Morgunblaðið - 18.04.2000, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Rúnar Gíslason með stdrfiskinn úr Geirlandsá.
Einn sá stærsti
EINN stærsti sjóbirtingur sem hér
hefur veiðst seinni árin veiddist fyrir
nokkrum dögum í Gen-landsá og var
frá honum greint í veiðiþætti Morg-
unblaðsins á sunnudaginn.
Nánar um fiskinn er, að hann var
10 pund, en það sem mest kom á
óvart var hve langur hann var, eða 92
sentimetrar, að sögn Svavars Ell-
ertssonar sem var við ána umræddan
dag. Veiðifélagi Svavars, Rúnai-
Gíslason, veiddi fiskinn á maðk í Ár-
mótum og var hálftíma og kljást við
hann.
Magnús Jóhannsson, fiskifræðing-
ur á Suðurlandsdeild Veiðimálastofn-
unar, sagði í samtali við Morgunblað-
ið, að fiskurinn gæti verið á bilinu 10
til 15 ára gamall. „Þetta eru getgátur,
ég hef ekki séð hreistursýni af hon-
um, en ég held ég hafi ekki séð eldri
urriða en 15 ára og þessi gæti verið á
bilinu 10 til 15 ára. Hann gæti hafa
tekið þátt í hrygningu 5 til 6 sinnum."
FRÉTTIR
Lengsta beina flug með íslenska farþega frá fslandi
Þetta er alveg
yndislevt ..annanil"
FLOGIÐ var beint frá Keflavík til
Höfðaborgar í Suður-Afríku á
sunnudag og var þetta lengsta
beina flug sem farið hefur verið
með íslenska farþegavél frá Is-
landi, en flugið tók rúmlega 12 og
hálfa klukkustund. Farið var á TF-
ATH, Boeing 747-300, þotu flugfé-
lagsins Atlanta og voru farþegar á
leið í ferð á vegum Heimsklúbbs
Ingólfs til Suður-Afríku.
Vélin var fullsetin, í henni voru
412 manns, 392 farþegar og 20
manna áhöfn. Arngrímur Jóhanns-
son forstjóri Atlanta var flugstjóri,
ásamt Gunnari Karlssyni, því
vegna lengdar flugsins þurfti tvö-
falda áhöfn flugmanna.
„Þetta eru stærstu farþegavélar
í heimi, það eru um 350 tonn sem
fara í loftið," sagði Arngrímur í
samtali við Morgunblaðið rétt fyr-
ir flugtak. Hann sagði síður en svo
erfiðara að fljúga svona stórri
þotu en lítilli og að flugtak og
lending væru jafnvel auðveldari
og þægilegri.
„Þetta er alveg yndislegt app-
arat. Þetta er eiginlega betra en
nokkur önnur vél. Það er bæði
mikill kraftur í þessu og svo er
þetta örugglega mýksta farartæki
sem þú ferðast í.“
Arngrímur sagði að bæði flug-
Morgunblaðið/Ásdís
Arngrímur Jóhannsson, forstjóri Atlanta, var annar flugstjóra í þessu
nær 13 klukkustunda Ianga flugi.
menn og áhöfn Atlanta væru ekki
óvön svona löngu flugi, því pfla-
grímaflug þeirra væri yfirleitt um
ellefu klukkustunda langt.
Arngrímur rifjaði upp að þessi
sama leið hefði verið farin frá Is-
landi einu sinni áður. Snemma á
sjöunda áratugnum hefði gamli
Gullfoss verið sendur til Suður-
Afriku, þeirri för hefði Jóhannes
Snorrason stýrt, en hún hefði tek-
ið um fjóra til fimm daga.
Arngrímur flýgur enn mikið
sjálfur og segist hafa afar mikla
ánægjuaf því.
„Eg ætla að fljúga í nokkur ár í
viðbót, get gert það þangað til ég
verð 65 ára,“ sagði Arngrímur og
dreif sig inn í flugsljórnarklefann
til að búa vélina undir flugtak.
Morgunblaðið/Ásdís
Á gjörgæslu
eftir bílveltu
KONA á þrítugsaldri sem slasaðist
alvarlega í bílveltu við Hólmsá
snemma á sunnudagsmorgun, liggur
á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi. Konan var 20 til 30 mínút-
ur inni í bílflakinu, sem var næstum
á kafi í ánni, áður en tókst að ná
henni á þurrt. Er henni haldið sof-
andi í öndunarvél vegna drukknun-
areinkenna.
Bifreiðin skall á vegriði á brúnni
yfir ána áður en hún valt yfir brúna.
Við það gekk rör á vegriðinu í gegn-
um miðja bifreiðina en það vildi kon-
unni og bílstjóranum til happs að
rörið fór í gegnum bifreiðina rétt fyr-
ir aftan sæti þeirra. Að sögn lög-
reglunnar bendir allt til þess að sam-
ferðamaður konunnar hafi sofnað
undir stýri með fyrrgreindum afleið-
ingum.
Tilkynnt var um slysið klukkan
7.26 en.þá var bílstjórinn kominn út
úr bílflakinu, sem lá á hvolfi í Hólms-
ánni. Lögreglu- og slökkviliðsmenn,
sem komu á vettvang, óðu út í ána til
að ná konunni á þurrt. Talið er að
hún hafi verið 20 til 30 mínútur í bif-
reiðinni, sem fór næstum á kaf í ána.
Bæði voru flutt á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi en maðurinn
fékk að fara heim skömmu síðar.
Hátíð í lok vertíðar
STARFSMENN Malbikunarstöðv-
arinnar Höfða hf., sem sjá um snjó-
mokstur á götum borgarinnar að
vetrarlagi, gerðu sér glaðan dag
við Reynisvatn eftir erfíðan og ann-
ansaman vetur. Að sögn Vilbergs
Ágústssonaryfirverkstjóra, er
venjan að koma saman í lok vertíð-
ar en vöktum vegna snjómoksturs
lauk fyrr í mánuðinum. Fljótlega
taka svo við malbikunarfram-
kvæmdir þegar veður Ieyfir.
IGOTT VE.GANESH
FERMINGAR
BARNA
Passíusálmar
Hallgríms Péturssonar eru
komnir í nýrri útgáfu með
myndum
Barböru Árnason
N
Mál og menning
30 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
Haraldur rúmlega
hálfnaður á leið sinni
HARALDUR
Örn Ólafsson
pólfari gekk
19,9 km á leið
sinni á Norður-
pólinn á sunnu-
dag og sló þar
með persónu-
legt met sitt frá
30. mars er hann gekk 19,3 km á
einum degi. Haraldur er rúmlega
hálfnaður á leið sinni á pólinn, hef-
ur gengið alls 389 km og á eftir 384
km að pólnum. Veður á sunnudag-
inn var með allra besta móti og
skíðafærið mjög gott.
Haraldur lét vel af sér þegar
hann hafði samband við bakvarða-
sveit leiðangursins í hádeginu í
gær. „Ég á minna eftir en ég er
búinn að ganga. Það er alltaf
ánægjulegt að vera rúmlega hálfn-
aður,“ sagði Haraldur.
í hinu hagstæða veðri sem var á
sunnudag gat Haraldur leyft sér að
taka af sér hettuna á úlpunni í
fyrsta skipti síðan hann lagði af
stað fyrir 39 dögum. Færið var líka
með besta móti og lítið um vakir.
Haraldur sá aðeins tvisvar sinnum
litlar sprungur þar sem sást í óvar-
ið hafið. Að eigin sögn er hann
kominn yfir hættulegasta vaka-
svæðið. Hann fær sendar nýjar
birgðir með flugvél út á ísinn á
fimmtudag en þá kemur Ingþór
Bjarnason með Twin Otter-flugvél
First Air-flugfélagsins og færir
honum nesti og nýjan sleða.
Gæti náð pólnum
eftir þrjár vikur
Miðað við hvernig Haraldi hefur
gengið síðustu tuttugu daga má
reikna með að hann komist á pól-
inn eftir þrjár vikur, eða í kringum
10. maí. Hann sagðist vera farinn
að venjast einverunni á ísnum. „Oft
hef ég fundið fyrir því að vera einn.
Ég tel þó að erfiðasta tímabilið
varðandi einveruna sé að baki. Það
var erfiðast fyrst eftir að Ingþór
fór heim, en það hefur farið skán-
andi síðan þó svo mér hafi aldrei
liðið illa út af því. Ég er í mjög góðu
jafnvægi og lít framhaldið björtum
augum,“ sagði hann.
Tveir Svíar sem lögðu af stað á
pólinn sama dag og Haraldur og
Ingþór gera ráð fyrir að ná norður-
Ljósmynd/Ingþór Bjarnason
Haraldur Örn Ólafsson
pólnum í dag, þriðjudag, eftir
fjörutíu daga göngu, sem er met-
tími. Á pólnum er annar Svíi, Ola
Skinnarmo, sem komst þangað á
föstudaginn og bíður eftir að verða
sóttur.
Til gamans má geta þess að Ing-
þór, sem þurfti að snúa við af ísn-
um eftir 86 km göngu, verður lík-
lega á undan Haraldi á
norðurpólinn þrátt fyrir allt. Skýr-
ingin er sú að Twin Ótter-ílugvélin,
sem færir Haraldi birgðirnar,
verður í sömu ferð send eftir
Svíunum á pólinn og er óhjá-
kvæmilegt annað en Ingþór fari
með vélinni þangað.