Morgunblaðið - 18.04.2000, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 29
ERLENT
Scanpix Nordfoto
Hinrik prins flytur tölu í veislu sem haldin var til heiðurs Margréti Danadrott ningu í Kristjánsborgarkastala á
sunnudag. Frá vinstri á myndinni eru Alcxandra prinsessa, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, Sonja Nor-
egsdrottning, Hinrik prins, Silvía Svíadrottning, Haraldur Noregskonungur og Josephine Charlotte,
stdrhertogynja af Lúxemborg.
Afmæli drottningar víða fagnað
SEXTU GS AFMÆLI Margrétar
Danadrottningar var fagnað víða
um Danmörku á sunnudag. Tugir
þúsunda veifuðu danska fánanum og
hylltu drottningunaþegar hún birt-
ist á svölum konungshallarinnar um
hádegi og virtist Margrét hrærð yfír
þeim viðtökum sem hún fékk. „Mig
langar til að þakka ykkur sem kom-
ið hafið í dag,“ sagði hún og hleypti
danski sjóherinn 27 fallbyssuskotum
af til heiðurs drottningu.
Veisluhöldin hófust á laugar-
dagskvöld með sýningu í konung-
lega leikhúsinu og var flugeldasýn-
ing að henni lokinni. Si'ðdegis á
sunnudag ók Margrét í hestvagni
um Kaupmannahöfn og síðan var
boðið til veislu í ráðhúsi Kaup-
Reuters
mannahafnar og húsnæði danska
þingsins í Kristjánsborgarkastala.
„Hún er án efa einn best menntaði
þjóðhöfðinginn í sögu danska ríkis-
ins og hefur í gegnum 28 ára stjóm-
artíð súia verið fyrirmynd nútúna
drottinga," sagði Paul Nymp Rass-
mussen, forsætisráðherra Dana, í
ávarpi sínu.
Meðal gesta í veislu drottingar
vom sænsku, norsku og hollensku
konungsQölskylduraar, sem og
Taija Halonen forseti Finnlands og
Ólafur Ríignar Grúnsson forseti ís-
lands, en Ölafur færði Margréti silf-
urskjöld með fréttum úr Morgun-
blaðinu af fæðingu hennar.
Margrét tók við krúnunni 1972.
Síðan þá hafa vinsældir hennar farið
sívaxandi, líkt og sá fjöldi Dana sem
fagnaði afmæli drottningar ber best
vitni um, en að sögn lögreglu fögn-
uðu um 200.000 manns afmælinu á
götum Kaupmannahafnar á sunnu-
dag.
|>4»i Ajsturbakkiht
AÐALFUNDUR 2000
Aðalfundur Austurbakka h.f. verður
haldinn þriðjudaginn 25. apríl 2000
kl. 17.00 í heimkynnum félagsins að
Köllunarklettsvegi 2, 104 Reykjavík.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Breytingar á 23. gr. samþykkta
félagsins: Stjórnarmönnum verði
fjölgað úr 3 í 5.
3. Önnur mál.
Reikningar félagsins liggja frammi I
móttöku félagsins, en verða jafnframt
afhentir hluthöfum á fundinum.
Stjórn Austurbakka h.f.
*
Afram deilt um „Kiibudrenginn“
Leita ógildingar
á kyrrsetningu
Miarai. AP, AFP.
ASAKANIR um misnotkun gengu á
báða bóga í forræðisdeilu um „Kúbu-
drenginn“ Elians Gonzalez um helg-
ina. Ættingjar drengsins í Miami
hafa eiðsvarið fyrir rétti að Juan
Miguel Gonzalez, faðir Elians, hafi
misþyrmt drengnum móður hans en
faðirinn sakar á móti ættingjana í
Miami um að ráðskast með drenginn
og snúa honum gegn sér.
Bandaríska ríkisstjómin hefur far-
ið þess á leit að dómstólar ógildi úr-
skurð sem kyrrsetur Elian í Banda-
ríkjunum og kveðinn var upp sl.
fimmtudag. Verði brugðist við þeirri
beiðni geta bandarísk yfirvöld fært
Elian í hendur föður síns sem vill
halda með hann til Kúbu. Juan Migu-
el Gonzalez hefur þó sagst reiðubúinn
að bíða með heimför þar til áfrýjun-
ardómstóll úrskurðar í máli ættingja
Elians í Miami, en því aðeins að hann
hafi forræði yfir syni sínum á meðan.
Ríkisstjóm Bandaríkjanna hét því
á sunnudag að sýna festu við að binda
enda á málið, en hún hefur þegar úr-
skurðað að enginn nema faðir Elians
geti talað fyrir hans hönd varðandi
innflytjendastöðu Elians. Ættingj-
arnir í Miami reyna hins vegar að
draga fram þá mynd af Juan Miguel
að hann sé handbendi Fidels Castros,
leiðtoga Kúbu, og em stuðningsmenn
þeirra í Miami sama sinnis. Þá hafa
þeir eiðsvarið að Juan Miguel Gonz-
alez hafi misþyrmt móður Elians, og
syni sínum en Gonzalez neitar slíkum
ásökunum. Sjálfur sakar hann ætt-
ingjana um að misnota Elian og um
að hafa snúið syni sínum gegn sér.
Þeir hafi talið drengnum trú um að
móðir hans kynni að birtast á ný einn
góðan veðurdag - í Bandaríkjunum.
„Þetta er misnotkun," sagði Gonzalez
í viðtali í fréttaskýringarþættinum 60
mínútur nú um helgina.
\o\7 til é^rínölav^fa/ri
Blóðbankinn verður með blóðsöfnun og skráningu
nýrra blóðgjafa í húsi Rauða krossins, Hafnargötu 13,
Grindavík, í dag, þriðjudag kl. 10-18.
Blóðgjöf er lífgjöf.
fá)BLÓÐBANKINlN
— geföu meö hjarta
Marea Weekend ELX estiva
Otrúlega vel
útbúinn á kr:
Fjórir loftpúðar
Loftkœling með hitastýringu (AC
Stillanlegur hltablástur aftun')
Þrjú þriggja punkta belti í aftursœti
Fimm hnakkapúðar
Lúxusinnrétting
Samlitir stuðarar
Samlitir speglar og hurðaihandföng
Flalogen linsuaðalljós
Rafstýrðir og upphitaðir útispeglar
Rafstýrðir bílbeltastrekkjarar
Vökvastýri
Fjarstýrðar samlœsingar
Gelslaspllari 4x40 wött
Fjórir hátalarar
Rafdrifnar rúður að framan
Snúningshraðamœlir
Útihitamœlir
103 hestafla 1.6 Irtra 16 venlla vél
Tölvustýrð fjölinnsprautun
ABS hemlalœsivöm
EBD hemlajöfnunarbúnaður
Flœðarstilling á ökumannssœti
Rafstýrð mjóbaksstilling
Armpúði í aftursœtl
Vasi á miðjustokk
Vasar aftan á framsœtisbökum
Hœðarstilling á stýri
Lesljós í aftursœti
Lltaðar rúður
Þakbogar
Rœsivörn í lykli
þriðja bremsuljósið
Hiti, þurrka og rúðusprauta á afturrúðu
14" felgur
Stillanleg hœð aöalljósa
Tvískipt aftursœti
Hellklœtt farangursrými
Geymsluhólf í farangursiými
Tvískiptur afturhleri
Mottusett
Galvanhúðaður
8 ára ábyrgð á gegnumtœringu
Eyðsla skv. meginlandsstaðli 8,3 1/100 km
.•’*#
Istraktor ?°
BlLAR FYRIR ALLA
SMIOSBÚÐ 2 - OAROABÆ - S I Ml 5 400 800
M / / 1 w