Morgunblaðið - 24.03.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913
71. TBL. 88. ÁRG. FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Páfí flytur ræðu við minningarathöfn í helfararsafninu í Jerúsalem
Sagði engin orð geta lýst
hryllingi helfararinnar
AP
Páfi lagði blómsveig á steinkistu þar sem aska fórnarlamba helfararinnar er geymd í Yad Vasheim-safninu.
LEIÐTOGAR gyðinglegra samtaka
í Israel lýstu í gær vonbrigðum með
að Jóhannes Páll páfí II skyldi ekki
í ræðu sinni í Yad Vasheim-helfar-
arsafninu í Jerúsalem minnast á af-
stöðu Vatíkansins á árum seinni
heimsstyrjaldar. Margir ísraelar
höfðu vonast til þess að páfí bæðist
fyrirgefningar á því að Vatíkanið
skyldi ekki hafa reynt að stöðva
fjöldamorð nasista á gyðingum.
„Sem biskup Rómaborgar og
sporgöngumaður Péturs postula
fullvissa ég gyðinga um að kaþólska
kirkjan, með lögmál guðspjallsins
um sannleika og kærleika að leiðar-
ljósi og án pólitískra sjónarmiða, er
innilega miður sín vegna hatursins
og ofsóknanna sem gyðingar hafa
mátt sæta af hendi kristinna í ald-
anna rás,“ sagði páfi.
Forystumenn gyðinga í ísrael
höfðu bundið vonir við að páfi
minntist sérstaklega á Píus páfa
XII, sem var páfi á árum seinni
heimsstyrjaldar, og margir gyðing-
ar bera kala til íyrir að hafa ekki
andmælt fjöldamorðum á evrópsk-
um gyðingum. Búist er við því að
Píus XII verði tekinn í helgra
manna tölu á næstunni.
Lau æðstirabbíni, sem er leiðtogi
gyðinga af evrópskum uppruna í
Israel, og lifði sjálfur af vist í út-
rýmingarbúðum nasista, sagðist í
gær fremur hafa vonað að einhverj-
ir þeirra Evrópubúa sem hættu lífi
sínu til að bjarga gyðingum undan
nasistum yrðu lýstir heilagir, held-
ur en þeir sem „þögðu þunnu hljóði
meðan blóði okkar var úthellt“.
Rabbíninn hefur þó viðurkennt að
erfitt sé fyrir Jóhannes Pál páfa að
gagnrýna forvera sinn á páfastóli.
„Við erum mjög þakklát fyrir þá
baráttu sem páfi hefur háð gegn
kommúnismanum og gerði bræðr-
um okkar og systrum, sem var
haldið föngnum bak við járntjaldið,
kleift að sameinast okkur,“ sagði
æðstirabbíninn.
Bar hana þriggja
kílómetra leið
Meðal þeirra sem voru viðstaddir
minningarathöfnina um fórnarlömb
helfararinnar í Yad Vasheim-safn-
inu í gær voru pólskir gyðingar sem
páfi hafði þekkt á sínum yngri ár-
um. Einn þeirra, kona að nafni
Edith Tzirer, sagðist hafa verið 11
ára við lok stríðsins og hefði þá ver-
ið sú eina í sinni fjölskyldu sem enn
var á lífi. Tzirer var fangi í vinnu-
búðum nasista í Skarzysko-Kamm-
ienna og var fársjúk og vart hugað
líf. Hún segir að ungur prestur,
Karol Wojtyla, hafi gefið sér að
borða og drekka og síðan borið sig á
bakinu þriggja kílómetra leið að
lestarstöð, þaðan sem hún komst í
öruggt skjól.
Jóhannes Páll páfi, sem áður bar
nafnið Karol Wojtyla, heilsaði Tzir-
er innilega við athöfnina í Yad Vas-
heim í gær. „Engin orð fá lýst þeim
hryllilega harmleik sem shoah var,“
sagði páfi í ræðu sinni og notaði þar
hebreska heitið á helförinni.
Síðar í gær sat páfi fund með
trúarlegum leiðtogum múslíma og
gyðinga í Jerúsalem. Ætlunin var
að ræða sættir milli trúarhópanna
en deilur um yfirráð yfir Jerúsalem
einkenndu fundinn.
Bæði Palestínumenn og Israelar
líta svo á að Jerúsalem sé höfuð-
borg þeirra. Palestínumenn vilja fá
að stofna höfuðborg væntanlegs
ríkis síns í austurhluta hennar.
Æðsti trúarlegi leiðtogi palest-
ínskra múslíma, æðstimufti Jerús-
alemborgar, Sheikh Ekrima Sabri,
sniðgekk fundinn með gáfa í mót-
mælaskyni við yfirráð Ísralesríkis
yfir borginni.
Norður-írland
Býður sig
fram gegn
Trimble
Belfast. Reuters.
DAVID TRIMBLE, formaður
flokks sambandssinna (UUP) og
oddviti hinnar óvirku heimastjómar
á Norður-írlandi, sagðist í gær vera
vongóður um að miðstjóm UUP
styddi sig áfram til forystu á fundi
sínum næstkomandi laugardag. Um-
mæli Trimbles féllu í tengslum við
ákvörðun eins flokksbróður hans,
Martins Smyths, um að bjóða sig
fram til formanns flokksins á mið-
stjórnarfundinum.
Smyth hefur sagst eiga helmings-
möguleika á að vinna formannsem-
bættið af Trimble en sá síðamefndi
hefur að undanförnu sætt gagnrýni
af hálfu þeirra sem teljast til íhalds-
samari arms flokksins. Ein af ástæð-
um gagnrýninnar er sögð vera vilji
Trimbles til að fallast á að gera
breytingar á heimastjóminni áður
en Irski lýðveldisherinn (IRA) hefur
hafið afvopnun. Tregða IRA til að af-
vopnast var ástæða þess að bresk
stjómvöld leystu heimastjómina
ótímabundið frá völdum í síðasta
mánuði.
Spáð allt að 30% atkvæða
Að sögn The Irish Times lýsti
Trimble í gær undmn og vonbrigð-
um með framboð Smyths en sagði
jafnframt að málið væri í höndum
miðstjómar flokksins. Smyth, sem
hefur setið á breska þinginu fyrir
Belfast í 20 ár og er einnig fyrrver-
andi leiðtogi Óraníureglunnar, bauð
sig fram í formannsslag gegn
Trimble árið 1995 og tapaði. Hann
sagði í gær að framboði sínu væri
ekki stefnt gegn friðarsamkomulag-
inu frá 1998 en að hann væri fulltrúi
fyrir þá meðlimi flokksins sem væm
óánægðir með forystu Trimbles.
Dagblaðið Belfast Telegraph hef-
ur eftir ónefndum heimildum innan
flokks sambandssinna að Smyth geti
hlotið allt að 30% atkvæða þeirra 750
meðlima miðstjórnarinnar sem
koma saman til fundar á laugardag.
Musharraf boðar endur-
reisn lýðræðis í áföngum
íslamabad, Nayla. AFP.
Miðar hægt
í Kosovo
Mitrovica. AP.
FRIÐARGÆSLULIÐAR á vegum
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
reyna enn að stilla til friðar í borg-
inni Mitrovica í Kosovo-héraði milli
albanskra og serbneskra íbúa.
Borginni er skipt f tvo hluta af li'tilli
á sem rennur um hana. Albanar,
sem eru í meirihluta sunnan megin
árinnar, hafa viljað snúa aftur til
hcimila sinna á norðurbakkanum en
hafa ekki þorað það af útta við
árásir Serba. Á sama hátt hafa
Serbar sem áður bjuggu sunnan
megin árinnar ekki talið óhætt að
halda til fyrri heimkynna sinna
vegna hræðslu við viðbrögð
albönsku íbúanna. Á miðvikudag
settu friðargæsluliðar upp „örygg-
issvæði“ á suðurbakkanum til að
auðvelda Serbum að snúa aftur. Lít-
ill árangur hefur orðið af þeirri
framkvæmd.
Ár er nú liðið síðan NATO húf
loftárásir á Serbíu og serbneska
Flutningalest, hlaðin bandarísk-
um herbflum, á leið til Kosovo
frá Makedúníu í gær.
herinn vegna ástandsins í Kosovo.
Vaxandi úánægju gætir mcðal
NATO-ríkja með hversu hægt geng-
ur að koma þar á friði og reglu.
■ Friðurinn ótryggur/29
PERVEZ Musharraf, hershöfðingi
og foringi valdaránsmanna í Pakist-
an, tilkynnti í gær, tveimur dögum
fyrir heimsókn Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta, að efnt yrði til sveitar-
og héraðsstjómarkosninga í landinu
á næsta ári. Hann lofaði einnig að
þeim yrði fylgt eftir með þingkosn-
ingum.
Búist er við að Clinton leggi fast
að Musharraf að endurreisa lýðræði
sem fyrst í landinu. Bandaríkjafor-
seti er væntanlegur í stutta heim-
sókn til Pakistans á morgun eftir
fimm daga ferð um Indland.
Musharraf sagði í gær að lýðræði
yrði komið á í áföngum og fyrst efnt
til sveitarstjómarkosninga, á tíma-
bilinu frá desember til maí á næsta
ári. Yrði því næst kosið til héraðs-
stjóma í júlí. Musharraf var í gær
ómyrkur í máli
þegar hann ræddi
þá gagnrýni sem
vestrænir ráða-
menn hafa sett
fram vegna þess
hversu hægt
þeim þykir hafa
miðað í því að
koma á lýðræði í
Pakistan að nýju.
í kjölfar valda-
ráns hersins síðastliðið haust var
Pakistan vikið úr Breska samveldinu
og landið hefur ekki fengið ný lán hjá
alþjóðlegum fjármálastofnunum.
„Ég geri allt í þágu hagsmuna
þjóðarinnar," sagði Musharraf. „Ég
þarf ekki samþykki neins. Enginn
getur sagt okkur fyrir verkum.“
Hershöfðinginn kvaðst einnig
ætla að stofna sérstaka héraðsdóm-
stóla fyrir konur og lýsti áformum
sínum sem „upphafi að byltingu í
Pakistan". Völd héraðanna yrðu auk-
in á kostnað ríkisins og „yfirstéttar-
innar í íslamabad," eins og hann
komst að orði.
Clinton forseti skoðaði í gær af-
skekkt þorp á Indlandi, Nayla, og
hlýddi á frásagnir kvenna af því
hvemig þær hafa brotist úr sárri fá-
tækt til bjargálna og sigrast á for-
dómum indverskra karlmanna í garð
kvenna.
MORQUNBLAOHB 24. MARS 2000