Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 58
á8 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Ragnheiður Jónsdóttir fædd- ist að Botni í Dýra- fírði 9.september 1909. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði 19. mars siðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Krist- jana Sigurlínadótt- ir, f. 6. janúar 1882 og Jón Jústsson, f. 28. september 1854. Systkini hennar voru Sigurlína Mar- grét, f. 16. október 1900; Sigríður Jóna, f. 24. októ- ber 1901; Þórður Kristinn, f. 24. júlí 1904; Magnús, f. 9. septem- ber 1909 (tvíburi við Ragnheiði); Sigurlaug, f. 14. febrúar 1914; Ingunn, f. 9. maí 1916; Garðar, f. 28. júní 1917 og Inga Snæbjörg, f. 8. september 1921. Ragnheiður eignaðist soninn Hjalta, f. 29. desember 1932. Faðir hans var Hjalti Hansson, f. 25. júní 1909, d.10. janúar 1998. Þau hófu aldrei sambúð. Hjalti kvæntist í ágúst 1961 Poltru Frederiksen, f. 21. aprfl 1935. Börn þeirra: 1) Ragnar Arnar, f. 9. júní 1962, rafvirki, d. 9. október 1991 og 2) Álfhildur Ósk, raf- virki f. lö.maí 1965. Maki: Anfinn Paul- sen rafvirki. Þau eiga þrjá drengi, Al- bert, Hjalta Ragnar og Jósef og eru búsett í Færeyjum. Um 1940 hófu Ragnheiður og Jón Valgeir Eliesersson, f. 8. maí 1895, d. 19. nóvember 1956, bú- skap í Keflavík, fyrst að Aðal- götu 5 og síðar að Aðalgötu 17 þar sem Ragnheiður bjó þar til í nóvember sl. er hún flutti að hjúkrunarhcimilinu Garðvangi. Synir þeirra eru 1) Marinó Þórður, f. 24. október 1943. Sambýliskona hans var Hrönn Haraldsdóttir, f. 28.ágúst. 1940, d. 31. janúar 1987. 2) Sigurður, f. 12. mars 1946. Hann kvæntist Önnu Skúladóttur, f. 30. október 1948 árið 1972, en þau slitu sam- vistum _ 1982. Börn þeirra: 1) Eirný Ósk, f. 3. maí 1973, fram- kvæmdastjóri búsett í Skotlandi, og 2) Áslaug Dröfn, f. 12. októ- ber 1979, nemi í Reykjavík. Ragnheiður ólst upp í Dýra- firði, fyrst hjá foreldrum sinum, en 12 ára gömul fór hún í skóla á Þingeyri og var þá tekin í fóst- ur af sr. Þórði Ólafssyni prófasti og Maríu Isaksdóttur konu hans á Þingeyri. Hún flutti síðan með þeim til Reykjavíkur þar sem hún starfaði við Laugarnesspít- ala og víðar. Eftir að hún fluttist til Keflavíkur vann hún ýmis fiskvinnslustörf þar til 1954 að hún hóf störf hjá Kaupfélagi Suðurnesja þar sem hún starfaði í 25 ár eða þar til hún varð sjö- tug. Utför Ragnheiðar verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 16. RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR Mig langar að minnast fyrrver- andi tengdamóður minnar í örfáum orðum. Eg kynntist Ragnheiði fyrir tæp- um þrjátíu árum þegar sonur henn- ar, Sigurður, kynnti mig fyrir til- vonandi tengdamóður minni. Eg man að ég hugsaði: „Hvernig getur svona lítil kona átt svona stór- an son?“ En þegar ég kynntist Ragnheiði betur uppgötvaði ég hversu stór hún var. Þarna fór kona, sem lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Hún hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum, og ef henni mislíkaði eitthvað var hún ekkert að skafa utan af því. Hún var vinmörg og fannst mörg- um gott að koma og fá sér kaffisopa við eldhúsgluggann á Aðalgötunni. Þar var margt rætt og oft hlegið dátt. Ragnheiður hélt áfram að vera tengdamóðir mín, þó svo við Sigurð- ur slitum samvistir. Hún hefur ávallt reynst mér mjög vel því það er ekki sjálfgefið að fá að halda áfram að vera hluti af fjölskyldunni eftir skilnað. Hún var amma tveggja dætra minna, sem hún vildi allt fyrir gera. Þegar ég síðar eignaðist Karen Emilíu leit hún á hana sem sitt ömmubam og hefur aldrei gert upp á milli þeirra þriggja. Karen þótti líka ákaflega vænt um ömmu sína í Keflavík. Ragnheiður hafði gaman af að ferðast bæði innan- og utanlands. Hún ferðaðist til Norðurlandanna og Færeyja, þar sem sonur hennar, Hjalti, býr. Nokkrar ferðir fór hún til sólarianda, henni fannst gott að vera í sólinni og kom svo tíl baka kaffibrún og endurnærð. Þegar hún var tæplega sjötug lét hún sig ekki muna um að ferðast alla leið til Afríku. Við Sigurður bjuggum þá í Naíróbí í Kenýa, þar sem hann vann við þróunaraðstoð. Þetta var langt og mikið ferðalag fyrir fullorðna konu með takmark- aða málakunnáttu. Fyrir Ragnheiði var þessi ferð eitt stórt ævintýri. Það var ekki síður ævintýri fyrir mig að upplifa ævintýrið með henni. Hún tók eftir smáatriðum sem mér fannst sjálfsögð. Að eyða jólunum í sumarsól, sitj- andi undir pálmatrjám, borða fram- andi ávexti og nýstárlega rétti. Að skynja lykt og hljóð náttúrunnar, heyra trumbuslátt innfæddra og horfa upp í stjörnubjartan Afríku- himininn. Það er margs að minnast þegar ég hugsa til baka og ég á eftir að sakna hennar og símtalanna okkar, sem stundum gátu orðið nokkuð löng. Þakka þér fyrir að þykja vænt um mig. Blessuð sé minning þín. Anna Skúladóttir. Nú hefur vinkona mín og frænka Ragnheiður Jónsdóttir, eða Ragna, lagt upp í sína hinstu ferð eftir 90 ára lífsleið og mig langar því til að kveðja hana með nokkrum orðum. Ragna fæddist og ólst upp í Dýra- firði í byrjun 19. aldar og var alla tíð mikill Vestfirðingur í mínum huga. Hún hafði þau skapgerðareinkenni sem margir þeirra bera, þ.e. þraut- seigju og ákveðni í bland við húmor og hlýju. Mín fyrstu kynni af Rögnu voru þegar ég kynntist syni hennar Sig- urði um tíu ára aldurinn og fór að venja komur mínar á Aðalgötuna. Þá hafði fjölskyldan nýlega gengið í gegn um þá miklu raun að missa fjölskylduföðurinn, Jón Elíesersson. Var mikið á þau lagt og sérstaklega Rögnu, sem nú hafði ein fyrir fjöl- skyldunni að sjá. Engan bilbug var þó á henni að finna og hún hélt sínu striki. Hún vann af hörku alla tíð, kom sonum sínum til manns og skil- aði sínu hfsstarfi með prýði. Ragna bjó lengst af í sínu húsi að Aðalgötu 17 í Keflavík og þó eflaust væru efnin oft ekki mikil var hún alltaf rík af hjartahlýju og gestrisni. Ein minning sem upp kemur í hug- ann er þar sem við Siggi sitjum við eldhúsborðið að borða klatta beint af pönnunni og drekka kaffi með. Ragna stendur við eldavélina og bakar syngjandi. Milli þess ræðir hún málin við okkur strákana og hggur ekkert á skoðunum sínum enda ákveðin kona með sínar sjálf- stæðu skoðanir. Seinna, þegar leiðir okkar Sigga höfðu legið út í heim og til baka, heimsótti ég hana stundum á efri árum, þó vík væri milli vina, og fékk enn klatta eða pönnukökur og sömu skemmtilegu samræðumar um gang málanna. Þetta eru ljúfar minningar sem ég mun geyma lengi. Síðast liðið haust flutti Ragna á hjúkrunarheimilið Garðvang í Garði og móðir mín stuttu seinna. Þar fór vel um hana og naut hún frábærrar umhyggju og hjúkrunar starfsfólks- ins þar. Þangað heimsótti ég hana nokkrum sinnum og komst að því að létta skapgerðin og lífsáhuginn voru enn á sínum stað, þó líkaminn væri eitthvað farinn að bila. Mig langar að endingu til að þakka Rögnu fyrir samfylgdina og þá tryggð og umhyggju sem hún sýndi mér alla tíð. Fjölskyldunni sendi ég mínar samúðarkveðjur. Páll V. Bjamason. MARGRETP. EINARSDÓTTIR + Margrét P. Einarsdóttir fædd- ist á Þórustöðum í Bitrufirði á Ströndum 2. júní 1909. Hún lést á Hrafnistu í Reykavík 10. mars síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Áskirkju 21. mars. Mig langar til að minnast góðrar konu, Margrétar Einarsdóttiu-. Þegar við Pétur vorum að byrja að búa fengum við leigt á Kambsvegin- um hjá Möggu og Eyþóri, þau jrjuggu þar með þremur sonum sín- um. Þar var gott að vera, okkur leið þar mjög vel þótt plássið væri ekki stórt, það skipti ekki máli í þá daga. Magga reyndist mér mjög góð og hjálpsöm, hún kenndi mér margt sem ég bý að í dag. Ég man þegar við fórum í Þvottalaugamar að þvo þvottinn okkar árin 1953-1955. Ég hafði aldrei komið þar, svo þetta var mikið ævintýri, það voru yndislegir dagar sem ég hefði ekki viljað missa af. Ég minnist Möggu með virðingu. Sendi sonum hennar, Birgi, Þórami, Steinjxiri og fjölskyldum þeirra sam- úðarkveðjur. Svanhildur Óladóttir. UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstofan sér um stóranhluta af útförum á höfuðborgarsvæðinu og er samkvæmt verðkönnun Mbl. með lægstu þjónustugjöldin v. kistulagningar og/eða útfarar. Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sverrir Einarsson útfararstjóri. •ími 896 8242 Sverrir Olsen tfararstjóri. Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is tíalilur Bóbó Vrederiksen útfararstjóri. ími 895 9199 ELISABET SÓLVEIG HARÐARDÓTTIR + Eh'sabet Sólveig Hai'ðardóttir fæddist í Bay Shore á Long Island í Banda- ríkjunum hinn 6. nóv- ember 1950. Hún lést á deild A-5 á Sjúkra- húsi Reykjavíkur hinn 17. mars síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Hörður Gunnarsson frá Þver- árdal í A-Hún, f. 13.1. 1915, d. 26.5.1985, og Katheryn Roberta Catlin, f. 2.8. 1923, d. 8.4. 1985. Systkini Sólveigar vom: Ámi Haukur Gunnarsson, samfeðra, f. 1.1. 1937, Gunnar Birgir Gunnarsson, f. 28.2. 1945, Virginia Lóa Gunn- arsson, f. 20.3. 1946, William Reynir Gunnarsson, f. 28.11. 1948, og Ellen Brynja Thorsteinsson, f. 28.2. 1952. Þau era öll búsett í Bandaríkjunum. Bamsfaðir Sólveigar var André Muhammed Kadmiri, f. 10.5.1947. Bam þeirra er Katrín María And- résdóttir, svæðisfúlltrúi Rauða krossins á Norðurlandi, f. 28.12. 1968. Eiginmaður hennar er Rún- ar Gíslason, bifreiðarstjóri. Sonur Katrínar og Rúnars er Matthías Rúnarsson, f. 28.10. 1999. Eiginmaður Sól- veigar var Siguijón Tobíasson, f. 8.12. 1944. Þau skildu. Börn þeirra eru Jó- hanna Friðbjörg Sig- urjónsdóttir lífefna- fræðingur, f. 1.5. 1972, sambýlismað- ur hennar er Magnús Gunnarsson húsa- málari, f. 27.9. 1969, og Elfa Björk Sigur- jónsdóttir, f. 5.6. 1975. Sonur þeirra var andvana fæddur 22.7.1973. Sólveig var búsett í Bandaríkj- unum til tíu ára aldurs en fluttist þá til Islands með (jölskyldu sinni og næstu tíu árin bjuggu þau í Reykjavík og nágrenni. Hún fór í Húsmæðraskólann á Löngumýri í Skagafirði veturinn 1969-70. Þann vetur kynntist hún eiginmanni sín- um og bjuggu þau í Geldingaholti í Skagafirði. Hún fluttist aftur til Reykjavíkur 1984 og hefur búið þar síðan. Hún vann meðal annars verslunar- og skrifstofustörf. Utför Sólveigar fer fram frá Háteigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30 Elsku Sólveig. Það tekur mig sárt að kveðja þig en það er jú allt- af sárt að kveðja þann sem manni þykir vænt um, en allar þær fjöl- mörgu góðu minningar sem ég á um þig munu hjálpa mér að komast í gegnum sorgina. Þegar ég flutti norður með mömmu minni þá var mér strax tekið vel á heimili þínu og var algjör heimalningur hjá þér og eftir að þú fluttir suður þá var það eins, það var alltaf gott að koma í heimsókn til þín hvort sem það var í Lynghaganum eða Stór- holtinu og rabba við þig um allt og ekkert. Ég man líka eftir því að eftir að þú varst flutt suður beið ég alltaf spennt eftir að þú kæmir næst í heimsókn norður og var allt- af tilbúin með lítinn pakka handa þér nema í eitt skipti, þá vissi ég ekki að þú værir að koma fyrr en mamma sagði við mig: „Ætlarðu ekki að hlaupa uppeftir og kíkja á Sólveigu?" Og ég sagði að ég gæti ekki farið strax því ég væri ekki með neinn pakka tilbúinn. Þá sagði mamma að þú þyrftir ekki pakka en það fannst mér ekki ganga svo ég tók gula drykkjarkönnu sem ég átti og gaf þér og mér þótti svo vænt um hvað þú hélst upp á hana þó svo að með tímanum upplitaðist kannan og handfangið brotnaði af. Þegar veikindin þín komu upp fyrst var ég stödd ásamt yngstu dóttur þinni í Bandaríkjunum sem au pair og ég man að ég talaði við þig í símann og man að þú sagðir: „Æ, þú veist að Sólveig þarf alltaf að vera öðruvísi en aðrir og fékk krabbamein í eyrað en ekki bara í litlu tá sem ég hefði bara látið skera af.“ Mér fannst erfitt að vita hve oft þér leið illa í veikindum þínum sem voru mikil og erfið en mér finnst það heldur ekki sanngjarnt að þurfa aðsætta mig við að þú hafir verið tekin frá okkur og hafa bara minninguna um þig en geta ekki farið og kíkt í heimsókn til þín en allar góðu minnigarnar munu vafa- laust hjálpa mér í gegnum sorgina. Síðast þegar ég hitti þig varstu að hitta Ella kærasta minn í fyrsta sinn og ég man að þú sagðir: „Hugsaðu nú vel um Lullu mína.“ Það lýsir einmitt persónuleika þín- um best, þú hugsaðir vel til allra og fylgdist líka með að aðrir gerðu það. Að lokum vil ég þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman og alla þá tryggð og vináttu sem þú gafst mér. Elsku Elfa, Hanna, Maggi, Kata, Rúnar, Matthías og aðrir aðstand- endur, ykkur sendum við Elli okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja ykkur í þessari sorg. Þín Sigurlaug Dóra. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar em birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali em nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.