Morgunblaðið - 16.04.2000, Blaðsíða 24
24 B SUNNUDAGUR 16. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Músin
Stuart slær
ígegn
Fjölskyldumyndin Stuart Little fjallar um
Little-fjölskylduna sem ættleiðir músar-
drenginn Stuart, þau eru ekki einungis
miklu stærri en hann heldur eru bau líka af
annarri dýrategund, þau eru mennsk.
Myndin er byggð á vel þekktri bandarískri
barnabók sem kom út fyrir 50 árum og er
eftir E.B. White. Músin var vant við látin,
en Dagur Gunnarsson hitti leikstjórann
Rob Minkoff og aðalleikarana Geenu Davis
og Hugh Laurie sem leika foreldra Stuarts.
,uj :
gv; pf ■
Músin, kötturinn og fjölskyldan - að vísu á mynd.
STUART Little hefur nú
þegar slegið rækilega í
gegn í Bandaríkjunum og
leikstjóranum Rob Minkoff
er auðsjáanlega mjög létt. Að búa
til mynd þar sem aðalleikarinn er
tölvuteikning og aukaleikararnir
eru þjálfaðir kettir tekur tvö ár,
heilmikla fjárfestingu og töluvert
mikla þolinmæði. Tölvutæknin, sem
er eitt helsta verkfærið við gerð
þessarar myndar, hefur tekið það
mörg og stór stökk undanfarin ár
að núna er hægt að gera hluti sem
hefðbundnar teiknimyndir gætu
aldrei leikið eftir, að þjálfa ketti er
aftur á móti alveg jafn erfitt og það
hefur alltaf verið.
Vann hjá Disney
Rob Minkoff er alinn upp hjá
Disneymyndverinu og var aðstoðar-
leikstjóri við gerð Konungs Ijón-
anna en hann vann einnig að gerð
myndanna Litla hafmeyjan og
Fríða og Dýrið. Nú hefur hann
söðlað um, er kominn yfir til Ima-
geworks sem er teiknimynda- og
tölvubrelluarmurinn hjá Sony Pict-
ures, þeir framleiddu t.d. Godzilla,
Starship Troopers, Michael og
James and the Giant Peach.
Minkoff sagði að það sem var
nýtt fyrir honum og töluverð áskor-
un hefði verið að vinna bæði með
„raunverulega" heiminn og ímynd-
aða heiminn og að blanda þeim
saman. „Að sjá þá raunverulega
smíða áþreifanlegt hús og geta ráf-
að um það var alveg ný reynsla fyr-
ir mér og það er að miklu leyti auð-
veldara að vinna þannig. En það
sem var flóknara við gerð þessarar
myndar var að við vorum að vinna
með svo marga miðla, eða réttara
sagt að blanda saman misjafnri og
ólíkri tækni. Þama var ég að vinna
í fyrsta skipti með lifandi leikurum,
við þurftum að þjálfa kettina og
tölvutæknin var alveg splunkuný,
þannig að það var ansi margt sem
ég þurfti að læra á. Það er sagt að
maður eigi aldrei að vinna með
bömum eða dýmm og ég held að
myndverið hafi ákveðið að ráða mig
til verksins vegna þess að ég var of
vitlaus til að hafna verkinu.“
Michael J. Fox ljær Stuart rödd
sína og Minkoff segir að músin hafi
einnig heilmikið af hans leik og
persónusköpun því eins og alltaf í
teiknimyndum hafi þeir byrjað á
röddinni og teiknað músina og við-
brögð hennar út frá því.
„Kettimir voru stærsta áskorun-
in held ég, vegna þess að þeir era
... einfaldlega vegna þess að þeir
eru kettir og þeir gera ekki neitt
sem maður segir þeim að gera.“
Músarmamman
Geena Davis hlaut óskarsverð-
laun fyrir leik sinn í myndinni The
Accidental Tourist 1989 og var út-
nefnd fyrir Thelma and Louise sem
er líklegast sú mynd sem hún er
þekktust fyrir og sem skaut henni
rækilega upp á stjörnuhimininn.
Síðan hefur ferill hennar spannað
vítt og breitt, hún hefur leikið í
myndum sem verða að teljast öðra-
vísi á Hollywoodmælikvarðanum,
eins og t.d. Beetlejuice, og svo
fremur „venjulegum" myndum eins
og A League of Their Own og
Speechless. Mitt á milh falla síðan
myndirnar Earth Girls Are Easy
og The Fly. Hún reyndi að slá í
gegn sem aksjónstelpa í hasar-
myndinni The Long Kiss Goodnight
en áhorfendur þar vestra virðast
frekar vilja sjá hana í móðurlegri
hlutverkum sem er miður. Hún
vakti líka heimsathygli fyrir ári síð-
an eða svo, þegar hún keppti um
sæti í ólympíuliði Bandaríkjanna í
bogfimi og komst víst ansi nærri
því.
Er þetta undarlegasta mynd sem
þú hefur leikið í?
„Nei, maður skyldi ætla það, en
ég hef verið í ansi mörgum skrýtn-
um myndum. í einni mynd var
kærastinn minn fluga, í annari átti
ég kynmök við geimvera þannig að
þú sérð að það hefur ýmislegt
gerst, en það verður að viðurkenn-
ast að ég hef aldrei áður verið mús-
armamma. Þegar ég las handritið
vissi ég að það yrði töluverð áskor-
un að leika á móti Utlu kríli sem
maður sér ekki, við urðum bara að
nota ímyndunaraflið því músin var
sett inn eftir á. Þetta var líka svo
tilfinningaþrungið samband sem við
áttum við músina, hann var sonur
okkar og okkur þótti svo vænt um
hann, þannig að það vora mikil
átök. Rob Minkoff fullvisaði okkur
um að Stuart myndi vera mjög
raunverulegur og vel úr garði gerð-
ur, en ég hugsaði með mér að ef
músin er ekki flott og vel gerð, þá
komum við hin til með að líta út
eins og mestu fífl, grenjandi eins og
asnar yfir teiknimyndafigúra
[brynnandi músum?]. Sem betur fer
lítur hann ótrúlega vel út, þannig
að það var ákveðinn léttir, en þó að
þetta hafi verið skrýtið, var það
bara gaman, þetta var skemmtileg
leiklistaræfing. Stundum urðum við
bara að hlæja að öllu saman, okkur
leið óneitanlega svolítið eins og ösn-
um stundum, að sitja og tala svona
út í loftið, en sem betur fer er
Hugh Laurie með góða kímnigáfu
þannig að við gátum gert grín að
þessari fáránlegu iðju okkar.“
Hin fullkomna fjölskylda
Var það eitthvað sérstakt sem
laðaði þig að þessu verkefni?
„Já, handritið var hreinlega mjög
gott og ég hafði lesið bókina sem
barn og handritið var ótrúlega góð
útgáfa af bókinni. Ég grét þegar ég
las það og þá hugsaði ég með mér
að þetta hlyti að virka. Mér fannst
líka hin ótrúlega skynsamlega fjöl-
skylda skemmtilegt viðfangsefni.
Ég vildi taka þátt í að skapa hina
fullkomnu fjölskyldu og sú hug-
mynd að fólk horfi á myndina og
hugsi; „Vá, ég vildi að þetta væri
mín fjölskylda!" höfðaði til min. Þú
veist, við tökum ekki einu sinni eft-
ir því að Stuart er mús og allt er
svo huggulegt og fullkomið. Ég er
hrifin af þeim skilaboðum í mynd-
inni.“
Nú hefur þú leikið mörg ólík
hlutverk, er það eitthvað sem þú
leitast við að gera?
„Já, og ég held að allir leikarar
reyna, ef þeir mögulega geta, að
takast á við verkefni sem einhver
ný áskorun felst í og ég hef verið
ákaflega heppin og fengið að prófa
mig áfram í mismunandi gerðum af
kvikmyndum. Það sem ég reyni
alltaf að gera hverju sinni er að
finna raunveraleikann í öllum þeim
aðstæðum sem ég lendi í og leika út
frá þeirri forsendu að fyrir mér er
þessi staða, sama hversu fáránleg
sem hún er, raunveruleikinn."
Það er eins og áhorfendur eigi
erfitt með að sætta sig við þig sem
„aksjón“hetju, af hverju heldurðu
að það stafi?
„Ég veit það ekki, það virðist
vera að hasarmyndir með kvenkyns
aðalhetjum gangi ekki vel, Alien-
myndirnar virðast vera undantekn-
ingin á þessu, en það er ekki margt
annað sem hefur gengið. Ég veit
ekki af hverju það stafar, en það er
gaman að gera slíkar myndir, það
er svaka fjör að gera öll þessi
áhættu- og brelluatriði. Það er erf-
itt, The Long Kiss Goodbye var
grimmilega erfið. Það var svo kalt
og á hverjum einasta degi var ég að
gera einhverja brjálaða hluti en það
er fjör, það er gaman að takast á
við líkamlegar áskoranir jafnt sem
huglægar. Þó verð ég að segja að
það var ágæt tilbreyting að vera
hlýtt og innandyra fyrir þessa
mynd, það eina sem ég þurfti að
hafa áhyggjur af var hvar músin
væri.“
Hvernig var að vinna með Jon-
athan Lipnicki sem leikur George,
eldri soninn?
„Það var mjög auðvelt og
skemmtilegt, hann er alveg frábær.
Hann hefur ekki látið Hollywood
spilla sér, hann er mjög venjulegur.
Þótt hann hafi leikið í Jerry Mag-
uire virðist það ekki hafa stigið
honum til höfuðs."
Þvær ekki þvotta
Ertu sjálf eitthvað lík frú Little?
„Já, já, ég er t.d. ósköp heima-
kær, en ég get ekki sagt að ég geri
mikið af því að þvo þvotta ... nokk-
urn tímann! Þannig að í því atriði
þurfti ég heilmikið að þykjast, en
ég er mikið heima við og mér finnst
ósköp notalegt að elda heima eða
panta mat heim og horfa bara á
“sjónvarpið eða myndbandsspólu.“
Hvort höfðar meira til þín að
leika eða íramleiða myndir?
„Að leika er skemmtilegt að því
leyti að það er vissulega áþreifan-
legri leið til að fá útrás fyrir sköp-
unargleðina en ég fæ líka heilmikið
út úr því að vera framleiðandi og ég
hef gert töluvert af því upp á síðk-
astið. Það er erfiðara að vera fram-
leiðandi vegna þess að það tekur
svo miklu lengri tíma og það era
svo margir fletir á því starfi en ég
vonast eigi að síður til að halda
áfram að framleiða myndir."
Gastu stundað bogfimina eitthvað
á meðan tökur á þessari mynd
stóðu yfir?
„Já, já, ég gerði það, það er svo
oft mikil bið á meðan það er verið
að stilla upp íyrir einhver brellu-
skot, þannig að ég laumaðist oft yf-
ir í næsta myndver sem var autt og
þar var búið að koma upp skotskífu
fyrir mig og ég gat æft mig heil-
mikið.“ Hér mundar Geena ímynd-
aðan boga og sleppir einni ör út í
buskann og brosir dreymin á svip.
Nú þykja kvikmyndakossar ákaf-
lega spennandi, og kvikmynda-
stjörnur kjafta gjarnan frá því
hvemig var að kyssa aðrar kvik-
myndastjömur, hvernig var að
kyssa ímyndaða mús?
„Já, sko, það var svolítið klikkað,
en þessir kossar í kvikmyndabrans-
anum eru ekki alveg jafn æðislegir
og fólk vill vera láta. Það er svoooo
klikkað að vera að þessu fyrir fram-
an annað fólk, að mínu mati er ekk-
ert kynæsandi við þá, því þetta er
svo vélrænt og gengur út á svo
mikla tækni. Ég man eftir einu at-
riði þar sem ég átti að kyssa Andy
Garcia í myndinni Hero, þetta var
mjög mikilvægt augnablik fyrir
okkur sem aðalhetjurnar í þessari
mynd. En nærmyndin vai' svo
nærri okkur að varir okkar urðu að
vera mjög nákvæmlega staðsettai'
áður en kossinn var myndaður og
það þurfti margar tilraunir til að ná
þessu nákvæmlega fyrir kvik-
myndatökumanninn. Andy sem er
svo sætur og kynæsandi og allt það,
en þetta var bara einum of tækni-
legt og vélrænt, og það tekur fjörið
svolítið úr þessu.“
Möltuasninn
í þessari mynd ferðu að heiman
til að ættleiða bam og kemur síðan
heim með mús, hvað er það undar-
legasta sem þú sjálf hefur komið
með heim?
„Hmm, látum okkur sjá, ég kom
einu sinni heim með asna alla leið
frá Möltu, eftir tökur á Cutthroat
Island. Það var svona frekar
óvenjulegt, en þó að asninn tali
reyndar ekki mannamál þá er hann
voðalega sætur, hann heitir Jote ...
Donkey Jote ... nærðu þessu? (Don
Qixote).“
Er einhver af þeim myndum sem
þú hefur leikið í meira í uppáhaldi
hjá þér en aðrar?
„Ég er mjög ánægð með þær all-
ar, en líklegast er Thelma and Lou-
ise sú sem skiptir mig mestu máli.
Bæði vegna þess að ég held að hún
skipti fullt af fólki heilmiklu máh og
eins var það ákaflega góð pers-
ónuleg reynsla að gera þá mynd og
hún markar eiginlega mjög mikil-
væg tímamót í mínu lífi.“
Nú hófstu ferilinn í Tootsie með
Dustin Hoffman og leikstjóranum
Sydney Pollack, sástu þá fyrir þér
að ferillinn yrði eins og raun bar
vitni?
„Já, eiginlega, ég veit að það er
skrýtið. Það var frábært að fá hlut-
verkið í Tootsie, ég ætlaði ekki að
trúa því, en mig langaði alltaf að
verða kvikmyndaleikkona frá því ég
var þriggja ára og ég hélt líka alltaf
að þannig yrði það. Eg ákvað að ég
myndi sjá til þess að ég næði því
takmarki. Eins gott að það gekk
upp því ég var eiginlega ekki með
neinar áætlanir til vara.“
Ertu með einhver verkefni fyrir-
liggjandi?
„Það er ekki alveg ákveðið, ég er
að lesa hitt og þetta og eitt og ann-
að er að gerjast, bæði að framleiða
og leika, þetta tekur allt sinn tíma,
ég á bara eftir að velja.“
Onnur músarmynd
Því hefur verið fleygt að það
verði gerð önnur mynd með mús-
inni.
„Já, það er tvímælalaust mikill
áhugi fyrir því, það er verið að
vinna að handriti. Ég væri alveg til
í það, ég skemmti mér konunglega
og Stuart er enn það ungur að hann
þarf á móður sinni að halda ...við
sjáum til, ég myndi sannarlega ekki
hafna tækifærinu ef það gæfist."
Síðan viðtalið fór fram hefur það
kvisast út að það verði öragglega
gerð önnur mynd og að tökur hefj-
ist næsta haust.
Nú varst þú kynnirinn á óskars-
verðlaunaafhendingunni í fyrra,
hvernig var það?
„Það var gaman, það er alltaf
fjör á óskarnum. Þegar ég fór í
fyrsta skipti og fékk að taka einn
óskarinn með mér heim hugsaði ég:
„Þetta er frábært." Það er alltaf
gaman að pæla í því í hverju maður
eigi að vera og allt það en núna í ár
ætla ég ekki að fara, það er í fyrsta
sinn í ellefu ár sem ég fer ekki.“
Af hverju?
„Bara til að fá smá frí, þetta get-
ur nú orðið svolítið of mikið, þetta
tekur ótrúlega mikinn tíma, í fyrra
þegar ég var kynnir tók það nokkra
mánuði i undirbúning."
Hugh Laurie
Hugh Laurie er fjölhæfur maður
og íslendingar kannast öragglega
við hann úr þáttunum um þá kump-
ána Jeeves og Wooster og eins úr
Black Adder-þáttaröðinni. Hugh