Morgunblaðið - 11.03.2000, Side 78

Morgunblaðið - 11.03.2000, Side 78
78 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Morgunblaðið/Kristinn Ljósmynd/Anton Brink Hansen Þeir Gunnlaugur Lárusson, Jón Björn Ríkarðsson, Hörður Stefánsson Hljómsveitin Toy Machine, ein þriggja hljómsveita frá Akureyri, spilar og Vagn Leví eru í hljómsveitinni Brain Police sem verður í ham í kvöld. ásamt nokkrum aðkomusveitum í Kompaníinu í kvöld. Hart rokk á Akureyri NORÐLENDINGAR eiga von á góðum gestum um helgina því hvorki fleiri né færri en sex hljómsveitir úr Vleykjavík tóku sig saman, leigðu rútu og óku beinustu leið til Akureyr- ar. Hljómsveitirnar, sem eiga það all- ar sameiginlegt að leika hart rokk, eru Klink, Burning Eyes, Squert, El- exír, Vígspá og Brain Police. Meðlim- ir sveitanna verða þó ekki einir á ferð því boð var látið út ganga á Netinu að ferðin væri í uppsiglingu og munu vinir og vandamenn hafa brugðið skjótt við og skráð sig í ferðina. Þrjár sveitir frá Akureyri munu einnig spila á tónleikunum sem haldnir verða í Kompaníinu í kvöld og eru það sveitimar Shiva, Choke og Toy Machine. „Þetta byrjaði þannig að það var hópurinn af krökkum sem langaði að fara að sjá hljómsveitina Shiva spila á Akureyri," segir Birkir Viðarsson talsmaður hópsins sem ásamt Guð- nýju Láru sá um að skipuleggja Ak- ureyrarferðina. Þau liöfðu síðan Kristján Heiðarsson sem er tromm- ari í hljómsveitinni Shiva sér til full- tingis. „I þessum hópi voru aðilar úr hljómsveitum og síðar var ákveðið að fara norður og spila með Shiva.“ En gestimir ætla ekki aðeins að skemmta sér á tónleikum heldur er einnig stefnt á að skunda í Hlíðarfjall og munu flestir væntanlega bregða sér á snjóbretti. kr 699 m/vgk. 3. tbl. 12. érq. nr. 59 ISSN 1021 7150 10 aöferöir Vald reöursins f murkri geta margir draumar ræst Með þessu tölublaði fylgir ótakmarkaður tími i 7 daga* á Nýja spjalisvæðinu! ’fiá útgafudegi Konur og dýr DVD: betra klám? Robbie skorar á Liam í hringinn HLJÓMSVEITIN Oasis hefur kynt ansi vel uppi í „Islandsvininum“ Robbie Williams. Upphaflega ástæðan var blaða viðtal sem tekið var við Noel Gallagher, forsprakka sveitarinnar, þar sem hann lýsti söngvaranum sem „feitum dans- ara.“ Eitthvað fór þetta fyrir bijóst- ið á Robbie og svaraði hann fyrir sig með því að senda Noel blómakrans sem á var letrað: „Til Noels, hvíl í friði. Hlustaði á síðustu plötuna þina, samúðarkveðja, Robb- ie.“ Það var svo yngri bróðirinn, Li- am sem sagði að næst þegar Robbie yrði á vegi hans myndi hann nef- bijóta hann. Þegar Brit-verð- laununum var úthlutað í síðustu viku skoraði Robbie á Liam í opin- bera hnefaleika og sagðist vera til- búinn að leggja 100.000 pund undir. Loks benti hann á að hér væri kom- ið tækifæri til að athuga hvort söngvarinn málglaði væri maður til að standa og falla með orðum sín- um. Eftir að þessar „vinalegu" orða- sendingar byrjuðu hafa slúðurblöð- in gert allt sem í þeirra valdi stend- ur til að gera bardagann að veru- Ieika. Jafnvel hafa virtir hnefa- leikahaldarar eins og Frank Warren og Lloyd Honeyghan boðist til að útvega þeim keppnispláss. Einnig hefur söngvarinn Mark Morrisson boðist til að taka að sér hlutverk dómara auk þess sem hann segist muni greiða vinningshafan- um önnur 100.000 pund. Umræðan er orðin svo mikil að pabbi Robbies hefur lýst yfir stuðningi sínum og fullyrti að þetta væri það eina sem myndi kenna hinum háværu Gall- agher-bræðrum lexíu. Oasis eru fyrir utan alla anga bresku press- unnar, á tónleikaferðalagi um Jap- an. Talsmaður þeirra sagði samt að þeir væru afar hissa að pressan væri að hvelja til ofbeldis og fyndist umræðan vera „sjúk, aum- kunarverð og óábyrg“. Einnig fyndist þeim óhugnanlegt að i, Robbie og hnefa- leika- haldarar fengju slíka út- rásút frá of- beldi. Enda eru þeir Gall- agher- bræður þekktir fyrir að vera fyr- irmynd- ar dreng- ir. Sko þig. Þú varst að finna nálina i heystakknum. Þetta er ein af þessum litlu auglýsingum um námsstyrki frá Landsbankanum. Þær eru næstum allar svona litlar og ekki á allra færi að finna þær. En þar sem þú fannst eina þeirra veistu að Landsbankinn er að leita aö fólki til aö fara út og sigra heiminn. Ef þú ert i Námunni skaltu senda inn umsókn um Námustyrk fyrir 15. mars nk. Allar nánari upplýsingar á www.naman.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.