Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 56
98 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fóst-
urfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRGVIN LÚTHERSSON
fyrrv. stöðvarstjóri
Pósts og síma í Keflavík,
Básbryggju 51,
Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 22. mars.
Bogga Sigfúsdóttir,
Eydís Rebekka Björgvinsdóttir, Þröstur Ólafsson,
Rikharð Björgvinsson,
Björgvin Björgvinsson,
Sigurður Lúther Björgvinsson,
Steinar Björgvinsson,
Sólrún Björk Björgvinsdóttir,
Ásta Björgvinsdóttir,
Anna Björgvinsdóttir,
Auðunn Þór Almarsson,
Gunnar Steinn Almarsson,
Sigurður S. Almarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kristín Hjartardóttir,
Kristín Marja Baldursdóttir,
Hrafnhildur Gísladóttir,
Kristín Rover,
Michael L. Hunt,
Páll Heiðar Jónsson,
Halldór Þorsteinsson,
Þórey Eyjólfsdóttir,
Kristín Stefánsdóttir,
t
Dóttir mín og systir okkar,
JENSÍNA SIGRÍÐUR FRIÐJÓNSDÓTTIR,
(Stella),
lést á Kópavogshæli miðvikudaginn 8. mars sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Gunnvör S. Gísladóttir,
Friðjón B. Friðjónsson, Jón Svavar Friðjónsson,
Gísli Jens Friðjónsson, Jórunn Friðjónsdóttir.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN VALFRÍÐUR ODDSDÓTTIR,
Sælingsdal,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðumesja að kvöldi miðvikudagsins 22. mars.
Börn, tengdabörn
og barnabörn.
Okkar ástkæra
LOVÍSA SIGURGEIRSDÓTTIR
frá Hrísey,
verður jarðsungin frá Hríseyjarkirkju laugar-
daginn 25. mars kl. 13.30.
Börn, tengdabörn
og ömmuböm hinnar látnu.
t
Jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
STEINUNNAR GISSURARDÓTTUR,
Naustahlein 9,
Garðabæ,
fer fram frá Fossvogskapellu laugardaginn
25. mars kl. 10.30.
Jarðsett verður að Skarði í Landsveit sama
dag kl. 15.00.
Jón Guðmundsson, Marinella R. Haraldsdóttir,
Þórir Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur hlý-
hug og samúð við andlát og útför
SVANHVÍTAR STEFÁNSDÓTTUR,
Nýbýlavegi 62,
Kópavogi.
Þökkum starfsfólki á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð fyrir góða umönnun.
Jakob Jónatansson,
Stefán Jónatansson, Ása Benediktsdóttir,
Sigrún Finnjónsdóttir, Ásgeir Sigurðsson,
Þorleifur Á. Finnjónsson, María A. Finnjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
MARSHALL B.
COYNE
+ Marshall B.
Coyne, mikill at-
hafnamaður í Wash-
ington og Islandsvin-
ur en best þekktur
fyrir eign sína, Mad-
ison-hótelið, lést á
heimili sínu í Wash-
ington 16. mars síð-
astliðinn, 89 ára að
aldri. Hann fæddist í
New York, en fluttist
til Washington á 5.
áratugnum.
Marshall var tví-
kvæntur, en báðar
dætur hans af fyrra
hjónabandi voru látnar. Afkom-
endur hans eru firnm barnabörn
hans og eitt barnabamabarn.
Útför Marshall B. Coyne fer
fram í Washington í dag.
Þær fréttir hafa borist að hinn 16.
mars hafi mikill íslandsvinur,
Marshall B.Coyne, látist í hárri elli á
heimili sínu í Washington D.C. Þær
leiðu fregnir komu undirrituðum og
ýmsum vinum hans hér þó ekki alveg
á óvart. Marshall hafði orðið fyrir því
slysi að beinbrotna illa fyrir nokkru
og hafði hann legið rúmfastur síðan.
Hann lést á sínu fagra heimili við
Massachusetts Avenue með fjöl-
skyldufólk sér við hlið og verður
jarðsettur föstudaginn 24. mars.
Af ferli Marshall á athafnasviði
kann ég það að segja að hann mun
hafa gerst umsvifamikill verktaki í
Bandaríkjunum í heimsstyrjöldinni.
Að stríðinu loknu fékkst hann mikið
við byggingar stórhýsa í höfuðborg-
inni. Þar reisti hann, átti og rak um
áratugaskeið hið glæsilega hótel The
Madison, sem nú er reyndar eina
stórgistihúsið þar í einkaeign. Af
miklum eignum hans var þetta hótel
hið mesta yndi eigandans. Hann
stundaði söfnun listmuna sem mjög
prýddu The Madison. Heimili hans
var og í leiðinni listasafn en þar var
einnig mjög merkilegt safn fágætra
bóka. Marshall var vinur valda-
manna í heimalandinu og víða um
heim en flikaði lítt þeim tengslum.
Að honum látnum var það haft eftir
Ted Stevens, öldungar-
deildarþingmanni frá
Alaska, að Marshall
Coyne hefði verið sá
besti vinur sem stjóm-
málamaður í Washing-
ton gat átt. Ekki vill
undirritaður draga það
í efa en hann telur, að
ekki hafi það síður átt
við um erlenda sendi-
herra í Washington.
Atvikin höguðu því
svo, að skömmu eftir
komu mína sem sendi-
herra í Washington,
fóru sendiherrahjónin
Parker og Anna Borg til starfs til
Reykjavíkur. Við Elsa kona mín
héldum þeim hádegisverð í kveðju-
skyni en meðal gesta var Marshall,
sem ég vissi að átti til vina að sækja á
íslandi. Við þetta tækifæri upplýst-
ist að hann hefði verið við laxveiðar
heima frá því um 1970 og það á
hverju sumri í ýmsum helstu veiðiám
landsins. Og þó rétt sé að gæta hátt-
vísi hans sjálfs um vinatengsl verður
ekki hjá því komist að nefna úr hópi
vina hans hér þau Vigdísi Finnboga-
dóttur og Steingrím Hermannsson.
Þegar Marshall var á níræðisaldri
í sendiherratíð minni í Washington
var lát beggja dætra hans á þrem ár-
um af krabbameini honum þungbært
og lét hann þá af sumarferðum sín-
um til íslands um skeið. Tvö síðast-
liðin sumur var hann hér aftur. Var
ánægja hans að vera hér á landi mik-
il og augljós.
Með okkur Marshall Coyne tókst
góður kunningsskapur frá því fýrsta
og síðan vinátta og skal hið beina til-
efni nánar skýrt. Við blasti að finna
þyrfti hentugra skrifstofuhúsnæði
fyrir sendiráðið í Washington. Við
Jón Egill Egilsson, nú sendiherra í
Moskvu en þá varamaður sendiherra
þar vestra, hófum mikla húsnæðis-
leit sem ekki virtist ætla að bera
árangur. Eftir eina þrjá mánuði
höfðu margir tugir möguleika verið
skoðaðir en ekki virtist geta gengið
upp að við aðgengilegri leigu færi í
senn saman rétt staðsetning, góð að-
koma og útsýni með bílastæði í lagi.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins
í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli
að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða
2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
GUÐMUNDAR H. INGÓLFSSONAR
sveitarstjóra
í Reykhólahreppí,
sem lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnu-
daginn 19. mars sl., fer fram frá ísafjarðar-
kirkju laugardaginn 25. mars kl. 14.00.
Jarðsett verður í Hnífsdalskirkjugarði.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður minnar, tengda-
móður og ömmu,
ÁSTU TÓMASDÓTTUR,
Hvassaleiti 56,
Reykjavík.
Gísli Gíslason, Sigrún Halldórsdóttir,
Ásta Gísladóttir,
Halldór Hrafn Gíslason, Jóhanna Ýr Jónsdóttir,
Heba Sigríður Kolbeinsdóttir.
Þá var það morgun einn að ég minnt-
ist þess að eitthvað hefðu þessi mál
sendiráðsins borið á góma í fyrr-
greindum hádegisverði fyrir Borg-
hjónin og hafði þá einn gestanna
sagt: „Svona nokkuð getur þú nú
leyst, Marshall." Við eftirgrennslan
kom í ljós að gegnt Madison hótelinu
var 15 hæða skrifstofubygging í eigu
Marshalls, sem ég að sjálfsögðu vissi
ekkert um. Einnig var mér tjáð að í
þessari svo mjög eftirsóttu byggingu
var að losna pláss á efstu hæðinni
með hinu besta útsýni. Inngangur
var hinn veglegasti, aðkoma á hæð-
inni ágæt, bílageymsla fyrir hendi og
þetta svo á hinum ákjósanlegasta
stað! Þegar ákveðið var að semja um
langtíma leigu bauð Marshall mjög
hagstæð kjör. Vestra tekur húsráð-
andi þátt í endurinnréttingu svo sem
nauðsynlegt er. Einnig hvað þetta
snerti fengum við ágæta úrlausn því
Marshall Coyne var í raun jafn
áhugasamur og við um að koma í
framkvæmd þeirri stórmerkilegu,
listrænu sköpun arkitektsins Guð-
mundar Jónssonar sem þama varð
að veruleika.
Nú eru framundan í Washington á
þessu ári merkir íslenskir menning-
arviðburðir í tilefni árþúsundamóta
og 1000 ára afmælis landafundar
Leifs Eiríkssonar. Enginn staðar-
manna fagnaði mér vitanlega þeim
fyrirætlunum jafn innilega og þessi
nýlátni vinur Islendinga. Alls staðar
bar hann okkur vel söguna og minnti
sína mörgu vini á íslensk hagsmuna-
mál, sem hann gerði sér far um að
kynnast vel. Það er því skarð fyrir
skildi þar sem nú er allur þessi ágæti
vinur lands okkar og þjóðar.
Góðs vinar í starfi mínu í Washing-
ton minnist ég með þakklæti og virð-
ingu. Blessuð sé minning Marshall
B. Coyne.
Einar Benediktsson.
Marshall B. Coyne lést á heimili
sínu í Washington D.C. 16. mars síð-
astliðinn, tæplega níræður að aldri.
Marshall tengdist íslendingum á
ýmsan þann máta sem verðugt er að
minnast. Hér mun ég aðeins nefna
atriði, þar sem ég átti nokkurn hlut
aðmáli.
Marshall kom til laxveiða á Islandi
í fjölmörg ár. Þannig kynntumst við
hjónin Marshall fyrst. Ur því varð
góð vinátta. Upp frá því höfum við
ætíð gist á The Madison, glæsihóteli
hans í Washington. Þar gerði hann
íslendingum kleift að búa með sér-
stökum kjörum.
Marshall reyndist íslendingum
ákaflega vel. Naut í því sambandi
ekki síst góðra tengsla hans við ráða-
menn og stofnanir í Washington.
Þegar ég á vegum Seðlabanka ís-
lands vann að því að fá Bandaríkja-
menn til að gefa út samhliða okkur
minnispening um Leif Eiríksson
nefndi ég það við Marshall. Hann
vildi veita því máli lið og bauð til fjöl-
menns kvöldverðar á sínu glæsilega
heimili. Þarna voru ýmsir áhrifa-
menn úr stjómsýslunni í Washing-
ton. í ávarpi sem hann flutti þar,
minntist hann þess að faðir minn
hefði neitað Þjóðveijum um lending-
arrétt árið 1937 og fullyrti að sagan
hefði orðið önnur ef Þjóðveijar hefðu
ráðið Islandi. Bandaríkjamenn,
sagði hann, stæðu því í stórri þakk-
arskuld við íslendinga. Marshall
minntist þessa iðulega, meðal annars
á heimili okkar þar sem hann var
gestur sumarið 1998. Þótti mér hann
með því vilja undirstrika þann vilja
sinn að endurgjalda íslendingum
þótt í litlu væri þá örlagaríku gerð.
Marshall sat í stjómum margra
merkra stofnana, meðal annars þess
þekkta háskóla, Georgetown Uni-
versity. Hann styrkti íslenska náms-
menn til framhaldsnáms þar. Eg
kynntist því, hve mikla áherslu hann
lagði á að styrkþegar væm ekki að-
eins frábærir námsmenn heldur í
einu og öllu landi sínu til sóma.
Með fráfalli Marshall B. Coyne er
skarð fyrir skildi í Washington D.C.
Við íslendingar eigum ekki lengur
þar þann hauk í homi sem Marshall
var. Með þessum fáu orðum þakka
ég þann velvilja sem Marshall ætíð
sýndi íslandi og íslendingum. Við
hjónin vottum fjölskyldu Marshall
innilega samúð.
Steingrímur Hermannsson.