Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 24.03.2000, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐW, KRINGLUNNU, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Hafa orðið að fella , niður 268 ferðir FRÁ ÞVI í janúarbyrjun á þessu ári hafa 268 flugferðir verið felldar niður í innanlandsflugi Flugfélags Islands, en á sama tíma í fyrra varð að fella niður 158 ferðir. Atli Vivás stöðvarstjóri segir að í 90% tilvika sé veðrinu um að kenna. Félagið flýgur nærri 30 ferðir á dag frá Reykjavík til áfangastaða sinna. Átli segir að rysjótt veður undan- farnar vikur og mánuði hafi gert það að verkum að oft hafi orðið að fella niður ferðir og í mun meiri mæli en á sama tíma í fyrra. Hann *.-^egir að ófærð að morgni dags geti ^íðan sett áætlun félagsins úr skorðum langt fram eftir degi og því náist stundum ekki að fara allar ferðir sem áætlaðar séu. Aðrar or- sakir fyrir því að felldar eru niður ferðir segir hann helst vera bilanir, en þær séu þó fátíðar. Stöðvarstjórinn segir að þrátt fyrir þetta sé ljósi punkturinn sá að félagið fljúgi fleiri en eina ferð til margra áfangastaðanna og því falli samgöngur við staðina ekki endi- iega niður með öllu þótt ein ferð sé ÁJWfelld niður. Ljósmynd/Hallgrímur Óli Flugleiðavél í næratviki á Kennedy-flugvelli í fyrra Flugturni og flutn- ingaþotu kennt um Björgun- aræfíng í sólarhring EIN viðamesta björgunaræf- ing sem íslenskar björgunar- sveitir hafa staðið fyrir hefst í kvöld, föstudagskvöld, í Reykjavík og nágrenni og stendur sleitulaust yfir í sólar- jp , hring. Æfingin er landsæfing Slysavarnafélagsins Lands- bjargar og jafnframt fyrsta landsæfing hinna nýju sam- taka. Verkefnin sem björgunar- menn þurfa að leysa eru fjöl- breytt, s.s. aðkoma að stór- slysum, rústabjörgun eftir jarðskjálfta, fjallaverkefni og reykköfun. Um 750 þátttakendur Æfingin hefst klukkan 20 í kvöld með 100 manna stórslysi í skólaskipinu Sæbjörgu í Reykjavíkurhöfn og lýkur með flugslysaæfingu í Óskjuhlíð seinnipartinn á laugardaginn þar sem reiknað er með 200 „slösuðum" og 3-400 manna björgunarliði. Áætlaður fjöldi þátttakenda, sjúklinga og skipuleggjenda, er 750 manns. ÁSTÆÐU þess, að litlu munaði að Flugleiðavél í flugtaki á Kennedy- flugvelli í Bandaríkjunum rækist á flutningavél Air France í júní í fyrra, má rekja til samskipta flutn- ingavélarinnar og flugturns. Alvöru atviksins má merkja af því, að það er eitt fjögurra slíkra sem formaður Öryggisráðs samgöngumála benti sérstaklega á í skýrslu sinni fyrir undirnefnd samgöngumálanefndar bandaríska fulltrúaþingsins sl. mið- vikudag. í skýrslunni kemur fram, að rannsókn málsins er ekki enn að fullu lokið. Morgunblaðið skýrði frá atvikinu sl. sumar. Sunnudagskvöldið 27. júní ók flutningavél Air France í veg fyrir Flugleiðavél í flugtaki á Kennedy-flugvelli í New York. í skýrslu Jim Hall, formanns Örygg- isráðs samgöngumála, National Transportation Safety Board, fyrir bandarísku þingnefndinni kemur fram, að 322 nándaratvik urðu á flugbrautum bandarískra flugvalla á síðasta ári. Aukningin frá 1993 er 71% og ef miðað er við atvik á hverj- ar 100 þúsund hreyfingar á flugvöll- um er aukningin 56% frá 1993. Hall lagði áherslu á það við þingnefndina að brýnt væri að huga að öryggis- þáttum varðandi flugstjóm á flug- völlum. Þá kom fram í máli for- mannsins að Öryggisráðið væri að rannsaka fjölda tilvika, en hann til- greindi sérstaklega fjögur þeirra í skýrslu sinni. Þar á meðal var atvik- ið með Flugleiðavélinni. Sáu stélið undir Flugleiðavélinni í skýrslunni, og í lýsingu á heima- síðu Óryggisráðs samgöngumála, segir að atvikið hafi orðið kl. 21.49 að staðartíma. Boeing 747-flutn- ingavél í eigu Air France lenti á vellinum og fékk þá fyrirskipun frá flugturni að aka eftir flugbraut, en bíða áður en kæmi að flugbraut 22R. Á þeirri braut var Boeing 757- vél Flugleiða, flug 614, um það bil að taka á loft. Flugmenn flutninga- vélarinnar endurtóku fyrirmælin, en með þeirri breytingu að þeir töldu sig ekki eiga að bíða við flug- braut 22R. Flugturn tók ekki eftir þessu orðalagi flugmannanna, sem óku vél sinni þvert fyrir stefnu Flugleiðavélarinnar. Flugmenn Flugleiðavélarinnar hófu hana á loft með eðlilegum hætti, en sáu stél flutningavélarinnar þegar þeir flugu yfir hana og skildu um 30 metrar vélamar að. Sex manna áhöfn og 185 farþegar vom um borð í Flug- leiðavélinni og þriggja manna áhöfn og tveir farþegar í flutningavélinni. Fram- skriði Dyngju- jökuls að ljúka MESTI krafturinn virðist vera úr framskriði Dyngjujökuls. Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur hjá Orkustofnun, segir að jökullinn sé víða kominn yfir jökulgarðana frá síðasta jökulskriði, sem var 1977- 1978, en víða sjáist þó í garðana. Oddur segir að enn sé hreyfing á jöklinum en ýmislegt bendi til þess að framskriði hans sé að ljúka. Jökullinn hefur ekki verið mældur en Oddur telur að hann hafi skriðið fram um rúman kíló- metra. Dyngjujökull er allur sundur- tættur og verður ófær öllum far- artækjum næstu árin. Hópur jeppamanna var á ferð við jökul- inn þegar þessi mynd var tekin. í austri sést Snæfell. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins Vona að fleiri fyrirtæki fylgi fordæmi Baugs „MÉR finnst þetta mjög gott framtak hjá fyrirtækinu," sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um þá stefnu Baugs hf. að stuðla að verð- lækkunum í verslunum fyrirtækis- ins. „Mér finnst gaman að sjá að þeir vísa í nýgerðan kjarasamning við Flóabandalagið og markmið ríkisstjórnar og samningsaðila um minnkandi verðbólgu. Það er, eins og komið hefur fram, grundvallar- forsenda fyrir því að samningar takist til langs tíma í samfélaginu á skynsamlegum nótum og að stöðugleiki haldist í efnahagslífinu að menn hafi trú á að við getum náð fullum tökum á verðbólgunni. Þegar allt kemur til alls snýst þetta um trú allra á því að hægt sé að ná slíkum markmiðum og að neytendur séu vel á verði. Ég vona að fleiri fyrirtæki eigi eftir að fylgja fordæmi' Baugs og marka sér skýra stefnu og eiga þannig þátt í að stuðla að minnkandi verð- bólgu.“ ■ Álagning/39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.