Morgunblaðið - 18.04.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 18. APRÍ L 2000 13
FRÉTTIR
Niðurstöður viðamikillar könnunar á viðhorfum foreldra til grunnskóla Reykjavíkur
Almenn ánægja ríkir
með skólastarfíð
RÚMLEGA 80% foreldra í Reykja-
vík segjast vera ánægð með grunn-
skóla sinna barna og að skólunum sé
vel stjórnað. Þetta kemur m.a. fram
í viðamikilli könnun á viðhorfum for-
eldra til grunnskólanna í Reykjavík
sem Gallup gerði nýlega fyrir
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og
kynnt var í gær. Úrtakið í könnun-
inni var 3.000 manns og bárust svör
frá rúmlega 2.500 manns, eða um
85%.
í könnuninni kemur einnig fram
að foreldrar telja mikilvægt að bæta
kennslu í upplýsingatækni og vilja
auka við tölvukost skólanna. Þá
kemur fram að menntun foreldra
hefur áhrif á afstöðu foreldra til
þess hvaða námskröfur skólar eiga
að gera til barnanna og hvort að
skólar haldi upp nægjanlegum aga
meðal skólabarna.
Samkvæmt niðurstöðum í könn-
uninni eru 43,6% foreldra mjög
ánægð með grunnskólann sem barn
þeirra sækir, 37,9% eru frekar
ánægð og 13,5% eru í meðallagi
ánægð. Aðeins 1,1% foreldra eru
mjög óánægð og 3,9% frekar
óánægð. Flestir foreldrar eru auk
þess ánægðir með samskipti heimil-
is og skóla og langflestir telja að
börnum þeirra líði alltaf eða oftast
vel í skólanum, þótt nokkur munur
komi þar fram eftir aldri og kyni
barna. í bóklegum og verklegum
kennslustundum líður stúlkum bet-
ur en drengjum, en drengjum líður
betur í íþróttum. í kennslustundum
er yfirleitt algengara að bömum líði
vel eftir því sem þau eru yngri, en
fleiri unglingar en yngri börnum líð-
ur vel í frímínútum, að því er for-
eldrar telja.
Áhersla lögð á forvarnir gegn
einelti og bættan tölvukost
Foreldrum þykir skólarnir yfir-
leitt standa sig vel í kennslu ein-
stakra námsgreina, en mest er
ánægjan með lestrarkennslu hjá
1.-4. bekk, en þar fyrir utan var
mest ánægja með kennslu í ís-
lensku. Síst era foreldrar ánægðir
með kennslu í tölvunotkun og upp-
lýsingatækni, en aðeins um 55% eru
ánægð með þá kennslu. Hins vegar
er sú námsgrein ofarlega á blaði
þegar spurt er um hversu mikilvæg-
ar mismunandi námsgreinar eru
fyrir börn sem liður í undirbúningi
fyrir framtíðina. Þá þótti stórum
hluta foreldra kennsla í dönsku hjá
6.-10. bekk ekki góð.
Um tveimur þriðju hlutum for-
eldra þykir skólinn gera hæfilegar
námskröfur til barnanna, en tæp
30% telja þær of litlar. Þá telja um
22% að heimavinna sé of lítil, 70%
finnst hún hæfileg og 8% telja hana
of mikla. Foreldrum barna í 5.-10.
bekk finnst frekar en foreldrum
yngri barna að heimavinna sé of lítil
og að námskröfur séu of litlar.
Fram kom í könnuninni að for-
eldram með meiri menntun þóttu
kröfurnar of litlar og að heimanám
væri of lítið. Hins vegar töldu for-
eldrar með meiri menntun aga í
skólum vera hæfilegan, en um 64%
töldu aga hæfilegan og rúmlega 35%
að hann væri of lítill.
Flestir foreldrar vilja leggja
mikla áherslu á að bæta forvarnir
vegna eineltis og þar á eftir að bæta
tölvukost skólanna. í könnuninni
voru foreldrar beðnir um að for-
gangsraða þeim atriðum sem þeir
vilja leggja mikla áherslu á, og í ljós
kom að efst á blaði er að fækka nem-
endum í bekkjum, að efla forvarnir
gegn einelti, að bæta kjör kennara,
að bæta tölvukost skólanna og að
gefa nemendum kost á máltíð í há-
deginu. Nokkuð margir foreldrar
voru óánægðir með ýmsa aðstöðu í
skólanum og var meira en helming-
ur þeirra óánægður með aðstöðu
bamanna til að matast.
Oflugt tæki sem skólarnir
fá í hendurnar
Sigrún Magnúsdóttir, formaður
fræðsluráðs Reykjavíkurborgar,
segir að nú sé talsverð vinna fram-
undan við að vinna skýrslu fyrir
hvern skóla, en í þessum skýrslum
kemur fram afstaða foreldra til
þeirra skóla sem börn þeirra sækja
og er ætlað að vera hjálpartæki í að
bæta skólastarfið.
„Þetta er mjög gott fyrir okkur.
Að mörgu leyti fellur þetta saman
við það sem við höfum verið að
leggja áherslu á. Það er ekki nema
mánuður síðan við lögðum fram
stefnumörkun um matarmál í
fræðsluráði og teljum nauðsynlegt
að takast á við það. Við vitum um
vandamál varðandi tölvur, það hefur
verið stóraukinn tölvukostur til
skólanna, en við höfum kannski ekki
getað fylgt nógu vel eftir símenntun
kennara varðandi þann lið, þannig
að við sjáum að við þurfum að taka
okkur virkilega á varðandi þessa tvo
þætti,“ segir Sigrún.
Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslu-
stjóri Reykjavíkurborgar, segir að
þarna sé skólafólk komið með mjög
öflugt tæki í hendurnar til að bæta
skólastarfið. „Hér er mjög öflugt
tæki sem hver skóli fær í hendurn-
ar, bæði til að sjá hvað fólk er ánægt
með, það styrkir fólk að sjá að það
er að gera vel. Og síðan er ekkert
síðra að sjá hvað þyrfti að bæta. Það
er ekkert víst að fólki sé það svo
ljóst hvað það er sem fólki finnst
fara aflaga í skólunum. Eg er sann-
færð um að þetta mun skila sér og
við munum auðvitað fylgja því eft-
Það er eitthvað meira við
égane Break
Verð 1.588.000 kr.
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Mégane Break Grand Comfort
Break hefur nú aukið forskotið. Hann státar ekki aðeins af
meiri öryggis- og þægindabúnaði og stærra farangursrými
en aðrir skutbílar í sama flokki heldur fæst nú í sérstakri
Grand Comfort útgáfu; enn betur búinn.
Komdu og prófaðu stærri og betur búinn bíl.
RENAULT