Morgunblaðið - 18.04.2000, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 41
MENNTUN
Morgunblaðið/Jim Smart
Mathias Antonsson og Sandra Medina ásamt Sigrúnu Helgadóttur Hall-
beck sænskukennara, sem ásamt Ingegerd Narby sænskukennara hefur
haft veg og vanda af undirbúningi og framkvæmd nemendaskiptanna
hér á landi.
um í Reykjavík. Þannig taka því um
10 framhaldsskólar þátt í þessum
nemendaskiptum við Svíþjóð.
Þéttskipuð dagskrá
Agnebergsgymnasiet er tæplega
2.000 manna framhaldsskóli í Udde-
valla, skammt fyrir norðan Gauta-
borg. Níu nemendur þaðan, ásamt
þremur kennurum, tóku þátt í Islan-
dsheimsókninni að þessu sinni og létu
afar vel af ferðinni. Mathias, sem
reyndar hefur komið áður tál Islands,
sagði að kostirnir við nemendaskipti
sem þessi væru ótvíræð. „Menn geta
auðvitað lesið sér til um lönd og álfur,
en það jafnast ekkert á við að kynnast
landi og þjóð af eigin raun,“ sagði
hann. Aðspurð um helstu kosti og
galla við ísland og Islendinga sögðu
þau Sandra og Mathias að það besta í
fari íslendinga væri hversu vingjar-
nlegir þeir væru. Helsti ókosturinn
við landið væri hins vegar veðrið. „Á
einum degi getur maður upplifað hér
allar tegundir veðurfars," sagði
Sandra og fannst það augljóslega
ekki þægilegt.
Sænsku nemendurnir vora með
skipulagða dagskiá fyrir tímann sem
þeir vora hér: Þeir fylgdu gestgjöfum
sínum í skólann, fóra í heimsókn í
ýmsa skóla hér sem tengjast þeirra
eigin námsbraut, svo sem Listdans-
skóla íslands, Söngskólann, Leiklist-
arskólann, Fjölbrautaskólann í
Breiðholti og Menntaskólann við
Hamrahlíð. Flestir nemendanna að
þessu sinni eru á listabraut, en nokkr-
ir á samfélagsbraut, en Agnebergs-
gymnasiet býður upp á fjölbreytt úr-
val af brautum til stúdentsprófs. Þá
vora sænsku nemendurnir með í far-
teskinu skemmtilega og fróðlega dag-
skrá um heimslóðir sínar og annað
efni, sem þeir kynntu íslensku
sænskunemunum í sænskutímum.
Þá skoðuðu þau listasöfn, handrita-
safnið, farið í Alþingið, tekið viðtal við
ýmsa aðila og safnað upplýsingum.
Islensku framhaldsskólamir taka
þátt í að kosta skoðunarferðir ferðir
til Gullfoss og Geysis og í Bláa lónið.
Einnig hafa íslensku gestgjafarnir og
aðrir sænskunemar verið ötulir að
sýna sænsku jafnöldram sínum
hvernig íslenskir unglingar eyða frí-
tímum sínum, farið með þau í keilu, út
að borða og sitthvað fleira.
Islenska kennd í Uddevalla
Einn kennaranna, sem var með
hópnum, Lennart Áberg, var sænsk-
ur sendikennari við Háskóla Islands í
byrjun 9. áratugarins. Hann átti
frumkvæðið að því að nemendaskipt-
in komust á milli landanna. Það var
áhuga hans á Islandi að þakka, með
dyggum stuðningi samkennara hans,
Jan Brunnström og Rolf Brodin, sem '!
einnig vora með í heimsókninni, að nú
er boðið upp á áfanga í Agnebergs-
gymnasiet þar sem fjallað er um ís-
lenska tungu, landafræði, samfélag
og menningu. Krakkamir horfa með-
al annars á íslenskar kvikmyndir og
vakti „Cold Fever“ til dæmis mikla
lukku hjá þeim.
Nemendaskipti þessi hafa að allra
dómi heppnast mjög vel. Þau hafa
skilað sér á margvíslegan hátt, bæði í
auknum skilningi og kunnáttu nem-
endanna og skólafélaga þeirra um
lönd, þjóð og menningu hinna, að
ógleymdum hinum persónulegu'
tengslum sem myndast hjá ungling-
unum. Nemendur skrifuðust á og
kynntust þannig áður en þeir hittust.
Islandsförina munu sænsku nem-
endurnir svo kynna i samantekinni
dagskrá í skólanum sínum þegar
heim kemur.
Nýjar leiðir í mótun námsumhverfís
Húsnæðið mótist
af skólastarfínu
Á málþmgi um nýjar
leiðir 1 mótun námsum-
hverfís, sem haldið var á
Hótel Loftleiðum nýver-
ið, kynntu Bruce Jilk
arkitekt og Dan Bodette
skólastjóri þá leið sem
farin er í Minneapolis
við hönnun og undirbún-
ing skólabygginga.
HVERNIG verður skólahúsnæði
framtíðarinnar? Munu nemendur
hafa eigin skrifstofu eins og á
hverjum öðrum vinnustað? Upp-
lýsingasamfélagið kallar á breytt
skipulag í skólabyggingum fram-
tíðarinnar. Ef skipulag skólahús-
næðis á að fylgja þróun skóla-
starfs er ljóst að það þarf að
breytast nokkuð frá því sem nú
er. Nýjar skólabyggingar þarf að
skipuleggja út frá þörfum skóla-
starfsins. Eldri byggingar má
jafnframt laga að breyttum að-
stæðum. .
Þetta var viðfangsefni málþings
sem haldið var fyrir alla þá sem
koma að mótun skólahúsnæðis á
Hótel Loftleiðum þann 7. apríl
síðastliðinn. Málþingið var haldið
á vegum Arkitektafélags íslands,
Byggingadeildar borgarverkfræð-
ings, Fræðslumiðstöðvar Reykja-
víkur og Verkfræðinga-félags Is-
lands. Málþingið var opið öllum
þeim sem koma að mótun skóla-
húsnæðis, arkitektum og öðrum
hönnuðum, skólafólki, foreldrum,
fulltrúum skólanefnda og borgar-
og bæjarstjóma.
Hugmyndir mótaðar
fyrirfram
Á málþinginu kynntu banda-
ríski arkitektinn Bruce Jilk og
Dan Bodette skólastjóri leið sem
farin er í Minneapolis við hönnun
og undirbúning skólabygginga.
Hugmyndir um skólastarfið eru
mótaðar áður en hönnun bygging-
arinnar hefst. Arkitektar, skóla-
fólk og foreldrar vinna saman á
fyrsta stigi hönnunarinnar að því
að skilgreina skólastarfið og þarf-
ir samfélagsins. Skólabyggingin
er síðan hönnuð út frá þeim skil-
greiningum.
Bruce Jilk er starfandi arkitekt
í Minneapolis og hefur unnið við
hönnun skólabygginga í yfir 30 ár.
Dan Bodette er skólastjóri í fram-
Horft yfir miðju Egan-skólans í Minneapolis, sem hýsir skólasafnið.
Stofur á fyrstu hæð eru opnar inn í safnið. Myndin er tekin af svölum
á efri hæð.
haldsskóla í Minneapolis, Zoo
School, en hann er fyrsti skólinn
sem hannaður var eftir þessu
ferli.
I Minneapolis og víðar er innra
starf skilgreint áður en bygging
er hönnuð. Húsnæðið mótast af
skólastarfinu en ekki öfugt eins
og áður hefur verið.
Undirbúningur
fyrir breyttan heim
í erindi þeirra Bruce Jilk og
Dan Bodette kom meðal annars
fram að nauðsynlegt sé að undir-
búa nemendur í grunn- og
menntaskóla (high school) fyrir
nýjan og breyttan heim. Sam-
kvæmt rannsókn sem gerð var í
háskólanum í Minneapolis eru
vandamál skóla áður en komið er
á háskólastig aðallega á þremur
sviðum:
I fyrsta lagi eru flestir nemend-
ur úr tengslum við það sem er að
gerast í fjölskyldum þeirra, á
vinnumarkaði og í samfélaginu.
Margir unglingar bregðast við á
þann hátt að þeir fjarlægjast
námið og missa áhugann.
í upplýsingaþjóðfélagi nútím-
ans eru nemendur flokkaðir fyrir-
fram og þeim beint í einhvern
ákveðinn farveg sem er ósann-
gjarnt fyrir framtíðarmenntun
þeirra. Allir nemendur þurfa að
átta sig á því að símenntun er það
sem gildir.
í þriðja lagi vantar augljóslega
í menntakerfið, samkvæmt rann-
sókninni, það að setja markmið
sem fylgt yrði eftir í menntakerf-
inu.
Niðurstaða rannsóknarinnar
Tæknivætt umhverfí í skóla framtíðarinnar er leiðarljós í hönnun
skóianna. Nemendur og starfsfólk þarfnast fjölbreytts umhverfis og
opinna svæða og gert er ráð fyrir litlum básum fyrir fimm til tíu
manns í teymi. Auk þess er gert ráð fyrir stærra vinnuplássi og vinn-
usvæði fyrir einstaklinga.
sem hönnunarhópurinn gerði var í
stuttu máli á þá leið að skólarnir
ættu í framtíðinni að leggja ríkari
áherslu á hópvinnu, einkasamtöl,
teymisvinnu, lausn á vandamálum,
gagm-ýna hugsun og grunnþekk-
ingu á upplýsingatækni, þar sem
nemendur eru ólíkir að persónu-
leika og bakgrunni. Þeir hafa ólík
markmið, ólíkar venjur við að til-
einka sér fróðleik. Kennsluaðferð-
ir verði því að vera sveigjanlegar.
I Máli þeirra Bruce Jilk og Dan
Bodette á málþinginu kom enn-
fremur fram að til þess að skóla-
starf nái tilgangi sínum þurfa að
minnsta kosti fimm atriði að falla
saman, það er að segja nemendur,
umgjörð, aðferð, tími og starfsfólk
skólanna. Það ásamt dagskrá með
kröftugu innihaldi eru lykillinn að
árangursríkri endurskipulagningu
á skólunum framtíðarinnar.
Fram kom að best væri að
skipta nemendum í litla hópa í
starfsumhverfinu, skipt eftir
áhugasviði. Umgjörðin ætti að
innihalda allt sem samfélagið hef-
ur upp á að bjóða í menntaum-
hverfinu. Námsferlið og aðferðin
ætti að vera ein og styðja hvert
annað.
Kennslustundir ættu að vera
sveigjanlegar en skipulagðar mið-
að við eftirfarandi atriði:
a. Tími í kennslustofu.
b. Lærdómur í samfélaginu.
c. Tími kennara til þess að und
irbúa með samstarfskennurum.
Ennfremur þarf starfsfólk skól-
anna að vera hæft og starfa sam-
an. Annars konar skipulagning á
húsnæði kallar á annars konar
starfsfólk en nú er.
Breyttur skóli, ný námstækni
Þá kom ennfremur fram í máli
þeirra Jilk og Bodette það álit
þeirra að breyttur skóli kallaði á
nýja námstækni. Breyta þarf
mynstri sem felur í sér hvernig
kennarinn kennir og nemandinn
lærir. I framtíðinni mun stefnt að
því að upplýsa nemandann um
það hvert hann geti sótt sér upp-
lýsingar þannig að hann geti
stundað námið hvaðan sem er.
Ein niðurstaða þessa er að fatlað-
ir nemendur geta fylgt öðram
nemendum eftir með aðstoð tækn-
innar.
Helstu kostir tækninnar eru
þeir að hún felur í sér möguleika
á öðruvísi samskiptum, samvinnu
og hvernig fólk deilir upplýsing-
um á milli sín. Með tilkomu tækn-
innar eykst notagildi skólahús-
næðisins fyrir alls kyns
samkomur í bæjar- eða sveitarfé- i
laginu.
Ef nemendur eiga að vera
reiðubúnir til þess að taka þátt í
flóknum og breyttum heimi verða
þeir að kunna að nota þau tæki
sem fullorðnir nýta sér á vinnu-
stað, heima og í samfélaginu, að
mat þeirra Brace Jilk arkitekts
og Dan Bodette skólastjóra frá
Minneapolis.
skólar/námskeið
nudd
www.nudd.is
ýmislegt
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★)<
rii.. j.:i „a ■_i;<: u. j*
Fáðu tækin til að breyta lífi þínu
á lýðháskóla þar sem þú lærir aðferðir til að takast á við lífið og
finna gleði, ást og sjálfsvirðingu!
Skólinn er fyrir alla sem vilja þroska sjálfa sig!
16 og 20 vikna námskeið, auk 2 vikna námskeiða, sem þú getur raðað saman eins og best
hentar þínum tima. Kennslan fer fram á léttri dönsku. ★
★ Nemendur eru á öllum aldri, 18-80 ára, en meðalaldur er 42 ár.
★ ★ Verð (lengri námskeið): 650,- dkr. á viku. "
^ ★ Verð (styttri námskeið): 760,- dkr. á viku.
Innifalið I verði er kennsla, fæði, húsnæði og kennsluefni.
Hægt er að sækja um styrk hjá Norðurlandafélaginu (Foreningen Norden).
, Pú getur lesið meira um skólann á www.vhd.dk!
f) Kærar kveðjur frá
(j% VÆKSTH0JSKOLEN DJURSLAND
f Sunddalvej 1 - Ginnerup - 8500 Grená - Danmörku
1 Sími: 0045 8633 9188. Fax: 0045 8633 9167.
★
¥
¥
★
★
★
¥
★
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
■ FULLORÐINSFRÆÐSLAN
6eHS0bðmpPMiME»^R.
fíl®SRU0'fiy%áfiiS90IWfrRMce.is/f-f
t^BSlMÍÍMtOTOriPáSÍaTOiriFáskanám-
jááfWSBftSftk™,
JLAR: STÆ,
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★*
háskóla-
nSmiíSmmrm.
SjTiqsfMNMfetoðFTl/l^MEjgífeA/^
HSS-AbtDIfírjÁfoiBinnip^ vi^a
Ú^'jfení (^UÁfiist^fcvoWPÁ vÁÁr x"»í/
íiíyrólí <I8:!iÁJai9:!S(lfW14i|>þTikur x Pri/
SjyflÖLVItSSRÚSFáMS Naíflskcið: 25.
2BdL21#b. KR>4:1.8&0.-Vlkur x Pri/fim:
SttráúiéV *MkW<tl55.
Skráning í síma SS7 1ISS.