Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 69 i)
FÓLK í FRÉTTUM
Forvitnilegar vefsídur
Vefsíður á strumpamáli
ALLIR þekkja litlu bláu
skógardýrin sem hafa
einhverja óútskýranlega
leið til fjölgunar þar
sem það er aðeins eitt +
kvendýr í öllu þorpinu. ‘
Þau búa í innréttuðum
sveppahúsum og gera Kjartani
galdrakarli lífið leitt með syk-
ursætum uppátækjum sínum.
Tungumálið sem þeir tala er
mjög sérstakt þar sem orðaforði
þeirra er mun takmarkaðri en
okkar og orðið „strump" hefur
líklega yfir þúsund merkingar.
Þetta hefur líklega valdið þeim
sem tala „strumpatungumálið" í
okkar þjóðfélagi miklum erfið-
Clinton í fé-
lagsskap fila
BILL Clinton Bandaríkjaforseti og
Bina Kak, ferðamálaráðherra Ind-
lands, röltu saman um þorpið Amber
Fort og hittu þar m.a. fyrir nokkra
litskrúðuga ffla en Clinton er i heim-
sókn á Indlandi þessa dagana. Hann
nýtur þess meðal annars að skoða
sig um og kynnast menningu og sið-
um íbúanna. „Það er gaman að vera
umkringdur vinalegum fflum,“ sagði
forsetinn er hann gekk framhjá hin-
um stóru og virðulegu dýrum.
leikum þar sem þeir hafa
þurft að læra nýjan og
óþarflega flókinn orða-
forða. Það er því fagnað-
arefni að benda
„strumpum“ á sérstakan
„strumpa“-þýðingarvef
sem þýðir texta netsíðna yf-
ir á „strumpatungu".
Heimasíðan heitir „The
Incredible Smurfalizer" og hana
er að finna á slóðinni www.-
smurfalizer.com. Notkun síðunnar
er með auðveldasta móti. Þegar
síðan birtist á skjánum sést eyða
sem setja skal inn í slóð þeirrar
heimasíðu sem ætlunin er að fá
þýdda á„strumpamálið“. Sem
dæmi má benda á gagn síðunnar
sem þýðingarvef frétta á Netinu,
því mákynnast með því að slá t.d.
www.mbl.is inn í eyðuna og lesa
allar nýjustu fréttirnar á
„strumpamáli".
Fyrir þá sem ekki hafa
„strumpamálið“ að móðurmáli er
þarna komin þrælskemmtileg af-
þreying og tækifæri til að læra
nýja tungu á mjög þægilegan
máta.
Ekki náðist í Æðsta strumpinn
til að færa honum fagnaðartíðind-
in, en hann er víst staddur í
glæfralegum björgunarleiðangri í
fortíðinni til að ná Strympu úr
klónum á Kjartani galdrakarli þar
sem hann hyggst nota hana til að
framleiða svokallað „strumpate".
^mbl.is
-ALLTAf= G/TTH\SAÐ NÝTT~
svmneu
Síðasta öskrið er alltaf það skelfilegasta...
TRYGGÐU I'HR MIÐA A ’IVÆR MIÐNÆTURSÝNINGAR
í REGNBOGANUM í KVÖLD 0G ANNAD KVÖl.D KL. 24:1
MIÐASALAN OPNAR KL. 16:00
t LEDCFELAG J
REYKJAVÍKUR
www.brassefieborg.com
~ALL.TAT= eiTTHXtAÆ) JMYTT