Morgunblaðið - 24.03.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
PÖSTUDAGUR 24. MARS 2000 43
afsláttur af öllum gólfefnum
Gúmmídregill sem
Jilífir gólfinu fyrir
óhreinindum
1.195 kr./m2
T7726~fcr^m-2
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Orðaleikir o g ástarhjal
LEIKLIST
M e n n t a s k ó 1 i n n
í Reykjavík sjnir
á Herranott f
Tjarnar bíói.
YSOGÞYSÚTAF ENGU
Eftir William Shakespeare.
Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson.
Leikmynd og búningar: Rannveig
Gylfadóttir. Lýsing: Sigurvaldi
Ivar Helgason.
YS OG þys útaf engu er einn hinna
rómantísku gamanleikja Shake-
speares. Ástarsaga án ærsla meðal
aðalsfólks og sögusviðið er Messína,
við hirð Leónatós, landstjórans á
Sikiley. Hann á dótturina Heró og
bróðurdótturina Beatrís; Kládíó
greifi frá Flórens er kominn til
Messína ásamt vini sínum, Don Pet-
ró Aragoníuprinsi. Kládíó biður um
hönd Herós og fær. Beatrís hinsveg-
ar ætlar sér aldrei að giftast og sama
loforð hefur Benedikt, ungur aðal-
smaður frá Padúu, tekið af sjálfum
sér. Þau verða auðvitað ástfangin
uppfyrir haus hvort af öðru og ná
saman að lokum.
Illmennið í þessari sögu er Don
Jóhann, hálfbróðir Don Petrós.
Hann sviðsetur næturfund Heró við
karlmann að Kládíó og Don Petró ás-
jáandi. Mærin er auðvitað ekki hin
skírlífa Heró heldur Margrét, þerna
hennar, lauslát píka lægri stéttar.
Kládíó hafnar Heró á kirkjutröppun-
um og eftir að allir hafa verið í rusli
um stund kemur sannleikurinn í ljós
og allt fellur í ljúfa löð. Sannarlega ys
og þys útaf engu.
Herranótt velur sér nokkuð erfitt
verkefni að fást við með þessu. Sem
gamanleikrit er Ys og þys snúið við-
fangs. Gamansemin byggist á orða-
leikjum en ekki ærslum; útúrsnún-
ingum Betrísar og Benedikts sem
eru þeirrar gerðar að fyndnin felst í
því hvernig þeir eru sagðir fremur en
hvort. Önnur tækifæri til gamansemi
bjóðast fá og líklegt að forsendur
plottsins, meydómui- Heró, sé ekki
lengur þess gulls ígildi sem verkið
setur sér. Þannig verður verkefni
leikenda og leikstjóra ærið, að halda
uppi sýningu á þessu verki sem
byggist fyrst og fremst á hnyttinni
persónusköpun og ytra útliti, hugs-
anlega leggja útfrá eilítið háðskum
tóni Shakespeares á þeim ys og þys
sem aðgerðalaus aðallinn gerir sér
útaf engu.
Hinum unga hópi leikenda undir
stjórn Magnúsar Geirs tekst þetta að
nokkru leyti, söguþráðurinn kemst
vel til skila en persónur voru fremur
keimlíkar og hefði mátt beita hinum
ytra umbúnaði sýningar, (búningum
og Ijósum) markvissara til að að-
greina þær. Aldur leikenda háir
einnig nokkuð þar sem aldursmunur
persóna verður ekki jafnskýr fyrir
bragðið. Þorgeiri Arasyni (Leónató)
tókst þó að koma hugmynd um
aldursmun til skila og studdist þar
við hatt og pípu. Gautur Sturluson og
María Stefánsdóttir voru frískleg og
örugg í hlutverkum Beatrís og Bene-
dikts. Þrátt fyrir lipran talanda léku
orðaleikirnir þeim ekki á tungu en
sjóaðri leikurum gæti reynst erfitt
að koma því til skila. Þarna hefði
leikstjóri mátt vera ósparari á stytt-
ingar. Gyða Valdís Guðmundsdóttir
og Hannes Þórður Þorvaldsson náðu
sér vel á strik í kirkjuatriðinu og má
það hiklaust teljast áhrifamesta at-
riði sýningarinnar. Umgjörð sýning-
arinnar er stílhrein og trékassinn í
miðju var notadrjúgur. Dansatriði
var líflegt og vel æft. Búningar eru
veikur hlekkur sem gefa ekki nógu
skýra hugmynd um hvað að baki
þeim býr. Þeir benda til sjötta eða
sjöunda áratugarins en því er ekki
fylgt eftir í öðrum hlutum sýningar-
innar, s.s. látbragði leikenda eða tón-
listinni sem er engu að síður kröftug
og sómasamlega flutt. Geri ég enn-
fremur ráð fyrir því að þar sem ein-
hverjar breytingar hafa verið gerðar
á texta þýðingarinnar sem notuð er
sé farið að óskum þýðandans og hans
að engu getið í leikskrá.
Hávar Sigurjónsson
Út í vorið
á Húsa-
vík og á
Akureyri
KVARTETTINN Út í vorið og
Signý Sæmundsdúttir úperusöng-
kona halda túnleika í sal Borgar-
húlsskúla á Húsavík í kvöld, föstu-
dagskvöld, kl. 20:30 og í
Safnaðarheimili Akureyrarkirkju
laugardaginn 25. mars kl. 16:00.
A efnisskrá má finna íslensk
einsöngs- og kvartettlög, einnig
syrpu af Bellmanlögum og lögum
eftir Jún Múla og Júnas Arnasyni,
tvö færeysk sönglög, útsett fyrir
súpran og 4 karlaraddir og Man-
söng eftir Schubert, einnig fyrir
súpran og 4 karíaraddir.
Söngkvartettinn Út í vorið var
stofnaður haustið 1992 af þeim
Ásgeiri Böðvarssyni, Einari Clau-
sen, Ilalldúri Torfasyni og Þor-
valdi Friðrikssyni. Snemma árs
1993 kom píanúleikarinn Bjarni
Þúr Júnatansson til liðs við kvart-
ettinn. Hann starfar sem pianú-
kennari og organisti í Reykjavík
og hefur auk þess starfað með
fjölda einsöngvara og kúra.
Signý Sæmundsdúttir hefur
verið raddþjálfari karlakvartetts-
ins Út í vorið um árabil.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn og kosta 1000 kr.
Finnsk hljóm-
sveit í 12 tónum
FINNSKA hljómsveitin Aavikko
heldur tónleika í versluninni 12 tón-
ar, á horni Barónsstígs og Grettis-
götu, í dag, föstudag, kl. 17.
Aavikko er skipuð A. Koivumáki
og T. Kosonen, sem leika á raforgel
og T. Leppánen, sem sér um slag-
verk. Aavikko hefur gefið út tvær
geislaplötur Derek! og Oriental
Baby. Hljómsveitin leikur raftónlist í
gleðistíl.
Aavikko kemur til landsins í boði
Norræna hússins í tilefni hátíðarinn-
ar Elsku Helsinki og mun sveitin
leika þar annað kvöld, kl. 21, ásamt
stórsveit Bödda Brútal.
Kvartettinn tít í vorið og Signý Sæmundsdúttir.
Tónleikar á
Djúpavogi og Höfn
ORGEL- og söngtúnleik-
ar verða haldnir í
Djúpavogskirkju, laugar-
daginn 25. mars og í
Hafnarkirkju, sunnudag-
inn 26. mars og hefjast
báðir kl. 16:00. Á tún-
leikunum munu þau
Margrét Búasdúttir og
Björn Steinar Súlbergs-
son flytja íslenska og er-
lenda kirkjutúnlist; ein-
söng og orgeleinleik.
Þau flytja m.a. verk eftir
Pál Isúlfsson, Þorkel Sig-
urbjörnsson, Ragnar
Björnsson, J. S.
Bach,Vaughan Williams,
Jehan Alain og Gabriel
Fauré.
Margrét Búasdúttir,
súpransöngkona stýrir
nú unglingadeild við
Söngskúlann í Reykjavík,
starfar fyrir barnakúra við
kirkjur og stjúrnar Unglingakúr
Selfosskirkju, auk fjölbreytts tún-
Míirgrét
Bóasdóttir
Björn Steinar
Sólbergsson
leikahalds bæði hérlendis
og í Þýskalandi.
Björn Steinar Súlbergs-
son, organisti, hefur auk
túnlistarstarfs og orgel-
kennslu á Akureyri hald-
ið einleikstúnleika og
leikið með hljúmsveitum
hér heima og erlendis.
Hann frumflutti hér á
landi orgelkonsert Júns
Leifs með Sinfúníuhljúm-
sveit íslands á síðastliðnu
ári og hlaut fyrir það
menningarverðlaun DV
nýverið.
Túnleikarnir eru sam-
starfsverkefni menning-
armálanefnda á Horna-
firði og á Djúpavogi,
Félags íslenskra túnlist-
armanna, menntamála-
ráðuneytisins og súknar-
nefndar Hafnarkirkju.
Aðgangseyrir er 1000 kr. en eldri
borgarar fá afslátt og frítt er fyr-
ir grunnskúlanema.
Tilkynning um útboö og skráningu
hlutabréfa á Verðbréfaþing íslands
GUÐMUNDUR RUNÓLFSSON HF
Hlutafjárútboð
Utgefandi
Guðmundur Runólfsson hf., kennitala: 520175 - 0249,
Sólvöllum 2,350 Grundarfirði, sími: 430 3500.
Heildarnafnverð nýs hlutafjár
Allt að 50 m.kr.
Sölugengi til forgangsréttarhafa: 6,20
Sölugengi í almennri sölu: 6,70
Sölutímabil
Forgangsréttarhafar: 28. mars 2000 - 11. apríl 2000
Almenningur: 14. apríl 2000 - 17. apríl 2000.
Sölutímabilið í almennri sölu gæti orðiö styttra
ef allt hlutafé úboðsins klárast fyrir lok þess.
Umsjón með útboði
Landsbanki íslands - Viðskiptastofa,
Laugavegi 77,155 Reykjavík.
Skráning
Skráning hlutabréfa verður í maí, að útboði loknu.
Skráningarlýsing og önnur gögn,
vegna ofangreindra hlutabréfa, liggur frammi hjá
Landsbanka íslands hf., Laugavegi 77,
155 Reykjavík og á heimasíðu Landsbankans
www.landsbanki.is.
GUÖMUNDUH RUNÓLFHHON HF
Landsbanki Islands