Morgunblaðið - 18.04.2000, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjaldgæf baktería greinist meðal pílagríma í Sádí-Arabíu
Starfsfólki Atlanta
boðið upp á meðferð
við heilahimnubólgu
STARFSFÓLKI Atlanta, sem kom
til Keflavíkurflugvallar í fyrrinótt
frá Sádí-Arabíu, var við heimkom-
una boðið upp á fyrirbyggjandi með-
ferð við heilahimnubólgu, en nokkuð
hefur borið á henni meðal pílagríma,
sem ferðast með flugfélaginu. Þetta
kom fram í samtali Morgunblaðsins
við Guðmund Hafsteinsson, starfs-
mannastjóra Atlanta, en hann sagði
að allir starfsmennirnir, um 80 tals-
ins, hefðu þegið meðferðina.
„Þetta var gert að frumkvæði
landlæknisembættisins," sagði Guð-
mundur. „Við fengum upplýsingar
um það hjá embættinu að komið
hefði upp mjög sérstakt afbrigði af
heilahimnubólgufaraldri í Sádí-Ar-
abíu, reyndar í mjög litlum mæli, en
afbrigði sem menn eru almennt ekki
bólusettir fyrir.
Við ákváðum að gera það sem við
gætum til að fyrirbyggja að okkar
starfsmenn bæru skaða af þessu og í
samvinnu við sóttvarnalækni var
tekið á móti fólkinu, sem kom flest
með einni flugvél og Haraldur
Briem, sóttvarnalæknir hjá land-
læknisembættinu, var á staðnum og
gaf fólki töflu við þessu og tók sýni.“
Guðmundur sagði að þeim starfs-
mönnum, sem nú væru staddir í
Sádí-Arabíu, yrði boðið upp á sömu
lyfjagjöf og að hér eftir yrðu allir
starfsmenn sem færu héðan til Sádí-
Arabíu bólusettir sérstaklega fyrir
þessari tegund af heilahimnubólgu.
Sýklalyfíð drepur bakteríuna
Haraldur Briem sagði að land-
læknisembættinu hefðu borist upp-
lýsingar um það að pílagrímar hefðu
í auknum mæli greinst með heila-
himnubólgu og að þar sem margir
íslendingar væru í Sádí-Arabíu við
störf hjá Atlanta hefði verið ákveðið
að bregðast við tíðindunum með
þessum hætti.
„Þetta er mjög óvenjuleg aðgerð
hjá okkur, við höfum ekki gert svona
áður, en þetta er líka óvenjuleg upp-
ákoma og maður verður að bregðast
við svona löguðu fljótt," sagði Har-
aldur.
Að sögn Haralds á sýklalyfið sem
fólkinu var gefið að drepa bakter-
íuna. Hann sagði að tekin hefðu verið
sýni til þess að ganga úr skugga um
hvort einhver hefði smitast, en flest-
ir sem smitast veiktust ekki.
Reynt að náigast bóluefni
Haraldur sagði að til væru nokkr-
ar tegundir af bakteríum sem valda
heilahimnubólgu og þrjár þær al-
gengustu hétu A, B og C, en auk
þeirra væru til sjaldgæfari bakteríur
og ein slík hefði einmitt greinst með-
al pílagrímanna og bæri hún heitið
W135. Hún væri þó ekkert hættu-
legri en hinar þijár.
Haraldur sagði að A-bakterían
væri algengust í Afríku, en B og C
hefðu báðar gert vart við sig hér-
lendis. Hann sagði að til væru bólu-
efni við bakteríum A og C, en ekki B
og því væri hún erfiðust viðureignar,
en rúmlega helmingur tilfella hér-
lendis væri af völdum B-bakteríunn-
ar. Haraldur sagði að til væri bólu-
efni gegn W135, en hingað til hefði
það ekki verið til hér á landi og því
hygðust heilbrigðisyfirvöld nálgast
það eins fljótt og auðið væri.
Boltafimi
á Ingólfs-
torgi
ÞAÐ voru ekki nema þeir allra
hörðustu sem klæddust sumarfatn-
aði í höfuðborginni um helgina, því
þó sumarið nálgist óðfluga var svalt
í veðri. Raunar var hann svo napur
í miðbænum um helgina, að ýmsir
settu frekar undir sig höfuðið,
brettu upp kragann og örkuðu
áfram.
Ein góð leið til að halda á sér hita
er að leika sér með bolta og þá er
ekki verra að hafa þá nokkra og
skemmta sér og öðrum vegfarend-
uin í lciðinni.
Á Ingólfstorgi er oft skemmtileg
stemmning á vorin, sumrin og
haustin, þegar ungviðið leikur listir
sínar, hvort sem er á hjólabretti,
línuskautum, eða öðrum hjálpar-
tækjum tómstundalífsins.
Þessi ungi maður íklæddur stutt-
ermabol og brosandi skóm, sýndi
boltafimi sína öllum þeim sem vildu
á Ingólfstorgi. Svo virðist sem einn
ungur vegfarandi hafi a.m.k. kunn-
að að meta listina.
Morgunblaðið/Ómar
Morgunblaðið/Ásdís
Þórólfur Jónsson hjá garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar, Jónas Vigfús-
son, þjónustu- og upplýsingafulltrúi borgarverkfræðings, Sigurður
Skarphéðinsson gatnamálastjóri og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri kynntu átak í hreinsun borgarinnar.
Átak í hreinsun borgarinnar
Aldrei komið jafn
illa undan vetri
„BORGIN hefur aldrei komið jafn
illa undan vetri og nú,“ sagði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri um leið og kynntar voru að-
gerðir borgaryfirvalda í hreinsun
borgarinnar á næstu vikum og mán-
uðum. „Það er kunnara en frá þurfi
að segja að við Iá að jökull lægi yfir
borginni í vetur með miklum snjó
sem leiddi til þess að þær 150 millj-
ónir króna sem áætlaðar voru til
snjómoksturs á öllu árinu eru upp-
urnar. Við gerum því ráð fyrir auka-
fjárveitingu næsta vetur.“
Miklar skemmdir
Borgarstjóri sagði að miklar
skemmdir, sem hugsanlega hafi orð-
ið af völdum snjómoksturstækja,
hafi komið í ljós þegar snjóa leysti.
Víða meðfram götum og gangstétt-
um eru skemmdir á grasi, kantstein-
um og girðingum og skilti eru beygl-
uð. „Svo er það allt ruslið sem kemur
undan snjónum," sagði hún. „Við
þessu verður að bregðast sem fyrst
hér í borginni og það áður en við fá-
um sumarfólkið til starfa, sem að
jafnaði kemur ekki fyrr en um miðj-
an maí. Það gengur ekki. Af hálfu
borgarinnar eru því fyrirhugaðar
miklar aðgerðú- en við þurfum að
leita liðsinnis borgarbúa, fyrirtækja
og stofnana um aðstoð við að koma
borginni í sæmilegt horf.“
Leitað til íþróttafélaga
Gert er ráð fyrir að farið verði í al-
menna hreingerningu á óvenjulega
miklum sandi sem liggur á götum og
gangstéttum. Jafnframt verður leit-
að til íþróttafélaga og reynt að fá þau
til liðs við borgaryfirvöld við að
hreinsa borgina. „Gangi það eftir þá
verður hafist handa strax eftir
páska,“ sagði borgarstjóri. „Á næstu
dögum verða send bréf til stofnana
og fyrirtækja í borginni og þau beðin
um að taka til í kringum sig. Það er
mjög víða þar sem fyrirtæki eru með
stórar lóðir og mikinn gróður að þar
sest mikið af pappírsrusli og drasli.
Þetta er víða við verslanir, bensín-
stöðvar og skyndibitastaði. Eg sé
teikn á lofti um versnandi umgengni
í borginni. Ekki hjá einstaklingum
heldur á opnum svæðum.“
Malbikið
óvenju slæmt
í máli Sigurðar I. Skarphéðins-
sonar gatnamálastjóra kom fram að
hreinsun gatna og gönguleiða til
næstu fimm ára hafi verið boðin út í
upphafi ársins. Gert er ráð fyrir að
árlegur heildarkostnaður sé 85 millj-
ónir. Sagði hann að unnið væri að
hreinsun flesta frostlausa daga árs-
ins en vorhreinsun hæfist yfirleitt
fyrstu dagana í apríl. Gert er ráð fyr-
ir að hreinsun sé lokið um miðjan
júní.
„Malbik hefur komið óvenju illa
undan vetri og er verra en sést hefur
í áratugi," sagði Sigurður. „Áætluð
fjárveiting nægir ekki og er unnið að
endurskoðun og mati á fjárþörf í við-
bót við þá áætlun sem fyrir liggur.
Fyrirhugað var að hefjast handa í
þíðukaflanum í byrjun mánaðarins
en framkvæmdir hafa gengið hægt
vegna frosta en það verður hafist
handa af fullum krafti um leið og
veður leyfir.“
Gatnamálastjóri minnti á að tíma
nagladekkja væri lokið en honum
lauk 15. apríl. sl.
Hreinsunarvika
í byrjun næsta mánaðar standa
borgaryfirvöld að vanda fyrir hreins-
unarviku og eru borgarbúar þá
hvattir til að laga til í görðum sínum
og næsta umhverfi og mun borgin
sjá fyrir ruslapokum og fjarlægja þá
íbúum að kostnaðarlausu.
Þjónusta númer eitt!
Til sölu MMC Pajero 2800 tdi,
5 dyra, sjálfskiptur, nýskráður
16.06.1999, ekinn 8. þ. km, 32
tommu, breyttur, spoiler,
varadekkshlíf, álfelgur.
Verð 3.290.000.
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu, sími 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-I8
laugardagar kl. I2-I6
BÍLAÞINQfEKLU
Mvmcr c-trt Í nobí?i‘iv bffvm!
Laugavegi 174,105 Reykjavík. sími 569-5500
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
Andlát
ÞÓRA EINARSDÓTTIR
ÞÓRA Einarsdóttir
lést á dvalarheimilinu
Seljahlíð föstudaginn
14. apríl sl., 87 ára að
aldri. Þóra var hvata-
maður að stofnun Fé-
lagssamtakanna
Verndar og var for-
maður samtakanna yf-
ir 20 ár. Hún var for-
maður Indlandsvina-
félagsins og var þekkt
fyrir störf sín að líkn-
armálum í Indlandi.
Þóra fæddist á
Hvanneyri í Borgar-
firði 10. febrúar árið
1913, dóttir Einars
Jónssonar, yfirverkstjóra í Reykja-
vík, og konu hans, Guðbjargar
Kristjánsdóttur.
Þóra lauk prófi frá Samvinnu-
skólanum árið 1931. Hún nam fé-
lagsfræði í Danmörku
í tvö ár og vann þá að
fangamálum á vegum
Dansk Forsorgssel-
skab.
Þóra var hvatamað-
ur að stofnun Verndar
og varð heiðursfor-
maður samtakanna
eftir að hún sagði af
sér formennsku árið
1980. Hún var formað-
ur Hjálparnefndar
stúlkna um árabil og
beitti sér fyrir vistun
drykkjusjúkra á hæl-
um, skólum og heimil-
um erlendis.
Þóra átti sæti í félagsmálaráði
Reykjavíkur í eitt kjörtímabil, sat í
endurhæfingarráði frá stofnun til
1979 og var í Mæðrastyrksnefnd
um 20 ár, lengst af í stjórn hennar.
Hún sat í stjórn Kvenfélags Al-
þýðuflokksins í Reykjavík, þar af í
10 ár sem varaformaður og var rit-
ari í stjórn Kvenréttindafélags ís-
lands um skeið.
Á starfsferli sínum kynnti Þóra
sér félagsmálastörf erlendis, m.a. í
Englandi, og tók þátt í ráðstefnum
víða um heim.
Þóra gaf út og ritstýrði tímarit-
inu Vernd frá 1970-1980. Árið 1971
var hún sæmd Riddarakrossi hinn-
ar íslensku fálkaorðu.
Eiginmaður Þóru, Jón Péturs-
son, prófastur á Kálfafellsstað, lést
árið 1973. Eftirlifandi börn þeirra
eru Pétur, framkvæmdastjóri í
Reykjavík, Helga Jarþrúður, hús-
móðir í Reykjavík, og Einar Guðni,
sóknarprestur á Kálfafellsstað.
Útför Þóru verður gerð frá
Dómkirkjunni í Reykjavík þriðju-
daginn 25. apríl nk.