Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 58

Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 58
58 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 . J> MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Vilborg Guð- mundsdóttir ljós- móðir fæddist 21. nóvember 1920 á Næfranesi í Mýra- hreppi, Dýrafírði. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Isaflrði 4. mars síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Guðrún Gísladóttir (f. 2.10. 1886) í Hjarðardal í Mýrahreppi (d. 4.7. 1972) og Guðmundur Hermannsson, kenn- ari og bóndi, (f. 25.3. 1881) í Fremstuhúsum í Mýra- hreppi (d. 19.11. 1974). Guðmund- ur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Vilborg Davíðsdóttir frá Álfadal, f. 15.7.1887 í Valþjófsdal í Önundarfirði, d. 5.8.1913. Vilborg og Guðmundur áttu dæturnar Jó- hönnu, f. 16.8. 1911 og Guðbjörgu, f. 6.9. 1912. Guðrún og Guðmund- ur eignuðust sex börn saman. Auk Vilborgar voru það: Gisli, f. 4.11. 1919; Hermann, f. 20.1. 1922; Rósa, f. 18.4. 1923, og tvíburarnir Sigurður og Þorsteinn, f. 10.2. 1926. Vilborg ólst upp í foreldrahús- um í Hjarðardal. Hún gekk í barnaskólann á Lambahlaði, þar sem faðir hennar var kennari, og vann síðan næstu árin ýmis störf sem til féllu bæði heima í Hjarðar- dal og að heiman. Árin 1941-1942 starfaði hún á sjúkrahúsi Hvita- bandsins l Reykjavfk, stundaði Laugardaginn 4. mars lést móðir mín á sjúkrahúsinu á ísafírði eftir ’fangvarandi veikindi. Alltaf var hún hress í anda þótt hún þyrfti að fara oft út á sjúkrahús allt síðasta ár. Það var alltaf óþarfi að hafa áhyggj- ur af henni, þetta var bara svona og síðustu orð hennar við okkur fjöl- skylduna voru um klukkustund áður en hún dó: „Farið nú heim og borðið bollur." Það var jú bolludagur í nánd og eins og alltaf var hún fyrst og fremst að hugsa um okkur en ekki sín veikindi. I æskuminningunni var mamma alltaf að taka á móti börnum, ýmist í Dýrafirði eða Önundarfirði. Hún fór oftast að heiman á nóttunni þegar allir sváfu og þá skiptu veður og færð ekki máli. Ef snjór var mikill ■*9ar farið á dráttarvél eins langt og færð leyfði og síðan gengið ef á þurfti að halda, inn að Gemlufalli þar sem ferjubáturinn var, og með honum var haldið þverfirðis til Þingeyrar. Ef veður var of slæmt fyrir ferjubátinn var jafnvel sendur eftir henni fiskibátur ef einhver var í landi. Aldrei man ég eftir að veður væri svo slæmt að mamma legði ekki af stað þó svo ferðin gæti tekið þrisvar til fjórum sinnum lengri tíma en í góðu veðri. Mamma var að jafnaði hjá konunum í fjóra til fimm sólarhringa og þegar hún kom heim skildi ég ekkert í að hún kom aldrei heim með bamið sem hún hafði ver- ið að taka á móti og það var ekki ^ósjaldan að ég leitaði að baminu í ljósmóðurtöskunni og var alveg miður mín yfir hve mamma hugsaði illa um barnið að skilja það eftir á Þingeyri. Mamma var ekki bara ljósmóðirin í firðinum. Á þessum tíma var læknaskortur á landinu og því var oft enginn læknir til staðar og það þekktist varla að hjúkrunarkonur væm þar heldur. Þegar þannig var ástatt var hringt í mömmu ef ein- hvers staðar voru veikindi, mikil eða lítil, og það vom ófáir sjúklingar jpem hún stundaði, oft með lækni á ninum enda símalínunnar og þá helst Úlf Gunnarsson, þá yfirlækni á ísafirði. Hún sagði alltaf að hann hefði bjargað hennar sálarheill því hann var alltaf svo rólegur en hún, eins og gefur að skilja, oft mjög stressuð, enda hafði hún ekki alltaf þá þekkingu sem til þurfti til að j*þjálpa viðkomandi. nám í Hjúkrunar- kvennaskóla íslands 1942-1943 en hætti þar af heilsufars- ástæðum. Veturinn 1949-1950 var hún í Tóvinnuskóla Hall- dóru Bjamadóttur á Svalbarði við Eyja- Qörð. Hinn 30.9. 1951 lauk Vilborg Ijós- mæðraprófi frá Ljós- mæðraskóla íslands. Var hún ráðin ljós- móðir í Mýrahrepps- umdæmi frá 1.10. 1951, í Þingeyrarhreppsumdæmi frá 1.1.1958 og í forfallaþjónustu í Flateyrarhreppsumdæmi 1965- 1967. Hinn 1.10. 1980 var hún ráð- in heilsugæsluljósmóðir við Heilsugæslustöðina á Þingeyri í hálft starf og frá sama tíma í hálft starf við Öldrunardeild Sjúkra- skýlisins á sama stað. Vilborg giftist 5.7. 1953 Hauki Kristinssyni (f. 4.1. 1901, d. 23.10. 1984) bónda á Núpi í Mýrahreppi, en hún kom til hans ráðskona haustið 1952. Haukur hóf búskap á Núpi 1932, í fyrstu í sambýli við foreldra sína, þau Kristin Guð- laugsson og Rakel Jónasdóttur, og síðar í samvinnu við bróður sinn, Valdimar Kristinsson, og mág- konu, Áslaugu Jensdóttur. Haukur og Vilborg eignuðust börnin Guð- mund (f. 10.2. 1954) og Margréti Rakel (f. 18.8. 1957). Guðmundur lést í hörmulegu dráttarvélarslysi Mamma var Mamma og Amma með stórum upphafsstaf. Alltaf voru aukaböm á heimilinu, ýmist börn í sveit á sumrin eða skólaböm á vet- urna. Árið 1970 kom svo Torfi bróð- ursonur mömmu á heimilið, þá átta ára, hann hafði misst móður sína mjög ungur og tóku foreldrar mínir hann í fóstur. Mamma var alltaf til staðar ef á þurfti að halda og var hún aldrei það upptekin eða lasin að ömmubömin gætu ekki komið til hennar, hvort sem var á nóttu eða degi. Mamma fór ekki varhluta af sorg- inni frekar en margur annar. Hún mátti fylgja mörgum ungum frænd- anum til grafar en erfiðast hefur verið þegar hún fylgdi til grafar einkasyninum Guðmundi, sem lést af slysförum ásamt bróðursyni hennar, Halldóri Gunnari, voru þeir báðir 15 ára, það var erfiður tími eins og gefur að skilja. Mamma stóð eins og klettur við hlið föður míns í hans veikindum þar til hann dó 1984. Og enn kom skellurinn síðast- liðið sumar þegar Heiður systur- dóttir hennar lést úr krabbameini, en Heiður var alltaf eins og elsta barnið hennar mömmu, enda var hún hjá henni öll sumur nánast frá fæðingu fram á fullorðinsár að hún fór að vinna fyrir sér. Elsku mamma, við kveðjum þig nú með söknuði, en það mætti segja mér að móttökunefndin sem tók á móti þér handan móðunnar miklu hafi verið stór, pabbi, Mummi og allir strákarnir sem farnir eru á undan og þér þótti svo vænt um og svo Heiður brosandi út að eyrum með útbreiddan faðminn. Megi Guð varðveita ykkur öll. Þín dóttir og tengdasonur, Margrét Rakel og Sigurlaugur. Nú er elsku amma okkar dáin. Elsku amma, þú skilur eftir þig stórt skarð i fjölskyldunni okkar þar sem þú hefur alltaf verið mjög mikið hjá okkur. Jólin verða ekki söm hér eftir því þú hefur verið hjá okkur á jólunum síðan við munum eftir okk- ur. Og alltaf höfum við farið til þín á jóladag og borðað hangikjöt og upp- stúf sem þér einni var lagið að gera. Það var alltaf jafn gaman að koma til þin í sveitina á Núpi á sumrin þar sem við fengum alltaf hlýjar mót- tökur. Við gátum ætíð farið til þín 23.8. 1969 ásamt frænda sinum, Halldóri Gunnari Þorsteinssyni, bróðursyni Vilborgar. Margrét Rakel giftist 2.7. 1978 Sigurlaugi Baldurssyni bifreiðastjóra (f. 21.10. 1957) á ísafirði. Börn þeirra eru: Guðmundur Haukur (f. 22.5. 1978), Anna Soffía (f. 19.10. 1981) og Baldur Þorleifur (f. 8.4.1989). Sigurður Guðmundsson í Hjarð- ardal, bróðir Vilborgar, missti konu sína, Sigurbjörgu Árndísi Gísladóttur, frá Mýrum, 18.7.1965 frá fimm ungum börnum. Voru Vilborg og Haukur börnunum og Sigurði mjög innan handar eftir þetta og 1970 tóku þau yngsta barnið, Torfa Guðmund (f. 4.1. 1962) í fóstur, sem hann naut til fullorðinsára. Eiginkona Torfa Guðmundar, sem er verkfræðing- ur í Iteykjavík, er Ólafía Guðný Sverrisdóttir (f. 5.8. 1963). Börn þeirra eru: Sverrir Guðmundur (f. 1.3. 1982), Gísli Magnús (f. 29.10. 1985), Árni Grétar (f. 2.6.1988) og Guðný Lilja (f. 6.7.1994). Haukur og Vilborg bjuggu á Núpi til 1980 er þau settust að á Þingeyri, en fluttu síðan til ísa- fjarðar 1984. Á ísafirði starfaði Vilborg við Vefstofu Guðrúnar Vigfúsdóttur og síðar við Elli- heimilið á ísafirði og Dagvistun aldraðra á Hlíf. Seinustu æviár sín bjó hún á Dvalarheimilinu Hlíf. Vilborg starfaði mikið að félags- málum, var t.a.m. í stjórn Vest- fjarðadeildar LMFÍ, virkur félagi í Kvenfélagi Mýrahrepps og for- maður um skeið, varamaður í hreppsnefnd Mýrahrepps og ötul baráttukona fyrir bættum hag aldraðra. Útför Vilborgar fer fram frá Núpskirkju í Dýrafirði í dag og hefst athöfnin klukkan 14. og fengið góð ráð ef eitthvað bjátaði á og gistingu ef þannig lá á. Elsku amma Bogga, við eigum eftir að sakna þín sárt en huggum okkur við það að þér líður ábyggi- lega betur núna hjá Hauki afa, Mumma frænda og öllum hinum sem þér þótti svo vænt um. Þín ömmubörn, Guðmundur Haukur, Anna Soffía og Baldur Þorleifur. Bogga á Núpi er dáin. Eg fékk fréttirnar þar sem ég var önnum kafin við vinnu. Æi, nei, hugsaði ég og þó hafði ég búist við þessari til- kynningu lengi, þar sem Bogga hafði búið við mikið heilsuleysi um tíma. Mér fannst skaparinn heldur ósanngjarn að leggja þetta á hana svona síðustu árin, hún átti annað og svo mikið betra skilið heldur en öll þessi veikindi. Mig langar til að minnast Boggu frænku í nokkrum línum, og helst fyrir það hvað hún hafði alltaf næg- an tíma til þess að hugsa um fjöl- skylduna og frændfólk sitt, bæði unga sem gamla. Skyldfólkið sem átti leið um Dýrafjörð kom ávallt við hjá Boggu á Núpi og síðar Isa- firði þar sem hún bjó síðustu árin. Það kom ekki annað til greina en að líta við hjá henni, þiggja kaffisopa og spjalla smá stund. Bogga fylgdist vel með öllu sínu fólki og ekki síst systkinabömum sínum. Eitt sinn sagði hún mér að henni fyndist hún eiga smávegis í þeim öllum. Alltaf þegar ég hringdi til hennar spurði hún frétta af frændfólkinu og hvernig hverjum og einum gengi. Það var eitt af jólaverkunum á að- fangadag að hringja til Boggu og fá um leið fréttir af öðrum úr fjöl- skyldunni. Við yngri systkinin frá Hjarðar- dal erum Boggu afar þakklát fyrir alla þá umhyggju og aðstoð sem hún veitti okkur gegnum árin,og ég er þess fullviss að hún mun halda áfram að fylgjast með okkur hér eftir sem hingað til. Ég vil enda þessi minningarorð með erindi úr Ijóði eftir Guðmund Inga Kristjáns- son. Heimsókn til hennar gerði þér gott, hún gaf þér af brosi sínu, þú áttir þá gjöf, er þú gekkst á brott, sem geisla í hjarta þínu. Elsku Magga, Laugi, Mummi Haukur, Anna Fía og Baldur. Innilegar samúðarkveðjur. Dagrún og fjölskylda. Hinn 10. júní 1934 gengum við Vilborg heitin hlið við hlið frá al- tarinu í Mýrarkirkju í Dýrafirði. Það var fermingardagurinn okkar. Við vorum lagðar af stað, æskuglað- ai- og stoltar, út í lífið. Við áttum mjög samrýndar lífsskoðanir og við leituðum hverrar stundar sem gafst til að hittast og vera kátar og glað- ar. Vinátta okkar varð ævilöng. Vinátta sem aldrei bar skugga á. Engu breytti þótt vegir okkar í gegnum langa ævi lægju ekki hlið við hlið. Hún hleypti heimdraganum og lærði ljósmóðurfræði, kom heim í Dýrafjörð og gaf honum mátt sinn og megin. Þar fann hún líka ástina sína, giftist viðurkenndum sóma- manni, Hauki Kristinssyni, kennai-a og bónda á hinu fornfræga höfuð- bóli Núpi í Dýrafirði. Þar stóð heim- ili þeirra alla þeirra tíð. í hamingju og gleði eignuðust þau tvö börn, Guðmund og Margréti. Bróðir Vilborgar, Sigurður, missti konu sína frá fimm ungum börnum og tóku þau hjón eitt þeirra í fóstur. Heimili þeirra varð snemma sem vermireitur. Til þeirra leituðu börn í sumardvöl, svo sem bræðrasynir hennar héðan úr Reykjavík, þar sem bræður hennar, Gísli og Þorsteinn, bjuggu. Þeir sem til þekkja vita að sagan frá Núpi er kaflaskipt, svo er að vísu jafnan, hvort sem sagan er löng eða stutt eða hvar hún á sér stað. Haukur og Bogga vinkona mín misstu einkasoninn af slysförum og með honum lést einnig sonur Þor- steins sem var á sama aldri. Þá fórst einning af slysförum sonur Gísla á svipuðum aldri í annan tíma þó, en í dvöl hjá þeim. Við vinkonurnar notuðum aldrei skírnarnöfn okkar. Þegar við Bogga mín hittumst eftir að þessi raun var yfirgengin komu mér í hug ósjálf- rátt viðbrögð Egils Skallagrímsson- ar þegar hann missti syni sína: „Mjök erum tregt, tungu at hræra, eða loftvætt ljóðpundara." Hversu mörgu sinnum var vin- kona mín ekki sterkari, hennar Þorgerður var innibyggð, með yfir- vegun sem skynsemin ein hafði vald á. Við ræddum ekki sorgina en við töluðum samt æði margt. Alla tíð síðan hef ég fundið að enginn á lífsleið minni hafi tekið á sínum málum á sama veg. Það er gott að hafa átt svona vinkonu, hlustað á mál hennar og finna alla tíð þann bakhjarl sem var sannur og örugg- ur. Ég minnist elskulegra foreldra hennar, systkina lífs og liðnum með innilegu þakklæti og vinsemd fyrir svo margt. Margréti dóttur hennar og fjölskyldu bið ég blessunar Guðs og votta samúð mína. Nú er Bogga mín komin heim og fyllir hóp þeirra höfðingja og for- feðra sinna sem gegnum hundruð ára sátu Núp og var jafnvel valin staður fyrir kirkjudyrum. Nú kveð ég og geymi geimstein- inn okkar, hina sönnustu vináttu sem getur hrært og varað í brjósti manns. Jónfna (Nína). Bogga frænka átti stóran hlut í mínu lífi allt frá því ég var lítið barn. Fyrstu minningar mínar tengdar Boggu eru frá 1954 en þann vetur dvaldi ég á Núpi ásamt móður minni sem þá starfaði við Núps- skóla. Þennan vetur eignaðist ég lít- inn frænda, Guðmund, son Boggu og Hauks og man ég þann dag nokkrum árum síðar þegar Bogga kom heim með litla stelpu, lagði hana í hjónarúmið og sýndi mér litlu frænku. Börn Margrétar dóttur þeiira hjóna hafa alist upp í daglegri um- gengni við ömmu sína og ég veit að þau reyndust henni vel og voru henni mikill gleðigjafi í lífinu ásamt börnum Torfa og Lóu, en þau dvöldu oft hjá Boggu ömmu sinni á Núpi í sumarfríum. Bogga lauk námi frá Ljósmæðra- VILBORG GUÐMUNDSDÓTTIR skóla íslands og auk bústarfanna annaðist hún ljósmóðurstörf í Dýra- firði og Önundarfirði í fjölda ára. I minningunni finnst mér Bogga alltaf hafa verið að taka á móti börnum og oft talaði hún um ljósu- börnin sín. Hún gaf mikið af sér, hafði hlýjar hendur og hlýja rödd. Svo hlýja að mér fannst gott að heyra hana á morgnana þegar hún vakti mig hundlata og sagði að nú væri tími til kominn að fara á fætur. Þessi hlýja er ég ekki í vafa um að hefur reynst henni vel í störfum hennar sem ljósmóður. Bogga var félagslynd kona, tók virkan þátt í kvenfélagi sveitarinnar og söng í kirkjukórnum sem Hauk- ur maður hennar stjórnaði, en hann var organisti kirkjunnar og fóru æf- ingar fram í sparistofunni á heimili þeirra hjóna. Þá var gott að liggja upp í rúmi og hlusta. Á þessu lærði ég mikið af sálmum sem ég kann enn þann dag í dag og dálæti mitt á orgeltónlist festi rætur. Auk eigin blóma- og matjurta- ræktar lagði Bogga drjúgan skerf til garðræktar í Skrúði, sem henni var mikið í mun að haldið yrði við. Þau voru mörg börnin sem dvöldu hjá Boggu og Hauki á sumr- in, systkinabörn, barnabörn systk- ina og börn vinafólks, og ég var eitt þeirra. Einn tók við af öðrum og frásagnirnar gengu á milli. Allir höfðu svipaða sögu að segja, nema hvað þessi var stór þegar hinn var lítill, allt eftir því hver sagði frá. Það var gaman að heyra þessar sögur á ættarmóti sam haldið var á Núpi þar sem afkomendur foreldra Boggu voru samankomnir. Að frum- kvæði þeirra systkinanna var reist varða á Sandeiði til minningar um ferðir afa og vona ég að við eftir- lifandi ættingjar gleymum ekki að setja stein í vörðuna á ferðum okkar yfir heiðina sem afi reið yfir til kennslu á Ingjaldssandi. Auk sum- ardvalanna dvaldi ég hjá Boggu einn vetur þegar ég stundaði nám við Núpsskóla. Síðari veturinn var ég á vistinni en alltaf kom hún og hlúði að manni í veikindum. Ég man næðið í sparistofunni, þar var gott að læra. Boggu var mikið í mun að halda góðum tengslum við fjölskylduna og allir heimsóttu Boggu þegar farið var um Dýrafjörðinn á sumrin. Hjá henni hittist fólk sem ekki hittist annars. Ég minnist þess þegar við hittumst nokkur systkinabörn fyrir tilviljun hjá Boggu á Núpi í fyrra- sumar, en þá dvaldi hún þar ásamt systur sinni Guðbjörgu og syni hennar. Margrét dóttir Boggu var að slá og við hin drifum okkur út að raka, það var yndislegt veður og sólskinið glampaði á firðinum. Svo var farið inn til Boggu og drukkið kaffi. Allt eins og í gamla daga. Nema nú var drukkið í gamalli kennaraíbúð úti í skóla sem Bogga fékk eftir að hús þeirra fór í snjó- flóði nokkrum árum fyrr. Það var erilsamt í sveitinni, alltaf fólk að koma og fara. Pósthúsið var niðri hjá Boggu og Hauki, símstöðin uppi hjá Ásu og Valda bróður Hauks. En á Núpi var tvíbýli. Viku- lega var komið með póst og um leið tekinn póstur sem átti að fara. Dag- lega settist Haukur við skrifborðið og skráði helstu viðburði dagsins sem oft gat verið gott að geta flett upp í síðar. Þessum bókum var síð- an raðað snyrtilega upp í hillu og urðu þær margar. Það var gest- kvæmt á heimili Boggu og Hauks, málin rædd og kaffið drukkið. Bogga hafði gaman af að deila skoð- unum sínum með öðrum, hún hafði ákveðnar skoðanir en var aldrei langrækin þótt á móti blési. Mér þótti mjög vænt um Boggu. Hún var trygglynd og alltaf var hægt að leita til hennar. Við áttum oft löng samtöl í síma á milli heim- sókna á sumrin. Ég verð henni æv- inlega þakklát fyrir stuðning henn- ar við mig í lífinu. Hún gaf mér mörg góð ráð og sagði margt sem vakti mig til umhugsunar og opnaði dyr að lausnum vandamála, nýja og bjartari sýn á döprum stundum. Sem dæmi um hennar bjartsýna viðhorf vil ég nefna, að þegar heim- ili hennar á Núpi fór í snjóflóði sagði hún þegar ég kom vestur sumarið eftir: „Gugga mín, húsið er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.