Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 59^
KIRKJUSTARF
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vídalínskirkja
Safnaðarstarf
Arsafmæli
fermingar-
innar
NU eru fermingarbörn fyrra árs, í
Garðaprestakalli, þ.e.a.s. börn fædd
1985, boðuð til kirkjunnar að nýju,
ásamt foreldrum sínum. Þarna
munum við rifja upp og endurnýja
kynnin.
Hér er um árvissan atburð að
ræða til styrkingar fermingarbörn-
unum og fjölskyldum þeirra, á þess-
um fyrstu árum eftir ferminguna.
Dagskrá: Stutt helgistund í
kirkjunni, fulltrúi frá forvarnar-
deild lögreglunnar kemur og fræðir
okkur um ýmislegt, m.a. vímuefni
og vandamál þeim tengd. Umræður
á eftir. Veitingar í boði kirkjunnar.
Happdrætti með glæsilegum vinn-
ingum. Skemmtiatriði frá ferming-
arbörnum.
Það er von okkar að „Ársafmæl-
ið“ megi verða til að styrkja þau
vináttubönd sem bundin voru í
fermingarstarfinu og stuðla að
kynnum milli fermingarbarna og
nýja prestsins, sr. Friðriks J.
Hjartar, svo að þau endist út ævina.
Fermingarbörn mega vita að þau
eiga „hauka í horni“ þar sem kirkj-
an þeirra er.
Hittumst glöð og hress í
kirkjunni og eigum góða samveru.
Hans Markús Hafsteinsson sókn-
arprestur og Friðrik J. Hjartar
prestur, Garðaprestakalli.
1 n\C
lUv JyLf KRISTIN TRÚ í ÞÚSUND ÁR ÁRIÐ 2000
Kirkjugöngur
Á laugardaginn kemur, 25. mars,
verður ellefta kirkjugangan.
Kirkjugöngurnar hófust frá Sel-
tjarnarneskirkju í lok október og
var komið við nánast öllum
kirkjum á leiðinni. Áð var yfir jól og
áramót í Laugarneskirkju, en ferð-
imar hófust aftur þaðan nú um
miðjan febrúar. Síðan þá hefur ver-
ið gengið um Laugarásinn inn í
Langholt og um Grensás að Bú-
staðakirkju, um Grafarvoginn og
Árbæinn og þaðan um Breiðholtið.
Nú á laugardaginn kemur verður
farið frá Seljakirkju, haldið í Breið-
holtskirkju, síðan verður komið við
á Smiðjuveginum hjá fríkirkjunni
Veginum og þaðan haldið í Hjalla-
kirkju. Tvær síðustu göngurnar
verða tvo fyrstu laugardagana í
apríl, en leiðin liggur um Kópavog,
endað verður í Kópavogskirkju 8.
apríl nk. Fólk er hvatt til að kynna
sér auglýsingar í kirkjunum og
koma og taka þátt í gefandi og
fræðandi starfi.
Á morgun verður ganga nr. 11.
Lagt verður af stað frá Umferðar-
miðstöðinni kl. 10 og hefst gangan
við Seljakirkju.
Gönguleiðin verður frá Selja-
kirkju að Breiðholtskirkju, síðan
verður komið við á Smiðjuveginum
hjá fríkirkjunni Veginum og þaðan
haldið í Hjallakirkju. Hreyfing,
fræðsla og bænahald.
Veitingar í boði sóknarnefndar
Hjallakirkju.
Þátttökugjald kr. 500. Frítt fyrir
börn undir 15 ára í fylgd með full-
orðnum.
Hallgrímskirkja. Lestur passíu-
sálma kl. 12.15.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir
alla aldurshópa kl.11-13. Létt
hreyfing, slökun og kristin íhugun.
Kyrrðar- og bænastund í kirkjunni
kl. 12. Orgelleikur, sálmasöngur.
Fyrirbænaefnum má koma til sókn-
arpresta og djákna. Kærleiksmál-
tíð, súpa, salat og brauð eftir helgi-
stundina. Lestur passíusálma kl. 18.
Laugarneskirkja. Mömmumorg-
unn kl. 10. Kaffispjall fyrir mæður,
góð upplifun fyrir börn.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna.
Trú og mannlíf, biblíulestur og
kyrrðarstund.
Fíladelfía. Unglingasamkoma kl.
20.30. Mikill og hress söngur. Allir
hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11 og
á sunnudögum kl. 17 er námskeið í
Daníelsbók. Allir hjartanlega vel-
komnir. Á morgun er Bjarni Sig-
urðsson með prédikun og Steinþór
Þórðarson með biblíufræðslu. Sam-
komunum er útvarpað á FM 107.
Barna- og unglingadeildir á laugar-
dögum. Súpa og brauð eftir sam-
komuna.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 12.30 Litlir lærisveinar, eldri
deild. Kl. 13.15 Litlir lærisveinar,
yngri deild.
Ilofskirkja á Skaga. Kirkjuskóli
kl. 14.
Víkurprestakall í Mýrdal.
Kirkjuskólinn í Mýrdal er með sam-
verur á laugardagsmorgnum kl.
11.15 í Víkurskóla.
Frelsið, kristileg miðstöð. Bæn-
astund kí. 20 og Gen X, frábær
kvöld fyrir unga fólkið, kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á ís-
landi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti:
Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjón-
usta kl. 11.15. Ræðumaður Björgvin
Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista,
Blikabraut 2, Keflavik: Guðsþjón-
usta kl. 10.15. Biblíufræðsla eftir
guðsþjónustu. Ræðumaður Einar
Valgeir Arason.
Safnaðarheimili aðventista,
Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Eric Guðmundsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl.
11.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3,
Hafnarfirði: Guðsþjónusta kl. 11.
Biblíufræðsla að guðsþjónustu lok-
inni. Ræðumaður Kristinn Ólafs-
son.
FRÉTTIR
Yfírlýsing Flóabandalagsins
Verkfallsboðun á fölsk-
um forsendum?
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá Flóabandalaginu, sem
í eru Efling - stéttarfélag, Verka-
lýðs- og sjómannafélag Keflavíkur
og Hlíf. Þar segir m.a. að þær grófu
tilraunir til beinnar íhlutunar í innri
málefni sjálfstæðra stéttarfélaga,
sem Flóabandalagið hafi orðið vitni
að á undanfómum dögum, séu eins-
dæmi í sögu verkalýðshreyfingar-
innar á seinni tímum. Fer yfirlýs-
ingin hér á eftir:
„Undanfarna daga hafa nokkrir
forystumenn úr samninganefnd
Verkamannasambands íslands
túlkað niðurstöður atkvæðagreiðslu
um verkfallsboðun þannig að þar
hafi félagsmenn verið að hafna ný-
gerðum kjarasamningi Flóabanda-
lagsins.
Staðreyndin er hins vegar sú að
kjarasamningurinn hefur hvorki
verið kynntur félagsmönnum né
forystu þeirra aðildarfélaga VMSÍ
sem nú hafa ákveðið að hefja verk-
fall.
Forsenda verkfallsboðunar hlýt-
ur ætíð að vera sú stefna og kröfu-
gerð sem félögin sjálf marka sér
hverju sinni. Skylda umræddra for-
ystumanna er því að kynna fagleg-
ar, félagslegar og efnahagslegar
forsendur krafnanna sem fylgja á
eftir. Það hafa þeir ekki gert. Þeir
geta því ekki fullyrt að þúsundir fé-
lagsmanna hafi verið að kjósa um
samning Flóabandalagsins. Þá hefði
verið hreinlegra að leyfa félags-
mönnunum að kjósa beint um
samning Flóabandalagsins að und-
angenginni ítarlegri kynningu.
Flóabandalagið hefði fúslega get-
að aðstoðað umrædda forystumenn
við að kynna kjarasamning banda-
lagsins sem ítarlegast fyrir öllum
félagsmönnum VMSÍ og Li. Þannig
hefði mátt eyða þeim misskHningi á
innihaldi samningsins sem hefur
komist á kreik. Þá hefði fiskvinnslu-
fólk t.d. fengið staðfest að það eru
lægstu launataxtar í fiskvinnslunni
sem munu hækka um 30% svo að á
samningstímanum verður LAUNA-
TAXTI, sem í dag er 70.000 kr.,
Snjóbretta-
kvöld í Skála-
felli
BRETTAKVÖLD Sprite í Skálafelli
verða á hveiju föstudagskvöldi fram
að páskum, en fyrsta skiptið verður í
kvöld. Á brettakvöldum er svæðið
opnað sérstaklega klukkan átta og
opið til miðnættis, sem er mun lengri
tími en venjulega.
D.J- Kári sér um að halda uppi
fjörinu í fjallinu og starfsmenn Skála-
fells útbúa stökkpalla í tilefni dagsins.
Sérstakt verð á lyftukortum á
Brettakvöldum er 500 kr., en Teitur
Jónasson sér um sætaferðir frá
Reykjavík, Hafnarfirði, Garðabæ,
Kópavogi og Mosfellsbæ. Fargjaldið
fram og til baka er 700 kr.
Netnámskeið
fyrir byrjendur
FÉLAG háskólakvenna stendur fyr-
ir Netnámskeiði fyrir byrjendur
mánudaginn 27. mars og þriðjudag-
inn 28. mars kl. 17-19.30.
Markmið námskeiðsins er að ná til
þeirra sem hafa áhuga á að nýta sér
þá möguleika sem Netið hefur. Farið
verður yfir öll helstu tól og tæki sem
viðkoma Netinu, s.s. uppbygging
Netsins, vefskoðarar, tölvupóstur,
HTML og WAP. Leiðbeinandi er
Björn Hólmþórsson kerfisfræðing-
ur.
Námskeiðið er öllum opið og inn-
ritun og nánari upplýsingar gefur
formaður félagsins, Geirlaug Þor-
valdsdóttir.
kominn upp í 91.000 kr., óháð bón-
us, en sjálfstæð hækkun á álags- og
bónusgreiðslum er 12,71%.
Þessar staðreyndir og margar
fleiri voru ekki birtar fiskvinnslu-
fólki til upplýsingar vegna atkvæða-
greiðslu um verkfallsboðun.
I umræðum síðustu daga hefur
forysta VMSÍ einnig haft uppi
gagnrýni á þær hækkanir á bótum
almannatrygginga sem ákveðnar
voru af ríkisstjórninni. Flóabanda-
lagið telur að þessi þrýstingur
VMSÍ hefði mátt koma til fyrr. í því
sambandi er rétt að rifja upp að á
meðan Flóabandalagið og sambönd
ASÍ lögðu á það áherslu við stjóm-
völd að þau hækkuðu skattleysis-
mörk, drægju úr tekjutengingum
bamabóta og hækkuðu tekjuskerð-
ingarmörk þeirra og bættu og jöfn-
uðu rétt fólks til fæðingarorlofs, sat
formaður VMSÍ ætíð hjá með þeim
orðum að hendur hans væm bundn-
ar af þingsamþykkt VMSÍ um að
sambandið skyldi ekkert ræða við
stjórnvöld. Málið er fyrst tekið upp
nú, þegar Flóabandalagið hefur náð
fram kröfunum á hendur stjórn-
völdum og undirritað kjarasamning.
Að mati Flóabandalagsins er
kjami málsins eftirfarandi:
Þau félög, sem nú hafa boðað
vinnustöðvun eftir 6 daga, mótuðu
sjálf sína stefnu og kröfugerð og
fýlgja henni eftir með þeim hætti
sem þau telja farsælast. Til þess
hafa þau fullan rétt. Flóabandalagið
virðir þann rétt til ákvarðanatöku
og áskilur sér sama rétt.
Félög Flóabandalagsins lögðu
mikla félagslega og faglega vinnu í
sína kröfugerð og náðu henni fram
að mestu leyti. Þar munar mestu
um að hafa mótað þá almennu
launastefnu að sérstök hækkun
lægstu launa njóti forgangs en að
samningurinn verði uppsegjanlegur
ella. Það var fólkið í Flóabandalag-
inu sem mótaði kröfurnar. Nú er
það fólkið sjálft sem metur afrakst;
urinn. Við væntum þess að VMSÍ
virði sjálfsákvörðunarrétt félags-
manna Flóabandalagsins.
Þær grófu tilraunir til beinnarft
íhlutunar í innri málefni sjálfstæðra
stéttarfélaga, sem við höfum orðið
vitni að á undanfömum dögum, era
einsdæmi í sögu verkalýðshreyfing-
arinnar á seinni tímum.“
Árshátíð Hell-
as á laugardag
Grikklandsvinafélagið Hellas
heldur hátíðlegan þjóðhátíðardag
Grikkja með árshátíð laugardag-
inn 25. mars í Borgartúni 12,
efstu hæð og hefst hún með borð-
haldi þar sem boðið verður upp á
hlaðborð með grískum réttum.
Undir borðum og að borðhaldi
loknu verða á boðstólum fjöl-
breytt dagskráratriði. Aðalræðis-
maður Grikkja á íslandi, Garðar
Halldórsson, mun ávarpa sam-
komuna en ræðumaður kvöldsins
verður Þorsteinn Gylfason. Þá
verður þátturinn „Af grískum
grínistum“ í samantekt Helgu
Þórarinsdóttur og Jóhönnu Þrá-
insdóttur og happdrætti í umsjá
fjáröflunarnefndar, þeirra Dóra
Guðmunsdóttur og Guðbjargar
Guðmunsdóttur.
Hljóðfæraleikararnir Ari Agn-
arsson og Kristján Matthíasson
munu leika undir borðum og gefa
einnig veislugestum kost á því að
taka undir í fjöldasöng. Loks
verður stiginn dans með grískum
hætti undir stjórn Helgu Hann-
esdóttur og einnig með almenn-
um hætti fram eftir nóttu.
ililllií
...............
LATTU Þ
LÍÐA
Mjög vönduð sófasett, hornsófar
og sjónvarpsstólar úr gæðaleðri.
Margir litir.
~ *.^
Opnunartími:
virka daga 10:00 -18:00
helgar 10:00 - 15:00
Heildsöhiverð
Einnig til tveggja sæta.
COLONY
Vörur fyrir vandláta
Síðumúla 34
(Homlð á Sfðumúla og Fellsmúla)
Sími 568 7500
863 2317 - 863 2319
tS'
1*1 + 1
Sjón er sögu rlkarl.
■W>-‘
m