Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 59

Morgunblaðið - 11.03.2000, Page 59
MORGUNBLÁÐIÐ MINNINGAR LÁUGÁRDÁGUR 11. MÁRS 2000 59 "TL farið en fjörðurinn verður alltaf hinn sami.“ Eftir að húsið fór hafði hún fyrir sið að bjóða gestum í kaffi upp í Reit, trjálund sem ræktaður var á túninu fyrir ofan húsið. Bogga þekkti sorgina. Hún missti son sinn þegar hann var á unglings- aldri og auk þess þurfti hún að horfa á eftir þremur systkinasonum sem allir dóu börn að aldri. Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfir storð þeirra mál ei talar tunga tárin eru beggja orð. Þessa vísu fór Guðbjörg systir Boggu með fyrir mig og vil ég með henni koma á framfæri þökkum hennar fyrir samvistir þeirra í líf- inu. I sameiningu vottum við Möggu, Lauga og börnum þeirra, Torfa, Lóu og þeirra bömum okkar dýpstu samúð. Ég kveð Boggu frænku með söknuði og sorg í hjarta en jafn- framt með þökk og góðar minningar í huga. Ég mun alltaf minnast sérstak- lega jólakaffisins hjá Boggu í íbúð hennar á Hlíf um síðustu jól. Guðbjörg Hugrún. GUNNAR FRIÐRIKSSON + Gunnar Friðriks- son var fæddur í Reykjavík 24. des- ember 1925.Hann lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi 5. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Auð- unsdóttir, f. 25.12. 1880 í Kílhrauni á Skeiðum, d. 30.9. 1980 á Selfossi og Friðrik Filippusson, f. 11.12. 1890 í Litla- Leðri í Selvogi, d. 3.6. 1957 í Reykjavík. Bróðir Gunnars, var Auðun, f. 9.8. 1923, d. 20.6.1985. Gunnar starfaði allan sinn starfsaldur hjá Kaupfélagi Ár- nesinga á Selfossi og Mjólkurbúi Flóamanna við bifreiðaakstur. Eiginkona hans var Guðný Alexía Jónsdóttir, f. 27.1. 1936, d. 2.4. 1990. Börn þeirra, 1) Friðrik, f. 17.1. 1959, kona hans er Brynja Hjaltadóttir og eiga þau tvo syni, Gunnar og Hjalta, þau búa á Selfossi. 2) Þórir, f. 2.8. 1969 ókvæntur og barnlaus, býr á Selfossi. 3) Ásta sem dó í frumbernsku. Guðný Alexía átti fyrir tvo syni er hún gekk að eiga Gunn- ar, þá Sigurð og Ax- el Ásgeirssyni. Sig- urður fylgdi móður sinni og ólst hann upp hjá þeim hjónum og gekk Gunnar honum í föður stað.Þau Gunnar og Allý byiju búskap sinn á Kirkjuvegi 18 hér á Selfossi en byggðu sér síðar hús að Birkivöll- um 17, þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. Utför Gunnars fer fram frá Sel- fosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.30. Langt og blessunarríkt ævistarf er að baki. Kvöldgeislar eilífrar frið- sældar ellinnar bera birtu yfir langa vegferð. Vilborg Guðmundsdóttir ljósmóð- ir, Bogga, átti fjölþætt æviskeið. Jafnt Ijósmóðurstarfi var hún hús- freyja á gestkvæmu heimili sem ávallt stóð opið gestum og gangandi og var þar oft glatt á hjalla í vina- hópi. Skjótt dró þó ský fyrir sólu er þau hjónin, Haukur og Bogga, urðu fyrir þeirri þungu raun, fyrir rúm- um þrjátíu árum, að missa einkason sinn og tvo bróðursyni hennar af slysförum. Þá sýndu þau ótrúlegan styrk og æðruleysi og miðluðu öðr- um af sálarró sinni. Gleðigjafar urðu þeim einkadóttirin Margrét og fóstursonurinn Torfi og þeirra fjöl- skyldur. Haukur og Bogga voru mjög samhent. Hann var söngstjóri og kirkjuorganisti og fóru kóræfing- ar yfirleitt fram á heimili þeirra. Var húsfreyjan þar mikil driffjöður enda bæði söng- og ljóðelsk. Mikla unun hafði Bogga af gróðurstörfum. Hún hafði næmt auga fyrir hverri jurt, sem gægðist upp úr moldinni í gróandanum, fuglalífí og lækjarnið. Um árabil hafði hún umsjón með garðinum Skrúð á Núpi. Þar naut hún þess að fegra og prýða svo að eftir var tekið. Ljósmóðurstörfin stundaði Bogga í Dýrafírði og fór þá tíðum erfiðar vetrarferðir til Þingeyrar. Aldrei lét hún bilbug á sér finna þó að veður væru misjöfn. Eftir að þau hjónin fluttu til Þing- eyrar tók Bogga að sér forstöðu sjúkraskýlisins ásamt ljósmóður- starfinu. Óhætt er að fullyrða að þar var hún í forystu við að setja á stofn aðstöðu fyrir aldraða. Alla tíð var umönnun og samúð með þeim sem voru hjálparþurfi ríkur þáttur í fari Boggu. í starfi var hún afkastamikil og ávallt fylgdi henni gleðiblær. Hún var Istarfsöm með afbrigðum. Ung var hún nemandi á Tóvinnuskólanum á Svalbarðsströnd og vann þar fal- lega muni sem prýddu heimilið. Á efri árum fékkst hún enn við hand- avinnu og föndur og var þá sem fyrr listfeng og hugmyndarík. Haukur og Bogga bjuggu síðustu árin í nábýli við Margréti og fjöl- skyldu hennar. Eftir að Haukur lést naut Bogga þess að vera í návist dótturbarnanna sem voru mjög hænd að ömmu sinni. Ég vil að lokum, fyrir hönd fjöl- ! skyldu minnar, þakka Boggu, svil- konu minni, fyrir samfylgdina gegn- um árin og það hversu umönnunarsöm þau hjónin voru við barnahópinn á efri hæðinni. Minn- umst við öll þeirra gleðistunda sem fjölskyldurnar áttu saman og bera birtu á bernsku- og æskuár barn- anna á Núpi. Elsku Magga, Torfi og fjölskyld- ur. Innilegar samúðarkveðjur frá okkur Valda. _ Áslaug S. Jensdóttir. 4 Á fardögum fyrir 120 árum stóð fólk og hestar ferðbúið á hlaðinu í Háakoti í Fljótshlíð. Tveir voru und- ir klyfjum, þrír með reiðtygjum. Ferðinni var heitið út í Ámessýslu, nánar tiltekið að Kílhrauni á Skeið- um. Þau sem þama komu við sögu og lögðu upp í þessa löngu ferð, voru amma Gunnars, Þorbjörg Brynjólfs- dóttir, þrítug að aldri, fædd 24. apríl 1850, einkadóttir hjónanna í Háa- koti, Brynjólfs Péturssonar, bónda og hreppstjóra, fæddur 6. október 1809, og Guðrúnar Guðmundsdóttur ljósmóður, fædd 26. mars 1818, hún var dóttir Guðmundar Jónssonar hafnsögumanns og bónda í Hlíðar- húsum í Reykjavík, f. í febr. 1792 að Vallá á Kjalarnesi, d. 9.júní 1866 og konu hans Halldóru Björnsdóttur, f. 9. jan. 1782, d. 15. júní 1842, sýslu- manns í Þingeyjarsýslu og bónda í Garði í Aðaldal, S-Þing. Tómassonar og Guðrúnar Sigurðardóttir prests í Garði, en Guðrún móðir Þorbjargar mun einnig hafa farið í þessa ferð, og afi Gunnars, Auðun Ólafsson frá Núpi í Fljótshlíð. Fjórði ferðalang- urinn var afi minn Guðmundur Víg- fússon, uppeldisbróðir Þorbjargar í Háakoti, en hann mun hafa gengið með lestinni. Þeir sem staðkunnugir eru á þessum slóðum geta gert sér í hugarlund hvar leiðin hefur legið, og hverja farartálma var við að etja. Lagt var upp frá Háakoti, upp hjá Tungu og Vatnsdal yfir Eystri- Rangá að Reynifelli vestan við Þrí- hyrning, út á Kirkjugötumar að Keldum og út að Reyðarvatni, þaðan liggur leiðin yfir Víkingslækjar- hraun að Þingskálum, Kaldbak eða Bolholti út yfir Ytri-Rangá, fram á Stóru-Vallaheiði, fram að Vindási á Landi. Þaðan út á Nautavað í Þjórs- á, en kunnugir telja að yfir það sé tuttugu mínútna reið, oft í mörgum álum. Land tekið í Eystrihrepp í Ár- nessýslu skammt vestan við Þjórs- árholt. Úr því verður leiðin greið- færari niður hrepp og fram á Skeið á áfangastað. Á fyrstu jólunum þeirra Þorbjargar og Auðuns í Kílhrauni + Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, EGGERT LAXDAL, Frumskógum 6, Hveragerði, andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands fimmtudaginn 9. mars. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hrafnhildur Laxdal, Edda Laxdal, Anni Laxdal Nordquist, Siggi Laxdal, Lísa Laxdal, Rúna Laxdal. + Elskulegur eiginmaður minn og bróðir okkar, SVEINN GUÐMUNDSSON, lést fimmtudaginn 9. mars. Ólafía Nongkran Guðmundsson, Salvör Guðmundsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir. Bróðir minn, KARL KRISTJÁN JÚLÍUSSON verkamaður í Reykjavík, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 2. mars. Útförin hefur farið fram. Fyrir hönd vina og vandamanna, Stefán Júlíusson. fæddist Guðrún móðir Gunnars, en auk hennar eignuðust þau síðar son- inn Ólaf, og dótturina Valgerði. Öll ólust börnin upp hjá foreldr- um sínum í Kílhrauni og urðu nýtir þegnar, eins og þau áttu kyn til. Guðrún giftist og hóf búskap í Reykjavík og síðar á Kálfhóli og Björnskoti á Skeiðum, en þegar Friðrik missti heilsuna fluttust þau með syni sína að Selfossi þar sem þau reistu sér hús að Kirkjuvegi 18. Ég hef ætíð talið það eina mína mestu gæfu á lífsleiðinni að fá að kynnast og njóta samvista við þetta góða fólk. Heimili þeirra á Kirkju- vegi 18 var eitt af þessum sérstöku og eftirminnilegu íslensku heimilum þar sem gæskan og góðvildin gagn- taka mann, þegar við fyrstu kynni. Guðrún móðir þeirra bræðra stóð fyrir heimilinu því Friðrik dvaldi langdvölum á sjúkrahúsi vegna veikinda sinna, en heimilið var róm- að fyrir gestrisni, glaðværð og myndarskap og nágrönnum og þeim fjöldamörgu sem því kynntust ógleymanlegt. Þarna bjuggu þeir bræður með móður sinni í 18 ár. Ungur að aldri fór Gunnar að vinna hjá Kaupfélagi Árnesinga við hin ýmsu störf eins og þau gengu fyrir sig. En strax og aldur leyfði tók hann bflpróf og má segja að hann hafi alla sína æfi stundað akstur, hjá Kaupfélagi Árnesinga og síðar Mjólkurbúi Flóamanna. Gunnar var einhver allra dagfarsprúðasti maður sem ég hef kynnst. Aldrei heyrðist hann hallmæla nokkrum manni og aldrei sá ég hann reiðast. Hann var vinnusamur og trúr sínum vinnu- veitanda og lagði sérstaka alúð við sérhvert verkefni sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var léttur og skemmtilegur í vinahópi, tryggur vinur og vildi hvers manns vanda leysa. Hann hafði yndi af góðri tón- list og var söngmaður ágætur, og starfaði hann með Karlakór Selfoss í fjölda ára. Gunnar og Allý gengu í hjónaband 17. desember 1966 en stofnuðu heimili sitt nokkrum árum áður á Kirkjuvegi 18 á Selfossi. Vor- ið 1963 fengu þau byggingarlóð að Birkivöllum 17 þar sem þau reistu sér myndarlegt einbýlishús þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. Það var alltaf gott að heimsækja þau hjónin, þau voru bæði létt og skemmtileg i samræðum og áttu alltaf tíma aflögu fyrir gesti, enda komu þangað margir, vinir og vandamenn, því hjónin höfðu mikla ánægju af samneyti við fólk og þráðu að hafa kunningjana í kring- um sig sem oftast. En árin liðii hratt, eins og straumþung elfa. 1 önnum dags og erli ófust örlagavefir fjölskyldunnar á Birkivöllum 17. Gunnar gekk glaður að sínu starfi og Allý sem lengi hafði starfað á Sjúkrahúsi Suðurlands, innritaðist í Sjúkraliðaskólann þaðan sem hún lauk prófi 2. febrúar 1980. Lang- þráður draumur hennar hafði hafði ræst. Næsta áratuginn tæpan gekk lífið sinn vana gang hjá þeim hjón- um, skin og skúrir, eins og hjá okkur flestum manna bömum. Það var Gunnari þungt áfall þegar Allý veiktist um jólin 1989 af þeirn^ sjúkdómi sem læknavísindin hafa ekki enn fundið lækningu við og sem dró hana til dauða. Hún andaðist um sumarmál 1990. Þeir feðgar Gunnar og Þórir héldu saman heimilinu ein- ir fyrstu árin en síðar fluttist Frið- rik inn á heimilið með konu sína Brynju og soninn Gunnar. Það var Gunnari eldri ekki síður en nafna hans hinum yngri til mikillar gleði að fá að vera þar samvistum. Gunnar veiktist af erfiðum sjúk- dómi fyrir u.þ.b. þremur árum. Sá sjúkdómur gerði það að verkum að hann gat ekki séð um sig sjálfur og þurfti aðstoð og ummönnun sem sjúkrastofnun var einni fært að veita. Hann var um tíma á Ási Hveragerði en síðar á dvalar- og hjúkrunarheimilinu að Kumbara- vogi þar sem hann andaðist á sunnu- daginn var. Lífsfleyta Gunnars Friðrikssonar er nú í naustum. í huga okkar sem þekktum hann og vorum honum samtíða, er nálægð hans og umgjörð öll þó svo undarlega skýr. Allur fer- ill hans á lífsleiðinni er varðaður heiðarleika og drengskap sem lýsir af, eins og tindrandi vitar. Okkur sem eftir stöndum við ströndina miklu. Með djúpri virðingu er hanji .» nú kvaddur og honum þakkaðar samverustundir. Megi algóður Guð, faðir vor og frelsari, líkna honum og leiða um nýja stigu og veita sonum hans og fjölskyldu styrk og huggun á skilnaðarstund. Öllum þeim sem önnuðust Gunnar og hjúkruðu í veikindum hans og dauða, eru hér færðar alúðarjiakkir. Árni Valdimarsson. + Elskulegur sonur okkar, bróðir, frændi og mágur, ÞORMÓÐUR KARLSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 14. mars kl. 13.30. Halla Jóhannsdóttir, Karl B Guðmundsson, Anna Karlsdóttir, Ómar Hannesson, Auður Karlsdóttir, Sigurður Þór Hafsteinsson, Jóhann Ármann Karlsson, Hildur Ómarsdóttir, Rúnar Ómarsson, Karl Bergmann Ómarsson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNA ARADÓTTIR, Hólmgarði 1, Reykjavík, sem lést á Borgarspítalanum laugardaginn 4. mars, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 13. mars kl. 13.30. Kristjana Jónsdóttir, Ari Leifsson, Þuríður Lárusdóttir, Guðgeir Leifsson, Kristinn Ingi Leifsson, Ósk Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.