Morgunblaðið - 18.04.2000, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Villa í úrvinnslu talna
VILLA kom fram í úrvinnslu talna
úr verðkönnun Samstarfverkefnis
Neytendasamtakanna og ASI fé-
laga á höfuðborgarsvæðinu, sem
kynnt var í fjölmiðlum síðastliðinn
föstudag. Hafa aðstandendur
könnunarinnar ákveðið að breyta
framsetningu verðkannana á mat-
vöru og bæta upplýsingum um
beinar verðbreytingar hjá einstök-
um verslunum á milli kannana við
þær upplýsingar sem hingað til
hafa fylgt fréttatilkynningum. Þá
er beðist velvirðingar á villunni í
fréttatilkynningu frá samstarf-
verkefninu.
Finnur Árnason, framkvæmda-
stjóri Nýkaups hefur sent for-
manni Neytendasamtakanna bréf
þar sem farið er fram á að sam-
tökin biðji Nýkaup og starfsfólk
þess opinberlega afsökunar á því
að rangar upplýsingar um vöru-
verð í verslunum fyrirtækisins hafi
verið gefnar upp í fréttatilkynn-
ingu samstarfsverkefnisins fyrir
helgi.
Fundur hjá
Samkeppnisstofnun
Jafnframt fer hann fram á að
Neytendasamtökin kynni með
hvaða hætti þau hyggist koma í
veg fyrir að röngum og misvísandi
upplýsingum um vöruverð sé
dreift til fjölmiðla.
Segir Finnur að verið sé að
kanna réttarstöðu fyrirtækisins.
Lögfræðingur Nýkaups hefur
haft samband við Samkeppnis-
stofnun, samkvæmt upplýsingum
frá Guðmundi Sigurðssyni, for-
stöðumanni samkeppnissviðs
stofnunarinnar. Fundur verður
haldinn um málið í dag, þriðjudag,
og verður upp úr því ákveðið hvort
og þá hvemig brugðist verður við
af hálfu stofnunarinnar.
Hlutfallslegar verðbreytingar Breytingar á verði frá febrúar Hlutfallslegur verðsaman-
á milli verslana frá 1. febrúar til apríl. Vörur sem voru til í burður á höfuðborgarsvæðinu
til 12. apríl 2000 bæði skipti í hverri búð fyrir sig 12. apríl 2000
Þín versl., Seliabr. | 14,6% Þín verslun, Seliabr. | Mi 3.9% Nýkaup 106,7
Nóatún | I 3.5% Samkaup | 13.3% Þín verslun, Seljabr. 105,7
Samkaup | 11,8% Hagkaup I 12.5% Nóatún 105,0
11-11 □ 1,5% -0,4% D Nóatún Sparkaup 104,9
Nýkaup □ 0,9% -0,7% □ 10-11 11-11 103,8
Hagkaup Q 0,7% -1,8% i i Sparkaup Strax 103,6
10-11 □ 0,6% -2,2% I J Nýkaup Samkaup 102,1
-1,1% □ Fjarðarkaup -3,0% I I Fiarðarkaup 10-11 101,8
-1,7% | | Nettó -5,1 % t 111-11 Hagkaup 97,4
-2,6% I I Strax -6,6% I | Bónus Fjarðarkaup 94,8
-3.4% I I Bónus -7.0% I I Strax Nettó 88,1
-3.7% I i Sparkaup -9.21 HHsSri I Nettó Bónus 83,0
Framsetningu
verðkannana
breytt
Oll helstu
vítamín og steinefni
í einni töflu
L^heilsuhúsið
Skólavöröustíg, Kringlunni, Smöratorgi
AÐSTANDENDUR Samstarfs-
verkefnis Neytendasamtakanna og
ASÍ á höfuðborgarsvæðinu harma
það hversu auðvelt er að misskilja
framsetningu á niðurstöðum verð-
könnunar verkefnisins, sem birtar
voru í síðustu viku, og biðjast vel-
virðingar á að villa skuli hafa komið
fram í úrvinnslu gagnanna. Villan
fólst í því að dálkar víxluðust og hlut-
fallsleg hækkun Nýkaups miðað við
meðalverð var sögð 5,1% en er í raun
0,9%. Villan breytir þó ekki innbyrð-
is röð verslananna, að því er fram
kemur í frétt verkefnisins.
Framsetningin olli misskilningi
Ákveðið hefur verið að breyta
framsetningu verðkannana á mat-
vöru hér eftir. Niðurstöður verð-
kannana á matvöru verða eftirleiðis
birtar með þrennum hætti. Beinar
verðbreytingar hjá einstökum versl-
unum milli kannana verða birtar og
Léttar í soori
er það nýmæli. Auk þess verða
áfram birtar upplýsingar um hlut-
fallslega stöðu verslana á markaðn-
um miðað við meðalverðið 100 og
upplýsingar um verðbreytingar í
einstökum verslunum á milli kann-
ana að teknu tilliti til hlutfallslegrar
stöðu verslananna innbyrðis.
í frétt frá samstarfsverkefninu
segir að markmið með verðkönnun-
um sé að birta neytendum hvar
ódýrast sé að versla hveiju sinni og
hvernigröð verslana, frá þeirri ódýr-
ustu til þeirrar dýrustu, breytist frá
einni könnun til annarrar. Komið
hafi í Ijós að framsetningin hafi vald-
ið misskilningi. Misskilningurinn er
útskýrður svo í frétt frá samstarf-
sverkefninu: „Staða verslana er
reiknuð út frá meðalverði sem er sett
jafnt og 100. Þetta auðveldar neyt-
endum að sjá hvaða verslanir eru
fyrir ofan meðalverð og hverjar eru
fyrir neðan og hve miklu munar.
Þegar meðalverð lækkar mælist sú
verslun, sem ekki lækkar sitt verð
jafnmikið og aðrar, hlutfallslega dýr-
ari en áður. Lækki meðalverð mikið
getur verslun jafnvel lent í því að
hækka um mörg sæti á samanburð-
arlistanum og mælast langt fyrir of-
an meðalverð, jafnvel þótt hún hafi
lækkað verð. Skýringin er einfald-
lega sú að aðrir lækkuðu enn meira.“
Jffi
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
umboðsmenn um land a
Kaffi í
tilefni árþús-
undamóta
Kaffitár setti nýlega á markað kaffi
í tilefni árþúsundamótanna. Kaffið
fékk nafnið Tíaldarkaffi og er ein-
göngu selt í verslunum Kaffitárs í
Kringlunni og í Bankastræti.
Á þessu ári er liðinn áratugur
frá því að Kaffitár hóf innflutning
og brennslu á kaffibaunum frá
helstu kaffiþjóðum veraldar. Starf-
semin hefur vaxið ár frá ári og er
Þó að við tökum allar vörur sem athugaðar voru í febrúar og í apríl,
hefur verðið samt lækkað, segir Finnur Ámason.
Nýkaup kannar
réttarstöðu sína
NÝKAUP kannar réttarstöðu sína-
vegna þess hvernig niðurstöður
verðkönnunar Samstarfsverkefnis
Neytendasamtakanna og ASÍ-félaga
á höfuðborgarsvæðinu voru kynntar
í fjölmiðlum í lok síðustu viku.
„Við höíúm einnig haft samband
við Samkeppnisstofnun og lögfræð-
ingar og tölfræðingar eru að athuga
þetta fyrir okkur,“ segir Finnur
Ámason framkvæmdastjóri Ný-
kaups.
„Viðskiptavinur sem kemur til
okkar núna í apríl borgar minna en
sá sem kom í febrúar," segir Finnur
og bendir á að fullyrðing í fréttatil-
kynningu frá samstarfsverkefninu
um að verð í Nýkaup hafi hækkað um
rúm 5% sé því beinlínis röng. „Þó að
við tökum allar vörur sem athugaðar
voru í febrúar og nú í apríl, hefur
verðið samt lækkað,“ segir hann.
Samkvæmt gögnum Nýkaups yfir
þær vörutegundir sem voru athugað-
ar bæði í febrúar og apríl hefur sam-
anlagt verð þeirra út úr verslun
Nýkaups lækkað úr 15,252 kr. í
14.983 kr. eða um 1,76%.
Þegar verð þeirra vörutegunda
sem fengust í öllum verslununum 12
er lagt saman í hverri verslun fyrir
sig kemur í ljós að vöruverð í Ný-
kaupi er ekki hæst heldur tróna
Samkaup, Nóatún og Þín verslun á
toppnum.
í þágu hverra eru verðkannanir
í fréttatilkynningu samstarfsverk-
efnisins er þess sérstaklega getið að
vöruverð í Nýkaup hafi hækkað um
5,1% þrátt fyrir að Baugur hafi í síð-
asta mánuði hleypt af stokkunum
átaki gegn verðbólgu. Telur Finnur
að ekki sé hægt að skilja þennan boð-
skap frá aðstandendum samstarf-
sverkefnisins á annan veg en svo að
þeir vilji grafa undan trausti fólks á
fyrirætlunum Baugs. „Hver eru
markmið svona kannana ef þau eru
ekki í þágu neytenda?“ spyr Finnur
enn fremur.
Verðkannanir í matvöruverslun-
um í Reykjavík og nágrenni eru
gerðar reglulega á vegum samstarf-
sverkefnis Neytendasamtakanna og
ASI-félaga á höfuðborgarsvæðinu. I
könnuninni sem gerð var í síðustu
viku var verð 99 vörutegunda í 12
verslunum athugað. Misjafnt er frá
einni könnun til annarrar hvaða
vörutegundir eru til athugunar. Sú
verslun sem hafði flestar vörutegun-
dir til sölu í könnuninni nú í apríl
hafði 30 tegundum fleiri í hillum sín-
um en Bónus, þar sem úrvalið var
minnst.
Innan skekkjumarka?
Finnur segir að skýringin á því
hvers vegna mótbárur verslunar-
manna hafi hingað til ekki verið há-
værari þrátt fyrir að þessi verðkönn-
un hafi verið framkvæmd með sama
hætti og fyrri kannanir felist í því að
verslunarmenn hafi almennt ekki
mikinn áhuga á að standa í rökræð-
um við virt samtök á borð við Neyt-
endasamtökin og ASÍ. Nýkaup geti
hins vegar ekki unað því að niður-
stöður könnunarinnar skuli notaðar
til að draga markmið Baugs um við-
nám gegn verðbólgu í efa.
Finnur bendir á að í fyrri könnun-
um sem aðstandendur verðkönnun-
arinnar hafa staðið fyrir hafi komið í
ljós skekkjur upp á allt að 600 krón-
um, sem er 6% skekkja ef viðmiðun-
armatarkarfan kostar 10 þúsund
krónur. Samkvæmt því má segja að
5% hækkun sé innan skekkjumarka
og munurinn þar með ekki marktæk-
ur.
Skekkjumarka er ekki getið í
fréttatilkynningu samstarfsverkefn-
isins.
Gefi sér lengri tíma
En hvemig myndu Nýkaupsmenn
kjósa að neytendakannanir yrðu
framkvæmdar?
„Það þarf að hafa mun fleiri vörur í
könnununum en nú er,“ svarar Finn-
ur. ,Aðstandendur þurfa einnig að
gefa sér lengri tíma til að vinna úr
gögnunum áður en niðm-stöðumar
era birtar. Þessi könnun var fram-
kvæmd miðvikudaginn 12. apríl og
niðurstöður hennar birtar seinni
hluta dags fóstudaginn 14. apríl, um
svipað leyti og skrifstofum er lokað.
Frétt um 5,1% hækkun á vöraverði
vekur mun meiri athygli en frétt um
leiðréttingu. Hversu margir skyldu
hafa séð síðari fréttina? Þetta lítur
frekar út fyrir að vera pólitískt mál
en að verið sé að upplýsa neytendur.“
PHv l'
1
5
1
fjöldi starfsmanna nú 8 í kaffi-
brennslunni sem staðsett er í
Njarðvík og 20 á kaffihúsunum
tveimur í Kringlunni og Banka-
stræti.
Tíaldarkaffið, 250 g, kostar 440
krónur pokinn.
Nýr dreif-
ingaraðili
Armand heildverslun ehf., Nethyl
2 í Reykjavík, hefur tekið að sér
að flytja inn Mask-háralitinn frá
Daviness og dreifa til hárgreiðslu-
fólks.