -, ég hef vanist því
að síga væri notað um eitthvað á
niðurleið? [Innsk. umsjónarmanns:
Spumingarmerki K.P. er óþarft.
* Eitthvað sígur niður eða ofan, ann-
að stígur upp.] - Við stefnum að því
að komast hjá fullkomnu slysi - skil
ekki hvað er meiningin! [Sjálfsagt
er átt við stórslys, en þá er „full-
komið“ ekki heppileg einkunn. Það
orð fer betur með því sem er gott en
því, sem lakara er.] - Tíminn virðist
búinn að fá fætur, því flestir þulim-
ir segja: tíminn er hlaupinn frá okk-
ur - svo maður verður feginn þegar
þulur á Akureyri segir: Tíminn er
að verða útrunninn." [Umsjm.
sættir sig vel við að tíminn hlaupi
og minnir á að sagnimar hlaupa og
renna höfðu sömu merkingu.]
Kristinn enn: „Þá fækkar þeim,
sem kunna að fara með eitthvað og
i eitthvert. Dæmi: Að fara eitthvert -
(í stað: að fara eitthvað. Og úr dæg-
urlagatexta: „Gefðu mér eitthvað
giingur," í stað eitthvert.) Þá stefn-
ir líka í það að fólk hætti að fall-
beygja, sbr. þegar ráðherrann
sagði: „Þetta er ekki rétt hjá „Dag“
(Degi).“ [Umsjm. tekur sterklega í
streng með Kristni um mjög áber-
andi rugling á eitthvað og eitt-
hvert. Munurinn er mjög skýr, ef
rétt er mælt. Eitthvað er sjálfstætt
fomafn, eitthvert ósjálfstætt.]
Kristinn áfram, og nú sleppir
_ umsjónarmaður öllum athuga-
r semdum í hornklofa:
„Þá sækir enskan á, ekki bara
orðin þýdd eða hálfþýdd, heldur
hugsunin líka: „Hafðu góðan dag“
(have a good day). Nákvæmlega -
minnir ónotalega á exactly á ensk-
unni, notað í samtölum. Svo þetta
sem sker alltaf í mín eyru: „Stór
hluti af foreldrunum" í stað „marg-
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1048. þátturþáttur
ir foreldranna". „Hluti sóknar-
barna ætlar að fara“ í stað: flest
sóknarbarna ætlar að fara.
Þá tönnlaðist einn þulurinn á því
að grafa hausinn í sandinn, þar sem
ég hef vanist því að tala um að
stinga höfðinu í sandinn."
Umsjónarmaður færir Kristni
þakkir fyrir góð bréf fyrr og síðar.
★
Hlymrekur handan kvað:
Sagði Bjöm: „Þegar öp mér til aldurs
brá,
fór út af mér kappgimi og hjaldursþrá,
en með blíðu og skjali
og með biðilsmannatali
tókst mér að krækja í Baldursbrá.
★
Nú ætla ég að venda mínu kvæði
í kross og gefa Einari Benedikts-
syni skáldi orðið um efni sem ég hef
stundum reynt að skrifa um frá eig-
in brjósti. Einar segir í grein í blaði
sínu Þjóðstefnu 22. júm' 1916 m.a. á
þessa leið:
„Einn gimsteinn, sem vér einir
eigum fram yfir allar heimsþjóðir,
er stuðlagáfan, kenndin á setning
þess ríms, sem á útlendu máli er
kallað bókstafarím. Eg leyfi mér að
kalla þessa rímvísi þjóðar vorrar
brageyra og skal skýra nánar með
nokkrum orðum, hvað þetta nafn á
að merkja.
í öllum stíl, mælsku og spakmæl-
um - á þeim tungumálum heimsins
að minnsta kosti, sem ættuð eru við
norrænuna - er stuðlum beitt jafn-
aðarlega til þess að fegra og
styrkjamál eða gera það minnis-
stætt. Einnig hafa mörg útlend
skáld síðari tíma reynt að stuðla
hendingar, en hafi það tekizt, þá
hefur það verið af tilviljun, því
brageyra er hvergi til nú nema hjá
íslendingum. Bæði Grundtvig
gamli og Ingemann reyndu að
stuðla rímað mál, en tókst illa, og
verða stuðlar þeirra kátlegir, þegar
íslendingar lesa. Edgar Poe stuðl-
ar og gerir það rétt í fagra kvæðinu
Annabel Lee, þar sem hann segir:
„For the moon never beams
without bringing me dreams
of the beautiful Annabel Lee.“
En slíkt er fágætt og kemur þá
líklega helst fyrir hjá hámenntuð-
um stílskáldum Engilsaxa...
Stuðlasetning verður best numin
með því gjöra sér Ijóst fyrst, að
þetta einkennilega norræna rím,
sem teljast má grundvöllur skáld-
formsins frá elztu tímum feðra
vorra, kemur fram í tveim áherzlu-
samstöfum tveggja orða, og á þetta
vafalaust skylt við þann sérstakleik
norrænunnar að áherzlan liggur
ætíð á fyrsta orðsatkvæði.
I þessari mynd hefur stuðlasetn-
ingin gengið í arf til annarra niðja-
tungna norrænunnar og er óspart
höfð þar í máltækjum, fyrirsögnum
og jafnvel í auglýsingum...
Er ekki kominn tími til þess, að
ungmennum Islands sé kennt í
skólum það allra helzta, sem lýtur
að bragfræði? Tungumál vort er
svo dýrt og forn skáldmennt vor
svo fræg um allan heim, að ekki
virðist fjan-i sanni, að þetta málefni
væri nokkuð athugað. Löghlýðnin
við frumreglur rímlistar vorrar er á
góðum vegi til glötunar hjá ýmsum
íslenzkum mönnum. Er ekki tíminn
kominn til þess að taka þar í streng-
inn?“
Þetta sagði Einar Benediktsson
fyrir rúmum 70 árum, og enn bið ég
menn „að athuga þetta málefni".
Enn er hægt að bjarga brageyra
Islendinga, en það gæti farið að
verða hver síðastur.
★
Mitt verk er,þáégfellogfer,
eitt fræ, mitt land, í duft þitt grafið;
mín söngvabrot, sem býð ég þér,
eitt blað í Ijóðasveig þinn vafið.
En innsta hræring hugar míns,
hún hverfa skal til upphafs sins,
sem báran - endurheimt í hafið.
(Einar Benediktsson: SteQahreimur.)
Snemma í síðasta þætti laumað-
ist t aftan á persónufornafnið þú.
Beðist er velvirðingar á þessu.
egi ýjað að því að setja Evrópumál
aftur á oddinn komist þeir til valda
eftir næstu kosningar. Ef svo færi að
Norðmenn ákvæðu að ganga inn í
ESB þá yrði staða íslendinga frekar
veik gagnvart ESB og líklega á öðr-
um mörkuðum líka því flestar þjóðir
vilja frekar gera viðskiptasamninga
við stórt samband en litla þjóð.
Staða EES-samningsins hefur
einnig veikst á síðustu árum vegna
breytinga sem orðið hafa á innviðum
ESB og gera ríkjum eins og íslandi
erfiðara um vik með að hafa áhrif á
ákvarðanir ESB sem varða ísland
og hin EES-löndin. Stöðugt eru líka
að koma upp ný mikilvæg samstarfs-
verkefni við lönd ESB sem falla utan
ramma EES. Þar má nefna til dæm-
is Schengen-samstarfið og nýtt
verkefni sem hafið er innan ESB um
varnir gegn eiturlyfjum í Evrópu.
íslendingar eru mjög háðir
evrópska markaðnum og fara u.þ.b.
70% af útflutningi okkar til Evrópu-
sambandsríkja. EES-samningurinn
fer að verða einskis virði þegar svo
mörg fyrrverandi EFTA-ríki til-
heyra nú ESB. Stækkun ESB á allra
næstu árum mun einnig rýra stöðu
Islands og EES-samningsins eins og
meira að segja Halldór Ásgrímsson
viðurkenndi nýlega í umræðum á Al-
þingi. Við getum haft meiri áhrif inn-
an ESB í stað þess að standa áhrifa-
laus utan við sambandið en engu að
síður viðskiptalega háð því. Þess
vegna hlýtur að vera tímabært að
hefja aðildarviðræður sem fyrst til
að hafa forskot og geta tryggt hags-
muni okkar með þvi að gera góðan
samningvið sambandið.
Forkólfar ríkisstjómarflokkanna
hafa gagnrýnt forræðishyggju jafn-
aðarmanna í hinum ýmsu málum
undanfarin ár. Kemur nú vel á vond-
an. Eg skora á stjómvöld að leyfa al-
menningi að velja hvort hann vill
ESB-aðild eður ei. Við emm fullorð-
ið fólk sem getum axlað ábyrgð.
Ef þú ert á aldrinum 18-30 ára og
hefur áhuga á þjóðmálum og telur
þig eiga eitthvað sameiginlegt með
okkur komdu þá á stofnfund Ungra
jafnaðarmanna í Iðnó í dag,ll. mars,
kl: 15:00
Höfundur er nemi í hagfræði við HI.
Kynningarbækl-
ingur um rétt-
indi sjúklinga
Á VEGUM heil-
brigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins er
nú kominn út bækling-
ur fyrir almenning
sem heitir Kynntu þér
réttindi þín, þar sem
fjallað er á aðgengileg-
an hátt um helstu rétt-
indi sjúklinga sam-
kvæmt lögum. Akveðið
var að dreifa bækling-
num inn á öll heimiii í
landinu og nú þegar
ættu margir að hafa
fengið hann í hendur.
Réttindi þeirra sem
þurfa á heilbrigðis-
þjónustu að halda er
afar mikilvægur hluti af mannrétt-
indum fólks. Arangursríkasta leiðin
til að tryggja þessi réttindi sem best
er að gera sem allra flestum unnt að
kynna sér hvað í þeim felst, því
flestir þurfa á heilbrigðisþjónustu
að halda einhvern tímann á ævinni.
Innan heilbrigðisþjónustunnar er
fengist við viðkvæm og persónuleg
mál einstaklinga. Því er mikilvægt
að réttur þeirra sem þurfa að nýta
sér heilbrigðisþjónustu sé skýr og
afdráttarlaus og að upplýsingar um
helstu réttindi sjúklinga séu öllum
aðgengilegar. í þessu skyni ákvað
ég að ráðist yrði í útgáfu þessa
bæklings og honum dreift til allra
landsmanna.
Sérstök lög um réttindi sjúklinga
hafa öðlast gildi hér á landi og í
nokkrum nágrannalanda okkar á
undanförnum árum. í þeim er kveð-
ið á um grundvallarréttindi sem
sjúklingar njóta, ákvörðunarrétt, og
virðingu fyrir einkalífi þeirra og
óskum við þær erfiðu kringumstæð-
ur sem oft fylgja sjúkdómum og
meðferð við þeim. Markmiðið með
lögunum er að tryggja sjúklingum
tiltekin réttindi í samræmi við al-
menn mannréttindi og mannhelgi,
styrkja þannig réttarstöðu þeirra
gagnvart heilbrigðisþjónustunni og
styðja það trúnaðarsamband sem
þarf að ríkja milli sjúklinga og heil-
brigðisstarfsmanna.
Áður en lögin tóku gildi var rétt-
ur sjúklinga tryggður í dreifðum
laga- og reglugerðarákvæðum. Til-
gangurinn með því að fella helstu
réttindi sjúklinga undir ein heildar-
lög var einkum að gera lögin skýrari
og aðgengilegri fyrir alla sem þurfa
að styðjast við þau en einnig eru í
þeim ýmis nýmæli sem tryggja
sjúklingum fjölþættari réttindi en
áður.
Til að tryggja að sjúklingar fái
notið réttinda sinna skiptir miklu að
starfsfólk heilbrigðis-
þjónustunnar þekki
lögin til hlítar og geti
veitt sjúklingum
stuðning og leiðsögn til
að fóta sig í flóknu
heilbrigðiskerfi nútím-
ans. Það skiptir líka
svo gífurlega miklu
máli að sjúklingar beri
traust til heilbrigðis-
starfsfólksins og viti að
þeir eru í góðum hönd-
um.
Samhliða útgáfu
bæklingsins sem nú er
verið að dreifa til
landsmanna hef ég
einnig látið gefa út
upplýsingarit fyrir heilbrigðis-
starfsfólk þar sem gerð er grein fyr-
ir lögum um réttindi sjúklinga og
einstakar greinar þeirra skýrðar.
Bæklingur
Við íslendingar getum
verið stoltir af því heil-
brigðiskerfí sem við bú-
um við, segir Ingibjörg
Pálmadóttir. Það er
fyrst og fremst að
þakka framsæknu og
metnaðarfullu starfs-
fólki sem hefur byggt
upp traust meðal al-
mennings í landinu á
heilbrigðisþjónustunni.
Það er von mín að þetta rit verði til
þess að auðvelda starfsfólki heil-
brigðisþjónustunnar að starfa í
anda laganna og sýna sjúklingum þá
virðingu sem þeim er svo mikilvæg.
Við Islendingar getum verið
stoltir af því heilbrigðiskerfi sem við
búum við. Það er fyrst og fremst að
þakka framsæknu og metnaðarfullu
starfsfólki sem hefur byggt upp
traust meðal almennings í landinu á
heilbrigðisþjónustunni. Sú skylda
hvílir á herðum okkar að hlúa að því
sem vel er gert og sá til framtíðar
þannig að við megum áfram standa í
fremstu röð á þessu sviði.
Höfundur er heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra.
Ingibjörg
Pálmadóttir