Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 62
62 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
Jt
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
fyrr að hann ætti tíl. Eftir einn slíkan
ljóðastraum, eða „sálm því andinn var
svo upptrekktur“, sagði hann að það
væri „dásamlegt að geta farið af
Ressu djöf... malbiki út á blessaða
^t^róna jörðina í sveitinni. Anganin af
nýáborinni drullu verður sætari en öll
ilmvötn veraldar sem tískudrósir úða
á sig. Svona er nú minn smekkur". En
rauði þráðurinn í bréfunum hans
Marons voru hollráð mér til handa,
ekki síst í samskiptum við hitt kynið
og annars konar íþróttum, en jafn-
framt virðing fyrir vilja mínum og
áhugamálum. Þannig skrifaði hann
t.d. eitt sinn eftir slysfarir mínar í fót-
bolta að þetta væri „stórhættulegur
skratti" og „best væri að hætta alveg
en ég veit að það er andstætt karl-
^mannslund þinni svo ég mæli ekki
"^með því en farðu varlega og ætlaðu
þér af. Þú mátt aldrei ganga það
nærri þér að þú sért ekki kvenmanns-
fær tíu mínútum eftir leikslok". Hann
var þó aldrei hræddur um að ég
bjargaðist ekki hvað sem á dyndi;
helkuldi eða hungur, því ég væri svo
„margþjálfaður úr bölvaðri Blöndu-
hlíðarótíðinni" og kominn af „norræn-
um víkingum og stórglæpamönnum
sem kölluðu ekki allt ömmu sína þótt
nokkurt kul blési á móti“. Þessi brot
úr bréfúm hans lýsa vel þeim anda
sem sveif yfír samskiptum okkar. Og
það var alveg sama hvort hann skrif-
aði mér eða talaði við mig; alltaf gerði
hann stólpagrín að mér og dró mig
sundur og saman í háði og því meira
eftir því sem fleiri heyrðu til. Það var
alveg sama hverju ég svaraði; alltaf
mátaði hann mig.
Við vorum sum sé alltaf að þræta.
Við Maron höfum rifist alveg frá því
að ég var smápatti. Það byrjaði með
því að þegar hann og Kristín kona
hans og móðursystir mín, sú góða
kona, hættu að búa í Ásgeirsbrekku,
keyptu foreldrar mínir nokkrar kind-
ur af þeim. Maron stóð á því fastar en
fótunum að ég hefði lofað að leggja
eitt lamb inn hjá honum það haust
sem greiðslu upp í kaupverðið. Þessu
lofaði ég auðvitað aldrei en sagði hon-
um líka að þó ég hefði gert það myndi
ég ekki standa við það því æmar sem
við keyptum hefðu verið svo lélegar
að lömbin undan þeim hefðu snar-
lækkað meðalvigtina hjá okkur og þar
fram eftir götunum.
Alla tíð eftir þetta sakaði hann mig
um að hafa stolið frá sér lambi.
Aldrei heilsaði hann mér öðruvísi
en að rakka mig um lambið. Þegar ég
neitaði að borga jós hann yfir mig
hrak- og blótsyrðaflaumi um ræfil-
dóm minn og óáreiðanleika og ýmis-
legt þaðan af verra sem alls ekki er
prenthæft.
Og þegar hann heilsaði var heldur
ekki verið að spara handtakið. Þá
kreisti hann höndina á manni svo of-
boðslega að maður vai- lengi að jafna
sig á eftir. Hann var mjög handstór
og sterkur eftir því en það var alveg
sama hvað manni fannst þetta vont;
alltaf vildi maður heilsa honum svona
til þess að gá hvort maður væri ekki
orðinn sterkari en síðast og gæti boð-
ið honum birginn.
Það kom ekki að því. Ekki fyrr en
hann fékk heilablóðfall íyrir rúmum
tíu áram. En þótt fyrri styrkur hefði
minnkað og málið horfið fyrst um
sinn, sagði hlýlegt handtak hans allt
sem segja þurfti um hugsanir hans.
Ég hélt auðvitað áfram að tala létt við
hann og hann svaraði með því að
brosa og kinka kolli.
Svo náði hann málinu aftur smám
saman þótt ekki yrði hann samur og
fyrr. Og hann hætti að geta lesið,
skrifað og rifist. Þótt það væri alveg
ægilegt létum við það ekkert á okkur
fá, heldur gátum í eyðurnar í hugan-
um og höfðum alltaf jafn gaman af því
að heyrast og hittast.
Oftast gat ég hitt hann heima hjá
sér en þó kom fyrir að hann þurfti að
leggjast inn á sjúkrahús. Þá sagði ég
honum að hann væri þar bara til að
líta á hjúkkumar og láta fleiri en
Kristínu stjana við sig. Honum líkaði
svona aðfinnslur vel.
Það var einmitt á sjúkrahúsi sem
ég hitti Maron síðast. Það var í janúar
síðastliðnum og var þá allmikið af
honum dregið þótt hugsunin væri
heil.
Tæpum tveimur mánuðum seinna
er lífshlaupinu lokið og það var mikil
blessun að hann fékk að kveðja án
þess að kveljast. Hann var saddur líf-
daga og fyllilega sáttur við lífið og
dauðann. Ér ekki eitt það besta sem
fyrir fólk getur komið í lífinu að fá að
deyja þannig? Maron hafði beðið mig
um að „heiðra samkunduna þegar ég
verð gróðursettur með návist þinni og
jafnvel að þú gerðist svo lítillátur að
halda undir eitt hornið“. Það skal ég
sannarlega gera og ég veit að þá og nú
mun ég hugsa til einna kveðjuorðanna
þinna til mín: „Nú hætti ég þessari
andans smíð og kveð þig bróðir í
Drottni. Megi fjandinn forðast þig
alla tíma.“
En af því að ég hef ekki náð þér í
þroska, þá hef ég ekki vit á að hætta
hér, heldur bæti við 15 ára gömlum
kveðjuorðum mínum til þín:
Eg kveð þig núna Maron minn
meðurtregasárum.
Osköp rjóð er orðin kinn
og æði heitur hvarmurinn
og augun eru öskufuU af tárum
Kæri Maron minn. Um fáa menn
þótti rnér vænna en þig. Það vissir þú
vel. Ég veit að sú væntumþykja var
gagnkvæm. Ég þakka þér fyrir hana
af öllu hjarta og alia þína hlýju í minn
garð alveg frá því ég man fyrst eftir
mér. Ég veit líka að þú færð góðar
móttökur því
Eins og ég hef alltaf sagt
ogaldreiþvíéggleymi,
þá er víst meira í Maron lagt
en marga í þessum heimi.
Það er ekki ónýtt að hafa fengið að
kynnast manni sem skilur eftir hlátur
og gleði í hverri minningu. Slíkra
manna er gott að minnast og Maron
var einn af þeim. Guð blessi minningu
hans.
Kristínu og öðrum aðstandendum
sendum við fjölskyldan samúðar-
kveðjur.
Bjami Stefán Konráðsson.
RABAUGLVSINGAR
ATVIIMNU-
AUGLÝSINGAR
Laugarás, Biskupstungum
Blaðberi óskast sem allra fyrst
Áhugasamir hafi samband við Bergdísi
Eggertsdóttur á skrifstofutíma í síma
5691306
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
ATVINNUHÚSINIÆÐI
Verslunarhúsnæði til leigu
Til leigu er verslunarhúsnæði í Lækjargötu 2
í Reykjavík við hliðina á nýbyggingu á lóð Nýja
Bíós (Top Shop). Um er að ræða verslunarpláss
sem bókabúðin Borg hefur verið rekin í.
Húsnæðið er laust. Upplýsingar veittar í síma
595 2500 á skrifstofutíma.
FUMDIR/ MANNFAGNAÐUR
Frá Laugarneskirkju
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Laugarnes-
Iff^i safnaðar verður haldinn í safnaðar-
heimili Laugarneskirkju á morgun,
sunnudaginn 12. mars, að lokinni guðsþjón-
ustu kl. 12.30.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Safnaðarfólk og allir aðrir áhugasamir um hið
fjölbreytta safnaðarstarf í Laugarneskirkju er
hvatt til að fjölmenna.
Sóknarnefnd Laugarneskirkju.
*Aðalfundur
Félags vinnuvélaeigenda
Aðalfundur Félags vinnuvélaeigenda
verður haldinn á Hallveigarstíg 1 laugar-
daginn 25. mars kl.10.00.
ÝMISLEGT ll NAUÐUN6ARSALA
Frá Alþingi
íbúð fræðimanns
í Kaupmannahöfn
skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. regl-
um um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til af-
nota tímabilið 1. september 2000 til 31. ágúst
2001. Fræðimenn, sem hyggjast stunda rann-
sóknir eða vinna að verkefnum í Kaupmanna-
höfn, geta sótt um afnot af íbúðinni. Hún er
í Skt. Paulsgade 70 (skammt frá Jónshúsi) en
auk þess hefur fræðimaður vinnuherbergi í
Jónshúsi. íbúðin er þriggja herbergja (um 80
ferm.) og fylgir henni allur nauðsynlegasti
heimilisbúnaður. Afnotin eru endurgjaldslaus.
Dvalartími í íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir,
en til greina kemur skemmri tími eða lengri
eftir umfangi verkefnis og öðrum atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu
Alþingis eigi síðar en mánudaginn 3. apríl nk.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi
ráðgerðrar dvalar sinnar í Kaupmannahöfn,
svo og menntun og fyrri störfum. Þá skal taka
fram hvenær á framangreindu tímabili og hve
lengi óskað er eftir afnotum af íbúðinni, svo
og stærð fjölskyldu umsækjanda, ef gert er
ráð fyrir að hún fylgi honum. Úthlutunarnefnd
ætlast til að dvalargestir nýti úthlutaðan tíma
sinn að fullu við störf í Kaupmannahöfn.
Eftirfarandi atriði hafa skipt mestu máli við
úthlutun íbúðarinnar:
1. Að umsókn sé vandlega unnin.
2. Að verkefnið verði ekki unnið annars staðar
en í Kaupmannahöfn eða nágrenni.
3. Að sem eðlilegust skipting sé milli kynja og
fræðigreina.
4. Að verkefnið hafi fræðilegt eða hagnýtt gildi
og þyki áhugavert.
Þeir, sem vilja kynna sér tiltekin málefni í Dan-
mörku, án þess að um sé að ræða víðtækari
fræðistörf, eiga að jafnaði litla möguleika á
úthlutun. Tekið ertillittil fjárhags umsækjenda
og sitja þeir fyrir, sem ekki njóta launa eða
styrks meðan á dvöl þeirra stendur.
Úthlutunarnefnd ráðgerir að Ijúka störfum í
fyrri hluta aprílmánaðar.
Sérstök eyðublöð fást á skrifstofu Alþingis í
Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendiráði
íslands í Kaupmannahöfn.
Nauðungarsölur
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Suðurgötu
1, Sauðárkróki, fimmtudaginn 16. mars 2000 kl. 14.00 á eftir-
töldum eignum:
Miðsitja, Akrahreppi, þingl. eign Jóhanns Þorsteinssonar og Sólveigar
Stefánsdóttur, gerðarbeiðandi er Lánasjóður landbúnaðarins.
Skálá, sveitarfélaginu Skagafirði, 25% hl., þingl. eign Árna Benedikts-
sonar og Lilju Gissurardóttur, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Sauð-
árkróki.
Sævarstígur 2, kjallari, Sauðárkróki, þingl. eign Einars Stefánssonar,
gerðarbeiðandi Landsbanki íslands hf.
Víðigrund 6, 0302, Sauðárkróki, þingl. eign Valgerðar Sigtryggsdóttur,
gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
9. mars 2000.
FÉLAGSLÍF
Sunnudagsferð 12. mars kl.
10:30:
Hellisheiði - Skálafell.
Um 5-6 klst. skíðaganga. Verð
1.500 kr. fyrir félaga og 1.700 kr.
fyrir aðra. Brottför frá BSÍ og far-
miðar í miðasölu.
Helgarferðir 18.-19. mars:
1. Jeppadeildarferð: Setrið suð-
austan Kerlingarfjalla.
2. Skíðaganga: Þingvellir - Laug-
arvatn.
Skráning og upplýsingar um
helgarferðir á skrifstofu.
Undirbúningsfundir á miðviku-
dagskvöldið 15. mars.
Það er líf og fjör í Útivistarferð-
um. Sjáumstl Gerist félagar,
skráning á netinu eða skrifstofu.
Útivist - ferðafélag
Hallveigarstíg 1,101 Reykjavík,
sími 561-4330 - fax 561-4606
http://www.utivist.is
Kl. 13.00 Laugardagsskóli
fyrir krakka.
Aðalstöðvar KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Munið uppskeruhátíð æskulýðs-
starfsins i dag, laugardaginn 11.
mars, kl. 14.00-16.00.
Yfirskrift: Mismunandi kjör barna
og unglinga í heiminum. Leikrit,
myndlist, söngur, basar og
margt fleira. Aðgangseyrir kr.
100 fyrir börn og 200 fyrir full-
orðna. Ágóðinn rennur óskiptur
til Hjálparstarfs kirkjunnar í
tengslum við verkefnið, Mis-
munandi kjör barna og unglinga
í heiminum. Allir velkomnir.
Sjáumst hress.
P.s. Ef þú mætir ekki í góða skap-
inu á staðinn, þá yfirgefurðu
staðinn vonandi í góða skapinu
að hátíðinni lokinni.
FERDAFÉLAC
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Skíðaganga yfir Leggjabrjót
12. mars kl. 10.30 með Gesti
Kristjánssyni. Verð 1.800 kr.
Fjörufarð fjölskyldunnar
á Kjalarnes með Einari Þorleifs-
syni náttúrufræðingi 12. mars kl.
13.00. Verð 1.200 kr. Frítt fyrir
börn í fylgd með fullorðnum.
Brottför frá BSÍ og Mörkinni 6.
Bakpokanámskeið 20. mars
Frítt fyrir félagsmenn. Skráning
á skrifstofu.
www.fi.is og síða 619 í texta-
varpi RUV.