Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 75

Morgunblaðið - 11.03.2000, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ _________________________________LAUGARDAGUR 1 l.MARS 2000 75 FÓLK í FRÉTTUM Menningin og sj ónvarpið SJONVARP A LAUGARDEGI MIKIÐ er gumað af menningu á íslandi og einkum þó í Reykjavík. Hún virðist saman standa af nokkr- um málverkasýningum, sem helst bera að kenna við heysátustefnuna í listum, endalausum amerískum bíósýningum handa unghngum, þar sem manndráp ei'u í fyr- irrúmi, leiksýning- um handa áhorfend- um löngu eftir að yngra fólk er hætt að mæta á sýningar í sæmi- legum fötum, heldur einhverju sem fátækir vegavinnukarlar klæddust þá sjaldan þeir brugðu sér heim til að fara í fjósið, krárlífi, sem útlend- ingar koma til að skoða eins og átt- unda undur veraldar, og sjónvarpi, sem veit ekki til hvers það er brúk- hæft og allt kostar of mikla peninga nema einber vitleysan. Stundum koma greinar í blöðum, þai’ sem einstaklingum blöskrar svo hin menningarlega fávísi og niðurlæg- ing, að þeir geta ekki orða bundist. Enginn rumskar þó við eitt og eitt píp af því menningarvitarnir virð- ast hafa stungið almenning svo öfl- ugu svefnþomi, að enginn þykist sjá eða þorir að tala um hið daglega fánýti, sem hér kallast menning, og er rekin með góðu eða illu eins og hagsmundafélag ofan í kok á al- menningi. Síðasta afrek sjónvarpsins - Stöð 2 - var fyrsti þáttur í fjögurra þátta röð, sem nefnist Sex í Reykjavík. Er þá kom- ið að því að toppa þá menningarleysu, sem hér hefur gengið á nær öllum sviðum skemmt- analífs í langan tíma með slíkum formerkjum, að segja mátti fyrir um hvar hin ofsafengna „menning- arleit" endaði. Upphaf sýninga á Sex í Reykjavík var m.a. undirbúin með frétt af klámbylgjunni í Dan- mörku, svo enginn væri nú óundir- búin(n). Klámbylgjan í Danmörku vai’ svartur blettur í sögu annai’s ágætrar og menningarlegrar þjóð- ai’. Undanfari hennar var samskon- ar Ieiði og innantóm hrifning af ein- hverju, sem átti að heita list en var það ekki, unz það sprakk allt í einu út í klámbylgju. Hún var ósvífin og gaf miklar tekjur. Höfðu jafnvel Danii- orð á því að túristum frá Jap- an hefði fjölgað stórlega. Kannski prógrammið hér sé að auka túr- isma. Tekjurnar koma að vísu ekki strax, en lofthænurnar, sem eru að gera það gott í verðbréfum, ættu samt að fara að athuga sinn gang og byrja að fjárfesta í einni stöng eða svo. Mario Pusio hét höfundur í New York, sem gerði að ævistarfi að skrifa um Mafiuna í Bandaríkun- um. Okkur er kunnugt um Don Corleone og þá fjölskyldu, enda gerðar myndir eftir bókunum um þá. Síðustu bókina, sem Puso skrif- aði um Mafiu - fjölskyldur áður en hann andaðist hét „The Last Don“ eða síðasti Doninn með Danny Aiello í aðalhlutverki. Þessi mynd nær hvergi Guðföðurnum með Marlon Brando, en hún er góð á köflum, einkum þegar hún er að lýsa innviðum hreyfingarinnar, ættarböndunum og hatrinu. Aftur á móti mættu kvennamálin komast af með minna pláss. Þrátt fyrir stöðug moldviðri glæpa og nú síðast klámi á sjónvarp hér mikla möguleika. Hér hafa ver- ið sýndir þættir úr náttúrunni. Sjónvarp getur verið brúklegt við að sýna þætti úr sagnfærði. Allt og sumt sem vantar er að hugsa öðru- vísi, en það hefur illilega skort. Indriði G. Þorsteinsson ISLENSK STUND TOÍVLIST Geisladiskur SÓLSKINSSTUND Sólskinsstund - a Treasury of Ice- landic Poems and Songs 2 er tón- ljóðadiskur sein inniheldur þrettán lög felld að ljóðum Margrétar Jóns- dóttur og Þorsteins Erlingssonar. Að vísu á Erlingur aðeins eitt ljóð á plötunni og Margrét svo afganginn. Alla tónlist samdi Jóhann Ilelgason en eitt lagið samdi hann í félagi við Árna Harðarson. Söngvarar eru þau Signý Sæmundsdóttir og Berg- þór Pálsson. Um hljóðfæraleik sér kammersveit skipuð þeim Hrefnu Eggertsdóttur (píanó), Szymoni Kuran (fiðla), Júlíönu Elínu Kjart- ansdóttur (fiðla), Guðmundi Krist- mundssyni (víóla), Sigurði Hall- dórssyni (selló), Einari Sigurðssyni (kontrabassi), Martial Nardeau (þverflauta, piccoloflauta), Daða Kolbeinssyni (óbó, englahár), Kjart- ani Óskarssyni (klarinetta, bassa- klarinetta) og Rúnari Vilbergssyni (fagott). Um útsetningar og tónlist- arstjórn sá Árni Harðarson. Upp- tökumaður var Sveinn Kjartansson. Merkingarlegur útdráttur ljóða upp á ensku var í hönduin Terry Gunnell. 30,46 mín. Hugverkaút- gáfan gefur út. JÓHANN Helgason hefur einkum verið þekktur sem dægurlagasmiður í gegnum tíðina og á m.a. besta og fallegasta lag þeirrar tegundar ís- lenskt, „Söknuður", sem Vilhjálmur Vilhjálmsson heitinn söng af ein- stakri snilld á sínum tíma. A þessum diski fer hann öllu sígildari leiðir í lagasmíðunum og snarar út nokkr- um „nýjum“ þjóðlögum ásamt kam- mersveit og söngvurunum Signýju Sæmundsdóttur og Bergþóri Páls- syni. Lagasmíðarnar eru flestar í nokk- uð hefðbundnum léttklassískum stíl og til að mynda minna fyrsta og þriðja lagið svolítið á lagasmíðar Sig- fúsar Halldórssonar, þess mikla melódíumeistara. Það er nettur kammerkeimur yfir þessu öllu sam- an, blandaður þjóðlegri angan. Lög- in eru falleg og renna ljúflega í gegn en þó oft með fremur fyrirsjáanleg- um laglínum. Nokkur stílbrot komast þó á kreik er líða fer á diskinn. Sum lögin eru nær því að vera hádramatísk en ljúf eins og t.d. lagið „Vetri hallar“ og önnur eru afar ljúfsár og falleg, gott dæmi um það væri „Kvöld í skógi“. Lagið „Ferða- maður“ er næst- um hættulega hryssingslegt og minnir það óneit- anlega á tónsmíð- ar Igor Stravins- ky. Ljóðin lofsama flest öll íslenska náttúru eða veita innsýn í drauma og þrár fólksins sem_ hún umlyk- ur. I sumum koma fyrir séríslensk minni eins og álfar og huldufólk og tekst Jóhanni ágætlega að láta lög sín falla að inntaki ljóðanna. Söngur á plötunni er góður og ten- ón’ödd Bergþórs er niðri á jörðinni, alþýðleg og leikandi létt. Signý skil- ai- svo hljómfagurri röddu sinni af öryggi og fagmennsku. Útsetningar plötunnar eru í hefbundnari kantin- um og það fer fremur lítið íýrir téðri kammersveit þar sem hún er frekar „aftarlega í mixinu" eins og græju- gúrúarnir myndu orða það. Ég hefi margsinnis gert umslags- hönnun geisladiska að umtalsefni í dómum mínum og er það því miður ekki að ástæðulausu. Éinhverra hluta vegna er gæðastaðall umslags- hönnunar oft á fremur lágu plani og er þessi geislaplata ekki undantekn- ing frá því. Diskurinn ber sterklega með sér að hann er að mörgu leyti, en von- andi ekki öllu, stílaður á hinn sívax- andi ferðamannastraum sem berst að ströndum landsins. Islenski fán- inn liggur sem þverlína í einu horn- inu og umslagið er bláleitt með ein- hvers konar munstri. Fyrir miðju er svo settleg mynd af hinu ágæta söngpari. Fyrir neðan myndina stendur svo „A Treasury of Icelandic Poems and Songs“. Þessi markmið- sbundna ferðamannahönnun tekst ekki betur til en svo að umslagið minnir helst á pakkaða fiskstauta frá Icelandic Seafood! Hræðilegt, svo ekki sé nú meira sagt. Þessi plata verður seint talin bylt- ingarkennd en hún þjónar ágætlega því hlutverki sem henni virðist vera ætlað, þ.e. að veita útlendingum ein- hverja innsýn í íslenska ljóða- og sönglagahefð. Það er því verst með umslagið, sem fer nokkuð létt með að fæla áhugasama kaupendur í burtu, ef því er að skipta. Arnar Eggert Thoroddsen Nœturqatinn í kvöld leika Hilmar Sverrisson og Anna Vilhjálms. Borðapantanir í síma 587 6080. 7T* IM IIIMK Stjórnandi: Andri Snær Magnason Spyrlar: Steinunn Sigurðardóttir og Adda Steina Bjömsdóttir Einnig koma fram Steindór Andersen kvæðamaður, Jóhann G. Jóhannsson tónlistarmaður og Örn Árnason leikari og flytja brot úr verkum hórarins. MiSaverS kr. 500 VAKAIirMAUll. Ritþing Þórarins Eldjárns laugardaginn 11. mars kl. 13.30 - 16.00 S Menningarmiöstöðin Gerðuberg Bók Stephens Kings á Netinu NÆSTA skáldsaga rithöf- undarins vinsæla, Steph- ens Kings, kemur út bráð- lega en þú getur gleymt því að nálgast hana í næstu bókabúð, hún verð- ur eingöngu seld á Netinu. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem almennt þekktur höfundur fer þessa leið að bjóða bókina aðeins á staf- rænu formi. Sagan er 66 blaðsíður og kallast „Rid- ing the Bullet“ og segir King hana draugasögu. Hún fer í sölu á Netinu þann 14. mars og geta kaupendur fjárfest í gripnum fyrir 1.775 krón- ur og lesið á tölvuskján- um. Flestar netbókaversl- anir munu bjóða bókina til sölu en það er netfyrir- tækið Simon & Schuster sem gefur söguna út á Netinu og fyrirtækið SoftLock.com sem sér um tækni- legu hliðina. Samkvæmt heimildum ABCNews.com verður hægt að skoða fyrstu átta blaðsíðurnar í sögunni ókeypis en ef lesandinn verður forvitinn og vill vita meira verður hann að kaupa söguna. Gengið hefur verið þannig frá mál- Reuters inu að ekki er hægt að senda sög- una til vina og vandamanna heldur aðeins hægt að eiga eitt eintak af henni á harða disknum. King samdi söguna er hann var að jafna sig af meiðslum eftir að ekið var á hann L fyrrasumar. „Ég hlakka til að vita hver viðbrögð almennings verða og komast að því hvort þetta sé fram- tíðin,“ sagði King. — Ttlnefntngar tíl óskarsverðlauna RINGULREIÐ MYND EFTIR MIKE LEIG
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.