Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Frumvarp bíður þar til niðurstaða afgreiðslu er ljós GEIR H. Haarde fjármálaráðherra sagði á Alþingi í gær að ástæða þess að ekki væri búið að mæla fyr- ir frumvarpi um breytingar á tekju- og eignarskatti, í samræmi við yfir- lýsingu ríkisstjórnarinnar í tengsl- um við kjarasamninga Flóabanda- lags og Samtaka atvinnulífsins, væri sú að enn væri ekki búið að greiða atkvæði um samningana. Ekki hefði verið talið eðlilegt að af- greiða frumvarpið á Alþingi áður en niðurstaða þeirrar atkvæðagreiðslu lægi fyrir. Jóhanna Sigurðardóttir, þing- maður Samfylkingar, hafði kvatt sér hljóðs um störf þingsins við upphaf þingfundar í gærmorgun og sagði að óvíst væri hvort skattleys- ismörk myndu hækka um næstu mánaðamót eins og að hefði verið stefnt, þar sem ekki væri búið að mæla fyrir frumvarpinu. Ljóst væri að það kæmist ekki á dagskrá á næstunni, enda nefndavika fram- undan á Alþingi en þá eru engir þingfundir. Pví væru engar líkur á að fyrirtæki gætu greitt laun um Nefndavika fer í hönd TVEIR varamenn tóku sæti á Al- þingi í gær en í hönd fer nefndavika á þinginu og kemur það næst sam- an 3. april. Pétur Bjarnason kom inn sem varamaður fyrir Guðjón A. Kristjánsson, þingmann Frjáls- lynda flokksins, og Katrín And- résdóttir fyrir Margréti Frímanns- dóttur, þingmann Samfylkingar. Pétur hefur áður sest á Alþingi en Katrín er nýliði og undirritaði hún drengskaparheit að stjórnarskrá við upphaf þingfundar í gær. ALÞINGI mánaðamót í samræmi við breytt skattalög. Leitaði hún eftir skýr- ingum frá fjármálaráðherra á því hvernig á þessu stæði. Fjármálaráðherra sagði það álitamál hafa komið upp hvort rétt væri að lögfesta frumvarpið, í ljósi þess að niðurstaða atkvæðagreiðslu Flóabandalagsins yrði ekki ljós fyr- ir 1. apríl. „Það er ekki eðlilegt að gera það með þeim hætti,“ sagði hann. „Lögfestingin bíður því nið- urstöðu atkvæðagreiðslu félags- manna Flóabandalagsins, sem sagt þess að það liggi fyrir hvort kjara- samningarnir verði á þeim nótum sem þar er lagt upp með, og sem er auðvitað forsenda þessa frum- varps.“ Geir sagði jafnframt að margir launamenn í Flóabandalaginu fengju laun sín greidd eftir á, þ.e. 1. maí fyrir vinnu í apríl, og því kæmi persónuafsláttur ekki fram fyrr en þá. Gagnvart þeim væri þetta þess vegna ekki vandamál. Mál þeirra sem fá laun sín greidd fyrirfram yrðu afgreidd sérstaklega 1. maí, þ.e. eftir á, og því væri ekki um nein vandamál að ræða hvað þetta varð- aði. Kvaðst Geir hafa gert formanni Eflingar grein fyrir þessari máls- meðferð og hann hefði engar at- hugasemdir gert við hana. Utanríkisráðherra mælir fyrir lagafrumvarpi um stofnun hlutafélags um Flugstöðina Ríkissjóður myndi losna úr 8 milljarða ábyrgðum HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um stofnun hlutafélags um Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem gerir ráð fyrir því að stofnað verði hlutafé- lag í eigu ríkisins sem taki við rekstri Flugstöðvarinnar, rekstui- Fríhafn- arinnar verði sameinaður starfsemi Flugstöðvarinnar og hlutafélagið yf- irtaki eignir og skuldir stofnananna. I framsöguræðu ráðhen-a kom m.a. fram að í lok árs hefði Flugstöðin í fyrsta sinn getað staðið í skilum með vexti og afborganir á lánum en hún var byggð á árunum 1983-1987, og höfðu langtímaskuldir vegna bygg- ingarkostnaðar verið komnar í 4,1 milljarð króna árið 1995 en voru 2,4 milljarðar árið 1988. Því hefði verið gripið til þess ráðs að endurskipu- leggja reksturinn árið 1997. Halldór sagði þá stöðu nú komna upp að nauðsynlegt væri að stækka Flugstöðina enda hefði orðið mikil aukning í flugumferð. Ljóst væri hins vegar að með óbreyttu rekstrarfyrír- komulagi hefði Flugstöðin ekki bol- magn til að greiða niður viðbótar- fjárskuldbindingar vegna stækkunar og þörf væri breytinga. „Með þessu frumvarpi er stefnt að því að skapa forsendur fyrir því að tekjur Flugstöðvarinnar geti staðið undir fjárfestingarkostnaði, rekstri og afborgunum áhvílandi lána,“ sagði Halldór. „Starfsemi Fríhafnar mun verða sameinuð rekstri Flugstöðvar- innar og lagður grunnur að frekari telq'uaukningu af verslunarrekstri í stöðinni. Flugstöðin mun yfirtaka þær skuldir sem rekja má til bygg- ingar stöðvarinnar, sem og ný lán vegna stækkunar. Þannig mun ríkis- sjóður losna úr ábyrgðum sem munu nema nálega 8 milljörðum króna á næsta ári.“ Sagði Halldór ennfremur að þrátt fyrir áætlaðan tekjuauka og samein- ingu Flugstöðvar og Fríhafnar væri gert ráð fyrir að hið nýja fyrirtæki greiddi 1.355 milljónir í ríkissjóð í formi skatta og arðgreiðslna á næstu fimm árum. Nettótekjur ríkissjóðs af verslunarrekstri í Flugstöðinni myndu því einungis dragast saman um 140 milljónir króna á ári að meðal- tali næstu fimm ár. Halldór sagði að hingað til hefði það verið verkefni embættismanna í utanríkisráðuneytinu að finna rekstr- arforsendur fyrir F’lugstöðina. Nú yrði hún hins vegar gerð að hlutafé- lagi með sérstakri stjórn sem byði upp á tækifæri og sveigjanleika í rekstri. Jafnframt yrðu hagsmunir starfsmanna tryggðir og sagði Hall- dór að í tengslum við breytingar á rekstrarformi og stækkun Flug- stöðvarinnar væri gert ráð fyrir að mikill fjöldi nýrra starfa skapaðist, sennilega á milli 100 til 150 störf. Fyrsta skref í átt að einkavæðingu? Sighvatur Björgvinsson, þingmað- ur Samfylkingar, sagði alvarleg mis- tök hafa verið gerð við byggingu Flugstöðvarinnar 1983-1987, mistök sem líklega mætti rekja til pólitískra hagsmuna eins stjómmálaflokks í kjördæminu. Framkvæmd verksins hefði verið í algeru skötulíki, fyrst hefði verið byggt og síðan teiknað. Þann vanda sem nú steðjaði að mætti rekja til þess hvernig þessum undir- búningi hefði verið háttað og taldi Sighvatur því eðlilegt að þegar frek- ari framkvæmdir stæðu fyrir dyrum spyrðu menn um það hvemig mein- ingin væri að standa að málum. Sagði hann Samfylkinguna á hinn bóginn telja að fyrirhugaðar skipulagsbreyt- ingar ætti að skoða með jákvæðum huga. Kom þó fram í máli Sigríðar Jó- | hannesdóttur síðar við umræðuna að hún saknaði haldbærari raka fyrir þessum gjömingi. Ögmundur Jónasson, þingmaðui' Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hélt því fram að með breyt- ingunni væri stefnt að einkavæðingu Flugstöðvarinnar „með manni og mús“, eins og hann komst að orði. Ut- | anríkisráðherra hefði að vísu sagt að § hlutafélagið yrði í eigu ríkisins en | hann hefði hins vegar ekki útilokað | sölu síðar. Taldi Ögmundur þennan heiðarleika Halldórs í öllu falli virð- ingarverðan, sagði að samgönguráð- hema Sjálfstæðisflokksins hefði á sínum tíma neitað því að selja ætti Islandssíma, þótt öllum hefði mátt vera Ijóst að það var markmiðið með hlutafélagavæðingunni. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, sagðist ekki telja að frumvarpið gengi nógu langt. Hann styddi það hins vegar þar sem það væri skref í rétta átt og vonaði hann að ekki liði á löngu þar til ríkið ákvæði að selja Flugstöðina. Einar K. Guð- finnsson, sem sæti á í utanríkismála- nefnd fyrir hönd Sjálfstæðisflokks- ins, vildi ekki ganga jafn langt og flokksbróðir hans en taldi eðlilegt að huga að því viðskiptaumhverfi Flug- stöðvarinnar væri sem heppilegast. Nokkrir þingmenn lýstu við um- ræðuna í gær áhyggjum sínum vegna | stöðu starfsmanna Flugstöðvarinnai' 1 við þær formbreytingar sem stefnt væri að en Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra ítrekaði í seinni ræðu sinni að þeirra réttur yrði tryggður. Sagði hann aðalatriðið það að Flug- stöðin væri í sókn, verið væri að ná utan um fjármálin og formbreyting gæfi ný sóknarfæri við reksturinn. Ný bók Einars Benediktssonar sendiherra um fsland og Evrópuþróunina 1950-2000 Úr fjötrum hafta til „fjórfrelsis“ nútímans ÍSLAND og Evrópuþróunin 1950- 2000 er ný bók eftir Einar Bene- diktsson sendihen-a. Útkomu hennar var fagnað með móttöku í húsakynn- um Verzlunarráðs íslands í Húsi verzlunarinnar síðdegis í gær. Um er að ræða fyrstu heildstæðu frásögnina af þátttöku íslands í við- skipta- og efnahagssamvinnunni í Evrópu frá stríðslokum fram til dagsins í dag. Útgefandi er bókafor- lagið Fjölsýn, en að sögn Einars naut hann við frágang bókarinnar ráð- gjafar þeirra Gylfa Þ. Gíslasonar, fv. ráðherra, Þórhalls Ásgeirssonar, fv. ráðuneytisstjóra, og Jónasar H. Har- alz; fv. bankastjóra. I bókinni setur Einar meðal ann- ars útfærslur fiskveiðilögsögunnar 1952,1958, 1972 og 1976 í samhengi við viðleitni íslendinga til að tryggja frjálsan markaðsaðgang fyrir ís- lenzkar útflutningsafurðir. í samtali við Morgunblaðið segir Einar að ísland hafi á fyrstu áratug- unum eftir lýðveldisstofnunina verið í erfiðri sérstöðu, bæði vegna land- helgismálsins og fyrirkomulags hag- stjómarmála hér á landi. „Við vorum í miklu erfiðari sér- stöðu en nokkurt annað Evrópuland út af þessu sérstaka máli [landhelgis- málinu]; við þurftum að gera það sem varð mesta forgangsmál utanríkis- stefnu hins nýstofnaða íslenzka lýð- veldis árið 1944 - að sjá til þess að þessi mikli erlendi togarafloti eyði- legði ekki lífsafkomu þjóðarinnar," segir Einar. Það hafi ekki verið um neitt að ræða, íslendingar hafi orðið að ná yfirráðum yfir fiskimiðunum. Þeir hafi jafnframt alltaf þurft að reyna að tryggja frjáls utanríkisvið- skipti. Þessi tvö markmið fari ekki saman og hafi því gert sérstöðu okk- ar erfiða. „Það er annað atriði sem menn af minni kynslóð verða að leggja áherzlu á,“ segir Einar; „íslenzkt þjóðfélag, eins og það var þegar þessi samvinna fór af stað, var algjörlega vanbúið til að taka þátt í samvinn- unni. Hér ríkti haftakerfi sem var al- veg einstakt meðal Vestur-Evrópu- þjóða og var hér við lýði frá því í kreppunni og fram til um 1960. Þetta haftahagkerfi gat ekki fallið að við- skiptasamstarfinu heldur.“ Einar segir að meðal stjómmálamanna hér og vafalaust meðal almennings í landinu hafi sú skoðun verið viðtekin, að við gætum ekki tekið þátt í þessu milliríkjasamstarfi vegna þess að „við værum á einhvern hátt svo sér- stakt þjóðfélag að það hentaði okkur ekki að opna hagkerfið". Því hafi farið saman annars vegar hinir hörðu hagsmunaárekstrar við grannríki okkar vegna fiskveiðilög- sögunnar og hins vegar haftastefnan við hagstjómina „og þessi mikla van- trú“ á að virk þátttaka í alþjóðlegri viðskiptasamvinnu hentaði íslenzk- um þjóðarhagsmunum. í lok bókarinnar bendir Einar á þá gerbreytingu sem orðið hefur á ís- lenzku þjóðfélagi á því tímabili sem bókin nær til. „Við lok aldarinnar er- um við virkir þátttakendur í hinu al- þjóðlega hagkerfi. Breytingin frá því sem var í upphafi, hálfri öld fyrr, er algjör." Úr því þröngt sniðna kerfi hafta og vantrúar á ávinninginn af þátttöku í alþjóðlegu viðskiptasam- starfi sé risið þjóðfélag með mjög opnu hagkerfi og vel menntuðu og at- orkusömu fólki, sem horfi fullt bjartsýni fram á veginn í hinu al- þjóðavædda samkeppnisumhverfi nútímans. Gerbreyting á þjóðfélaginu í lokaorðum bókarinnar, undir yf- irskriftinni „Á árþúsundamótum", skrifar Einar: „Það verður fyrst til umhugsunar hversu feikileg breyting hefur orðið á íslensku þjóðfélagi og öllu umhverfi þess á þeirri hálfu öld, sem hér hefur verið til umfjöllunar. Á síðasta ára- tug 20. aldarinnar virðast breyting- amar hafa gengið yfir með enn meiri hraða en áður og er ekki að efa að framkvæmd fjórfrelsis EES-samn- ingsins á sinn þátt í því. Stefna stjómvalda á undanförnum árum hefur verið að létta sem mest af hömlum og höftum til athafna á efna- hagssviðinu og sá var einmitt til- gangurinn með stofnun Evrópska efnahagssvæðisins. Þegar um leið opnaðist til fullnustu aðgangurinn að stærsta markaði heims, gat það varla orðið til annars en jákvæðra áhrifa hjá framtakssamri og vel menntaðri þjóð.“ Það eru fleiri mikilvæg atriði í Morgunblaðið/Árni Sæberg Bókarhöfundur, Einar Benediktsson sendiherra og Þór Sigfússon, full- trúi bókaforlagsins Fjölsýnar, er útgáfu bókarinnar var fagnað í Húsi verzlunarinnar í gær. þessu sambandi sem Einar vekur at- hygli á. „Við sjáum núna, en áttum erfiðara með að átta okkur á því áður fyrr, að Evrópumálin eru í stöðugri þróun - Evrópusambandið er alltaf að ;,dýpka og víkka“,“ segir hann. I lokakafla bókarinnar segir: „Það vakna að sjálfsögðu hinar margvís- legustu spurningar þegar litið er til EES/EFTA og ESB, og sem eðli málsins samkvæmt hljóta að vera til umhugsunar. Hver og einn hefur þar sína skoðun en mér virðist að slíkar vangaveltur gætu verið eitthvað sem hér segir: 1. Er kyrrstaða í Evrópuþróuninni eða hið gagnstæða? Svarið við þeirri spurningu, sem alveg ótvírætt, er að samrunaferlinu er að sjálfsögðu ekki lokið. Það hefur verið mikill misskiln- ingur okkar og reyndar Norðmanna, að halda að á sérhverju stigi sé að lokum komið. Þannig hefur verið litið á EFTA-aðildina og EES-samning- inn. Hvort tveggja eru áfangar og ekki annað og kalla á aðlögun að nýj- um aðstæðum. Sé svo vakna spurn- ingar um það hver staðan geti verið við ýmsar forsendur, t.d.: Hver er staðan ef ísland yrði eitt síns liðs í EFTA/EES? b. Er áhugavert fyrir ísland sem meiri háttar framleiðanda innan bandalagsins að hafa áhrif á hugsan- lega þróun sjávarútvegsstefnu ESB? c. Hver verður afstaðan gagnvart evrunni?" Einar tekur engu að síður fram, að bókin sé ekki ætluð sem „leiðarvísir" um hvaða stefnu væri affarasælast fyrir ísland að taka í Evrópumálun- um á næstu árum. „Ég er ekki að skrifa hvað á að gera. Þetta er ekki bók um það. Les- endum er eftirlátið að draga sínar ályktanir,“ segir Einar að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.