Morgunblaðið - 18.04.2000, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn:
Vilia Auði upp
.a* ^ íza/ GMUhÍD
Það þarf ekki að ræða það, ég ætti nú bara ekki annað eftir en að skipta
kvótanum út fyrir eitthvert íhaldspakk.
Skrifað undir samning
Samiðnar og SA
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar, og Finnur Geirsson, for-
maður SA, takast í hendur eftir undirritun samningsins. Til hægri er
Ragnar Árnason, formaður samninganefndar SA.
SAMTÖK atvinnulífsins (SA) og
Samiðn - samband iðnfélaga - skrif-
uðu á laugardag undir kjarasamning
sem gildir frá undirskriftardegi til 1.
febrúar 2004, en er uppsegjanlegur
ári fyrr. Laun hækka um 3,9% við
undirritun og síðan um 3% við hver
þrenn næstu áramót, en síðasta
hækkunin er háð því að samningnum
verði ekki sagt upp.
Samningurinn er í samræmi við
aðra kjarasamninga sem undirritað-
ir hafa verið að undanfömu. Hann
nær til allra aðildarfélaga Samiðnar,
þ.e. félaga byggingarmanna, málm-
iðnaðarmanna, garðyrkjumanna og
hársnyrta. Aætlað er að á áttunda
þúsund félagsmanna Samiðnar taki
laun samkvæmt samningnum.
I kjarasamningnum er ný og sam-
ræmd launatafla fyrir aðildarfélög
Samiðnar. Kauptaxtar eru færðir
nær greiddum launum ú vinnumark-
aði án þess þó að það eigi sjálfkrafa
að leiða til meiri launabreytinga en
sem nemur almennum hækkunum.
Veikindaréttur er aukinn og einn-
ig réttur vegna veikinda barna. Þá
fjölgar orlofsdögum um einn eftir 10
ára starf hjá sama vinnuveitanda eða
í 28.
I
l
I
Tré-
rimlaglussa
25mm og 50mm
með og án borða
Margir litir
Frábært verð
Z-brautir &
gluggatjold
Faxafeni 14,
sími 525 8200
Ráðgjafarþjónusta Húsráða
Leiðbeiningar
o g sérfræði-
þjónusta
Fanny Tryggvadóttir
A
FYRRAVOR var ráð-
gjafaþjónusta húsfé-
laga - Húsráð - stofn-
uð. Tilgangur þessarar
þjónustu er að vera alhliða
ráðgjafaþjónusta fyrir hús-
félög samkvæmt upplýs-
ingum Fannyjar Rristínar
Tryggvadóttur, fram-
kvæmdastjóra Húsráða.
„Tilgangurinn er að
stjómir húsfélaga geti leit-
að á einn stað til að fá svör
og ráðgjöf varðandi þau
málefni sem snerta rekstur
húsfélagsins.“
- Hvaða málefni eru það
sem helst er leitað til Hús-
ráða með varðandi ráðgjöf?
„Viðhald og fram-
kvæmdir. Fólk er oft í
vandræðum með að fá
trausta fagmenn til að
vinna bæði lítil og stór verk. Um er
að ræða allt frá viðamiklum fram-
kvæmdum til smáviðgerða. Fólk
vill bæði fá iðnaðarmenn til starfa
og einnig ráðgjöf og aðstoð við að
afla tilboða í stærri verk. Þá má
nefna fyrirspumir um réttindi og
skyldur íbúa í fjöleignarhúsum,
rétta kostnaðarskiptingu, ákvarð-
anatöku í málefnum húsfélagsins,
þetta er það helsta sem spurt er
um varðandi lögfræðileg atriði.
Einnig er fólk að leita ráðgjafar
vegna endurskoðunar ársreikn-
inga húsfélaga. Svo vantar oft
eignaskiptasamninga og fólk er að
spyrjast fyrir hvemig eigi að
bregðast við vanskilum á húsgjöld-
um.“
- Eruð þið réttir aðilar til þess
að leita til vegna samskiptaörðug-
leika í fjöleignarhúsum ?
„Stundum heldur fólk að hægt
sé að hringja og fá utanaðkomandi
aðila til að leysa úr samskiptaerfið-
leikum í fjöleignarhúsum, en það
er ekki svona einfalt, húsfundur
verður að taka ákvarðanir í mál-
efnum húsfélagsins. Hins vegar
getum við í þess háttar málum sem
öðmm veitt ráðgjöf um í hvaða far-
veg mál þurfa að fara til þess að
lausn náist. Við upplýsum um rétt
fólks og hvaða leiðir húsfélag geti
farið til þess að leysa úr ágreiningi
og ekki síður reynum við að veita
ráðgjöf sem miðar að því að fyrir-
byggja samskiptaerfiðleika eða
önnur vandræði í húsfélögum."
- Hver var aðdragandinn að því
að Húsráð voru stefnuð?
„Það vom nokkrir aðilar sem
höfðu veitt húsfélögum sérfræði-
þjónustu um árabil sem sáu knýj-
andi þörf fyrir að sameina krafta
sína og hafa slíka þjónustu á einum
stað. Akveðið var að ganga til sam-
starfs við Islandsbanka sem hefur
lagt áherslu á að veita húsfélögum
góða þjónustu, það era því húsfé-
lög sem eru með sína þjónustu hjá
íslandsbanka sem geta gengið í
Húsráð. Aðild að Húsráðum kost-
ar 75 krónur á mánuði fyrir hverja
íbúð í húsfélagi."
-Hver er sú þjón-
usta sem boðið er upp á
að öðru leyti en fram
hefurkomið?
„Húsfélagið fær við
inngöngu fría ráðgjaf-
artíma hjá ýmsum sérf-
ræðingum, húsfélagið og einstakir
íbúar fá 12% afslátt af öllum við-
skiptum í Húsasmiðjunni, og einn-
ig afslátt hjá öllum sérfræðingum
sem að samstarfi við Húsráð
koma.“
- Eru erfíðleikar í húsfélögum
algengir hvað varðar samskipti
manna á milli?
„Já, það er því miður talsvert
► Fanny Tryggvadóttir fæddist í
Reykjavík 28. nóvember 1967.
Hún lauk stúdentsprófl 1986 frá
Menntaskólanum á Akureyri og
er að skrifa lokaritgerð í sljórn-
málafræði við Háskóla íslands
um þessar mundir. Hún starfaði
sem kennari eftir stúdentspróf,
hefur stundað tónlistarnám, var
framkvæmdastjóri Sinfón-
íuhljómsveitar æskunnar 1993 til
1996 en er nú framkvæmdastjóri
Húsráða, ráðgjafarþjónustu hús-
félaga. Fanny er gift Hans Haf-
steini Þoi-valdssyni vélvirkja og
eiga þau eina dóttur.
um það og oft út af því að fólk leit-
ar ekki faglegrar ráðgjafar eða
faglegrar þjónustu og er því rétt-
laust ef á því er brotið. Oft er verið
að taka ákvarðanir á ólöglegan
hátt; sé það gert geta einstakir
íbúar í vissum tilvikum neitað þátt-
töku í greiðslu sameiginlegs kostn-
aðar. Til dæmis heldur fólk oft að
ef tilskilinn meirihluti íbúa sam-
þykkir einhveija ákvörðun utan
húsfundar með undirskrift sé það
lögleg ákvörðun. Hún er það ekki
og þótt að 90% íbúa skrifi undir
slíkt plagg er ákvörðunin ólögmæt
og skyldar ekki þá sem ekki skrifa
undir til að taka þátt í kostnaði við
framkvæmdir eða hvað annað sem
plaggið hljóðar upp á.“
- Er víða pottw brotinn í
rekstri húsfélaga?
„Já, það er svo, til dæmis draga
menn stundum alltof lengi að setja
vanskil í lögfræðinnheimtu og hús-
félagið getur þannig misst lög-
veðsrétt. Ef krafan er meira en
ársgömul fellur þetta lögveð niður.
Framkvæmdaáætlanir em oft
ekki til staðar, ekki greitt í fram-
kvæmdasjóð og viðhald hússins
því mjög vanrækt. Það er mjög
dýrt þegar til lengdar lætur. Sam-
kvæmt rannsóknum verður við-
hald dýrara ef látið er reka lengi á
reiðanum og ástand hússins orðið
slæmt. Því miður dregur fólk
nauðsynlegt viðhald oft alltof
lengi. Þetta meðal ann-
ars veldur ósamkomu-
lagi í húsfélögum, sumir
sætta sig ekki við þetta.
Stundum halda fáir ein-
staklingar húsfélögum í
einskonar gíslingu hvað
vai'ðar ákvarðanir í nauðsynlegum
málum með þvermóðsku. Þá er
gott að hafa aðgang að leiðbeining-
um og sérfræðiþjónustu Húsráða,
þar sem lögð er áhersla á reynslu
og fagmennsku. Skráning í Hús-
ráð fer ft-am hjá þjónustufulltrú-
um Islandsbanka og nánari upp-
lýsingar getur fólk fengið hjá
Húsráðum."
Fáir einstakl-
ingar halda
húsfélögum í
gíslingu