Morgunblaðið - 24.03.2000, Page 35

Morgunblaðið - 24.03.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ „krúnerar“ lög Cole Porters, hvort sem þeir voru á Naustinu í Reykja- vík eða Waldorf í New York. Það hafa allir heyrt lag eftir Cole Porter þótt þeir viti ekki að það sé upp- haflega úr þessum eða hinum söng- leiknum.“ Jóhanna Vigdís tekur undir þetta og segir að sér hafi strax þótt tónl- istin heillandi. „Þetta eru alvöru lög, sem gaman er að syngja." „Þetta er mjög vel saminn söng- leikur. Ekki bara tónlistarlega held- ur er sagan sjálf samin af mikilli kunnáttu," segir Þórhildur. „Söng- leikir eru sjaldan mjög á dýptina, heldur fremur á láréttari nótunum," segir Egill og glottir, „En...“ og hann lyftir vísifingri til áherslu. „...þessi er betri en flestir sem ég hef tekið þátt í.“ Og þar talar rödd reynslunnar því fáir - ef nokkrir - hafa sungið í fleiri söngleikjum en Egill Ólafsson undanfarin 10-15 ár. „Framan af var maður í söngleik á þriggja til fjögurra ára fresti en síð- ustu 5 árin hef ég verið í þeim fjór- um sem segir talsvert um hvað þetta hefur verið vinsælt form í leik- húsinu." Jóhanna Vigdís hefur orðið tals- verða reynslu af söngleikjum þó ekki sé nema eitt ár frá því hún út- skrifaðist úr Leiklistarskóla Is- lands. Hún tók þátt í uppfærslunum á Hárinu, Grease og Litlu Hryll- ingsbúðinni og leikur þessa dagana í Stjömum á morgunhimni í Iðnó. Söngurinn vefst lítið fyrir henni þar sem hún hefur lokið burtfararprófi í söng og píanóleik auk þess að hafa BA-próf í frönskum bókmenntum. Allt þarf að smella saman Þau eru bæði sammála um að fyr- ir leikara sé söngleikur mjög krefj- andi. „Það þarf að syngja, dansa og leika samtímis og engu má skeika. Svo þarf að skipta um búning á augabragði baksviðs og koma syngjandi og dansandi inn á sviðið eins og ekkert hafi í skorist," segir Egill og kveður síðustu dagana fyrir frumsýningu vera hálfgerða mar- tröð því allt þarf að smella saman. „Þetta er sá tími sem maður er að læra sýninguna. Átta sig á því hvað mikill tími er til stefnu á milli atriða o.s.frv. Þegar þetta er komið á hreint er hægt að fara njóta þess að leika sjóið,“ segir hann. Jóhanna Vigdís hlær og segir það mikinn létti þegar fæturnir fara að hreyfast sjálflcrafa í dansatriðunum og hægt að einbeita sér að söngnum og leiknum. Fyrir áhorfandann á þetta auðvitað að líta út fyrir að vera eng- inn vandi. Að baki liggja hins vegar þrotlausar æfingar, „Einn, tveir, þrír, einn, tveir þrír“, og danshöf- undurinn breski hrópar utan úr sal í hundraðasta skipti á æfingatímabil- inu. „Once more from the top; please!" Skemmtun eina kvöldstund Og allt er þetta á sig lagt til að „ þú áhorfandi góður getir notið góðr- ar skemmtunar í leikhúsinu eina kvöldstund,“ eins og segir í leikskrá allra leikhúsa að öllum söngleikjum á öllum tímum. Þórhildur bendir á í lok samtals- ins að snilli Porters sem tónskálds komi hvergi betur fram en í Kysstu mig Kata. „Hann semur þrjár gerð- ir tónlistar fyrir verkið. Stíll þeirra laga sem tilheyra atburðarásinni baksviðs er allt annar en sá sem til- heyrir uppfærslu leikhópsins á Skassið tamið. Svo er enn annar stíll á þeim lögum sem vísa til skemmti- bransans og leikhússins sjálfs." Sjálfur hafði Porter ekki meira en svo trú á þvi að hægt væri að semja nothæfan söngleik upp úr Skassið tamið þegar hugmyndin var lögð fyrir hann. Ekki höfðu höfundar textans meiri trú á verkefninu í upphafi en þegar hugmyndin fædd- ist að leikhópnum sem væri að svið- setja Shakespeare af vanefnum þá fóru brotin að raðast saman. Sjálfur taldi Cole Porter að Kysstu mig Kata væri hans besti söngleikur ás- amt Nú er allt leyft (Anything Goes) og áhorfendur um allan heim hafa sýnt samstöðu sína í verki með því að flykkjast á sýningar þeirra hvar sem þær hafa birst í leikhúsum. LISTIR V egleg kvikmynda- tónlistarveisla TOJVLIST Sinfónfuhljóinsveit íslands í Háskólabíói SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Sinfóníuhljómsveit íslands lék lög úr kvikmyndum eftir John Willi- ams, Henri Mancini, Harold Arlen, Mikis Theodorakis, Nino Rota, Lalo Schifrin og fleiri. Einieikari og sijómandi Lalo Schifrin. Fimmtudag kl. 20. NAFN Lalo Schifrin hefur óverðskuldað staðið í skugganum af enn frægari tónskáldum kvik- myndatónlistar. Allir þekkja tón- list Ennios Morricones t.d. úr The Good, the Bad and the Ugly; tón- list Ninos Rota úr Guðföðurnum, stef Elmers Bernsteins úr Magnif- icent Seven og tónlist Johns Willi- ams úr Star Wars. En það má segja að Lalo Schifrin sé skapari almestu töffaranna á hvíta tjaldinu því hann er höfundur margra flott- ustu stefja töffaramyndanna. Hann samdi tónlistina við Dirty Harry og Magnum Force, Mannix og Bullit svo nokkrar myndir séu nefndar. Það var var rífandi stemmning í Háskólabíói í gær- kvöldi. Schifrin kynnti verkin sem flutt voru, og lék sjálfur með á píanó í nokkrum laganna. Það þarf ekki að orðlengja það að tónleik- arnir voru hin allra besta skemmt- un. Schifrin gaf okkur svolitla inn- sýn í myndefnið, en hvatti hlustendur þó til þess að hlusta, án þess að reyna endilega að sjá fyrir sér kvikmyndina; - leyfa tónlist- inni að lifa eigin lífi. í tilfelli kvik- myndatónlistarinnar getur það orðið erfitt. Það er kannski auð- veldast í lögum sem lifa á melód- íunni einni saman; eins og lögunum úr Dr. Zhivago, Þriðja manninum, Casablanca og Rauðu myllunni. Tónlist Schifrins sjálfs er hins veg- ar miklu tengdari myndunum sjálf- um, því hún er svo rík af stemmn- ingu og spennu, og ber karakter myndanna einhvern veginn svo sterkt í sér. Sinfóníuhljóm- sveitin var í gríðar- miklu spilastuði á tón- leikunum og lék feiknavel. Tónleikar- nir hófust á tónlist Johns Williams úr Leitinni að týndu örk- inni. Málmblásaramir gáfu tóninn fyrir það sem á eftir kom; - spiluðu af lífi og sál, eins og þeir væru að bjarga sjálfum Indy á ögurstund. Stef Schifrins úr Mannix er eitt það flottasta sem um getur, hrollvekjandi og „kúl“. Guðmundur Pétursson lék gítarsólóið í Bondstefinu eftir Barry, sem er enn eitt meistara- verkið úr þessari tegund tónlistar. Slagverksmaðurinn Pétur Grétars- son sýndi meistaratakta á trommu- settinu. í stefinu úr Bullit lék hann af hreinni snilld og endurtók leik- inn eftir hlé í tónlist Schifrins úr Mission Impossible, sem var frá- bærlega flutt af hljómsveitinni. Það sem síst gerði sig voru Sinfón- ískar myndir úr Cool Hand Luke eftir Schifrin. Útsetningin hélt ekki, og stefin loddu ekki saman sem heild. Stefið úr Guðföðurnum var unaðslega fallega leikið og eins lag Arlens Somewhere Over the Rainbow. I laginu úr Casablanca, As Time Goes By, settist Schifrin á píanóbekkinn og spil- aði eins og Sam forð- um; flutningur þessa ljúflingslags var ynd- islegur. Stef Schifrins úr The Fox er djass- að; þar lék hann á píanóið með hljóm- sveitinni og náðu þeir Pétur Grétarsson sér- staklega vel saman. Þruma kvöldsins var Mission Impossible eftir Schifrin úr sam- nefndum sjónvarps- þáttum og bíómynd- um. Þessi músík er sannarlega efsta stig töffaratón- listarinnar. Undir lok tónleikanna beindi Schifrin orðum sínum að tónleika- gestum og óskaði þeim til ham- ingju með að eiga jafn frábæra hljómsveit og Sinfóníuhljómsveit íslands. Það var sannarlega sunnu- dagur í Háskólabíói í gærkvöldi og gott ef ekki bara stórveisla líka. Lalo Schifrin er mikill músíkant og frábær fagmaður. Honum og Sin- fóníuhljómsveitinni var fagnað innilega og ákaft í tónleikalok og klappið var óvenju heitt og mikið. Það var augljóst að tónleikagestir kunnu vel að meta þessa veglegu kvikmyndatónlistarveislu. Bergþóra Jónsdóttir Tvær lífsbækur væntanlegar TVÆR lífsbækur eru væntan- legar á markaðinn í september. Hafið heillar er lífsbók Sigurðar Kristmundssonar og Lífsmynd heitir lífsbók Steingríms St.Th. Sigurðssonar. Bókina tileinkar hann föður sínum, Sigurði Guð- mundssyni skólameistara Menntaskólans á Akureyri. Þetta er beiskjulaust en djúp- lægt uppgjör við íslenskt samfé- lagj segir í fréttatilkynningu. Útgefandi er Sigmundur Ern- ir Einarsson, Akureyri. Bæk- urnar verða prentaðar í Ás- prenti. Lalo Schifrin Opið hús í Tónlistar- skóla Húsa- víkur OPIÐ hús verður í Tónlistarskóla Húsavíkur á morgun, laugardag, kl. 13-19 og leika nemendur á ýmis hljóðfæri. Veitingasala verður á Stjömu milli kl. 15-17.30 og rennur ágóði í ferðasjóð Borgarhólsskóla og Stúlknakórs Húsavíkur vegna fyrir- hugaðrar ferðar á norbusang 2000 í Reykjavík. Einsöngstónleikar verða þriðju- daginn 28. mars kl. 20 í sal Borgar- hólsskóla. -----*-4-t---- Leiðsögn um sým ingar LI LEIÐSÖGN um sýningar í Lista- safni íslands, í fylgd Ólafs Gíslason- ar sérfræðings, verður á morgun, laugardag, kl. 15. Fjallað verður um sýningu á verkum Nínu Tryggva- dóttur og Svavars Guðnasonar en þeim lýkur sunnudaginn 26. mars. Auk þess verður leiðsögn um sýn- ingu á verkum Svövu Bjömsdóttur og Cosmos eftir Jón Gunnar Ama- son. FÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 35 GB Hnattbar Góð tækifærtsgjöf húsgögn Ármúla 44 simi 553 2035 SUSHI Nú færð þú Sushi bakka hjá okkur á miðvikudögum og föstudögum. Bæði biandaður fiskur og hrísgrjónarúiiur Ét náttúrulega! eilsuhúsið Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi Sturtuklefar Ifð stuituklefamir em fáanlegir úr plasti eða öryggisgleri í mörgum stærðum og gerðum. Ifö sturtuklefarnir eru trúlega þeir vönduðustu á markaðnum í dag. Ifö - Sænsk gæðavara T€fl6l 111 111 Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.