Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 57

Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 57
 MORGUNBLAÐIÐ _______________________________LÁÚGARDAGUR 11. MARS 2000 57 MINNINGAR ég vildi að ég hefði komist með síð- asta sumar þegar þið fóruð. Einnig fór ég með þér tvisvar vestur og þá fóru Biggi og Magga líka með og þá var mjög gaman. Eg vildi að ég hefði farið oftar með þér vestur en ég gerði. Ég man einnig eftir því hvað var gaman að koma á Eyrarbakka til þín og ömmu, er ég var yngri, og gista hjá ykkur og láta þig segja manni sögur. Ég var jafn mikið hjá ykkur og ég var heima hjá mér. Það var einnig skemmtilegt þegar þú komst í heimsókn, eins og þú gerðir oft, maður var að horfa á fótboltaleik og þú komst inn, stóðst alltaf dálítinn tíma fyrir framan sjónvarpið og svo komu alltaf sömu spumingarnar: „Hvernig stendur?" og: „Hverjir eru rauðir?" Nú á maður eftir að sakna þess. Afi. Mér þótti svo vænt um þig og ég vildi að þú værir héma ennþá, en ég veit að ég hitti þig aftur seinna og hlakka til. Þinn dóttursonur, Arilfus. Elsku afi í gula. Það var svo gam- an hjá okkur, mér og þér, síðast þeg- ar ég kom heim til þín. Þá varst þú að hjálpa mér að búa til kattarleikfang handa frú Kötlu. Svo vomm við báðir að leika við hana. Þú varst búinn að baka pönnukökur handa mér og hin- um krökkunum. Ég sakna þín. Bless, afi minn. Þinn Andri. Nú þegar ég kveð þig, kæri bróðir, leitar hugurinn ósjálfrátt til bernskuára okkar, til þess tíma er fyrstu minningarnar urðu til. At- burðir þessa tíma greyptust skýrt í hugann og birtast ljóslifandi í endur- minningunni þótt liðin sé nær hálf öld síðan þeir gerðust. Umhverfið var sérstætt, eyja úti á miðjum Breiðafirði umlukin sjó á alla vegu. Aðstæðurnar kröfðust þess að hver hönd skilaði því verki sem hægt var að ætlast til. Því var það aðeins sjálf- sagður hlutur að börn tækju þátt í þeim störfum sem þau höfðu vit og getu til að leysa af hendi. Skóli lífsins var þegar hafinn og ég, nemandinn, hafði jú nokkra kennara og meðal þeirra varst þú, bróðir sæll. Námið var að sjálfsögðu einkum á verklega sviðinu, allt frá því að læra að moka flórinn í fjósinu og gefa hænsnunum og til þess að læra að umgangast bát- ana, stýra þeim og síðan ná því marki og að hafa traust til þess að fara einsamall á vélbáti milli eyja. En námið var líka á bóklega sviðinu því þú áttir nokkurn þátt í því að kenna mér að skrifa, lesa og reikna. Þá man ég að þú kenndir mér nokkuð í landa- fræði með þeim hætti að ég skyldi skoða landakortið og læra nöfn sem allra flestra landa og heiti höfuð- borga þeirra. Síðan glæddir þú áhuga minn á náminu með þvi að fara í keppni við mig um hvor okkar kynni skil á fleiri nöfnum landa og borga. En tíminn leið hratt og áður en varði lauk þessum kafla ævinnar, leiðir skildu og samverustundum fækkaði. Þegar við hittumst og spjölluðum saman barst talið oft að æskustöðv- unum. Allir sem þekktu þig vissu hve sterkar taugar þínar voru til Eyj- anna. Það var því ekki óvænt að þú skyldir fyrir nokkrum árum kaupa þér bát og hefja útgerð við Breiða- fjörðinn. Þar sem ég nú skrifa þessar línur verður mér ljós sú einkennilega staðreynd að leiðir okkar lágu sein- ast saman í þessu lífi vestur á Breiðafirði, þegar ég að sumarlagi fór með þér á bátnum þínum út um Eyjar. Þar var hringnum lokað á sama stað og hann hófst. Það er gæfa mín að hafa átt þig sem bróður með þeim mannkostum sem bestir prýða nokkurn mann. Hafðu þökk fyrir allt. Þórður Sveinbjömsson. Við viljum með fáeinum orðum kveðja góðan vin, Birgi Sveinbjöms- son. Okkar kynni af þessum góða og glaða manni voru ekki löng en duga samt mannsævi. Þakklæti er það sem kemur upp í huga, þakklæti fyr- ir að hafa fengið að kynnast slíkum manni sem gaf okkur svo mikið með veru sinni hér. Við vitum að þegar við hittumst næst verður boðið upp á kaffi og pönnukökur ásamt glettnum sögum um vistina hinum megin. Sjáumst seinna. Aldrei mæst í síðasta sinni sannir Jesúvinirfá. Hrellda sál, það haf í minni harmakveðju stundum á. Pótt vér sjáumst oftar eigi undirsól,erskínosshér, á þeim mikla dýrðardegi Drottins aftur fmnumst vér. Þótt vér hljótum hér að kveðja hjartans vini kærustu þrátt, indæl von sú oss má gleðja, aftur heilsum vér þeim brátt. Hrellda sál, það haf í minni harmakveðju stundum á: Aldrei mæst í síðasta sinni sannir Jesúvinirfá. (Þýð. Helgi Hálfd.) Kæra fjölskylda, Guð gefi ykkur styrk í sorginni og ljós í myrkrinu. Björg Ægisdóttir og Björg Þorkelsdóttir. Þær voru sorglegar fréttirnar sem okkur bárust síðastliðinn laugar- dagsmorgun. Hann Biggi okkar var dáinn. Við segjum „Biggi okkar“, því eftir fyrstu kynni okkar af honum var eins og hann hefði alltaf verið einn af fjölskyldunni. Hann var vinur vina sinna, hvort sem um böm var að ræða eða fullorðna. Við áttum margar yndislegar sam- verustundir með honum, bæði við eldhúsborðið, á ferðalögum og ekki síst á hinum ýmsu skemmtunum sem við fórum á saman. Samt stendur upp úr minningun- um ferðin sem við fórum með honum um síðastliðna verslunarmannahelgi, þegar við fórum með honum á grá- sleppuveiðar á Breiðafirði. Þá var Birgir í essinu sínu, í blíðskaparveðri og mokveiði. Við vorum fimm í áhöfninni, á öll- um aldri, eða níu til 62 ára. Við vor- um hrædd um að yngstu hásetarnir yrðu annaðhvort sjóveikir eða leiðir en það var öðru nær. Stelpumar, níu og tólf ára, sögð- ust vera „heppnustu böm á íslandi", þótt við hefðum ekki farið á ein- hverja útihátíð með þær um verslun- armannahelgina, því þær höfðu aldrei upplifað annað eins fjör og að vera á grásleppu með Bigga. Þegar erfiðleikar steðjuðu að, eins og þegar t.d. við stóðum í hjónaskiln- aði, kom berlega í ljós hvem mann Birgir hafði að geyma. Þá ýmist hringdi hann í okkur, eða kom til að ræða málin þegar hann hafði hugboð um að okkur liði ekki vel, hvort okk- ar sem í hlut átti, því hann mátti ekk- ert aumt sjá. Hann var sannarlega vinur, bæði í blíðu og stríðu, sem var okkur til halds og trausts, hvenær sem við leituðum til hans. Birgir. Við emm þakklát fyrir að hafa fengið að ganga svolítinn spöl með þér. Hver getur siglt án vinds í dag. Hvergeturróiðánára. Hver getur skilið við vininn sinn, utanaðfellatár. Égget siglt án vinds í dag. Éggetróiðánára. En ekki skilið við vininn minn, utan að fella tár. Fjölskyldu Birgis sendum við okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð vera með ykkur á sorgar- stund. Símon, Fjóla og dætur. Öðlingsmaður er fallinn frá. Birgir Sveinbjörnsson fangavörður varð bráðkvaddur við vinnu sína að morgni 4. mars, fyrir aldur fram. Við andlát Birgis er höggvið skarð í hóp okkar fangavarða sem er vandfyllt og er söknuður okkar samstarfs- manna á Litla-Hrauni mikill. Birgir var hvers manns hugljúfi og drengur góður. Hann var í eðli sínu hlédræg- ur maður en félagslyndur mjög og vildi hafa margmenni í kringum sig. Hann átti marga vini og kunningja sem hann heimsótti oft og kom víða við til þess að spjalla og ef einhver þurfti aðstoðar við, var það sjálfsagt. Hann var duglegur við að smala vinnufélögum sínum saman og halda smáteiti í athvarfinu eins og við vinnufélagarnir kölluðum oft heimili hans okkar á milli, nú síðast viku fyr- ir andlátið. Komu þá margir sam- starfsmenn Birgis saman á heimili hans á Stokkseyri og áttu saman gleðilegt kvöld. Því þrátt fyrir að Birgir bragðaði hvorki vín né tóbak hafði hann gaman af því er menn gerðu sér glaðan dag og var fús til að skutla félögum sínum ef þeir höfðu bragðað vín. Fyrir um tveim árum fór hann í sína einu utanlandsferð með tveim vinnufélögum og hafði hann mikla ánægju af. Þó að fangavarsla yrði starf Birgis í tæp 30 ár og hann hafi alla tíð sinnt starfinu af mikilli samviskusemi var hugur hans alltaf tengdur sjónum og trilluútgerð. Birgir var fæddur í Breiðafjarðareyjum og þar dvaldi hugur hans oft. Fyrir allnokkrum ár- um fór Birgir að eyða öllum sínum fríum við grásleppuveiðar í Breiða- firðinum. Fyrst hjá frænda sínum en síðan á eigin trillu og gerði hana út frá Skarði á Skarðsströnd. Þar naut Birgir sín vel og var sem kóngur í ríki sínu, sáttur við lífið og tilveruna. Birgir var mjög heilsuhraustur alla tíð, en lengi býr að fyrstu gerð og hefur hann eflaust fengið gott og hollt að borða í æsku. En skyndilega kom kallið, fyrirvaralaust, og ekki verður aftur snúið. Kæra Ella, börn, tengdabörn og aðrir vinir, ég vil votta ykkur mína dýpstu samúð og megi guð fylgja ykkur. Ari B. Thorarensen. Ég er enn að reyna að átta mig á þeirri staðreynd að þú, Biggi, sért ekki lengur á meðal okkar. Við töluð- um oft um lífið og tilgang þess. Hve margt við gætum þakkað fyrir og hve dýrmætt það væri að eiga ástvini og ekki síður það að nýta tækifærin, sem við fáum, til að sýna þeim meðan við njótum samvista við þá hve mikils virði þeir væru okkur. Við vorum einmitt svo sammála um að við þyrft- um að nýta þessi tækifæri miklu bet- ur en við hefðum gert, áður en það væri of seint. Þetta töluðum við um, en nú finn ég svo sárt til þess að hafa ekki notað tækifærin betur, sem mér þó gáfust, til þess að sýna þér og segja hve vænt mér þótti um þig og hve þakklát ég er þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér af þér án þess að vænta nokkurs í staðinn. í þér bjó mikill kærleikur, á því leikur enginn vafi. Biggi, ég fæ aldrei þakkað þér stuðning þinn við okkur Guðrúnu Telmu eftir að Máni dó. Þú varst allt- af tilbúinn að hjálpa á allan hátt. Það er skrítið til þess að hugsa að fá aldrei framar upphringingu frá þér, að geta ekki tekið upp tólið, í tíma og ótíma og slegið á þráðinn til þín. Að geta ekki velt sér upp úr lífinu og til- verunni með þér, því sem skipti okk- ur máli og hinu sem var minna virði. Að ég tali nú ekki um bullið sem var alveg ómissandi og allur sá léttleiki sem því fylgdi. Biggi, þúvarst, ert og verður einstök perla. Ég veit ekki hvar ég stæði í dag ef þín hefði ekki notið við síðasta árið. Við vinkonurnar sem vonim þeirra forréttinda aðnjótandi að fá að starfa með þér og eiga þig sem vin vorum oft að tala um hvernig við hefðum farið að áður en við kynnt- umst þér. Nú vaknar sú spuming: Hvernig förum við að nú þegar þú ert ekki lengur á meðal okkar? Þakka þér allar góðu minningarnar sem þú skildir eftir hjá okkur og við getum yljað okkur við. Elsku Sigurjón, Bjössi og Sævar, ég sendi ykkur, móður ykkar, syst- kinum og fjölskyldum, mínar innileg- ustu samúðarkveðjur og bið algóðan Guð að styrkja ykkur í sorginni. María. • Fleiri mianingargreinar um Birgi Sveinbjörnsson b/ða birt- ingar og munu birtast íblaðinu næstu daga. UNA DAGNÝ GIJÐMIJNDSD Ó TTIR v + Una Dagný Guð- mundsdóttir fæddist á Reykjum í Ólafsfirði 10. desem- ber 1913. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 26. febrúar siðastliðinn. Hún var yngst barna þeirra hjóna Aðal- bjargar Þóreyjar Olafsdóttur, f. 19. febrúar 1877, d. 8. aprfl 1961, og Guð- mundar Steinssonar, f. 22. október 1871, d. 11. júlí 1960. Systkini hennar voru Árni, f. 2. ágúst 1903, d. 4. ágúst 1957; Mar- grét, f. 11. október 1905, d. 16. janúar 1987; Eiríkur, f. 19. sept- ember 1907, d. 23. nóvember 1940; og Ólafur, f. 19. ágúst 1911, d. 24. ágúst 1988. Una Dagný giftist hinn 10. des- ember 1942 Jóhanni Guðnasyni, f. 12. febrúar 1919, d. 24. júní 1993. Hann var sonur hjónanna Pálinu Jónsdóttur, f. 14. mars 1885, d. Elsku amma mín, nú ertu farin frá okkur eftir erfið veikindi, en ég veit að núna líður þér vel og ég veit að þú ert í góðum höndum, þar sem þú hef- ur fengið að hitta afa eftir sjö ára að- skilnað og ég efast ekki um að það hafi verið miklir fagnaðarfundir. Ég á yndislegar minningar um þig sem ég mun geyma í hjarta mínu um ókomna tíð. Það var ekki ósjaldan að ég leit inn á Hólaveginum hjá ykkur afa, ávallt var tekið vel á móti mér og öllum sem þangað komu. Ekki stóð á kræsingum ef gesti bar að garði þar sem þú töfraðir fram ótrúlegustu hlaðborð, og oft gisti ég hjá ykkur þótt ekki væri langt á milli húsa. Elsku amma mín, það er svo sárt að kveðja þig, ég veit að nú líður þér vel. Þó þetta sé erfitt fyrir okkur, þá er þetta miklu betra fyrir þig. Mig langar að kveðja þig með þessu ljóði sem segir hug minn allan til þín. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umveiji blessun og bænir, égbiðaðþúsofirrótt Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þínverölderbjörtáný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margtsem um huga minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi éghittiþigekkiumhríð, þín minning er ljós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Góða ferð, elsku amma mín. Þinn Jóhann. Elsku langamma, við kveðjum þig með söknuði, við vonum að þér líði vel þar sem þú ert núna, og með ykk- ur langafa hafi orðið kærkomnir endurfundir þegar þú kvaddir þenn- an heim. Það var alltaf gaman að koma til Siglufjarðar og skreppa í heimsókn á spítalann til þín þar sem þú dvaldir síðustu árin. Alltaf varstu jafn ánægð að sjá okkur og talaðir um hvað við stækkuðum fljótt. T044um flt) öflflUA nt) ufl ym flÖTÍL flOflC MSTJIOMNI (flft Upplýsingar í s: 551 1247 24. mars 1955, og Guðna Guðnasonar, f. 4. niaí 1890, d. 15. maí 1963. Una átti fyrir son, Eirík Kristin Sævaldsson, f. 6. september 1940, kvæntan Jónu Gígju Eiðsdóttur, f. 22. júní 1939, búsett í Ólafsfirði. Börn þeirra eru: Aðal- heiður og Kristinn. Una og Jóhann eign- c uðust tvö börn, þau eru: 1) Ólöf María, f. 16. aprfl 1944, maki hennar er Sigurður Þór Haralds- son, f. 28. október 1940, búsett á Siglufirði. Börn þeirra eru: Jó- hann Steinþór, Ómar Freyr og Birkir Þór. 2) Hreiðar Þór, f. 10. maí 1956, búsettur á Siglufirði. Börn hans eru Sigþór Ingi, Hilm- ar Þór og Una Dagný. Barna- barnabörn hennar eru orðin níu. Útför Unu Dagnýjar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Við trúum því að þú og langafi ^ dansið vals á skýjunum fyrir ofan okkur og vakið yfir okkur öllum stundum. Hvíl þú í friði. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginniyfirminni. (Sig.Jónsson.) Þín alltaf, Viðar Logi, Ólöf María og Þórey Líf. Handrit afmœlis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfír eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfund- ar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. r ÐlómabiÁð \V\ öau-ðskom j k v/ PossvogsUiFUjwga^ð jf V Sími: 554 0500 Gróðrarstöðin ^ miCIHÚÐ ♦ Hús blómanna Blómaskreytingar við öll tækifæri. Dalveg 32 Kópavogi sími: 564 24SO Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 * Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/_

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.