Morgunblaðið - 18.04.2000, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 15
AKUREYRI
Atta smnum a
verð frá
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
.730 kr .meðflnjvallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is
Aðalfundur Kaupfélags Eyfírðinga haldinn um helgina
Brátt lokið við að fyrir-
tækjavæða dótturfelög
FYRIRTÆKJAVÆÐING Kaupfé-
lags Eyílrðinga einkenndi síðasta
rekstrarár félagsins, en það tók
miklum breytingum á liðnu ári,
breyttist úr rekstrarfélagi í eignar-
haldsfélag. Dótturfélögum KE A hef-
ur nú verið skipt upp í hlutafélög, en
einungis á eftir að breyta kjötiðnað-
arsviði félagsins í þá átt og sagði Ei-
ríkur S. Jóhannsson kaupfélags-
stjóri á aðalfundi um helgina að það
yrði gert innan tíðar.
„Við höfum verið að fikra okkur
inn á nýjar brautir með von um að
þannig verði arðsemi af rekstrinum
meiri. Áhersla var lögð á það allt síð-
asta ár að fyrirtækjavæða dótturfé-
lög KEA og er því nú nánast lokið,“
sagði Eiríkur.
Kaupfélag Eyfirðinga var gert
upp með 383,4 milljóna króna hagn-
aði á liðnu ári, en í máli kaupfélags-
stjóra kom fram að mikill viðsnún-
ingur hefði orðið í rekstri sjávar-
útvegsfyrirtækisins Snæfells
milli ára og er nú bjartara
framundan á þeim bæ. Þá
varð rekstrarbati einnig
nokkur hjá Matbæ, hlutafé-
lagi um verslunarrekstur
KEA.
Fleiri verslanir verða
opnaðar á næstunni
Sagði Eiríkur að félagið
myndi láta meira að sér kveða
á þessu sviði í framtíðinni, í
síðustu viku var opnuð Nettó-
verslun á Akranesi, en fyrir
eru Nettó-verslanir á Akur-
eyri og í Reykjavík og er í bí-
gerð að fjölga slíkum verslun-
um á höfuðborgarsvæðinu. Þá
rekur Matbær einnig verslan-
ir undir nöfnunum Strax og
Urval. Þá gat kaupfélags-
stjóri þess að það yrði eflaust mikU
lyftistöng fyrir uppbyggingu versl-
unar í Eyjafirði þegar Glerártorg,
verslunarmiðstöð við Glerá, verður
opnuð í haust.
Kaupfélagsstjóri gerði erfiðleika
systurfélags KEA, Kaupfélags Þing-
eyinga, KÞ, að umtalsefni en KEA
tók við rekstri þess er félagið var við
það að komast í þrot í fyrravor. Sagði
hann að þegar svo færi fyrir elsta
kaupfélagi landsins væri ekki óeðli-
legt að mál væru hlaðin tilfinningum
og margt sagt, en hann gæti fullyrt
að KEA hefði unnið af fullum heil-
indum og nú væri um eina heild að
ræða.
Átakaár að baki
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
stjómarformaður KE A sagði síðasta
ár hafa einkennst af meiri átökum en
hliðstæða væri fyrir í sögu félagsins,
en jafnframt hefði það markað upp-
haf að nýjum grunni. Jóhannes Geir
sagði tækifærin hvarvetna liggja í
loftinu og félagið myndi leggja sitt af
mörkum til að efla atvinnu- og mann-
líf á Norðausturlandi á nýrri öld.
Hann sagði aukna fjármuni, sem
varið verður til menntunar verka-
fólks á landsbyggðinni og kveðið er á
um í nýjum kjarasamningi, bera vott
um mikla framsýni og gefa fyrirheit
um að óhætt væri að slá á tóna
bjartsýni hvað framtíðina varðar.
Jóhannes Geir kvaðst lengi hafa
haldið því fram að miklar duldar
Morgunblaðið/Margrét Þðra
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, formaður stjórnar KEA, Hlífar Karlsson
mjólkurbússtjóri MSKÞ á Húsavík, Haukur Halldórsson í Sveinbjamar-
gerði og Erlingur Teitsson á Brún ræða málin á aðalfundi kaupfélagsins
en þar var samþykkt að ganga frá samningi við mjólkurframleiðendur á
svæðinu á grundvelli þeirra samningsdraga sem fyrir Iiggja.
Attræður öðlingur
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
ÓLI Kristjánsson á
Skútustöðum er átt-
ræður { dag. Af því
tilefni er fagnaður í
Selinu síðdegis og
þangað boðið ætt-
ingjum og vinum.
Foreldrar Óla,
þau Kristján Helga-
son frá Haganesi og
Soffía Jónsdóttir úr
Klömbur, keyptu
Ijórðung úr Skútu-
stöðum árið 1930 og
fluttust þangað frá
Haganesi með son-
um sínum þrem þeim
Jóni f. 1910, Yngva f.
1916 ogÓlaf. 1920
og er hann nú einn eftir þeirra
bræðra. Kaupverð jarðarpartsins,
12 þús. kr., var mikið fé á þeim
krepputfmum sem þá vom, en með
vinnusemi, spamaði og ekki síst
með silungsveiði úr Mývatni eignuð-
ust þau jörðina, sem nú, 70 ámm
síðar, ber vitni um myndarskap og
snyrtimennsku sem einkennt hefur
búskap fjölskyldunnar. Óli heldur
heimili með mágkonu sinni, Ing-
veldi Bjömsdóttur, f. 1919, frá Ósi í
Skilmannahreppi, hún er ekkja eftir
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Óli Kristjánsson 80 ára.
Yngva Kristjánsson.
Óli á listrænan
streng sem m.a. hef-
ur komið fram f
hannyrðum, leiklist
og ekki síst í mynd-
listinni, en á sextugs-
aldri fór hann að
mála landslags-
málverk og blóma-
myndir með góðum
árangri. Nú er þeim
þætti lokið fyrir
nokkrum árum
vegna sjóndepru,
sem gerir honum
ókleift að sinna
myndlistinni. Um 40
ára skeið var Óli
meðhjálpari í Skútustaðakirkju.
Glaðlyndi, hógværð og hlýtt við-
mót einkennir alla framgöngu Óla,
sem enn er beinn í baki og léttur í
spori, hann fór í fjósið til Bjöms
bónda hálfsjö í morgun eins og alla
aðra daga og sinnti þar verkum sín-
um af meðfæddri alúð og snyrti-
mennsku.
Þess sá stað í dag að margir áttu
erindi við Óla á Skútustöðum til að
fagna með honum og óska góðrar
heilsu og velfamaðar.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Aðalfundarfulltrúar rýna í ársskýrslu
Kaupfélags Eyfírðinga.
eignir væra innan KEA. Hann
greindi frá því að það hefði að mati
stjórnar félagins verið prófmál á
slíkt þegar Húsasmiðjan keypti
byggingavörudeild KEA, en félagið
hélt eftir 20% hlut í Húsasmiðjunni.
Sá hlutur var seldur fslandsbanka
nú nýlega og fékk KEA um hálfan
möljarð í sinn hlut.
Stjórnarformaðurinn gerði sjávar-
útvegsmál að umtalsefni í ræðu sinni
og sagði að uppstokkun á rekstri
Snæfells væri nú að skila árangri.
Hann ræddi þá ákvörðun stjórnar
Snæfells sem studd var af stjóm
KEA að loka pökkunarstöð félagsins
í Hrísey. „Við hefðum getað farið
auðveldu leiðina og haldið áfram
starfsemi í Hrísey þó allir hafi vitað
að engin skynsemi væri í því og við-
haldið þannig störfum í eynni þó
enginn grundvöllur væri fyrir því,“
sagði Jóhannes Geir. Hann sagði að
betra hefði verið að taka strax á mál-
um þó sársaukafullt væri. í kjölfarið
yrði atvinnulíf í eynni líka fjölbreytt-
ara og heilbrigðara þar sem ekki
þyrfti að teysta á einn stóran at-
vinnurekanda.
A aðalfundinum var samþykkt til-
laga stjórnar um heimild fundarins
til að ganga frá samningi við mjólk-
urframleiðendur á grandvelli þeirra
samningsdraga sem liggja fyi-ir.
Einnig var samþykkt tillaga
stjórnar um að greiða 10% arð af
nafnverði samvinnuhlutabréfa í B-
deild stofnsjóðs.
Vöru- og þjónustusýning
í íþróttahöllinni á Akureyri 12.-14. maí 2000
II*;/ / Nú gefst fyrirtækjum, stofnun-
y^-/A j. um, félagasamtökum og öðr-
-SfíAl5 ,á ' um sem áhuga hafa kostur á
að kynna starfsemi sína á fjöl-
breyttri sýningu.
Yfir
aðilar hafa nú tryggt sér sýningarpláss.
Hvað með fyrirtækið þitt?
Sýnendur eiga þess kost að
kaupa sýningarpláss í aðalsal
íþróttahallarinnar, anddyri eða
á malbikuðu útisvæði.
IMú fer hver að verða
síðastur að tryggja
sér pláss.
Frá sýningunni 1998
Allar nánari upplýsingar:
Fremri kynningarþjónusta
símar 461 3666 og 461 3668. Bréfasími 461 3667. Netfang: fremri@nett.is
Atvinnuþróunarfélag
Hy'jafjarðar