Morgunblaðið - 24.03.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 29
Ar liðið frá upphafí hernaðarátakanna í Kosovo
Reuters
Fyrir ári síðan hófu NATO-ríkin árásir á serbneska heraflann í Kosovo til að binda enda á ofsóknir hans gegn
albanska meirihlutanum en nú eru það serbnesku íbúarnir sem krefjast þess að fá frelsi sitt aftur. Sæta þeir oft
svipuðum ofsóknum og Albanir áður. Myndin er frá mótmælaaðgerðum Serba í borginni Mitrovica.
Friðurinn ótryggur
og vaxandi óánægia
London, Pristina. AFP, Reuters.
ÁR ER liðið frá því að NATO-ríkin
hófu árásir á serbneska herinn í
Kosovo og eru sérfræðingar á einu
máli um, að þótt hernaðarlegu
markmiðin hafi náðst, sé það erfið-
asta samt eftir, en það er að tryggja
frið í héraðinu. Er farið að gæta
mikillar þreytu meðal NATO-rikj-
anna, sem fínnst þau vera föst í ein-
hvers konar feni, og mikillar
óánægju gætir meðal þeirra og al-
mennings í Kosovo vegna vaxandi
umsvifa glæpasamtaka.
John Chipman, forstöðumaður
Alþjóðlegu herfræðistofnunarinnar,
IISS, sagði í London í gær að
ástandið í Kosovo stafaði annars
vegar af hatrinu sem ríkti milli
Serba og albanska meirihlutans í
héraðinu og hins vegar af afskipta-
leysi erlendra ríkja. Raunar væri
staða Kosovo mjög undarleg. Það
tilheyrði Serbíu, án þess að Serbar
réðu þar nokkru og m.a. vegna
þessa hefði dregist að koma þar upp
eðlilegu réttarfarskerfi. Hefði þessi
óvissa einnig spillt fyrir tilraunum
til að framfylgja alþjóðalögum í
héraðinu og afvopna albanska að-
skilnaðarsinna.
Chipman sagði að í svipinn væri
tvennt nauðsynlegt: í fyrsta lagi að
fjölga í lögregluliðinu upp í 6.000
manns eins og að hefði verið stefnt
en nú er liðið aðeins skipað um
2.000 mönnum. I öðru lagi yrðu er-
lend ríki að standa við fyrirheit sín
um 22 milljarða króna aðstoð en að-
eins lítill hluti upphæðarinnar hefur
verið afhentur.
Milosevic jafngildir
áframhaldandi óvissu
Chipman sagði að fyrir utan
þetta væri það Slobodan Milosevic,
forseti Júgóslavíu, sem hefði mest
áhrif á framvinduna. „Svo lengi sem
Milosevic er við völd, verður neyð-
arástand á Balkanskaga," sagði
Chipman og spáði því, að NATO
yrði að hafa herlið í Kosovo í 10 ár
eða lengur ef Milosevic færi ekki
frá fyrr. George Robertson, fram-
kvæmdastjóri NATO, vék einnig að
þessu fyrr í vikunni þegar hann
sagði, að herliðið yrði í Kosovo svo
lengi sem þurfa þætti.
Robertson leggur mikla áherslu á
að vel hafi tekist til í Kosovo og
bendir á í því sambandi, að gæslu-
liðið, KFOR, hafi gert hundruðum
þúsunda manna kleift að snúa til
síns heima og fara aftur að lifa eðli-
legu lífi. Innan NATO gætir þó vax-
andi óánægju með ástandið og ótta
við, að smám saman fari íbúarnir að
líta á gæsluliðið sem hernámslið.
„Eitt ár er liðið og við stöndum enn
í sömu sporunum," sagði ónefndur
sendimaður eins NATO-ríkis.
Fækkun og takmarkanir
Gæsluliðið í Kosovo hefur nú á að
skipa 37.200 mönnum frá 36 ríkjum.
Frá NATO-ríkjunum koma 30.000
og flestir hinna eru frá Rússlandi.
42.000 menn voru í herliðinu í haust
og þar af 35.000 NATO-hermenn.
Sum NATO-ríki, t.d. Bretland,
hafa kallað heim hermenn og það
var með heilmiklum eftirgangsmun-
um að Wesley Clark, yfirmaður
NATO, fékk því framgengt fyrir
skömmu að fjölgað væri um 2.000
menn. Bandaríkjamenn og Frakkar
eru raunar ekki sammála honum
um, að efla þurfi herstyrkinn í
Kosovo og þar við bætist, að sum
ríkin setja hermönnum sínum mikl-
ar skorður. Bandarísku hermenn-
irnir mega t.d. ekki hafa sig mikið í
frammi vegna ótta við mannfall
enda kosningaár vestra. Aðeins má
beita bresku, frönsku og ítölsku
hermönnunum eins og þurfa þykir.
Glæpaflokkar vaða uppi
Vaxandi ítök glæpasamtaka í
Kosovo eru mönnum mikið
áhyggjuefni. Sumir þeirra sem
NÁTO-ríkin litu áður á sem banda-
menn sína, t.d. liðsmenn í Frelsis-
her Kosovo, hafa lagt fyrir sig
glæpi alls konar; mannrán, eitur-
lyfjasölu og fleira og þeir sem verða
fyrir barðinu á glæpalýðnum þora
ekki að vitna gegn honum af ótta
við hefndir.
Sumir hemenn gæsluliðsins hafa
gerst sekir um afbrot og þá eru þeir
dregnir fyrir herrétt en svo er ekki
um glæpagengin í svörtu leðurjökk-
unum. Liðsmenn þeiiTa fara sínu
fram óáreittir og aka um á þýskum
lúxusbifreiðum, með eða án núm-
eraplatna, sem stolið hefur verið í
Vestur-Evrópu. Upp á þetta ástand
horfa hermennirnir og ekki er hægt
að segja, að samúð þeirra með
Albönunum vaxi dag frá degi.
Einskis manns land
Mesta vandamálið í Kosovo er að
það er nokkurs konar einskis
manns land. Vestræn ríki viður-
kenna afdráttarlaust, að það sé hér-
að í Serbíu en albanski meirihlutinn
hefur hingað til trúað því að það
geti orðið sjálfstætt ríki með ein-
hverjum hætti. Það er hins vegar að
renna upp fyrir honum núna að
Vesturlönd ætla ekki að ganga
lengra gagnvart Júgóslavíustjórn
en orðið er. Hvernig úr þessu verð-
ur leyst veit enginn. Það eina sem
er alveg ljóst er að NATO-herliðið
er ekki á förum.
Franska ríkisstjórnin í vanda
Uppstokkun sögð
í undirbúningi
Parfs. AFP.
LIONEL Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, var í gær sagður undir-
búa uppstokkun á stjórn sinni í því
skyni að bægja frá ásökunum um
pólitískt stefnuleysi.
Jospin hefur verið gagnrýndur
fyrir að gefa eftir í deilum stjórnar-
innar við ríkisstarfsmenn sem hafa
lagst gegn ýmsum áformum hennar
um umbætur og búist er við að hann
stokki upp í stjórninni í byrjun
næstu viku til að bæta ímynd henn-
ar.
Tveir ráðherrar, Christian Sautt-
er fjármálaráðherra og Claude All-
egre menntamálaráðherra, eru lík-
legasth- til að láta af embætti. Báðir
hafa þeir haft umsjón með metnað-
arfullum umbótaáfonnum en ekki
fengið stuðning Jospins og neyðst til
að gefa eftir vegna mótmæla
franskra stéttarfélaga.
Sautter varð á mánudag að falla
frá áformum um breytingar á skatt-
kerfinu, sem að margra mati er orðið
úrelt. Allegre hefur hins vegar orðið
að falla frá ýmsum tillögum sínum
um að koma skólum landsins í nú-
tímalegra horf vegna andstöðu kenn-
ara sem eru í verkfalli.
Sagður heykjast á umbótum
Jospin er sagður íhuga hvort hann
eigi að láta nægja að víkja þessum
tveimur ráðherrum úr stjórninni eða
flýta uppstokkun sem ráðgerð var
síðar á árinu. Nokkrir ráðherrar, svo
sem Martine Aubry félagsmálaráð-
herra, ætla að sækjast eftir borgar-
stjóraembættum í kosningum á
næsta ári og Jospin vill skipa nýtt
ráðherralið sem á að stjórna landinu
síðustu tvö árin fyrir kosningarnar
árið 2002.
Á meðal þeirra sem talið er hugs-
anlegt að taki við fjármálaráðuneyt-
inu ei-u Alain Richard varnarmála-
ráðherra, Laurent Fabius þingfor-
seti, Francois Hollande ritari Sósíal-
istaflokksins og Elisabeth Guigou
dómsmálaráðherra.
Að sögn franskra blaða er líklegt
að Jean Glavany landbúnaðarráð-
herra taki við menntamálaráðuneyt-
inu.
Jospin hefur verið sakaður um að
glutra niður tækifæri til að koma
efnahag landsins í nútímalegra horf
með tilraunum sínum til að sefa
stuðningsmenn sósíalista úr röðum
ríkisstarfsmanna. Auk eftirgjafar-
innar í deilunni um breytingar á
skattkerfinu hefur hann ekki viljað
ráðast í róttækar breytingar á lífeyr-
Lionel Jospin
iskerfinu, sem ívilnar mjög ríkis-
starfsmönnum. Þá hefur hann reynt
að sefa kennara og starfsmenn
sjúkrahúsa, sem eru einnig í verk-
falli, með því að lofa auknu fé og þús-
undum nýrra starfa í mennta- og
heilbrigðiskerfinu.
Jafnvel nokkrir leiðtogar verka-
lýðshreyfmgarinnat' hafa sakað
Jospin um að heykjast á því að
stokka upp í lífeyriskerfinu, sem er
talið mjög brýnt vegna fjölgunar
aldraðra á næstu árum.
Hægrimaðurinn Alain Juppé,
fyrrverandi forsætisráðherra - sem
tókst ekki heldur að koma á róttæk-
um breytingum á lífeyriskerfinu
meðan hann var við völd árið 1995 -
sagði að Jospin hefði aðeins frestað
erfiðum ákvörðunum. „Það er
kænskulegt en ekki til marks um
hugrekki."
Tvær brezkar
konur gefnar
saman
London. Morgnnblaðið.
TVÆR konur hafa gengið í fyrsta
löglega hjónaband samkyn-
hneigðra í Bretlandi og fengust
gefnar saman, þar sem önnur er
fæddur karl, sem hefur gengizt
undir kynskiptaaðgerð.
Lesbíurnar Clair Ward-Jackson,
23 ára, og Diane Maddox, 43 ára,
voru gefnar saman hjá sýslumann-
inum í Aldershot. Sú síðarnefnda
hefur látið breyta sér úr karli í
konu og gat lagt fram fæðingar-
vottorð, sem sagði hana fætt
sveinbarn. Ut áþað vottorð fékkst
giftingin framkvæmd.
'í4aN,0
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
FLOKKUR LOKAGIALDDAGI INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00
1980 1. fl. 15. 04. 2000 kr. 506.928,10
* Innlausnai-verð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka Islands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, 24. mars 2000
SEÐLABANKIÍSLANDS