Morgunblaðið - 24.03.2000, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Veruleg fjölgun verslana Baugs-samstæðunnar fyrirhufflið á komandi árum
Helsti vaxtarbroddur-
inn á Norðurlöndum
BAUGUR hf. hyggur á verulega
uppbyggingu verslana erlendis á
komandi árum auk opnunar fleiri
stórverslana hér á landi, og gera
áætlanir ráð fyrir að vörusala fé-
lagsins vaxi úr 25 milljörðum króna
á þessu ári í 36 milljarða árið 2002.
I máli Hreins Loftssonar, stjórn-
arformanns Baugs hf., á aðalfundi
félagsins, sem haldinn var í gær,
kom fram að síðastliðið ár ein-
kenndist af miklu uppbyggingar-
starfi fyrirtækja innan Baugs-sam-
stæðunnar. A árinu bættist 10-11
verslunarkeðjan við þær verslunar-
keðjur sem fyrir voru, þ.e. Hag-
kaup, Nýkaup, Bónus og Hrað-
kaup. Einnig bættist verslunin
Útilíf í hópinn og hafin var sókn á
erlendum mörkuðum með kaupum
Baugs á 50% hlut í SMS-verslunar-
fyrirtækinu í Færeyjum, fjárfest-
ingu upp á 50% hlut í Bonus Dollar
Stores í Bandaríkjunum og sam-
starfssamningi um stofnun og
rekstur Debenhams, Top-Shop og
Arcadia á Norðurlöndum. Fyrsta
Top-Shop-verslunin hefur þegar
verið opnuð í Reykjavík, og önnur
verður opnuð í Stokkhólmi á næst-
unni. Þá er Baugur þátttakandi í
nýrri verslunarmiðstöð í Smáralind
í Kópavogi, en þar mun Baugur
reka tvær mjög stórar verslanir,
annars vegar undir merkjum Hag-
kaups og hins vegar undir merkj-
um Debenhams. Ari eftir opnun
Debenhams í Smáralind mun
Baugur opna aðra slíka verslun í
miðborg Stokkhólms og á árunum
þar á eftir munu fylgja Deben-
hams-verslanir í öðrum höfuðborg-
um Norðurianda.
Að auki rekur Baugur umfangs-
mikla innflutnings- og heildverslun,
Aðfóng, sem Hreinn sagði í raun
vera undirstöðu hins umfangsmikla
verslunarreksturs fyrirtækisins. Þá
sinnir Baugur verslun með sérvöru
í sífellt auknum mæli og er m.a.
Morgunblaðiö/Sverrir
Frá aðalfundi Baugs hf. sem haldinn var í gær.
stærsti hluthafinn í gleraugna-
versluninni Augunum okkar og
lyfjaversluninni Apótekum.
„Ekki hefur farið hjá því að
verkir hafi fylgt svo miklum og
hröðum vexti, svo ekki sé minnst á
þau stórhuga áform, sem kynnt
hafa verið opinberlega um frekari
uppbyggingu fyrirtækisins. Baugur
er aðeins tveggja ára gamalt fyrir-
tæki og aðiens tæpt ár síðan hluta-
bréf þess voru sett á almennan
markað. Fyrirtækið hefur gengið í
gegnum tímabil mjög mikillar
gagnrýni og ásakana um að standa
fyrir samþjöppun vaids og fjár-
magns, sem bitnar á neytendum.
Þessi gagnrýni er skiljanleg og
óumflýjanleg vegna aukinna um-
svifa fyrirtækisins, jafnvel þó að
hún hafi ekki alltaf verið jafn yfir-
veguð og æskilegt hefði verið.
Óvægin gagnrýni hefur eigi að síð-
ur skerpt skilning stjómenda á að-
stæðum á markaði og í þjóðfélag-
inu í heild og mótað afstöðu þeirra
til nýrra og breyttra áherslna í
rekstrinum. Að því leytinu hefur
hún verið gagnleg," sagði Hreinn.
Baugur Svíþjóð á markað
í lok ársins
Heildartekjur Baugs á árinu
1999 námu 24,6 milljörðum króna
sem er um 32% aukning frá árinu
áður. Stór hluti teknanna er vegna
kaupanna á 10-11 verslunarkeðj-
unni og Lyfjabúðum hf. Hagnaður
Baugs í fyrra nam 645 milljónum
króna en var 401,5 milljónir króna
árið 1998.
í máli Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar, forstjóra Baugs, á aðalfund-
inum kom m.a. fram að á þessu ári
er gert ráð fyrir að vörusala fyrir-
tækisins nemi 27 milljörðum króna,
en hún vaxi í 30 milljarða árið 2001
og 36 milljarða árið 2002.
Jón Ásgeir sagði að stærsta
verkefni Baugs hf. til framtíðar og
Aðalfundur
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis
Aðalfundur Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður haldinn á Hótel Loftleiðum,
Þingsölum 1-4, kl. 16:30, í dag.
Dagskrá:
* Skýrsla stjórnar um starfsemi sparisjóðsins á árinu 1999.
* Lagður fram til staðfestingar endurskoðaður ársreikningur sparisjóðsins fyrir árið 1999
ásamt tillögu um ráðstöfun tekjuafgangs fyrir liðið starfsár.
* Kosning stjórnar.
* Kosning endurskoðanda.
* Tillaga um ársarð af stofnfé.
* Tillaga um þóknun stjórnar.
* Tillaga um breytingu á 4. gr. samþykkta sparisjóðsins.
* Önnur mál.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað í fundarbyrjun.
Stjórn
Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis
*
mesti vaxtarbroddur fyrirtækisins
væri verkefnið á Norðurlöndum í
samvinnu við Arcadia og Deben-
hams.
„Þetta verkefni hljómar mjög
stórt í okkar eyrum sem störfum á
þessum litla markaði, en Bretarnir
hafa hrifist af verkum okkar og
hvernig við vinnum sérvöruna og
eftir kynni þeirra af okkur fengum
við rétt til að opna undir þeirra
merkjum á þessum mörkuðum.
Þeim finnst þessir markaðir smáir,
en við sjáum þarna tækifæri til að
reka þessar verslanir, auk þess
sem við höfum ákveðinn grunn í
sérvöruþekkingunni í Hagkaup
sem nýtist í það vöruval sem við
getum ekki fengið frá þessum
verslunarkeðjum og þurfum að
koma með annars staðar frá. Þann-
ig mun Debenhams útvega okkur
70% af vöruúrvalinu en 30% þurf-
um við að kaupa í gegnum önnur
viðskiptasambönd og þar nýtast
mjög vel þau viðskiptasambönd
sem Hagkaup hefur haft,“ sagði
Jón Ásgeir.
Hann sagði að reiknað væri með
að fyrsta verslunin undir rekstrar-
stjórn Baugs Svíþjóð yrði opnuð í
maí næstkomandi og markmiðið
væri að Debenhams-verslanir fé-
lagsins yrðu orðnar fimm talsins
árið 2005, og Arcadia-verslanir 25,
en heildarvelta félagsins yrði þá
orðin 15-18 milljarðar króna.
Stjórn Baugs hefur ákveðið að
leggja á þessu ári um 200 milljónir
króna í fyrirtækið Baugur Svíþjóð
og gert er ráð fyrir að félagið auki
hlutafé um 30% og selji fagfjárfest-
um, en reiknað er með að hægt
verði að skrá félagið á hlutabréfa-
markaði í lok þessa árs eða í byrj-
un næsta árs.
Frjálsi fjár-
festingar-
bankinn
verður til
STJÓRNIR Samvinnusjóðs
íslands hf. og Fjárvangs hf.
hafa undirritað samrunaáætl-
un og greinargerð sem lögð
verður fyrir aðalfund Sam-
vinnusjóðsins 27. mars nk.
Samþykktir Samvinnu-
sjóðsins munu gilda um hið
sameinaða félag, en nafni
þess félags verður við sam-
runann breytt í Frjálsa fjár-
festingarbankann hf.
Við sameininguna fá hlut-
hafar í Fjárvangi hf. hluta-
bréf í Frjálsa fjárfestingar-
bankanum hf. í skiptum fyrir
öll hlutabréf sín í Fjárvangi.
Nafnverð hlutafjár í Sam-
vinnusjóði Islands hf. er nú
840.832.595 krónur og hlutafé
í Fjárvangi hf. 126.000.000
krónur. Skiptihlutfallið er
ákveðið þannig að fyrir allt
hlutafé í Fjárvangi hf. koma
hlutabréf að nafnverði
377.765.369 krónur í Frjálsa
fjárfestingarbankanum hf.
eða um 31% en hlutafé í
Frjálsa fjárfestingarbankan-
um hf. eftir samruna verður
samtals 1.218.597.964 krónur.
I fréttatilkynningu kemur
fram að endurskoðendur fé-
laganna hafa framkvæmt
kostgæfnisathugun og stað-
fest að skiptihlutfall sé eðli-
lega ákvarðað og að samruni
félaganna muni ekki koma til
með að rýra á nokkurn hátt
möguleika lánardrottna á
fullnustu krafna í hinu sam-
einaða félagi.
Megininntak samrunaáætl-
unarinnar er að samruninn
miðist við 1. janúar 2000 og
taki hið sameinaða félag við
öllum réttindum og skyldum
hinna sameinuðu félaga frá
þeim tíma.
Ferðaskrifstofa íslands
og dótturfyrirtæki
Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyling
Rekstrartekjur Milljónir króna 3.509 3.041 +15%
Rekstrargjöld 3.447 3.000 +15%
Rekstrarhagnaður 62 41 -51%
Fjármunatekjur 5 10 -50%
Aðrar tekjur 10 40 -75%
Hagnaður ársins 77 91 -15%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 822 8.208 +8%
Eigið fé 343 250 +37%
Skuldir 479 510 -6%
Skuldir og eigið fé samtals 822 760 +8%
*
Ferðaskrifstofa Islands hf.
77 milljónir í
hagnað í fyrra
spron
m SPARISJÓBUR REYKJAVlKUR ob nábrennis
HAGNAÐUR Ferðaskrifstofu Is-
lands hf. og dótturfyrirtækja þess,
Plúsferða og Urvals-Utsýnar, var
76,6 milljónir króna á árinu 1999.
Rekstrartekjur voru 3.510 milljónir
króna á árinu, sem var 15% hækkun
frá fyrra ári þegar tekjurnar námu
3.014 milljónum króna.
I tilkynningu frá Ferðaskrifstoíú
íslands hf. kemur fram að jákvæða
afkomu megi rekja til tveggja þátta.
Annars vegar góðrar nýtingar í
leiguflugi félagsins, m.a. til Portúgal,
Mallorca, Kanaríeyja, Edinborgar
og í skíða- og sérferðir, þar sem far-
þegar voru 29.000 á árinu. Hins veg-
ar til mikillar aukningar í komu er-
lendra ferðamanna á vegum fé-
lagsins á árinu 1999, en þeir voru
31.000 talsins.
Alls var farþegafjöldi Ferðaskrif-
stofu íslands hf. og dótturfyrirtækja
94.800 á árinu 1999, þar af komu um
31.000 erlendir farþegar til landsins,
en íslendingar sem fóru til útlanda
voru 63.800.