Morgunblaðið - 18.04.2000, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
T
SKAK
Hellisheimilið
SKÁKMENN HELLIS 1999
14. aprfl 2000
STÓRMEISTARINN Helgi Áss
Grétarsson var valinn skákmaður
Hellis 1999 á uppskeruhátíð félags-
ins sem haldin var um helgina.
Einnig var valin skákkona félagsins
og efnilegasti skákmaður. Skákkona
Hellis var einróma valin Anna Lilja
Gísladóttir. Valið á efnilegasta skák-
manni Hellis var hins vegar mjög
tvísýnt eins og á síðasta ári, en að
lokum var það Davíð Kjartansson
sem stóð uppi sem sigurvegari.
Baráttan um titilinn skákmaður
Hellis 1999 stóð á milli þeirra Hann-
esar Hlífars Stefánssonar og Helga
Ass Grétarssonar. Hannes hlaut tit-
ilinn 1998. Báðir náðu þessir stór-
meistarar góðum árangri 1999. Þeg-
ar upp var staðið skildi eitt atkvæði
meistarana að og að þessu sinni var
það Helgi Áss sem hreppti hnossið.
Hann var mjög virkur á síðasta ári
og hóf skákárið með þátttöku í Ril-
ton Cup í Svíþjóð í janúar. í febrúar
tefldi hann á alþjóðlegu skákmóti á
Bermúda þar sem hann hlaut 8’A v.
og hreppti 2. sæti. Frammistaða
ÞRIÐJUDAGUR 18. APRÍL 2000 45
-------------------------
Helgi Áss skákmað-
ur Hellis 1999
hans á mótinu svaraði til
2.637 skákstiga. Síðar í
febrúar tefldi hann í mjög
sterku skákmóti í Capelle
la Grande þar sem hann
hlaut 7 v. af 9 og lenti í 4.-
10. sæti. Frammistaðan var
enn betri en á Bermúda og
var upp á 2.715 stig. Hann
lauk síðan febrúarmánuði
með því að sigra á íslands-
mótinu í atskák og varð þar
með Islandsmeistari í at-
skák 1999. í mars tefldi
Helgi í A-liði Hellis sem
náði að sigra í Deilda-
keppni Skáksambands ís-
lands í fyrsta sinn. Helgi
Áss tefldi á 4. borði og fékk
6 v. af 7. Hann tefldi einnig
í sænsku deildakeppninni
og náði efsta sæti í suður-
deildinni með LASK-skák-
félaginu. I maí tefldi Helgi
á atskákmóti í Bamberg í
Helgi Áss Grétarsson, skákmaður Hellis
1999.
Þýskalandi þar sem hann hlaut 8 v.
af 11 og lenti í 3.-5. sæti. í sama
mánuði sigraði hann á 15 mínútna
móti í Prag í Tékklandi, hlaut 12 v.
af 13. í júlí komu út ný skákstig hjá
alþjóðasamtökum skákmanna,
FIDE. Helgi Áss var þá kominn
með 2.521 stig og hafði bætt við sig
62 stigum frá áramótum, sem er
óvenjulega mikil hækkun. Þar með
var hann orðinn fimmti stigahæsti
Islendingurinn. Það sýnir best hve
virkur Helgi var á þessu tímabili, að
hann hafði teflt 47 kappskákir sem
reiknuðust til stiga. Helgi hélt
áfram taflmennskunni og í júlí tók
hann þátt í alþjóðlegu skákmóti í
Andorra, þar sem hann lenti í 4.-12.
sæti, og síðan teíldi hann í hinu gríð-
arlega sterka tékkneska meistara-
móti þar sem hann lenti í 8.-21. sæti.
I ágúst lenti Helgi í 4.-5. sæti í hinu
glæsilega lokamóti VISA-stórbikar-
keppninnar, Norðurlandamótinu í
skák. í september deildi hann efsta
sætinu á íslandsmótinu í skák með
félaga sínum Hannesi Hlífari Stef-
ánssyni. Þeir háðu síðan einvígi um
Islandsmeistaratitilinn, þar sem
Hannes sigraði 2V4-1V4. I október
var Helgi kominn á 2. borð í A-sveit
Taflfélagsins Hellis í Deildakeppni
SI. Hann tefldi allar fjórar skákirn-
ar í fyrri hluta keppninnar og hlau’JT'
þrjá vinninga. í nóvember varð
hann síðan í fyrsta sæti á atskák-
móti sem haldið var í Príbram í
Tékklandi. í lok ársins hafði Helgi
hækkað aftur á stigum og var nú
kominn með 2.543 stig.
Ný og glæsileg skáksíða
Ný og glæsileg skáksíða var opn-
uð á Netinu fyrir nokkru. Síðan er á
strik.is, en einfaldast er að nálgast
hana með því að nota slóðina skak.is.
Þarna eru birtar daglegar fréttir af
skákmótum, auk þess sem vikulega ^
verður birtur pistill, ,,Þankastrikið“t'
um málefni sem tengjast skák.
Áskorenda- og opinn
flokkur hafínn
Áskorenda- og opinn flokkur
hófst í húsnæði Taflfélags Reykja-
víkur á laugardaginn. Þremur um-
ferðum er lokið (atskákir) og er
staðan á mótinu þessi:
1.-3. Davíð Kjartansson,
Tómas Björnsson,
Arnar E. Gunnarsson 3 v.
NNLJ AU
p
■ ■ .
nfgii
GARÐABÆR
Flataskóli - Kennarar
Garðabær auglýsir lausar til umsóknar
stöður grunnskólakennara við Flataskóla
skólaárið 2000-2001.
• Kennara í almenna bekkjarkennslu.
• Hálf staða í hönnun og smfði.
Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri
störf þurfa að berast Sigrúnu Gísladóttur,
skólastjóra, sem veitir nánari upplýsingar um
störfin í síma 565-8484.
Umsóknarfrestur er til 16. maí nk.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
Launanefndar sveitarfélaga og
Kennarasambands Islands.
Bæjarstjóm Garðabæjar hefur samþykkt að
greiða 7,5 stundir vegna næðis- og nestisstunda
til umsjónarkennara í 1 .-6. bekk.
Grunnskólafulltrúi
... .....
Fræðslu- og menningarsvið
AUSTURLEIÐ SBS
... aééfca^ á
Bílstjórar
AUSTURLEIÐ SBS óskar eftir að ráða til starfa
nokkra bílstjóra með réttindi til að aka hóp-
ferðabifreiðum með starfsstöð á eftirtöldum
stöðum:
Reykjavík,
Selfossi,
Vík,
Kirkjubæjarklaustri og
Höfti í Homafirði.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu félagsins
á Vatnsmýrarvegi 10, Reykjavík (BSÍ), Eyrar-
vegi 33, Selfossi, og hjá Garðari Óskarssyni,
Heiðabraut 3, Höfn í Hornafirði.
Nánari upplýsingar gefur Ómar Óskarsson á
skrifstofu félagsins á Vatnsmýrarvegi 10, (BSÍ)
Reykjavík, eða í síma 545 1717.
AUSTURLEIÐ SBS er ferðaþjónustufyrirtæki sem er með áætlunar-
ferðir um hálft ísland, eða frá Reykjavík og allt austur til Egilsstaða,
ásamt til helstu ferðamannastaða á Suður- og Suðausturlandi. Félagið
er einnig með um 20 bíla í hópferðum um landið.
AUSTURLEIÐ SBS,
Vatnsmýrarvegi 10,101 Reykjavík.
Sími 545 1717 - Fax 545 1718.
Netfang: austurleid@austurleid.is
— Heimasíða: austurleid.is.
HRAFNISTA
DVALARHEIMILI ALDRAÐRA SJÓMANIMA
Hvaða vinnutími
hentar þér?
Hrafnista Reykjavík
Borðsalir
Starfsfólk óskast í borðsal til framtíðar-
starfa. Mismunandi starfshlutfall í boði.
Magnús eða Guðrún Árnadóttir taka vel
á móti ykkur á staðnum eða í símum
568 9323/568 9500.
Komið og skoðið vinnustað með góðri
vinnuaðstöðu í fallegu umhverfi, þar
sem ríkir heimilislegt andrúmsloft.
Á Hrafnistuheimilunum búa í dag 545 heimilismenn.
Stefna Hrafnistu er að bjóða starfsfólki upp á öruggt og
skapandi vinnuumhverfi, þar sem hæfileikar hvers og eins
fái notið sín og veita heimilisfólki bestu umönnun og hjúkrun
sem völ er á.
Á báðum Hrafnistuheimilunum er rekin endurhæfingardeild
með sundlaug, tækjasal og hreyfisal, sem starfsmenn hafa
aðgang að. Mötuneyti á staðnum.
Utgáfu- og kynn-
ingarþjónusta
Við leitum að duglegu og metnaðarfullu
fólki til sölustarfa. Reynsla af sölu- og
markaðsmálum æskileg en þó ekki skil-
yrði. Tekjumöguleikar eru mjög góðir
fyrir hæfa einstaklinga.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „ÚK — 2002", fyrir 1. maí nk.
Útkeyrslubílstjóri
Óskum að ráða útkeyrslubílstjóra. Vinnutími
frá kl. 8-17.
Umsóknirsendist auglýsingadeild Mbl. merkt-
ar: „FK - 9549", fyrir 25. apríl.
Ungmennafélagið
Ármann
á Kirkjubæjarklaustri óskareftir áhugasamri/
sömum til að þjálfa fótbolta og frjálsar íþróttir
íjúní, júlíog ágúst. Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Sigurðardóttir í síma 487 4675.
U.M.F. Ármann, Kirkjubæjarklaustri.
„Au pair" London
„Au pair" óskast til London frá 1. maí í ca tvo
mánuði. Þarf að vera 18 ára eða eldri og reyk-
laus. Upplýsingar veitir Jóna í síma 554 0141.
ATVIIMMA OSKAST
Vinna óskast!
23 ára kk. óskar eftir vinnu. Er með verslunar-
próf og reynslu í afgreiðslu- og lagerstörfum.
Margt kemur til greina. Er með góð meðmæli
og er reyklaus! Get byrjað strax!
Upplýsingar í síma 867 8245.