Morgunblaðið - 18.04.2000, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Tillögur um bætta meðferð sjávarafla
Reglur um
kælingu
verðihertar
NEFND sem fjallað hefur um
bætta meðferð sjávarafla dagróðra-
báta leggnr til að heimild til að
koma með óslægðan afla að landi
verði þrengd yfír sumartímann og
að skarpar verði kveðið á um kæl-
ingu afla um borð í fiskiskipum.
Nefnd sem sjávarútvegsráðherra
skipaði í nóvember sl. og falið var að
athuga meðferð sjávarafla og koma
með tillögur til úrbóta væri þeirra
þörf hefur nú skilað tillögum sínum
og greinargerð til ráðherra. Nefnd-
in ræddi sérstaklega meðferð sjáv-
arafla hjá dagróðrabátum þar sem
þar hefur verið talið að misbrestur
væri á meðferð afla til að tryggja
bestu fáanleg gæði. Vitnar nefndin
m.a. í úttekt sem Fiskistofa gerði á
meðferð á afla dagróðrabáta á tíma-
bilinu 16.10. 1998 til 15.11. 1999 þar
sem mælt var hitastig í afla sem
dagróðrabátar komu með að landi
og kannað hvort afli væri ísaður við
löndun. Niðurstöður könnunarinnar
leiddu í ljós að 45% bátanna komu
með aflann óísaðan að landi. Meðal-
hitastig ísaðs afla reyndist vera
3,3°C en óísaðs afla 6,5°C.
Sífellt meira landað af óslægðu
Samkvæmt upplýsingum Fiski-
stofu liggur fyrir að löndun á
óslægðum afla dagróðrabáta yfir
sumarmánuðina hefur aukist mjög á
þeim árum sem liðin eru síðan leyft
var að koma með óslægðan afla að
landi. Árið 1995 voru 95% afla sem
komið var með að landi slægð en ár-
ið 1999 var þetta hlutfall komið nið-
ur í 22%.
Nefndin fjallaði ítarlega um hvort
skylda skuli dagróðrabáta til að
slægja allan afla um borð eða hvort
reglur ættu að vera óbreyttar og
áfram skuli leyft að koma með
óslægðan afla að landi. Samkvæmt
áliti sérfræðinga, sem nefndin kall-
aði til sín, upplýsingum verkenda
sem bárust nefndinni og reglum
sem gilda í Noregi um meðferð fisks
um borð í veiðiskipum er mögulegt
að halda sömu gæðum óslægðs og
slægðs fisks í ákveðinn tíma ef kæl-
ing fisksins fer niður í 0-4°C innan
sex klukkustunda frá því hann er
veiddur.
Þá segir í greinargerð nefndar-
innar að eftir að leyft var að koma
með óslægðan fisk að landi hafi víða
verið komið upp slægingarstöðvum
þar sem físki er safnað saman, jafn-
vel frá fleiri en einum löndunarstað,
og hann slægður. Oft hafi reynst
erfitt að manna þessar stöðvar um
helgar á sumrin og því hafi slæging
dregist, sem valdið hafi rýmun í
gæðum aflans. Þá hafi komið fram
að stöðugt sé unnið að bættri nýt-
ingu á slógi og tekist hafi að auka
verðmæti þess þannig að leyfi til að
koma með óslægðan fisk að landi ýti
undir þessa þróun.
Nefndin leggur því til að reglur
um heimild til að koma með óslægð-
an fisk að landi verði þrengdar yfir
sumartímann og jafnframt verði
skarpar kveðið á um kælingu á fiski
um borð í fiskiskipum sem landa
óslægðum afla. Lagt er til að skip-
um sem landa afla sínum daglega
verði ekki heimilt að koma með
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Lagt er til að heimild til að koma með óslægðan afla að landi verði þrengd og skarpar
kveðið á um kælingu aflans um borð f skipunum.
óslægðan afla að landi eftir kl. 24 á
föstudögum til kl. 24 á sunnudögum
á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst.
Úttekt verði
gerð í sumar
Þá leggur nefndin til að í núgild-
andi reglum verði kveðið á um lengd
tíma frá löndun til slægingar. Einn-
ig leggur nefndin til að settar verði
skarpari reglur um meðferð á afla
við löndun, þrifnað og umhirðu íláta
á löndunarstað og skylt skuli að afla
verði strax að löndun lokinni komið
fyrir á viðurkenndum geymslustað.
Þá leggur nefndin eindregið til að
Fiskistofu verði falið að gera úttekt
á hitastigi í afla við löndun og
notkun íss í afla dagróðrabáta á
tímabilinu 1. maí til 15. september
næsta sumar á sambærilegan hátt
og gert var árin 1998 og 1999.
Nefndin leggur auk þess mikla
áherslu á aukna fræðslu um með-
ferð afla sem landað er daglega.
Nefndin leggur til að Fiskistofa,
Landssamband smábátaeigenda, Rf
og Samtök fiskmarkaða komi á
fræðsluherferð nú í vor á þeim stöð-
um þar sem smábátaútgerð er mest.
Þar verði fjallað um meðferð afla
um borð, þ.e. blóðgun, þvott, kæl-
ingu og frágang fisks í ker, meðferð
afla við löndun auk almenns hrein-
lætis.
V eiðileyfissviptingum
verði beitt
Fiskistofa hefur upplýst að þegar
menn hafa verið staðnir að brotum á
reglum um þvott og kælingu afla
hefur Fiskistofa ekki gengið lengra
en að beita áminningum. Nefndin
hefur verið upplýst um að frekari
þvingunarúrræði eru fyrir hendi og
telur Fiskistofu eiga að beita þeim
þegar áminningar hafa ekki tilætluð
áhrif. Þau þvingunarúrræði sem um
ræðir eru sviptingar starfs- og/eða
veiðileyfa.
Að sögn sjávarútvegsráðherra
hefur þegar verið sett af stað
vinna til að hrinda tillögum nefnd-
arinnar í framkvæmd og má búast
við að áhrif frá þeim sjáist strax í
sumar.
Auka
eftirlit
RÚSSAR stefna nú að því að
taka upp gervihnattaeftirlit
með öllum eigin togurum og er-
lendum togurum, sem stunda
veiðar innan fiskveiðilögsögu
landsins. Nú er verið að leggja
síðustu hönd á undirbúning og
frágang eftirlitskerfis fyrir
Barentshaf, Eystrasalt, Kasp-
íahaf, Azov-haf og fiskimiðin úti
fyrir austurströnd landsins. í
upphafi þessa árs hafði eftir-
litsbúnaði verið komið fyrir í
meira en 1000 rússneskum tog-
urum og 200 erlendum fiski-
skipum. Þær útgerðir, sem ekki
taka upp eftirlitsbúnaðinn, fá
ekki kvóta og tekur eftirlitið til
skipa allt niður fyrir 24 metra á
lengd, sem stunda veiðar á
verðmætum fiskitegundum.
„Hvalamálin í póli-
tískri sjálfheldu“
FORMAÐUR íslensku sendinefnd-
arinnar á þingi CITES, samningsins
um alþjóðlega verslun með afurðir af
dýrum og jurtum í útrýmingar-
hættu, segist telja líklegt að þróun
mála varðandi afgreiðslu tillagna um
flokkun hvalastofna taki aðild að Al-
þjóðahvalveiðiráðinu til skoðunar að
nýju.
„Þetta mál er í pólitískri sjálf-
heldu. Hér er stefnan sú að breyta
ekki flokkun á hvalastofnum fyrr en
Alþjóðahvalveiðiráðið tekur afstöðu
tii stofnanna og hugsanlegra veiða
úr þeim, og síðan fara menn á fundi
hvalveiðiráðsins og tryggja að þar
geri menn ekki neitt,“ sagði Eiður
Guðnason sendiherra sem fer fyrir
íslensku sendinefndinni á CITES-
þinginu sem haldið er í Naíróbí í
Kenýa.
Hann sagði að mörg félagasamtök
sem berjast gegn nýtingu hvala-
stofna virtust hafa ótakmörkuð fjár-
ráð til að reka áróður gegn hvalveið-
um og beittu oft rangfærslum.
„Vísindarökin og önnur rök sem
styðja okkar mál eiga heldur erfitt
uppdráttar í þessu flóði,“ sagði Eið-
ur.
Tillögur Norðmanna um að breyta
flokkun á tveimur hrefnustofnum í
Norður-Atlantshafi, og tillögur Jap-
ana um að breyta flokkun á hrefnu-
stofnum í Suðurhöfum og gráhvölum
voru felldar á fundi CITES á laugar-
dag. Hefðu tillögurnar verið sam-
þykktar hefði það þýtt að takmörkuð
alþjóðleg viðskipti með afurðir af
þessum dýrum væru heimil. Eiður
sagði að þessi niðurstaða hefði verið
Norðmönnum og Japönum talsverð
vonbrigði. „Þeir sem eru andvígir
hvalveiðum hafa sig mjög í frammi
hér. Og vegna tengslanna sem eru
milli Alþjóðahvalveiðiráðsins og
CITES vísa þeir til veiðibannsins
sem hvalveiðiráðið setti á sínum
tíma, og segja að ekkert sé hægt að
aðhafast á vettvangi CITES fyrr en
Alþjóðahvalveiðiráðið er búið að
samþykkja nýja stjómunaráætlun
fyrir hvalveiðar. Það verk hefur tek-
ið mörg ár og því miðar mjög hægt,
enda þótt formaður Alþjóðahval-
veiðiráðsins hafi sagt hér að þessu
verki sé næstum lokið; aðeins eigi
eftir að ganga frá eftirlitsþættinum.
Þessar þjóðir sem tala hæst um að
bíða verði eftir Alþjóðahvalveiðiráð-
inu fara síðan héðan á fund hvalveiði-
ráðsins til að tryggja að þar gerist
ekki neitt,“ sagði Eiður. Hann sagði
að Ástralir hefðu lýst því yfir í sam-
tölum á CITES-þinginu að þeir væru
beinlínis í Alþjóðahvalveiðiráðinu til
að koma í veg fyrir að hvalveiðar
hæfust á ný. Þá hefðu fulltrúar ým-
issa landa Evrópusambandsins einn-
ig tekið mjög sterkt til orða.
„Þannig sagði fulltrúi Frakka að
Norðmenn þverbrytu reglur Al-
þjóðahvalveiðiráðsins, sem er auð-
vitað út í hött. Norðmenn mótmæltu
hvalveiðibanninu á sínum tíma og
eru óbundnir af því,“ sagði Eiður.
Norðmenn og Japanir lögðu fram
tillögu á CITES-þinginu um að um-
rædd tengsl CITES og Alþjóðahval-
veiðiráðsins yrðu rofin. Bandaríkja-
menn lögðu þá fram tillögu á móti.
Norska og japanska tillagan var síð-
an felld í morgun og þá drógu
Bandaríkjamenn sína tillögu til
baka.
Minnkandi
stuðningur
Norðmenn lögðu fram samskonar
tillögu um hrefnustofnana á síðasta
þingi CITES fyrir þremur árum og
þá fékk hún meirihluta atkvæða, en
náði ekki fram að ganga þar sem %
hluta atkvæða þurfti til. Því er ljóst
að stuðningur við málið hefur minnk-
að innan CITES.
Eiður sagði að það ætti sér ýmsar
skýringar, þar á meðal þá að skrif-
stofa CITES og framkvæmdastjóri
hefðu ekki leynt afstöðu sinni ti)
þessara tillagna og ýmis ríki, sem
ekki þekktu vel til málsins og hefðu
enga hagsmuni af því, hefðu tilhneig-
ingu til að hlýða því sem skrifstofan
segir.
„Skrifstofan gefur umsögn um
þessar tillögur. Fyrsta umsögn
skrifstofunnar var jákvæð hvað það
snerti að færa þessa hvalastofna úr
viðauka I í viðauka II en hafa núll-
kvóta. Síðan snýr skrifstofan við
blaðinu og leggur til að tillögunni
verði hafnað, vegna þess að önnur og
veigameiri rök séu fyrir því, eins og
tengslin við Alþjóðahvalveiðiráðið.
Þeir viðurkenna þannig í raun að það
séu ekki vísindaleg rök fyrir því að
hafa þessar hvalategundir í viðauka
I,“ sagði Eiður.
Þegar Eiður var spurður hvort
þessi niðurstaða undirstrikaði ekki
nauðsjm þess að íslendingar gengju
á ný í Álþjóðahvalveiðiráðið, væri
markmiðið að hefja hvalveiðar á ný,
sagði hann að ef flytja ætti út hval-
kjöt væri aðeins um einn markað að
ræða: Japan. Það hefði einnig komið
skýrt fram að Japanir myndu ekki
kaupa hvalafurðir af ríkjum utan Al-
þjóðahvalveiðiráðsins.
„Utanríkisráðherra sagði á þingi í
vetur að það kæmi vel til greina að
ganga aftur í hvalveiðiráðið. En það
er stjórnmálamanna að taka ákvörð-
un um það og mér vitandi hefur slík
ákvörðun ekki verið tekin. En ég
held að þetta mál, ásamt öðru, hljóti
að verða til þess að menn skoði þá
stöðu, í ljósi þess sem hér hefur
gerst,“ sagði Eiður.