Morgunblaðið - 18.04.2000, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 18.04.2000, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR18. APRÍL 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Tal semur við Nortel Networks um GPRS-búnað Fyrsta skrefið yfir í þriðju kynslóð farsíma Ibrahim Almoor, yfirmaður farsímalausna Nortel Networks í Evrópu, og Þórólfur Árnason, forstjóri Tals hf., undirrita samninginn. Sturla Böðvars- son samgönguráðherra fylgist með. FULLTRÚAR Tals hf. og Nortel Networks undirrituðu í gær samning um kaup og uppsetningu á búnaði til að gera háhraða þráðlausa gagna- flutninga mögulega í GSM-kerfí Tals. Um er að ræða nýja tækni, svokallað GPRS-kerfl, og með því stígur Tal fyrsta skrefið yfir í þriðju kynslóð farsíma, að því er fram kom á frétta- mannafundi í gær. Verðmæti samningsins nemur tveimur milljónum dollara eða tæp- um 150 milljónum króna. AIls mun Tal fjárfesta fyrir um 200 milljónir króna í þessu skyni í GSM-kerfinu á þessu ári. Þegar er byrjað að setja upp hluta af nauðsynlegum búnaði hjá Tali og er áætlað að þjónustan verði komin í gagnið fyrir lok ársins. Mun meiri gagnaflutningshraði Gagnaflutningshraði með GPRS- tækninni mun verða allt að 170 kíló- bit á sekúndu en til samanburðar má nefna að flutningsgeta ISDN-línu er um 64 kb/sek. Tilkoma GPRS-þjón- TÆKNIFYRIRTÆKIÐ Netverk hefur átt í viðræðum við erlenda fjár- festa um kaup á hlutafé í fyrirtækinu. Netverk sendi frá sér yftrlýsingu í gær, þar sem segir að um sé að ræða ustunnar er viðbót við GSM-kerfið og breytir engu um notkum GSM-sím- tækjanna sem þegar eru í notkun, að því er íram kemur í tilkynningu. samningaviðræður um kaup á nokk- urra milljóna dollara hlut í fyrirtæk- inu. Viðræður þessar eru enn í gangi og er búist við að niðurstaða úr þeim verði ljós seinni hluta maímánaðar. Hægt verður að tengja fartölvur og lófatölvur við Netið í gegnum GSM-símtæki sem geta nýtt sér GPRS. Slíkir símar munu gera ein- staklingum kleift að nota bankaþjón- ustu og gera innkaup, auk þess sem hægt verður að miðla WAP-upplýs- ingum gegnum GSM-kerfið hraðar en hingað til hefur þekkst, að því er fram kom á fréttamannafundi Tals í gær. Einnig kom fram að greiðslur vegna GPRS-gagnasamskipta verða að öllum líkindum inntar af hendi fyr- ir það magn upplýsinga sem fer um GSM-kerfið, samkvæmt alþjóðlegum staðli. Netverk í viðræðum við erlenda fjárfesta Atvinnu-, rað- og smáauglýsingar Auglýsingatexta og fullunnum auglýsingum, sem eiga að birtast á skírdag, fimmtudaginn 20. apríl, þarf að skila fyrir kl. 16.00 þriðjudaginn 18. apríl. AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is Lækkun á hluta- brefum 24 fyrir- tækja á VÞI Mest viðskipti með bréf FBA en mesta lækkun á bréfum Skýrr ÚRVALSVÍSITALA hlutabréfa á Verðbréfaþingi íslands lækkaði um 2,89% í gær og var við lok viðskipta 1.696 stig. Hlutabréf 24 fyrirtækja á aðallista VÞÍ lækkuðu en bréf tveggja hækkuðu. Viðskipti með hlutabréf á VÞÍ í gær námu alls 549 milljónum króna. Hlutabréf Skýrr hf. lækkuðu mest hlutabréfa á VÞÍ, um 13,5%, en heildarvelta með hlutabréf Skýrr nam 41,3 milljónum í 25 viðskiptum. Mest viðskipti voru með hlutabréf FBA fyrir 143 milljónir og lækkuðu bréfin um 3,6% frá fyrra degi. 66 milljóna króna viðskipti voru með hlutabréf Össurar hf., sem lækkuðu um 2,6%, og bréf Marels lækkuðu um 3,1% í 51 milljónar króna við- skiptum. Auk hlutabréfa Skýrr hf. urðu miklar lækkanir á bréfum SÍF eða 9,7%, bréf Nýherja lækkuðu um 7,7%, bréf SH um 7,5% og hlutabréf í Pharmaco lækkuðu um 7,1%. Hlutabréf tveggja félaga hækkuðu, Olíufélagsins um 2,5% í 7,5 milljóna króna viðskiptum, og bréf Samherja um 0,8% í 13,3 milljóna króna við- skiptum. Tryggvi Tryggvason, sérfræðing- ur hjá Viðskiptastofu Landsbank- ans, segir lækkanir hér heima fyrst og fremst orsakast af lækkunum á hlutabréfum í Bandaríkjunum. Hann segir áhrifin eðlileg þar sem íslenskir fjárfestar beri í vaxandi mæli saman erlenda og innlenda fjárfestingarkosti og sjái ekki ástæðu til að kaupa íslensk hluta- bréf á háu verði á sama tíma og er- lend hlutabréf lækki. Fjárfestar snúa sér að skuldabréfum Tryggvi segir að bandarískar verðbólgutölur hafi haft mikil áhrif á lækkun Nasdaq-vísitölunnar fyrir helgi og sömu áhrif megi greina hérlendis þar sem fremur óhag- stæðar verðbólgutölur birtust á föstudag. Hann segir að hér heima eins og ytra hafi fjárfestar í auknum mæli snúið sér að skuldabréfum og ávöxtunarkrafa þeirra lækkað í kjölfarið. Á íslenska markaðnum lækkaði t.d. ávöxtunarkrafa hús- bréfa um 14-15 punkta í gær, að sögn Tryggva. Að mati Tryggva mun framhaldið á hlutabréfamörkuðum einkennast af óróleika, óvissu og sveiflum. Hann bendir á að úrvalsvísitalan hafi ekki lækkað niður fyrir það sem hún var um síðustu áramót og langt frá því að um endalok sé að ræða. Tryggvi telur bréf tæknifyrirtækja og bankanna þau seljanlegustu á markaðnum og eðlilegt að mestar lækkanir hafi orðið í þeim geirum. Væntanlegir kaupendur að eigninni Mýrargötu 26 í Reykjavík hafa uppi áform um að breyta húsnæðinu í íbúðar- eða verslunarhúsnæði. Fær Mýrargata 26 nýtt hlutverk? VIÐRÆÐUR eru í gangi um kaup nokkurra iðnaðarmanna á húseign- inni Mýrargötu 26 í Vesturbæ Reykjavíkur. Fasteignasalan Frón annast söluna og segir Finnbogi Kristjánsson fasteignasali að líklegt kaupverð hlaupi á hundruðum millj- óna króna. Húsnæðið, sem áður hýsti Hrað- frystistöðina, er í eigu nokkurra ein- staklinga sem keyptu eignina ekki alls fyrir löngu. Finnbogi segir að skrifað hafi verið undir viljayfirlýs- ingu um kaupin, en kaupendurnir eru nokkrir ungir iðnaðarmenn. Þeir Fréttir á Netinu vfg> mbl.is _AL.LTAP e/TTHV'AO ISIÝTT hafa unnið við að gera upp gamlar risíbúðir, m.a. í Danmörku. „Þessir iðnaðarmenn hafa horft mjög til þess að fjárfesta í húsi við Reykjavíkurhöfn og breyta því. Ef af kaupunum á húsnæðinu við Mýrargötu verður mun annarri og þriðju hæð hugsanlega verða breytt í íbúðar- eða skrifstofuhúsnæði. Verslunarhúsnæði yrði þá á jarð- hæð. í kjallara er stórt rými og eru hugmyndir um að breyta því í bíla- geymslu eða verslunarhúsnæði. Borgin hefur auðvitað með skipu- lagið á þessu svæði að gera og hefur því áhrif á hvernig húsnæðinu verð- ur breytt. Reykjavíkurhöfn á svo forkaupsréttinn að því,“ segir Finn- bogi. Hann býst þó ekki við að höfnin muni nýta sér þann rétt. Að sögn Finnboga kemur í ljós í byrjun mai hvort af kaupunum verð- ur. Hann segir að margir stöndugir fjárfestar og verktakar hafi hug á húsnæðinu og séu tilbúnir að kaupa, verði ekkert af kaupunum nú, enda sé um að ræða afar vinsælan stað í höfuðborginni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.